Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

39 dómar fundust

Lykilorð: Bein innsetningargerð

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2013

A-1125/2012

APA ehf (Hróbjartur Jónatansson hrl) gegn Landsbankanum hf (Þröstur Þór Guðmundsson hdl)

Sóknaraðili krafðist þess að 15.000.000 króna yrðu með beinni aðfarargerð teknar úr vörslum varnaraðila. Kröfunni var hafnað þar sem sóknaraðili hafði ekki sýnt fram á að féð væri sérgreint í höndum varnaraðila.

Héraðsdómur Austurlands birt 7. febrúar 2011

A-18/2010

Málaflokkur: Barnaréttur

Fallist var á með M að K hefði farið með þrjú börn þeirra með ólögmætum hætti frá Danmörku til Íslands og að henni bæri annaðhvort að fara ásamt börnunum til Danmerkur að nýju eða að afhenda M þau, í samræmi við ákvæði laga nr. 160/1995 um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. sbr. svokallaðan Haagsamning um einkaréttarleg áhrif af brottnámi barna til flutnings milli landa. Kom einnig fram að forsjárdeilu aðila, sem þegar væri til meðferðar fyrir dönskum dómstól, ætti með réttu að ljúka þar. Viðtal sálfræðings sem dómurinn fékk til að kanna afstöðu barnanna til kröfunnar studdi ekki fullyrðingar K um að börnin hefðu sætt ofbeldi af hálfu M, eða hefðu ástæðu til að óttast hann.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 30. nóvember 2010

A-5/2010

Trésmiður ehf (Tryggvi Guðmundsson hdl) gegn Sæfara, félagi áhugamanna um sjósport á Ísafirði

Mál vegna aðfararbeiðni. Við þingfestingu hafði gerðarþoli þegar orðið við kröfu gerðarbeiðanda og að því gættu þótti gerðarbeiðandi ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að fá efnislega úrslausn um kröfu sína. Var málinu því vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. nóvember 2010

A-79/2010

Lýsing hf (Ólafur Hvanndal Ólafsson hdl) gegn NÁBÍTUM, BÖÐLUM & ILLUM ÖNDUM ehf

Gerðarbeiðandi krafðist þess að járnabeygjuvél yrði tekin úr vörslum gerðarþola. Gerðarbeiðandi hafði rift samningi aðila í desember 2009 en í honum var kveðið á um greiðslur með gengistryggingu við erlenda gjaldmiðla. Vegna óvissu um ætluð vanskil gerðarþola þegar samningnum var rift var ekki talið að uppfyllt væru lagaskilyrði til að fallast á kröfu gerðarbeiðanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. janúar 2008

A-444/2007

Saga Capital Fjárfestingarbanki hf (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Insolidum, ehf, Dögg, Pálsdóttur, Páli og Ágústi Ólafssyni (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

Saga Capital Fjarfestingabanki krafðist dómsúrskurðar um að hlutaskrá Insolidum ehf. yrði breytt þannig að gerðarbeiðandi verði skráður eigandi allra hluta í Insolidum ehf. og að gerðarbeiðanda yrði fengin umráð hlutaskrárinnar. Var talið að skyldu til breytinga á hlutaskrá yrði ekki fullnægt með beinni aðfarargerð. Var því kröfu gerðarbeiðanda hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2007

A-108/2007

Kolbrún Björgólfsdóttir (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn Ásdísi Sigurþórsdóttur (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)

Sóknaraðili krafðist innsetningar í þrjú málverk. Málinu var vísað frá þar sem krafan beindist að lausafjármuum sem sóknaraðili hafði þegar full umráð yfir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2007

A-23/2007

Krafist var afhendingar stúllkubarns með beinni aðfarargerð. Víaðvar til IV. kafla laga nr. 160/1995 og Haagsamningsins. Móðir barnsins hafði numið það á brott frá Frakklandi og flutt með sér til íslands. Talið var að frönsk lög kvæðu skýrt á um sameiginlegan forsjárrétt og var því ólögmætisskilyrðum 2. mgr. 11. gr. laga nr. 160/1995 fullnægt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2007

A-383/2006

Málaflokkur: Barnaréttur

Krafist var að bræður, annar á 17. ári og hinn á 18. yrðu teknir af varnaraðila og afhentir sóknaraðila með beinni aðfarargerð. Sóknaraðili fór einn með forsjá þeirra. Vilji piltanna stoð hnis vegar til að vera hjá varnaraðila. Talið var, þegar litið var heildstætt á málavexti, að hagsmunum piltanna væri best borgið hjá sóknaraðila og var ekki séð að velferð þeirra væri stefnt í hættu hjá honum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. janúar 2007

A-32/2006

Fanney Steinþórsdóttir (Halldór Þorsteinn Birgisson hrl) gegn Malin Linnea Birgitta Widarson og Ólafi Þór Þórarinssyni (Sigurður Jónsson hrl)

Gerðarbeiðanda var heimiluð innsetning í hund þar sem gerðarþoli hafði ekki sýnt fram á að eignarrétturinn hefði færst yfir til hans þrátt fyrir sérstök skilyrði í kaupsamningi m.a. þar sem kaupsamningnum hafði ekki verið rift af hálfu gerðarþola en ræktandi hundsins hafði tekið hundinn úr vörslum þriðja manns án samráðs eða tilkynningar til gerðarbeiðanda. Gerðarþolar höfðu hundinn í vörslum sínum að beiðni ræktanda hundsins.