Íslenska ríkið (
Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og
Landsvirkjun (
Guðjón Ármannsson lögmaður)
gegn
Brynhildi Briem, Hannesi Þór Sigurðssyni, Jóni Benjamín Jónssyni, Kristjönu Ragnarsdóttur, Erni Inga Ingvarssyni, Ólafi Arnari Jónssyni, Úlfhéðni Sigurmundssyni, Þóru Þórarinsdóttur og Ölhóli ehf (
Sif Konráðsdóttir lögmaður)
B o.fl. höfðuðu mál á hendur Í og L til ógildingar á þremur ákvörðunum stjórnvalda sem lutu að Hvammsvirkjun sem L hugðist reisa í neðri hluta Þjórsár. Ákvarðanirnar sem málið laut að voru leyfi Fiskistofu 14. júlí 2022 vegna framkvæmdanna, ákvörðun Umhverfisstofnunar 9. apríl 2024 um heimild til breytingar á vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna virkjunarinnar og virkjunarleyfi Orkustofnunar 12. september sama ár. Með héraðsdómi voru ákvarðanir Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar ógildar en hafnað var kröfu B o.fl. um ógildingu leyfis Fiskistofnunar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Umhverfisstofnun hefði veitt L heimild á grundvelli þágildandi a-liðar 1. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála til að breyta Vatnshlotinu Þjórsá 1 vegna byggingar virkjunarinnar. Samkvæmt greininni gat Umhverfisstofnun heimilað breytingu á vatnshloti sem hefði í för með sér að ekki væri hægt að ná fram umhverfismarkmiðum samkvæmt 11. gr. laganna þegar um væri að ræða breytingar, svo sem vegna mengunar eða í tengslum við loftslagsbreytingar, á vatnsgæðum, vistfræðilegum, vatnsformfræðilegum eða efna- og eðlisefnafræðilegum eiginleikum yfirborðsvatnshlots eða á hæð grunnvatnshlots. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að þágildandi a-liður 1. mgr. 18. gr. laga nr. 36/2011 yrði, í ljósi lögskýringargagna og meðferðar frumvarps til laganna á Alþingi, skýrður þannig að girt hefði verið fyrir að vatnshloti yrði breytt vegna áhrifa af framkvæmdum við að reisa vatnsaflsvirkjun. Gæti hvorki innri né ytri samræmisskýring leitt til annarrar niðurstöðu en yrði ráðin beint af orðalagi lagaákvæðisins. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ógilda ákvörðun Umhverfisstofnunar 9. apríl 2024. Þá var niðurstaða héraðsdóms um ógildingu virkjunarleyfis Orkustofnunar 12. september 2024 staðfest enda það lögum samkvæmt reist á því að heimild fengist til breytingar á vatnshlotinu. Með ógildingu á leyfi til breytingar á vatnshlotinu hefði grundvöllur virkjunarleyfisins þannig brostið. Loks var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna ógildingu leyfis Fiskistofu 14. júlí 2022. Ekki voru taldir slíkir annmarkar á leyfinu að leitt gæti til ógildingar þess. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.
Eydís Lára Franzdóttir, Guðni Kjartan Franzson, Sigríður Sólrún, Jónsdóttir, Ólafur Þór Jónsson, Reykjaprent ehf., Jón Gestur Ólafsson og Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (
Linda Íris Emilsdóttir lögmaður)
gegn
Sveitarfélaginu Vogum (
Ívar Pálsson lögmaður) og
Landsneti hf. (
Þórður Bogason lögmaður)
Stefndu, Sveitarfélagið Vogar og Landsnet hf., voru sýknir af kröfu um ógildingu framkvæmdaleyfis vegna lagningar Suðurnesjalínu 2.
Ógiltur var með dómi úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að kröfu stefnanda þar sem stefndi var ekki talinn hafa sýnt fram á þá lögvörðu hagsmuni í skilningi 3. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 er væru grundvöllur þess að hann gæti hér kært stjórnvaldsákvörðun til nefndarinnar.
Stefndi kynnti tillögu um þrjá framkvæmdakosti til veglagningar um Hornafjarðarfljót. Ekki náðist samkomulag um framkvæmdina og tók stefndi hluta af landi stefnenda eignarnámi. Stefnendur kröfðust þess að ákvörðun stefnda um eignarnámið yrði felld úr gildi. Ágreiningur stefnenda og stefnda laut að því hvort andlag eignarnámsins hefði verið ranglega tilgreint, hvort rökstuðningur um að breyta um vegleið hefði verið fullnægjandi, hvort gætt hafi verið meðalhófs við ákvörðunina og hvort byggt hafi verið á ófullnægjandi og úreltum gögnum. Ekki var fallist á að málsmeðferðin hefði verið í andstöðu við ákvæði vegalaga nr. 80/2007 og laga um framkvæmd eignarnáms nr. 11/1973. Þá var rökstuðningur stefnda fyrir vegleiðinni talinn vera fullnægjandi og byggður á viðunandi gögnum. Jafnframt var fallist á að sá samfélagslegi ávinningur og sjónarmið um aukið umferðaröryggi varðandi þá vegleið sem ákveðið var að fara vægju þyngra en röskun á eignarréttindum, umhverfi og kostnaði vegna framkvæmdanna við mat á meðalhófi. Var kröfum stefnenda því hafnað.
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu á breytingu á aðalskipulagi stefnda sem tók til lagningu Blöndulínu 3 í Skagafirði.
Vegna annmarka á rannsókn og umfjöllun Skipulagsstofnunar í tilefni af tilkynningu um fyrirhugaða byggingu á sólarkísilverksmiðju var ákvörðun hennar, þess efnis að ekki þyrfti að meta umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, felld úr gildi.
Stefndu sýknuð af kröfu stefnenda um ógildingu ákvörðunar um eignarnám og lagningar kvaða á land þeirra vegna lagningar háspennulínu. Ekki var fallist á að meðalhófs hefði ekki verið gætt við ákvarðanatökuna. Jafnframt var því hafnað að málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar eða aðrar reglur sem gilda um hina umdeildu ákvörðun hafi verið brotnar. Að mati dómsins var eignarnámsákvörðunin því hvorki talin andstæð ákvæðum stjórnarskrár eða almennra laga.
Geirlaug, Þorvaldsdóttir, Margrét, Guðnadóttir, Ólafur Þór, Jónsson, Reykjaprent, ehf, Sigríður, Jónsdóttir, Bjarney Guðrún, Ólafsdóttir, STV ehf, Skúli, Þorvaldsson og Katrín Þorvaldsdóttir (
Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)
gegn
Landsneti hf. (
Einar Farestveit hdl) og
og Sveitarfélaginu og Vogum (
Áslaug Árnadóttir hdl)
Framkvæmdarleyfi sem Sveitarfélagið Vogar gaf út til Landsnets hf., var dæmt ógilt.
Geirlaug, Þorvaldsdóttir, Margrét, Guðnadóttir, Ólafur, Þór Jónsson, Sigríður, Jónsdóttir, Bjarney, Guðrún Ólafsdóttir, Skúli, Þorvaldsson, Katrín, Þorvaldsdóttir, STV, ehf og Reykjaprent ehf (
Ásgerður Ragnarsdóttir hdl)
gegn
Landsneti hf (
Einar Farestveit hdl) og
Sveitarfélaginu Vogum (
Áslaug Árnadóttir hdl)
Hafnað var kröfu um ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins
Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundsdóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (
Karl Axelsson hrl)
gegn
íslenska ríkinu og Vegagerðinni (
Guðrún Margrét Árnadóttir hrl, Kristinn Bjarnason hrl, Magnús Baldursson hdl)
Í tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um H hafði V lýst þremur framkvæmdakostum. Áfrýjendur lögðu fram tvo framkvæmdakosti til viðbótar, sem þeir færðu rök fyrir að metnir skyldu samhliða kostum V. Í tillögu að matsáætlun sem V sendi til S í október 2006 var fjallað um þá framkvæmdakosti sem áfrýjendur lögðu til og hafnað að þeir yrðu teknir til mats. Í ákvörðun S 5. desember 2006 var fallist á matáætlunina með athugasemdum. V kærði ákvörðunina til umhverfisráðherra, sem með úrskurði 11. maí 2007 féllst á kröfu V um að felldur yrði úr gildi sá hluti hennar sem meðal annars laut að því að V skyldi meta framkvæmdakosti sem áfrýjendur höfðu lagt til. Áfrýjendur höfðuðu mál og kröfðust ógildingar á úrskurði umhverfisráðherra. Talið var að ekki væru slíkir formannmarkar á úrskurði umhverfisráðherra að ógildi varðaði. Þá var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að framkvæmdaaðili hefði forræði á því hvaða framkvæmdakostir uppfylltu markmið framkvæmdar, enda væri mat hans í þeim efnum reist á hlutlægum og málefnalegum grunni. Ekkert hefði komið fram í málinu er gæfi til kynna að leiðaval V hefði ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum. V hefði rökstutt að önnur leiðin, sem áfrýjendur lögðu til, stytti leiðina minna en aðrir kostir, umferðaröryggi væri áfátt þar sem hún lægi nærri þéttbýli og á henni væru margar tengingar við hliðarvegi. Talið var að þessi sjónarmið væru málefnaleg og vörðuðu tilgang og markmið framkvæmdarinnar með þeim hætti að ekki yrði haggað því mati framkvæmdaaðila að hafna þessum kosti til mats. Þá hefðu áfrýjendur ekki hrakið þau rök að hin leiðin væri innan þess öryggissvæðis sem krafist væri vegna flugvallarins. Var talið að þetta væri málefnaleg forsenda til að hafna sérstöku mati á þessum kosti. Þá fælist í úrskurði umhverfisráðherra að tvær aðrar leiðir, sem deilt var um, kæmu til mats með óbeinum hætti og því væri ekki forsendur til að ógilda hann á þeim grunni að þessar leiðir yrðu ekki metnar. Voru V og Í sýknuð af kröfum áfrýjenda.
Aðilar deildu um lagningu vegar í gegnum skóginn T. Leiðin var nefnd leið B og var ein þriggja leiða sem V lagði fram til mats í 2. áfanga lagningar Vestfjarðavegar. Skipulagsstofnun lagðist gegn vegi um T í úrskurði 28. febrúar 2006, þar sem vegagerð ásamt tilheyrandi efnistöku í T myndi að mati stofnunarinnar hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. V kærði úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra. Taldi V úrskurðinum áfátt hvað snerti umfjöllun um umhverfisáhrif og ávinning af lagningu vegar samkvæmt leiðum B og C. Ekki gæti talist ásættanleg niðurstaða að hafna leiðinni sem best væri með tilliti til umferðaröryggis á svo veikum grunni sem gert hefði verið. Umhverfisráðherra kvað upp úrskurð 5. janúar 2007, þar sem fram kom að þegar umhverfisáhrif fyrirhugaðrar framkvæmdar við leið B væru virt að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem settar væru fram í úrskurðarorðum og vægi umferðaröryggis féllist ráðherra ekki á að áhrif leiðar B væru umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi b. liðar 2. mgr. 11. gr. laga nr. 106/2000. Var leið B heimiluð, en með sex skilyrðum. Stefndu höfðuðu mál til þess að fá ógiltan þennan hluta úrskurðar ráðherra. Reistu þeir kröfu sína á því að á úrskurði ráðherra hefðu verið verulegir annmarkar. Ekki var fallist á að formannmarkar hefðu verið á úrskurði ráðherra. Stefndu reistu ennfremur kröfu sína á því að með úrskurðinum hefði ráðherra farið út fyrir heimild sína með því að fallast á leið B með tilliti til umferðaröryggis. Mótmæltu þeir því að áhrif framkvæmdar á umferðaröryggi vega væru meðal þeirra þátta sem fallið gætu undir skilgreiningu á hugtakinu umhverfi í skilningi laga nr. 106/2000. Talið var að tilhögun framkvæmdar V eftir leið B hefði meðal annars augljós áhrif á vegalengd og ferðatíma milli staða, snjóhreinsun og hálkuvarnir, slysahættu og umferðaröryggi og fleira sem gæti skipt máli við heildarmat á hagkvæmni framkvæmdarinnar. Eðli máls samkvæmt ættu slík atriði það sammerkt að vera grundvallarþættir í tilgangi og markmiði vegalagningar. Af þeim sökum gætu þau ekki jafnframt talist sjálfstætt til afleiðinga slíkrar framkvæmdar, sem horft yrði til við mat á umhverfisáhrifum hennar, en til þeirra mætti líta við mat á því hvort veitt skyldi leyfi fyrir henni. Þótt atriði þessi hefðu áhrif á aðstæður manna, samfélag þeirra, heilbrigði og atvinnu, gætu þau af þessum sökum ekki talist til umhverfisáhrifa í skilningi laga nr. 106/2000. Væri tekið tillit til umferðaröryggis nýja vegarins væri því tekið tillit til þáttar sem í raun væri ávinningur af framkvæmdinni en umhverfisáhrifin yrðu áfram óbreytt. Var því fallist á kröfu stefndu.
S kvað upp úrskurð 24. maí 2006 í annað sinn um mat á umhverfisáhrifum vegna lagningar vegarins G milli L og Þ í samræmi við 11. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, en umhverfisráðherra hafði fellt fyrri úrskurð S úr gildi 28. júní 2005. S féllst með fjórum skilyrðum á fyrirhugaða framkvæmd samkvæmt öllum leiðum, sem V lagði fyrir. P, einn eigenda jarðarinnar M, sem fyrirhugaður vegur átti að liggja um, kærði úrskurð S til umhverfisráðuneytisins. Með úrskurði umhverfisráðherra 10. maí 2007 var staðfestur úrskurður S að viðbættu einu skilyrði. P fór fram á endurupptöku málsins en því var hafnað. Höfðaði hann því mál og krafðist þess að ógiltur yrði fyrrgreindur úrskurður umhverfisráðherra. P reisti aðalkröfu sína í fyrsta lagi á því að mat á umhverfisáhrifum G hefði átt að fara eftir lögum nr. 106/2000 eins og þeim var breytt með lögum nr. 74/2005. Málsmeðferðin hefði því verið ólögmæt. Lög nr. 74/2005, sem breyttu ferlinu, þar á meðal hlutverki S, öðluðust gildi 1. október 2005, en skýrsla V um mat á umhverfisáhrifum veglagningarinnar hafði borist í tíð eldri laga óbreyttra. Hafði V óskað eftir því að meðferð matsins fylgdi eldri lögum. Í 17. gr. laga nr. 74/2005 var ákvæði um lagaskil þar sem fram kom að ef matskýrsla hefði verið send S fyrir gildistöku laganna væri heimilt að ljúka mati á umhverfisáhrifum samkvæmt þeirri málsmeðferð sem gilti samkvæmt eldri lögum. Var talið að S hefði verið heimilt samkvæmt 17. gr. laga nr. 74/2005 að verða við ósk V. P reisti kröfu sína ennfremur á því að skipulagsstjóri hefði verið vanhæfur til að fjalla um matsskýrslu V sökum þess að sonur hans hefði komið að gerð hennar sem starfsmaður verkfræðistofunnar, sem annaðist mat á umhverfisáhrifum G og skrifaði matsskýrsluna undir verkstjórn V. Fyrir lá að sonurinn sinnti ritstjórn matsskýrslunnar en fyrir Hæstarétti var því lýst að hann hefði verið tengiliður milli verkfræðistofunnar og S. Ekki var talið að skipulagsstjóri hefði verið vanhæfur af þessum sökum, enda væri sonur hans hvorki fyrirsvarsmaður verkfræðistofunnar né hafði hann haft sérstakt umboð til að koma fram fyrir hönd hennar eða V í matsferlinu. Þá var því hafnað að andmælaréttur og upplýsingaréttur P hefði verið brotinn, þar sem umhverfisráðuneytið hefði hvorki gefið honum kost á að tjá sig um hvort kæra hans væri tæk til meðferðar né kynnt honum umsagnir aðila um það efni. Í kæru P hefði falist augljóslega sú afstaða að hann teldi ráðuneytið bært til að úrskurða í málinu og því hefði ekki verið skylt samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga að gefa honum kost á að tjá sig um það efni. Loks var hafnað þeirri málsástæðu P að málið hefði ekki verið nægilega upplýst áður en umhverfisráðherra kvað upp úrskurðinn 10. maí 2007 og að byggt hefði verið á ákvæðum reglugerðar nr. 650/2006 um framkvæmd verndunar vatnasviðs og lífríkis Þingvallavatns, sem hefði öðlast gildi eftir að S kvað upp úrskurð sinn. Þá var hafnað varakröfu P um að fyrrgreindur úrskurður yrði ógiltur að því er varðaði leið 7 vestur E að Þ. Var V sýknuð af kröfum P.
Stefnandi krafðist þess aðallega að felldur yrði úr gildi úrskurður umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar milli Laugarvatns og Þingvalla. Til vara var þess krafist að úrskurðurinn yrði ógiltur að því er varðar leið 7 vestur Eldborgarhraun að Þingvallavegi. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda.
Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundardóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (
Dýrleif Kristjánsdóttir hdl)
gegn
íslenska ríkinu (
Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og
Vegagerðinni (
Kristinn Bjarnason hrl)
Íslenska ríkið og Vegagerðin sýknuð af kröfu nokkurra landeigenda um ógildingu úrskurðar umhverfisráðherra sem laut að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót.
Olga Ingibjörg Pálsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Fuglaverndarfélag Íslands, Náttúruverndarsamtök Íslands og Gunnlaugur Pétursson (
Katrín Theodórsdóttir hdl)
gegn
Vegagerðinni (
Reynir Karlsson hrl)
Felldur úr gildi hluti úrskurðar umhverfisráðherra þar sem fallist var á leið B í 2. áfanga Vestfjarðavegar, þar sem ráðherra hafði ekki með fullnægjandi hætti rannsakað umhverfisáhrif þverunar á lífríki í fjörðunum og þar með brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar.
Sveitarfélagið Norðurþing og Vegagerðin sýknuð af kröfu tveggja landeigenda um ógildingu á útgáfu framkvæmdaleyfis sveitarfélags og ógildingu á eignarnámi Vegagerðarinnar.
Maður sakfelldur fyrir akstur utan vegar og að hafa losað seyrufarm tankbifreiðar í hraungjótu.
S sektaður um 200.000 krónur fyrir brot gegn náttúruverndarlögum og skipulags- og byggingarlögum með því að standa að gerð tæplega 4 km reiðvegar með ýtu í Gufudal ofan Hveragerðis án þess að afla tilskilinna leyfa með þeim afleiðingum að ásýnd umhverfisins breyttist og olli þessi háttsemi jarðvegsrofi og jarðvegssili, sem opnar gróðurþekjuna og hleypir að auknu vatnsrofi. Ýtustjórinn var sýknaður þar sem ekki var talið unnt að hafna þeirri staðhæfingu hans að hann hefði staðið í þeirri trú að þeir sem stóðu fyrir framkvæmdinni hefðu aflað leyfa til hennar.
Í úrskurði sínum 1. ágúst 2001 um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar lagðist Skipulagsstofnun gegn framkvæmdinni. L kærði úrskurðinn til umhverfisráðherra og krafðist þess að honum yrði hnekkt. Allmargir aðrir kærðu úrskurðinn ýmist til að fá honum hnekkt eða til að fá hann staðfestan og voru áfrýjendur meðal þeirra síðarnefndu. Í úrskurði 20. desember 2001 féllst umhverfisráðherra á að L yrði heimilað að reisa umrædda virkjun með nánar tilgreindum skilyrðum og freistuðu áfrýjendur þess í málinu að fá úrskurðinum hnekkt. Byggðu þeir meðal annars á sjónarmiðum um vanhæfi umhverfisráðherra og að málsmeðferð ráðherrans hafi falið í sér nýja efnisumfjöllun á kærustigi sem hafi verið andstæð lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Hafi ekki verið fjallað um efnahagslegan ávinning af framkvæmdinni, upplýsingar hafi verið ófullnægjandi, forsendur úrskurðarins hafi varðað atriði sem ekki hafi komið til umfjöllunar Skipulagsstofnunar, framkvæmdaáform L verið ný og breytt á kærustigi og ný skilyrði hafi verið matsskyld. Talið var að markmið laga um mat á umhverfisáhrifum væri meðal annars að stuðla að því að áður en ráðist væri í framkvæmdir sem kunni að hafa í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfið lægju fyrir upplýsingar og könnun á þeim áhrifum og að almenningi væru kynntar þær upplýsingar og gefinn kostur á að tjá sig um þær. Yfirlýst markmið laganna væri hins vegar ekki að banna almennt slíkar framkvæmdir. Ekki var fallist á að umhverfisráðherra hafi verið vanhæfur til að úrskurða í málinu. Einnig var talið að umhverfisráðherra hafi verið bundinn af rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og því haft rúma heimild til að koma að nýjum gögnum til að málið væri nægilega upplýst og að það væri lagfært sem úrskeiðis hafði farið hjá lægra stjórnvaldi. Taldist ráðherrann hafa nokkurt svigrúm við mat sitt og að ekki hefði verið sýnt fram á að slíkir annmarkar hafi verið á málsmeðferð ráðherrans að ómerkingu varðaði eða að úrskurður hans hafi verið reistur á ólögmætum sjónarmiðum. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu áfrýjenda um ómerkingu úrskurðarins.