Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Stórfelldar ærumeiðingar

Landsréttur birt 28. maí 2026 kl. 16:17

515/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður) (Sigmundur Guðmundsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa birt færslu á Facebook-síðu sinni með hótun um að birta myndefni af A, barnsmóður sinni og fyrrum sambýliskonu, á nánar tilgreindri vefsíðu og með því að hafa þann sama dag birt fimm kynferðislegar myndir af henni sem hafi sýnt nekt hennar, ásamt texta, á samskiptaforritinu Facebook. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki léki vafi á að allar myndirnar væru þess eðlis að falla undir 1. mgr. 199. gr. a. almennra hegningarlaga. Þá var einnig staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að í birtingu fyrstu myndarinnar, ásamt texta, hafi falist hótun um að birta nektarmynd af brotaþola á nánar tilgreindri vefsíðu og um heimfærslu brotsins til 2. mgr., sbr. 1. mgr. 199. gr. a almennra hegningarlaga. Með vísan til þessa en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu brotanna. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola 800.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2023

S-1109/2023

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir hótanir, brot í nánu sambandi og stórfelldar ærumeiðingar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2022

S-2267/2022

Héraðssaksóknari (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi, brot í nánu sambandi og stórfelldar ærumeiðingar og dæmdur í 12 mánaða fangelsi en fullnustu níu mánaða af dæmdri refsingu var frestað skilorðsbundið. Var ákærði einnig dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2022

S-3887/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað af ákæru um sendingu kynferðislegs myndefnis. Einnig sýknað af ákæru vegna meints brots í nánu sambandi, meintrar nauðgunar og meintra brota gegn nálgunarbanni. Miskabætur dæmdur en einkaréttarkröfum að öðru leyti vísað frá dómi.