Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

43 dómar fundust

Lykilorð: Landamerkjamál

Héraðsdómur Vestfjarða birt 10. apríl 2026 kl. 21:08

E-23/2024

Harpa Harðardóttir, Hallfríður Ragúelsdóttir, Gígja Harðardóttir, Guðríður H Benediktsdóttir, Gunnlaugur Kristinn Hreiðarsson, Jónína Sturludóttir, Soffía Hrönn Gunnarsdóttir, Ívan Jökull Pallé, Jóna Ragnhildur Ragúelsdóttir, Vigdís Unnur Gunnarsdóttir, Rannveig Ragúelsdóttir, Þórir Bergmundsson, Helgi Már Hreiðarsson, Stígur Arnórsson, Írena Hlín Júlíusdóttir, Frímann A Sturluson, Ásthildur Gunnarsdóttir, Davíð Arnar Stefánsson, Stefán Hagalín Ragúelsson, Bergþóra Bergmundsdóttir, Freyja Haraldsdóttir, Jóna Benediktsdóttir, Svanfríður Arnórsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Hjalti Allan Sverrisson, Stefán Jökull Stefánsson, Björk Sverrisdóttir, Guðný Jórunn Gunnarsdóttir, Stígur Haraldur Sturluson, Elfa Dís Arnórsdóttir, Elfa Björk Benediktsdóttir, Hrefna Rósinbergsdóttir, Andrea Sigrún Harðardóttir, Stígur Stígsson, Guðmundur Bjartur Júlíusson, Birna Guðrún Sverrisdóttir, Jóhann Valdimarsson, Iðunn Haraldsdóttir, Halldór Gunnarsson, Halldís Gunnarsdóttir og Frímann Benediktsson (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sigurgeir Valsson lögmaður)

Deilt var um eignarréttarlega stöðu Hornbjargs en með úrskurði óbyggðanefndar var komist að þeirri niðurstöðu að svæðið væri þjóðlenda. Dómurinn tók til skoðunar hvort nefndin hefði dregið forsvaranlegar ályktanir af fyrirliggjandi gögnum um bjargið og komst að þeirri niðurstöðu að það tilheyrði jörðinni Horni. Fallist var á kröfu stefnenda um ógildingu úrskurðar óbyggðanefndar að hluta og um viðurkenningu á beinum eignarrétti að hinu umþrætta landsvæði.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 10. apríl 2026 kl. 21:08

E-22/2024

Guðfinna Sigurjónsdóttir, Sigurjón Kristinn Sigurjónsson, Bjarki Bjarnason, Guðbjörg Nordal Þorsteinsdóttir, Hilmar Hjartarson, Hjördís Hjartardóttir, Sigurður Bjarni Hjartarson, Sigríður J. Sigurjónsdóttir, Hallgrímur Magnús Sigurjónsson og Viðar Hjartarson (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sigurgeir Valsson lögmaður)

Deilt var um eignarréttarlega stöðu landsvæðisins Bjarnarness á Ströndum en með úrskurði óbyggðanefndar hafði verið komist að þeirri niðurstöðu að um þjóðlendu væri að ræða. Dómurinn tók til skoðunar hvort nefndin hefði dregið forsvaranlegar ályktanir af fyrirliggjandi heimildum um svæðið og komst að þeirri niðurstöðu að stefnendur hefðu ekki sýnt fram á að Bjarnarnes teldist eignarland þeirra. Þá benti ekkert til þess að til hefðbundins afnotaréttar stefnenda hefði stofnast. Var stefndi, íslenska ríkið, því sýknaður af kröfum stefnenda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. janúar 2026

E-498/2023

Steinþór Guðmundsson Þuríður Einarsdóttir (Hjalti Geir Erlendsson lögmaður) gegn Magnúsi G. Guðmundssyni, Angelíku Guðmundsdóttur Wallmann og Árna Oddgeiri Guðmundssyni (Stefán Þórarinn Ólafsson lögmaður)

Stefndu sýknuð af kröfu stefnenda um skipti á sameiginlegu landi samkvæmt matsgerð dómkvaddra matsmanna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. september 2025

E-49/2024

Karl Pálmason og Guðrún Áslaug Árnadóttir (Guðrún Sólveig Sigríðardóttir lögmaður) gegn Kötlu eignarhaldsfélagi ehf (Bernhard Bogason lögmaður)
Lykilorð: Landamerki. Landamerkjamál.

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnenda er varðaði landamerki milli jarðanna Kerlingadals og Höfðabrekku í Mýrdalshreppi. Stefnendur þóttu ekki hafa fært fram sönnur fyrir kröfu sinni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. júní 2025

E-3060/2023

Dön ehf (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður) gegn Þorsteini Guðbrandssyni og Daða Einarssyni og Daða Guðbjörnssyni og Guðbirni Guðbjörnssyni og Guðnýju Kúld og Gunnari Guðbjörnssyni og Iðu Brá Skúladóttur og Jens Guðbjörnssyni og Jóhannesi Wiremu Valdimarssyni og Kristínu Aðalsteinsdóttur og Sólrúnu H. Skúladóttur og Stefáni Wirihana Valdimarssyni og Valdimar Makaira Valdimarssyni (Gísli Guðni Hall lögmaður) og Dönustöðum ehf. og Jóhönnu Lilju Einarsdóttur og Jónínu Einarsdóttur og Sigríði Lilju Skúladóttur og Skúla Einarssyni og Sólrúnu Svövu Skúladóttur og Svanborgu Þ. Einarsdóttur og og Valdísi Einarsdóttur (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)
Lykilorð: Landamerkjamál.

Deilt um merki milli jarða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. apríl 2025

E-53/2024

Eignanet ehf (Ívar Pálsson lögmaður) gegn Kristjáni Björgvini Bragasyni (Jón Egilsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda sem vörðuðu landamerki á milli fasteigna aðila, sem og af kröfum er vörðuðu umferðarrétt um aðkomuveg á landi stefnanda. Viðurkennt var að stefndi ætti ekki að öðru leyti rétt til umferðar um land stefnanda. Þá var stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 12. desember 2024

E-50/2024

Laugardælur ehf RS ehf (Hjalti Geir Erlendsson lögmaður) gegn FF Fasteignum ehf. og Múlakoti 1 Fljótshlíð ehf. og Unni Tómasdóttur og Jóni R. Kristinssyni og Þórunni Jónsdóttur og Guðjóni Stefáni Guðbergssyni og Sigríði Hjartar (Flosi Hrafn Sigurðsson lögmaður) og Múlatorfu ehf. og Eyvindarmúla ehf. og Dagrúnu Þórðardóttur og Ingunni Þórðardóttur og Jóni Viktor Þórðarsyni og og Ólafi Auðuni Þórðarsyni (Halldór Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Landamerki. Landamerkjamál.

Stefndu voru sýknuð af aðalkröfu stefnenda í máli er varðaði deilur aðila um landamerki milli jarða þeirra. Þóttu stefnendur ekki hafa sýnt fram á merki milli jarðanna lægju þar sem þeir héldu fram. Þá var varakröfu stefnenda var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. mars 2024

E-499/2022

Ragnar Valur Björgvinsson (Guðjón Ármann Jónsson lögmaður) gegn Hreggviði Hermannssyni

Stefnandi höfðaði mál á hendur stefndu H og A til viðurkenningar á að landamerki milli jarða þeirra lægju með ákveðnum hætti, eins og stefnandi taldi þau hafi breyst eftir makaskipti árið 1987. Stefndi H var sýknaður af þeim kröfum stefnanda sem ekki var vísað frá dómi, þar sem stefnandi þótti ekki hafa sýnt fram á að landamerki milli jarðanna sem hann krafðist viðurkenningar á hafi orðið til við makaskiptin, en vafi lék á um hvort uppdráttur sá er stefnandi byggði dómkröfur sínar sýndi í reynd hvernig landi hefði verið skipt við framangreind makaskipti.. Öllum kröfum stefnanda á hendur stefndu A var vísað frá dómi sökum vanreifunar sem og skorti á lögvörðum hagsmunum. Var stefnandi dæmdur til að greiða stefndu báðum málskostnað.

Héraðsdómur Austurlands birt 4. desember 2023

E-36/2017

Bjarni Skarphéðinn G. Bjarnason, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Jón Þorsteinsson, Inga Lucia Þorsteinsdóttir, Jöklasýn ehf, Elías Gunnarsson, Hríshóll ehf, Lækjarhús ehf og Björg Gísladóttir (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn Þóru Guðrúnu Ingimarsdóttur, Bjarna Maríusi Jónssyni og Kirkjumálasjóði, til réttargæslu (Þórður Bogason lögmaður)
Lykilorð: Landamerkjamál.

Landamerkjamál

Héraðsdómur Vesturlands birt 11. júlí 2022

E-126/2020

Stykkishólmskirkja (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn Jóni Thors, Ástu Ingunni Thors, Eddu Thors, Hildi Thors, Eggerti Kjartanssyni, Dreisam ehf., Múlavirkjun hf., Magnúsi Elíassyni, Erlu Elíasdóttur, Elíasi Fells, Elíassyni, Borghildi Gunnarsdóttur, Jens Jóhannssyni, Kristjáni Má Magnússyni, Ingi-, björgu Magnúsdóttur, Helgu Guðjónsdóttur, Jóhanni M. Kristjánssyni, Sveini, Magnússyni, Ingibjörgu Sveinu Þórisdóttur, Ingibjörgu Þórðardóttur, Svövu, Guðrúnu Margrétardóttur, Einari Birni Þórði Þórissyni, Sigfúsi Axfjörð, Gunnarssyni, Hafdísi Lind Hafsteinsdóttur, Jóhönnu Borghildi Magnúsdóttur og Birgitte Möhl (Guðjón Ármannsson lögmaður)
Lykilorð: Landamerkjamál.

Fallist var að hluta á kröfu stefnanda um viðurkenningu landamerkja Baulárvalla á Snæfellsnesi og eignarétt stefnanda að jörðinni í samræmi við útmælingagjörð frá 1823 sem framkvæmd var á grundvelli Nýbýlatilskipunar frá 15. apríl 1776 en stefnandi hafði eignast jörðina með gjafaafsali 1882. Fallist var á kröfu stefnanda gagnvart eigendum sex aðliggjandi bújarða en eigendur tveggja jarða voru sýknaðir þar sem stefnandi hafði áritað landamerkjabréf þeirra jarða án athugasemda árið 1889 sem tók til hluta af því landsvæði sem mælt hafði verið út sem hluti af nýbýlinu Baulárvöllum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. nóvember 2020

E-208/2019

Arnfríður Jóhannsdóttir (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn Kristjönu Sigurmundsdóttur, Rut Sigurðardóttur, Önnu Brynjólfsdóttur Klettholti ehf., Magnúsi Páli Brynjófssyni, Guðrúnu Sólveigu Pálmadóttur, Margréti Brynjólfsdóttur , Grétari Páli Ólafssyni, til réttargæslu, Reyni Jónssyni, Einari Jónssyni, Tómasi Þóri Jónssyni, Þresti Jónssyni, Garðari, Olgeirssyni, Sigurði O. Kjartanssyni, Helgu Sólveigu Jóhannesdóttur, Þuríði, Guðjónsdóttur, Mörtu Gígju Ómarsdóttur, Ólafi Stefánssyni, Páli Jóhannssyni og Steinunni Margréti Larsen, Hjalta Árnasyni og Guðrúnu Hermannsdóttur (Óskar Sigurðsson lögmaður)

Deilt um landamerki og eignarhald á landi. Hluta dómkrafna vísað frá dómi.

Héraðsdómur Austurlands birt 14. febrúar 2018

E-62/2016

Óskar Gunnlaugsson, Baldur Gunnlaugsson, Vilborg Gunnlaugsdóttir, db. Ingunnar Gunnlaugsdóttur, Björn Gunnlaugsson, Guðríður Gunnlaugsdóttir og Haukur Gunnlaugsson (Jón Jónsson hrl) gegn Steinþóri Björnssyni (Gísli M. Auðbergsson hrl)

Landamerkjamál. Deilt var um landamerki milli Hvannabrekku og óskipts lands Berufjarðar og Berufjarðar II í Djúpavogshreppi. Fallist var á 3. varakröfu í aðalsök, þó þannig að landamerkin voru dregin sem bein lína allt upp að fjallseggjum milli Berufjarðar og Breiðdals í stað þess að breyta um stefnu efst í Svartagili. Rúmaðist sú niðurstaða innan marka kröfugerðar aðila í aðalsök og gagnsök.

Héraðsdómur Austurlands birt 25. október 2017

E-66/2016

Fjóla Gunnarsdóttir (Stefán Þórarinn Ólafsson hrl) gegn Sigurði Baldurssyni (Jón Jónsson hrl)

Landamerkjamál. Landamerkjabréf jarðanna voru talin samþýðanleg en aðila greindi á um staðsetningu allra kennileita sem dómkröfur þeirra byggðust á. Fallist var á varakröfu gagnstefnanda um legu merkjanna, enda þóttu málsástæður hans um staðsetningu kennileita styðjast betur við gögn málsins, framburð vitna og landfræðilegar aðstæður.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 8. febrúar 2017

E-47/2015

Birgir Freyr Þorleifsson og Júlía Linda Sverrisdóttir (Ólafur Björnsson hrl) gegn Páli og Ragnarssyni og Sverri og Páli Erlendssyni og Eddu og Erlendsdóttur (Guðjón Ármannsson hrl), Hofstorfunni og slf. (Jón Eðvald Malmquist hdl) og Svandísi og Jónasínu Þóroddsdóttur (enginn)
Lykilorð: Landamerki. Landamerkjamál.

Fallist á að landamerki réðust af ,,sýsluveginum" sem hefði legið þar sem stefnendur töldu

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. september 2015

E-176/2015

Bjarnleifur Bjarnleifsson og Lilja G. Gunnarsdóttir (Arndís Sveinbjörnsdóttir hdl) gegn Magnúsi L. Sigurðssyni og Ólafíu K. Bjarnleifsdóttur (Pétur Már Jónsson hdl)

Ágreiningur var milli aðila um landamerki jarðar. Voru stefndu sýknuð af kröfum stefnenda með vísan til bindandi samkomulags um landamerki í kaupsamningi milli aðila.

Héraðsdómur Vesturlands birt 20. janúar 2016

E-46/2015

Búð ehf (Valtýr Sigurðsson hrl) gegn Heiðardal ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson hrl)

Vísað frá dómi máli þar sem eigendur tveggja jarða greindi á um landamerki milli þeirra. Var talið að svo mjög skorti á skýrleika við reifun málsins að ekki væri unnt að leggja á það dóm.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. október 2013

E-224/2013

Þórarinn Jónasson (Steinbergur Finnbogason hdl) gegn Önnu B. Wathne og Soffíu Guðrúnu Wathne og Db. Soffíu Guðrúnar Wathne og Þórunni Wathne og Ragnheiði K. Hanson Jónasdóttur (Björn Lárus Bergsson hrl), Mosfellsbæ (Karl Axelsson hrl) og Emil Péturssyni og Ólafíu Bjarnadóttur (Marteinn Másson hrl)

Kröfum stefnanda vísað frá dómi. Landamerki. Lögvarðir hagsmunir. Aðild. Vanreifun.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 4. mars 2011

E-25/2010

D Ó M U R og Héraðsdóms Norðurlands vestra og 4. mars 2011 í máli nr. E-25/2010: og Borgþór og Bragi Borgarsson og Guðrún og Björk Baldursdóttir (Ólafur Björnsson hrl) og Guðrún og Bjarnadóttir (Þórður Clausen Þórðarson hrl) gegn Íslenska ríkinu (Þórhallur H. Þorvaldsson hdl)

Þjóðlenda. Vesturhluti Hofsafréttar í Skagafirði talinn háður eignarrétti eigenda Hofs og Hofsvalla

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 4. mars 2011

E-23/2010

Anna Lísa Wium Douieb, Hlynur Unnsteinn Jóhannsson, Þorsteinn Ragnar Leifsson, Sigurberg Kristjánsson, Kristján Kristjánsson, Gísli Heiðar Jóhannsson, Fjallskilasjóður Hofsafréttar, Arnþór Bergur Traustason og Þórey Helgadóttir (Ólafur Björnsson hrl) gegn Íslenska ríkinu (Þórhallur H. Þorvaldsson hdl)

Þjóðlenda. Málinu vísað frá dómi vegna aðildar

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. febrúar 2011

E-1893/2009

HS Orka hf, Aðalsteinn Sigursteinsson, Ágúst Þór Guðbergsson, Guðmundur Óskarsson, Steinar Smári Guðbergsson, Aðalsteinn Gunnar Jóhannsson, TÁS ehf, Sólveig Bragadóttir, Stefán Árnason, dánarbú Eggerts Kristmundssonar, Elín Kristmundsdóttir, dánarbú Lárusar Kristmundssonar, Magnús Ágústsson, dánarbú Elínar Bjargar Gísladóttur, Guðríður Gísladóttir, Hrefna Kristín Gísladóttir, Lóa Guðrún Gísladóttir, Þorgerður Þorleifsdóttir, Símon Kristjánsson, Ólafur Karl Brynjarsson, Guðríður Einarsdóttir, Anna S. Kristmundsdóttir, Grétar I. Hannesson, Sveitarfélagið Vogar, Nesbúegg ehf, Geir Sigurðsson, Erlingur Sigurðsson, Kristjana Sigurðardóttir, Sigurður Sigurðsson, Ásta Guðrún Óskarsdóttir, Óskar Axel Óskarsson, Jóhanna Erlingsdóttir, dánarbú Ólafar Auðar Erlingsdóttur, Þuríður Erla Erlingsdóttir, Sigríður Pálína Erlingsdóttir, Hulda Erlingsdóttir, Sigríður Ida Úlfarsdóttir, Jakob Árnason, Davíð Hafsteinsson, Ester Hafsteinsdóttir, Hafdís Hafsteinsdóttir, Haukur Hafsteinsson, Helga Harari, Helgi Axel Davíðsson, Marinó Davíðsson, Vilborg Hafsteinsdóttir, Friðrik Hermann Friðriksson, dánarbú Þóris Davíðssonar, dánarbú Guðrúnar Vilmundardóttur, Kristín Þorsteinsdóttir, Ólafur Þorsteinsson, Þórhallur Vilmundarson, dánarbú Guðfinnu Ólafsdóttur, Ása Ingólfsdóttir, Áslaug Hulda Ólafsdóttir, Baldur Ellertsson, Bjarney Guðrún Ólafsdóttir, Bjarni Ástvaldsson, Eyjólfur M Guðmundsson, Eyjólfur Ólafsson, Fjóla Jóhannsdóttir, Guðbergur Ólafsson, Guðbjörn Elís Guðmundsson, Hrefna Ólafsdóttir, Hulda Ástvaldsdóttir, Hulda Klara Ingólfsdóttir, Matthías Þór Hannesson, Ólafur Ástvaldsson, Ólafur Ellertsson, Ólafur Þór Jónsson, Sigríður Jónsdóttir, Ingibjörg Júlíusdóttir, Margrét O. Svendsen, dánarbú Huldu K. Ólafsdóttur, Ásgeir Friðþjófsson, Anna Rut Sverrisdóttir, Birgir Þórarinsson, Sauðafell sf, Margrét Guðnadóttir, Geirlaug Þorvaldsdóttir, Katrín Þorvaldsdóttir, Skúli Þorvaldsson og Sæmundur Þórðarson (Ólafur Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hdl), Hafnarfjarðarkaupstað (Jónas Þór Guðmundsson hrl) og Héraðsnefnd á Suðurnesjum og Heiðrúnu Láru Kristjánsdóttur og Helgu Elísabetu Kristjánsdóttur og Hrefnu Birgittu Bjarnadóttur og Ingibjörgu Magnúsdóttur og Laufeyju K. Kristjánsdóttur og Sigrúnu Magnúsdóttur og Gísla Grétari Sigurðssyni og Herði Sigurðssyni (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Lykilorð: Landamerki. Landamerkjamál.

Landamerkjamál.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. október 2010

E-189/2010

Björn Gústafsson, Hrafn Olgeir Gústafsson, Hulda Inger Klein Kristjánsdóttir, Kristján Ingi Úlfsson, Lilja Björk Arnardóttir, Óli Jóhann Klein, Ragna Björg Arnardóttir, Ragnhildur Magnúsdóttir, Sophus Klein Jóhannsson og Þóra L. Klein (Ólafur Kjartansson hdl) gegn Ás-10 ehf, Björk Rúnarsdóttur, Guðmundi Gíslasyni, Heklubyggð ehf og Orrustuhóli ehf (Guðjón Ármannsson hdl)
Lykilorð: Landamerkjamál.

Deilt um landamerki Selsunds og Svínhaga í Rangárþingi ytra.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. desember 2009

E-2946/2008

Margrét U, Kjartansdóttir, Sigríður Elsa, Kjartansdóttir, Bjarni H, Kjartansson, Guðmundur B, Kjartansson, Sigrún, Kjartansdóttir, Inga Jóelsdóttir, Ásgeir Jóelsson, Jóel Bachmann, Jóelsson, Gréta Erna, Ingólfsdóttir, Guðmundur Guðnason, Þórhallur Björgvin, Ólafsson og Fiskþurrkun hf (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Reykjanesbæ (Ásbjörn Jónsson hdl)

Reykjanesbær var sýknaður af kröfum jarðaeigenda í Leiru um viðurkenningu á eignarrétti þeirra að landsvæði við Helguvík og landræmu við ströndina í hluta Leirulands. Landsvæði þetta var tekið tekið eignarnámi til flugvallargerðar í lok fimmta áratug síðustu aldar og var talið að landið hefði verið tekið eignarnámi í sjó fram. Beitarréttur á hluta landsins og rekaréttur var þó undanskilinn eignarnámi. Samningur jarðeigenda við íslensa ríkið frá 1958 var ekki talinn hafa breytt eignarhaldi á landinu eða afmörkun þess, að öðru leyti en því íslenska ríkið keypti beitarréttinn.

Héraðsdómur Austurlands birt 2. nóvember 2009

E-135/2008

Elsa Guðbjörg Þorsteinsdóttir og Bergur Jónsson (Kristinn Bjarnason hrl) gegn Jónu Sigurbjörgu Þórhallsdóttur, Klöru Benediktsdóttur, Sigfúsi Benediktssyni, Óskari Benediktssyni, Birnu Benediktsdóttur, Sigurveigu B. Þórhallsdóttur, Ingibjörgu Helgu Þórhallsdóttur og Gunnari Smára Benediktssyni (Þórhallur H. Þorvaldsson hdl)
Lykilorð: Landamerkjamál.

Skorið var úr um landamerki tveggja jarða á Fljótsdalshéraði.

Héraðsdómur Austurlands birt 27. júní 2008

E-331/2007

Djúpavogshreppur (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl) gegn Herberti Jóni Hjörleifssyni (Gísli M. Auðbergsson hdl)

Í málinu var deilt um landamerki jarðanna Búlandsness og Teigarhorns í Djúpavogshreppi frá svokölluðum Hálsamótum í sjó fram í Eyfreyjunesvík. Dómkröfur aðalstefnanda, Djúpavogshrepps, umráðamanns jarðarinnar Búlandsness, voru teknar til greina. Þá var staðfest lögbann sem sýslumaðurinn á Eskifirði lagði hinn 22. nóvember sl. við frekari girðingarframkvæmdum og öðrum framkvæmdum aðalstefnda í landi jarðarinnar Búlandsness.

Héraðsdómur Austurlands birt 15. nóvember 2006

E-245/2005

Hanný Heiler (Ólafur Björnsson hrl) gegn Ómari Antonssyni, til réttargæslu, íslenska ríkinu, Mörtu Karen Björnsdóttur, Sigurði Brynjari Torfasyni,m, Valdimar Ingólfssyni, Aðalheiði Fanneyju Björnsdóttur og Valþóri Ingólfssyni
Lykilorð: Landamerki. Landamerkjamál.

Deilt var um landamerki jarðanna Dynjanda og Horns í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fallist var á kröfur stefnanda, þinglýsts eiganda Dynjanda, um að landamerki milli jarðanna væru úr nánar tilgreindum hnitapunkti í Kambslækjarmynni við Merkileiti sjónhending í annan tilgreindan hnitapunkt í Merkileitistorfu í fjallsrótum. Stefndi, þinglýstur eigandi Horns, var dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað.

Héraðsdómur Austurlands birt 26. janúar 2004

E-25/2004

Gunnar Pétursson (Benedikt Ólafsson hdl) gegn Svavari Valtý Valtýssyni (Jón Höskuldsson hdl) og Arnóri Baldvinssyni og Garðari Lárusi Jónassyni og Sæbjörgu Jónasdóttur og Dórótheu Sigurfinnsdóttur og Önnu Elínu Óskarsdóttur og Guðlaugi T. Óskarssyni og Óskari Jósef Óskarssyni og Sigurlín Rósu Óskarsdóttur og Baldvini Páli Óskarssyni og Dýrleif Jónínu Tryggvadóttur og Guðnýju S. Ásberg Björnsdóttur og Sigurbirni Marinóssyni (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson hdl)
Lykilorð: Landamerki. Landamerkjamál.

Deilt var um landamerki jarðanna Stuðla, Grænuhlíðar, Áreyja, Seljateigshjáleigu, Seljateigs og Sléttu í Reyðarfirði. Gagnkröfur eiganda Áreyja voru teknar til greina. Aðalstefndu voru sýknuð af kröfum aðalstefnanda, eiganda Stuðla, að öðru leyti en því að kröfur aðalstefnanda voru teknar til greina að hluta að því er varðar landamerki á milli Stuðla og Grænuhlíðar.