Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lykilorð: Greiðslumark

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. maí 2025

E-612/2023

Berustaðir ehf (Ólafur Björnsson lögmaður) gegn Auðhumlu svf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda í máli er varðaði ágreining aðila um hvort lágmarksverð sem ákveðið er fyrir mjólkurframleiðslu skv. búvörulögum eigi við um umframmjólk. Var það mat dómsins að umframmjólk lyti ekki ákvörðun skv. 8. gr. laganna. Þá var ekki talið sýnt fram á að brotið hefði verið gegn samkeppnislögum, né heldur að bindandi samningur hefði komist á um að greiða lágmarksverð. Fallist var á með stefnda að ákvörðun verð hefði verið gerð á málefnalegan hátt og byggð á venju.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2010

E-9054/2009

Guðrún Fjóla Helgadóttir gegn Bændasamtökum Íslands, Matvælastofnun, til réttargæzlu Sigurði Helga Helgasyni, Öldu, Þorsteinsdóttur, Þórsteini, Arnari Jóhannessyni, Sveini, Jóhannessyni, kveðinn, upp svohljóðandi og ú r s k

Stefnanda gerði aðallega kröfu á hendur stefndu in solidum um endurskráningu greiðslumarks til framleiðslu sauðfjárafurða á ættaróðal stefnanda, en til vara skaðabótakröfu á hendur stefnda, Bændasamtökum Íslands. Málinu vísað frá vegna ruglingslegs málatilbúnaðar.

Hæstiréttur birt 4. október 2007

78/2007

Þorsteinn G. Eggertsson og Laufey Valsteinsdóttir (Jón Höskuldsson hrl) gegn Ragnari Ólafssyni (Jóhannes Ásgeirsson hrl)

R var eigandi 1/3 hluta jarðarinnar K en sameigendur hans voru áfrýjandinn Þ og E. Þ var handhafi beingreiðslna vegna jarðarinnar en árið 2003 var greiðslumark jarðarinnar selt og ritaði R sem samþykkur eigandi undir tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarkinu. Með vísan til ákvæðis 1. mgr. 38. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum er kveður á um að greiðslumark skuli bundið við lögbýli og til fyrri fordæma Hæstaréttar þótti ljóst að R ætti rétt til eins þriðja hluta söluandvirðis greiðslumarksins. Í ljósi þess skýra og óumdeilda réttar varð ekki talið að með því einu að samþykkja framsal greiðslumarksins hefði R afsalað þessum rétti sínum. Sú málsástæða áfrýjenda er höfð var uppi fyrir Hæstarétti, að R hefði glatað rétti sínum til andvirðis greiðslumarksins þar sem R hefði verið sviptur eignarrétti að jörðinni K áður en hann hafði uppi kröfu sína, þótti of seint fram komin og kom því ekki til álita við úrlausn málsins, með vísan til 2. mgr. 163. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 11. desember 2003

177/2003

Þorsteinn Sigfússon (Ólafur Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Í málinu var deilt um uppgjör beingreiðslna vegna mjólkurframleiðslu Þ á verðlagsárinu 2000/2001. Hafði Þ ekki getað framleitt allan mjólkurkvóta sinn og af því tilefni gert samkomulag við annan framleiðanda um að hluti af framleiðslu þess síðarnefnda yrði færður sem mjólkurinnlegg hjá Þ. Var þetta gert með tilfærslum í bókhaldi MBF. Hafði Þ þegið beingreiðslur bæði vegna eigin framleiðslu og vegna framleiðslu viðsemjanda síns. Landbúnaðarráðuneytið taldi Þ óheimilt að hagnýta framleiðslurétt sinn með þessum hætti og var innan ráðuneytisins tekin ákvörðun um að krefja Þ um endurgreiðslu þeirra beingreiðslna sem hann hefði móttekið vegna framleiðslu mjólkur á öðru lögbýli. Talið var að samkvæmt þágildandi 1. og 3. mgr. 46. gr., 47. gr. og 48 gr. laga nr. 99/1993 sbr. 13. gr., 14. og 15. gr. laga nr. 69/1998 væri flutningur mjólkur milli bænda í reikningum mjólkurbúa óheimill og gengi gegn rétti annarra mjólkurframleiðenda, sem framleiði umfram greiðslumark sitt, til hlutdeildar í ónýttum beingreiðslum. Mjólkurframleiðsla á öðru lögbýli hefði því ekki veitt Þ rétt til beingreiðslna úr ríkissjóði og stæðu ákvæði stjórnarskrár um vernd eignarréttar og atvinnufrelsi ekki í vegi fyrir ákvörðun Í um endurgreiðslu þess sem ofgreitt hefði verið. Ekki var fallist á að ákvörðun ráðuneytisins hefði verið tekin með afturvirkum hætti þar sem um hafi verið að ræða leiðréttingu á beingreiðslum byggða á réttum upplýsingum um mjólkurframleiðslu Þ, sem ekki hafi legið fyrir á þeim tíma sem greiðslurnar hafi verið inntar af hendi. Var kröfum Þ í málinu hafnað.

Hæstiréttur birt 13. febrúar 2003

302/2002

Gunnar Hólm Guðbjartsson (Kristinn Bjarnason hrl) gegn Ólafi Guðbjartssyni (Steingrímur Þormóðsson hrl)

G var eigandi að um það bil helmings hlut í jörðinni K, en Ó og sex systkini þeirra áttu tæplega helmings hlut í jörðinni. Frá því að faðir systkinanna lést á árinu 1989 hafði Ó með höndum búrekstur á jörðinni á vegum dánarbús föður síns þar til á árinu 1995. Eftir það nýtti Ó að einhverju leyti mannvirki á jörðinni til búrekstrar á eigin vegum, að því er virtist með samþykki annarra systkina sinna en G. Á árunum 1996 og 1997 fékk hann jafnframt beingreiðslur vegna sauðfjárframleiðslu í skjóli greiðslumarks á jörðinni. Árið 2001 höfðaði G mál á hendur Ó til greiðslu skaðabóta vegna heimildarlausra afnota af eignarhluta sínum í jörðinni, þar með töldu ræktuðu landi og óræktuðu, mannvirkjum á henni og greiðslumarki. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að G hafi engar líkur leitt að því að kostur hafi í raun verið á að leigja jörðina og mannvirki á henni út til búrekstrar á umræddum tíma. Því hafi ekki verið hnekkt að flest hús á jörðinni og girðingar séu ófullnægjandi til slíkra afnota. Ekkert hafi verið leitt í ljós um að unnt hafi verið að leigja sérstaklega út íbúðarhús á jörðinni, enda sé að engu leyti tekið mið af því í forsendum matsgerðar, en um ástand hússins liggi ekki annað fyrir en sú staðhæfing Ó að það hafi verið óíbúðarhæft um árabil. Í málinu hafi heldur ekki komið nægilega fram í hvaða mæli Ó nýtti eignirnar, sem hér um ræðir, og hvort þau afnot hafi komið í veg fyrir að aðrir gætu hagnýtt sér þær. Að öllu þessu athuguðu hafi G ekki sýnt fram á að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna notkunar Ó á þessum eignum. Þá hafi hann ekki hnekkt því að hann hafi hvorki fyrr né síðar lagt stund á sauðfjárbúskap á jörðinni. Hafi hann ekki sýnt fram á að nýting Ó á öllu greiðslumarki jarðarinnar til að fá beingreiðslur árin 1996 og 1997 hafi orðið sér til tjóns. Var Ó sýknaður af kröfu G.

Hæstiréttur birt 22. mars 2001

377/2000

Sigurður Ingi Guðmundsson (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

S seldi Jarðasjóði ríkisins (Í) bújörð sína eftir að hafa árangurslaust reynt sölu hennar á almennum fasteignamarkaði um nokkurt skeið. Hugðist hann bregða búi af heilsufarsástæðum. Jörðin var auglýst laus til ábúðar og byggð þeim B og O stuttu eftir undirritun kaupsamnings milli S og Í. Í kjölfar brottflutnings af jörðinni fór S þess á leit við Í að kaupin yrðu látin ganga til baka. Þessari beiðni var synjað með vísan til þess að jörðinni hefði verið ráðstafað til ábúðar og sú ráðstöfun væri bindandi. Lýsti S þá yfir riftun kaupsamningsins. Var riftuninni mótmælt af hálfu Í. Höfðaði S þá mál til riftunar, en til vara ógildingar kaupsamningsins. Taldi S forsendur kaupanna brostnar og Í hefði vanefnt skyldur sínar samkvæmt kaupsamningi þar sem ábúendur hefðu ekki keypt af sér heybirgðir og bústofn, vélar og tæki. Ógildingarkröfu reisti hann á því að hann hefði verið beittur óhæfilegum þrýstingi við samningsgerðina, sem hann hefði verið ófær um að meta réttilega vegna andlegrar vanheilsu og hafi kaupverð jarðarinnar verið allt of lágt. Hæstiréttur staðfesti héraðsdóminn og sýknaði Í. Talið var að sala lausafjárins hefði engan veginn verið forsenda kaupanna milli S og Í. Þótti ósannað að S hefði verið knúinn til samningsgerðar á öðrum forsendum en hann sjálfur vildi. Með hliðsjón af aðdraganda kaupanna, stöðu S sem bónda um nærri 40 ára skeið og gögnum málsins þótti ekki verða séð, að hann hefði ekki getað gert sér grein fyrir gjörðum sínum þegar hann undirritaði samninginn. Engin efni þóttu til að telja, að S hefði ekki fengið sanngjarnt verð fyrir jörðina og að hlutur greiðslumarks í því hefði ekki verið með vitund hans og vilja.

Hæstiréttur birt 8. mars 2001

279/2000

Ágúst Sigurðsson og Ásgerður Pálsdóttir (Othar Örn Petersen hrl) gegn Magnúsi Birni Brynjólfssyni, Jóni Brynjólfssyni, Magnús Björn Brynjólfsson (Agnar Gústafsson hrl) og Jón Brynjólfsson (Gunnar Sturluson hrl)

M og J, ásamt fjórum bræðrum sínum, áttu fjórðung jarðarinnar Geitaskarð í óskiptri sameign með ábúendunum ÁS og ÁP. Greiðslumark fylgdi jörðinni, en á árinu 1997 seldu ÁS og ÁP það án vitneskju M og J, sem mótmæltu sölunni til B (þá Framleiðsluráð landbúnaðarins). Töldu þeir þörf á samþykki allra þinglýstra eigenda fyrir slíkri sölu, enda væri greiðslumark bundið við lögbýli og þar með ættu allir eigendur jarðarinnar það, en ekki ábúendur. Þrátt fyrir mótmælin hlaut salan samþykki B og kærðu M og J þá ákvörðun til úrskurðarnefndar greiðslumarks, sem synjaði kröfu þeirra. Héraðsdómur féllst á bótakröfu M og J á hendur ÁS og ÁP, en sýknaði B. Byggði dómurinn á því að um sameign væri að ræða og þar með væri eignarhluti M og J hluti af lögbýlinu G. Þeir ættu því hluta af eignum, sem nýttust beint eða óbeint til mjólkurframleiðslu. Teldist greiðslumarkið, sem ráðstafað hefði verið, tilheyra lögbýlinu og ÁS og ÁP hefði borið að gæta þess að allir sameigendur fengju hluta af andvirði eignanna í samræmi við eignarhluta sinn. Hæstiréttur staðfesti ákvörðun héraðsdóms varðandi fjárhæð skaðabóta, en dæmdi ÁS, ÁP og B ábyrg fyrir greiðslu þeirra in solidum. Bótaábyrgð B var reist á því, að því hefði verið kunnugt um eignarhald M og J og mótmæli þeirra gegn sölu greiðslumarksins, en aðilaskipti með greiðslumark taka ekki gildi fyrr en staðfesting B liggur fyrir. Engu að síður hefði B staðfest sölusamninginn þótt því hefði borið lögum samkvæmt að ganga eftir samþykki þinglýstra eigenda.

Hæstiréttur birt 8. júní 2000

69/2000

Benedikt E. Jónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) og Finnborg Guðbjörnsdóttir (Lára G. Hansdóttir hdl) gegn Bændasamtökum Íslands (Gunnar Sturluson hrl) og íslenska ríkinu (Sigrún Guðmundsdóttir hrl)

B og F, sem ráku sauðfjárbúskap á jörðinni BA, keyptu jarðirnar LI og HL og fylgdu með kaupunum greiðslumark er nam 349,1 ærgildi og 244 kindur. Framleiðsluráð landbúnaðarins tilkynnti B að beingreiðslur samkvæmt greiðslumarkinu yrðu stöðvaðar, þar sem komið hefði fram ábending frá forðagæslumanni um að skráning sauðfjár á LI hefði verið endurskoðuð og í ljós hefði komið að enginn ásetningur væri lengur skráður að baki beingreiðslum á þessu lögbýli, en B og F höfðu flutt bústofn LI að BA. Eins og ákvæði laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum um aðilaskipti greiðslumarks urðu skýrð þóttu þau ekki fara í bága við ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 um jafnræði, friðhelgi eignarréttarins eða atvinnufrelsi. Hins vegar var talið að ákvörðun Framleiðsluráðs hefði varðað miklu fyrir atvinnu B og F og fjárhag þeirra. Áður en ákvörðunin hefði verið tekin hefði þeim ekki verið gefinn kostur á að tjá sig, en fyrir lá að áfrýjendur höfðu í hyggju að samnýta hina nýkeyptu jörð með jörð þeirri, sem þau bjuggu á. Eins málið lá fyrir þótti hafa verið nauðsynlegt að kanna það frekar og leita eftir sjónarmiðum B og F áður en ákvörðun yrði tekin, sbr. 10. gr. og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þar sem þessara ákvæða hafði í engu verið gætt var fallist á kröfur B og F um að ákvörðunin yrði felld úr gildi og þeim greidd fjárhæð, sem nam vangreiddum beingreiðslum. Eins og málið lá fyrir þótti hins vegar ekki hafa verið sýnt fram á að lagaskilyrði væru til að taka til greina kröfu B og F um að þeim væri heimilt að færa framleiðslurétt frá LI að BA.

Hæstiréttur birt 24. febrúar 2000

310/1999

Þorbjörg Guðjónsdóttir (Ólafur Björnsson hrl, Sigurður Sigurjónsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Með bréfi til landbúnaðarráðuneytis (LR) sögðu Þ og S upp ábúð á jörðinni L í mars 1996. Jafnframt óskuðu þau eftir úttekt á jörðinni ásamt fjárhagslegu mati á eignarhluta Þ í mannvirkjum, en gerðu m.a. fyrirvara um að viðurkennt yrði að greiðslumark jarðarinnar í mjólk skiptist milli eigenda hennar í sömu hlutföllum og eignin skiptist samkvæmt fasteignamati. LR féllst á uppsögnina, en hafnaði sjónarmiðum Þ og S um skiptingu greiðslumarksins. Við úttektina féllu Þ og S frá fyrirvara um uppsögn ábúðarinnar, en Þ áskildi sér rétt til að láta reyna á það fyrir dómi, að viðurkennt yrði að hún ætti ákveðinn hluta jarðarinnar. Í júlí 1997 var gengið frá samningi milli Þ og S og LR um kaup á mannvirkjum á jörðinni. Rituðu Þ og S undir samninginn með fyrirvara vegna uppgjörs greiðslumarks í mjólk. Höfðaði Þ mál þar sem að hún krafðist annars vegar viðurkenningar á eignarrétti á greiðslumarki jarðarinnar og hins vegar greiðslu andvirðis greiðslumarksins. Var Þ ekki talin hafa lögvarða hagsmuni af því að fá eignarréttarkröfurnar teknar til umfjöllunar og var þeim vísað frá héraðsdómi. Talið var að greiðslumark væri bundið við lögbýli og framleiðslu á því og fylgdi lögbýlinu við eigenda- eða ábúendaskipti. Því væri enginn lagagrundvöllur fyrir því að leiguliði gæti litið á greiðslumark lögbýlis, sem hann hefur haft í ábúð, sem eign sína í lok ábúðar. Þá var ekki fallist á að Þ hefði verið eigandi að 12 ha spildu af jörðinni, heldur hefði verið um að ræða yfirfærslu á ræktun spildunnar frá fyrri jarðeiganda, en ekki á grunneignarrétti. Var íslenska ríkið sýknað af kröfum Þ um greiðslu andvirðis greiðslumarksins.

Hæstiréttur birt 9. desember 1999

190/1999

Guðný Helgadóttir og Hafsteinn Hrafn Daníelsson (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

G og H urðu hæstbjóðendur við nauðungaruppboð jarðarinnar Mela í Leirár- og Melasveit 21. febrúar 1996. Kröfðust þau skaðabóta úr hendi Í og viðurkenningar á því að 213 ærgildi fylgdu jörðinni, þar sem þau hefðu verið grandlaus um að ekkert greiðslumark sauðfjár fylgdi jörðinni. Hinn 1. nóvember 1995 hafði verið samþykkt umsókn fyrri eiganda jarðarinnar um að ríkissjóður keypti greiðslumark hennar, alls 213 ærgildi, í samræmi við samning ríkissjóðs og Bændasamtaka Íslands 1. október 1995. Kvöð um bann við framleiðslu sauðfjárafurða hafði ekki verið þinglýst á jörðina í samræmi við 2. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 23/1996 um kaup og úthlutun á greiðslumarki sauðfjár vegna framleiðsluaðlögunar og var talið ósannað, að fram hefði komið við uppboðið, að jörðin væri seld án greiðslumarks. Hins vegar lá ekkert fyrir um að G og H hefðu kannað hvernig greiðslumarki jarðarinnar var háttað áður en uppboðið fór fram. Boð þeirra hafi verið samþykkt 22. mars 1996 og afsal til þeirra gefið út 22. maí sama ár, en þá höfðu þau fengið í hendur allar upplýsingar um kaup ríkissjóðs á greiðslumarkinu. Engu að síður hefðu G og H ekki gripið til viðeigandi ráðstafana, sem þeim voru færar samkvæmt 1. mgr. 48. gr. laga nr. 90/1991 um nauðungarsölu, en tekið við afsalinu án athugasemda. Við þessar aðstæður þótti skortur á þinglýsingu kvaðarinnar ekki hafa þýðingu. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í af kröfum G og H.