Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

169 dómar fundust

Lykilorð: Haldlagning

Landsréttur birt 10. júní 2026 kl. 12:06

426/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Grímur Sigurðarson lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu X um að aflétt yrði haldlagningu L á nánar tilgreindum munum var hafnað.

Landsréttur birt 18. febrúar 2026

133/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem L var veitt heimild til að rannsaka rafrænt efnisinnihald tveggja farsíma X sem lögregla hafði lagt hald á.

Landsréttur birt 16. desember 2025

875/2024

A (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður, Gunnar Atli Gunnarsson lögmaður, 3. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður, Gunnlaugur Úlfsson lögmaður, 1. prófmál)

A stefndi Í til greiðslu bóta vegna miska og fjártjóns sökum þvingunar- og rannsóknaraðgerða sem A var gert að þola vegna rannsóknar tiltekins lögreglumáls, sem síðar var fellt niður. Í héraði féllst Í á bótaskyldu vegna miska á grundvelli 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna húsleitar og laut ágreiningur málsins að því hvort A ætti óskertan bótarétt á grundvelli 246. gr. laga nr. 88/2008 ásamt rétti A til bóta vegna meints fjártjóns. Í dómi Landsréttar var rakið að meðan á rannsókn á umræddu lögreglumáli stóð bárust lögreglu fleiri kærur á hendur A um sömu eða svipuð brot og í upphaflega málinu og voru þau mál rannsökuð samhliða því. Á meðal rannsóknargagna í málunum voru borðtölvur og farsímar sem hald hafði verið lagt á í tengslum við upphaflega málið. Tvö af málunum, sem síðar voru kærð, leiddu til sakfellingar A. Vísaði Landsréttur meðal annars til þess að þótt A hefði verið frjálst að taka þá afstöðu á ljá ekki atbeina sinn við rannsókn hinna haldlögðu tækja væri ljóst samkvæmt málsgögnum að með henni, sem og dvöl erlendis, en einnig með framningu refsiverðra brota eftir að rannsókn á umræddu lögreglumáli hófst, hefði hann stuðlað að því að rannsókn málsins og þar með haldlagning raftækjanna dróst á langinn. Að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um rétt A til miskabóta á grundvelli 246. gr. laga nr. 88/2008 að fjárhæð 250.000 krónur og sýknu Í af kröfu A um bætur vegna fjártjóns.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. október 2025

S-340/2024

Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn Tómasi Helga Jónssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Sindra Páli Róbertssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.

Landsréttur birt 30. september 2025

676/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem L var veitt heimild til að rannsaka rafrænt efnisinihald þriggja farsíma X sem lagt hafði verið hald á.

Landsréttur birt 19. ágúst 2025

607/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem sóknaraðila var veitt heimild til að rannsaka rafrænt efnisinnihald tiltekins farsíma og fartölvu varnaraðila sem lögregla hafði lagt hald á.

Landsréttur birt 23. maí 2025

390/2025

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður)

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem L var veitt heimild til rannsóknar á rafrænu efnisinnihaldi tilgreindra muna sem haldlagðir voru í þágu rannsóknar á sakamáli.

Landsréttur birt 20. maí 2025

378/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi farsíma sem hald hafði verði lagt á í þágu rannsóknar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2025

E-7532/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Lögregla stöðvaði stefnanda við reglubundið umferðareftirlit skv. umferðarlögum þar eð hann ók á ofsahraða. Fallist var á það að mál á hendur stefnanda hefði verið fellt niður í skilningi 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þegar fíkniefnapróf sýndi að ekki mældust fíkniefni í þvagi hans. Einnig var fallist á að þegar stefnandi fylgdi lögreglunni á lögreglustöð til þess að gefa sýni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna hefði hann verið handtekinn í skilningi 1. mgr. 90. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 363/2024. Það var einnig skilgreint sem líkamsrannsókn í skilningi 77. gr. sömu laga þegar stefnandi gaf lögreglu þvagsýni. Því var hins vegar hafnað að bifreið stefnanda hefði verið haldlögð enda voru ökuréttindi hans runnin út þegar lögregla stöðvaði hann. Stefnanda voru dæmdar miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. apríl 2025

E-5922/2024

A (Birna Ósk Bjarnadóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sóley Ragnarsdóttir lögmaður)

Stefnandi sætti þvingunarráðstafana lögreglu vegna rannsóknar sakamáls. Síðar var rannsóknin felld niður. Stefnandi krafðist miskabóta úr hendi stefnda, íslenska ríkisins, vegna umræddra ráðstafana. Talið var að enda þótt því yrði ekki slegið föstu að stefnandi hefði beinlínis valdið þeim aðgerðum sem hann reisti miskabótakröfu sína á þá teldist stefndi eigi að síður hafa leitt nægjanlega í ljós að stefnandi hefði, eins og atvikum háttaði til, a.m.k. stuðlað að þeim aðgerðum. Þótt ekki væri talið rétt að fella bætur til stefnanda niður að öllu leyti yrði að mati dómsins við þessar aðstæður að skerða þær. Var stefnda því gert að greiða stefnanda 90.000 krónur með nánar tilgreindum vöxtum, en vaxtakrafa stefnanda var að huta til talin fyrnd.

Landsréttur birt 21. mars 2025

210/2025

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu X um að aflétt yrði haldlagningu L á farsíma og reiðufé var hafnað.

Landsréttur birt 14. mars 2025

184/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Oddur Valsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi farsíma X sem hald hafði verið lagt á í þágu rannsóknar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2025

E-2285/2024

Heiðbjört Helgudóttir Sturludóttir (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jónas Birgir Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda um bætur vegna aðgerðar lögreglu til að afstýra akstri stefnanda undir áhrifum fíkniefna. Var hvorki talið að stefnandi hefði sætt rannsókn vegna gruns um refsiverða háttsemi, né að aðgerðir lögreglu teldust þvingunaraðgerðir sem jafnað yrði til þvingunaraðgerða í skilningi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð

Landsréttur birt 11. febrúar 2025

99/2025

Skatturinn (Arnar Óli Björnsson lögmaður) gegn X og Y (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með hinum kærða úrskurði var skattrannsóknarstjóra heimiluð rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi farsíma sem haldlagður hafði verið í þágu rannsóknar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að fyrir héraðsdómi hefðu ekki hefðu legið fyrir nauðsynleg gögn til að tekin yrði afstaða til þess hvort lagaskilyrði væru uppfyllt fyrir því að fram færi rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi farsíma X. Var hinn kærði úrskurður því ómerktur og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til meðferðar að nýju.

Landsréttur birt 23. janúar 2025

35/2025

Skatturinn (Bríet Sveinsdóttir lögfræðingur) gegn X Y ehf og Z ehf (Sævar Þór Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem S var heimilað að rannsaka rafrænt efnisinnihald 32 muna í eigu eða í umráðum X.

Landsréttur birt 6. desember 2024

956/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn X (Birkir Már Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi farsíma X sem hald hafði verið lagt á í þágu rannsóknar.

Landsréttur birt 3. desember 2024

939/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi nokkurra raftækja X sem hald hafði verið lagt á í þágu rannsóknar.

Landsréttur birt 7. nóvember 2024

848/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Halldór Ingi Blöndal lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Haldlagning.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að aflétt yrði haldi á 4.000 evrum í reiðufé sem fannst við leit lögreglu á nánar tilgreindum stað.

Landsréttur birt 16. október 2024

804/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leó Daðason lögmaður)

Með úrskurði héraðsdóms var L veitt heimild til rannsóknar á rafrænu efnisinnihaldi farsíma X sem hald hafði verið lagt á í þágu rannsóknar. Var heimildin bundin við rannsókn á máli sem fengið hafði nánar tiltekið málsnúmer hjá L. Rakið var í úrskurði Landsréttar, sem staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms að veita bæri L umbeðna heimild, að rannsóknaraðgerðir sem lög nr. 88/2008 um meðferð sakamála tækju til væru að jafnaði bundnar við rannsókn lögreglu sem hæfist út frá vitneskju eða grun um að refsivert brot hefði verið framið. Heimildir lögreglu til rannsóknar væru þannig að meginstefnu til bundnar við mál það sem til rannsóknar væri hverju sinni og bæri lögreglu að gæta meðalhófs við rannsóknina. Að þessu gættu taldi Landsréttur ekki tilefni til að takmarka heimild L í úrskurðarorði með þeim hætti sem gert hafði verið í héraði.

Landsréttur birt 10. október 2024

774/2024

Þrotabú X (Magnús Björn Brynjólfsson lögmaður, Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Lykilorð: Kærumál. Haldlagning.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu X um að aflétt yrði haldi á fjármunum þrotabúsins var hafnað. L hafði haldlagt fjármunina í tengslum við rannsókn sakamáls en einn sakborninga í málinu var fyrrum fyrirsvarsmaður hins gjaldþrota félags. Í úrskurði Landsréttar kom fram að eftir töku bús félagsins til gjaldþrotaskipta hefði fyrrum fyrirsvarsmaður félagsins engan aðgang haft að þeim fjármunum sem voru á bankareikningum þess. Ekki yrði séð að eftir það tímamark hefði verið hætta á að fjármunirnir færu forgörðum eða að þeim yrði skotið undan. Samkvæmt því var talið að ekki hefði verið sýnt fram á að uppfyllt hefðu verið skilyrði 1. mgr., sbr. 2. mgr., 69. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til haldlagningar fjármunanna án dómsúrskurðar. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og haldi L á fjármununum aflétt.

Landsréttur birt 10. október 2024

773/2024

Þrotabú X ehf (Einar Hugi Bjarnason lögmaður, Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Lykilorð: Kærumál. Haldlagning.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að aflétt yrði haldi á fjármunum sem L hafði haldlagt vegna rannsóknar á nánar tilgreindu máli.

Landsréttur birt 24. september 2024

747/2024

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á rafrænu efnisinnihaldi farsíma X sem hald hafði verið lagt á í þágu rannsóknar.

Landsréttur birt 12. júlí 2024

573/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem aflétt var haldi á 7.130.000 krónum í eigu X sem L hafði lagt hald á 13. mars 2021.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2024

E-6927/2023

A (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Skattinum (Óskar Thorarensen lögmaður)

Stefnandi hafði uppi skaðabótakröfu m.a. gegn íslenska ríkinu vegna tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna haldlagningar bifreiðar í tengslum við rannsókn sakamáls sem síðar var fellt niður. Bótakrafa stefnanda greindist í tvo kröfuliði og varðaði annar kostnað vegna öflunar annarra bifreiða meðan á haldlagningunni stóð en hinn laut að lögmannskostnaði vegna aðstoðar við að fá haldinu aflétt. Fyrri kröfulið stefnanda var hafnað þar sem hann hafði ekki sannað tjón sitt en fallist var á síðari kröfuliðinn að hluta og stefnanda dæmdar bætur að álitum á grundvelli hlutlægrar bótareglu 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Kröfum stefnanda á hendur Skattinum var vísað frá dómi án kröfu auk þess sem dráttarvaxtakröfu hans var jafnframt vísað frá dómi þar sem hún uppfyllti ekki kröfur d-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Landsréttur birt 18. júní 2024

502/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jón Egilsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um að sóknaraðila yrði gert skylt að afhenda honum nánar tilgreinda bifreið sem haldlögð var í þágu rannsóknar sakamáls.

Hleð fleiri dómum…