Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lykilorð: Miskabætur.

Héraðsdómur Vesturlands birt 10. júní 2025

S-263/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður brotaþola)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Talið sannað að ökumaður fólksbifreiðir hefði misst athygli við akstur, með þeim afleiðingum að bifreiðin fór yfir rangan vegarhelming og olli alvarlegum árekstri. Ökumaður talinn hafa gerst með þessu sekur um stórkostlega gáleysi og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Jafnframt dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Vesturlands birt 3. júní 2025

S-279/2024

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Ákærði játaði brot gegn friðhelgi einkalífs, umsáturseinelti og brot gegn nálgunarbanni. Hegningarauki. Skilorðsbundið fangelsi og miskabætur til handa brotaþola.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. desember 2021

E-122/2021

Hulda Rós Guðnadóttir (Auður Tinna Aðalbjarnardóttir lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Dagmar Arnardóttir lögmaður)

Stefnandi, sem var leikstjóri og einn þriggja handritshöfunda kvikmyndar, krafðist bóta úr hendi stefnda vegna myndefnis úr kvikmyndinni sem notað var á sýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Fallist var á hluta af kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. nóvember 2021

E-6235/2019

A (Sveinbjörn Claessen lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Sjúkratryggingar Íslands voru sýknaðar af miskabótakröfu einstaklings vegna mistaka læknis, en aðilar höfðu áður gert með sér sátt um greiðslu bóta vegna annars tjóns stefnanda af völdum mistakanna. Var það mat dómsins, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmanni, að háttsemi læknisins umrætt sinn hefði falið í sér almennt en ekki stórkostlegt gáleysi. Þegar af þeirri ástæðu teldist skilyrðum fyrir beitingu a-liðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993 ekki vera fullnægt. Gat því ekki komið til þess að stefnda yrði gert að greiða stefnanda miskabætur til viðbótar við þær bætur sem greiddar voru samkvæmt fyrrgreindri sátt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2021

E-4334/2018

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Sigurður Ágústsson lögmaður)

Fyrrum starfsmanni járnblendiverksmiðju voru dæmdar skaðabætur úr tryggingu vinnuveitanda vegna atvinnusjúkdóms sem rakinn var til starfs mannsins. Manninum voru einnig dæmdar miskabætur.