Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 2. október 2012.
Mál nr. A-176/2012:
A-176/2012:
Íslandsbanki hf.
(Sveinbjörn Sveinbjörnsson hdl)
gegn
Plötupressu ehf.
I
Með
beiðni, móttekinni í Héraðsdómi Reykjavíkur 7. maí 2012, hefur sóknaraðili,
Íslandsbanki hf., Kirkjusandi 2, Reykjavík, f.h. Ergo, Suðurlandsbraut 14,
einnig í Reykjavík, krafist dómsúrskurðar um að plötupressa samkvæmt reikningi
nr. 9059 (nr. 33 frá Plötupressu ehf.) verði, með beinni aðfarargerð, tekin úr
vörslum varnaraðila, Plötupressu ehf., Miklubraut 90 í Reykjavík, og fengin
sóknaraðila í hendur. Var málið þingfest 22. júní sl. og tekið til úrskurðar að
loknum munnlegum málflutningi 26. september sl.
Dómkröfur varnaraðila verða helst skýrðar
þannig:
-
Að
kröfum sóknaraðila verði hafnað.
-
Að
Lykilorð
Útdráttur
Krafa sóknaraðila um innsetningu tekin til greina.
I
Með beiðni, móttekinni í Héraðsdómi Reykjavíkur 7. maí 2012, hefur sóknaraðili, Íslandsbanki hf., Kirkjusandi 2, Reykjavík, f.h. Ergo, Suðurlandsbraut 14, einnig í Reykjavík, krafist dómsúrskurðar um að plötupressa samkvæmt reikningi nr. 9059 (nr. 33 frá Plötupressu ehf.) verði, með beinni aðfarargerð, tekin úr vörslum varnaraðila, Plötupressu ehf., Miklubraut 90 í Reykjavík, og fengin sóknaraðila í hendur. Var málið þingfest 22. júní sl. og tekið til úrskurðar að loknum munnlegum málflutningi 26. september sl. Dómkröfur varnaraðila verða helst skýrðar þannig:
- Að kröfum sóknaraðila verði hafnað.
- Að dómurinn fallist á að samningur nr. 606779-001 „vegna tækja Tailift nr. 118049“ sé að fullu greiddur.
- Að ógiltur verði samningur varnaraðila og sóknaraðila frá 9. desember 2009 nr. 606779-002, og að sóknaraðili verði dæmdur til að endurgreiða varnaraðila 398.937 krónur, ásamt vöxtum.
- Að sóknaraðili verði dæmdur til að greiða varnaraðila skaðabætur að fjárhæð 36.700.000 krónur.
- Að sóknaraðili verði dæmdur til að greiða varnaraðila málskostnað.
Við munnlegan flutning málsins krafðist sóknaraðili einnig málskostnaðar úr hendi varnaraðila, að mati dómsins.
II
Í aðfararbeiðni sóknaraðila kemur fram að Ergo (áður Íslandsbanki Fjármögnun), sem leigusali, og varnaraðili, sem leigutaki, hafi 9. desember 2009 gert með sér fjármögnunarleigusamning um plötupressu samkvæmt reikningi nr. 9059. Samkvæmt samningum skyldi samningsfjárhæðin, 2.702.340 krónur, endurgreidd með 48 mánaðarlegum greiðslum. Fyrsti gjalddagi hafi verið ákveðinn 15. janúar 2010, en þá skyldi varnaraðili þó aðeins greiða stofngjald, 27.023 krónur, auk vaxta frá útborgunardegi. Næsti gjalddagi hafi verið 15. febrúar 2010, en síðan 15. hvers mánaðar, og hafi hver greiðsla á gjalddaga átt að vera 77.210 krónur. Samningstími skyldi vera til 14. janúar 2014. Þá er þar tekið fram að samningsviðmiðun hafi í upphafi miðast við „ISK 100%. ISK hluti leigugjaldsins var óverðtryggður.“ Í 1. tl. 2. gr. almennra samningsskilmála, sem ritaðir eru á bakhlið samningsins, segir svo um greiðslur leigutaka: „Óverðtryggðar leigugreiðslur geta tekið breytingum á hverjum gjalddaga til hækkunar eða lækkunar í samræmi við breytingar á kjörvöxtum Íslandsbanka hf.“
Samkvæmt upplýsingum sóknaraðila, sem fram komu í sókn hans er lögð var fram við upphaf munnlegs málflutnings, mun varnaraðili tvívegis hafa greitt inn á samningsfjárhæðina; 25. maí 2010 113.937 krónur og 18. mars 2011 300.000 krónur, eða samtals 413.937 krónur. Að öðru leyti mun varnaraðili ekki hafa greitt umsamdar leigugreiðslur.
Vegna vanskila varnaraðila var leigusamningnum rift 22. febrúar 2011. Samtímis var skorað á varnaraðila að skila hinu leigða tafarlaust. Fram kemur í aðfararbeiðni að sóknaraðili hafi um nokkurt skeið reynt að ná hinum leigða mun úr vörslum varnaraðila, en án árangurs.
Kröfu sinni til stuðnings vísar sóknaraðili til 78. gr. laga nr. 90/1989, um aðför, en málskostnaðarkrafan byggist á 130. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.
Tekið er fram í aðfararbeiðni að nafni Íslandsbanka Fjármögnun hafi verið breytt í Ergo 11. júlí 2011. Þá kemur fram í áðurnefndum fjármögnunarleigusamningi að Íslandsbanki Fjármögnun sé hluti af Íslandsbanka hf.
III
Málatilbúnaður varnaraðila er mjög óskýr og ruglingslegur og því erfitt að henda reiður á varnir hans. Þó virðist hann byggja á því að fjármögnunarleigusamningur hans og sóknaraðila frá 9. desember 2009 sé ólögmætur þar sem samningurinn hafi verið gerður undir ógnunum og þrýstingi af hálfu sóknaraðila, en án þess að varnaraðila hafi borið nokkur greiðsluskylda. Í því sambandi vísar varnaraðili til þess að hann hafi á sínum tíma, 22. júní 1999, gert fjármögnunarleigusamning við Glitni hf. vegna TAILIFT nr. 118049, þar sem seljandi hafi verið sænska fyrirtækið Nibbler Sales AB. Sá samningur hafi borið númerið 606779 001 og fullyrðir varnaraðili að samningurinn sé að fullu greiddur. Hins vegar hafi Íslandsbanki hf., allt frá stofnun bankans árið 2008, reynt að breyta þeim samningi með nýjum samningi, í því skyni að varnaraðili héldi áfram að greiða, þrátt fyrir að skuld hans samkvæmt fyrri samningi væri að fullu gerð upp. Að lokum hafi varnaraðili gefist upp fyrir hótunum sóknaraðila um vörslusviptingu hins leigða og skrifað undir nýjan samning 9. desember 2009.
Varnaraðili virðist einnig byggja á aðildarskorti. Þannig sé sóknaraðili þessa máls Íslandsbanki hf., fyrir hönd Ergo, án þess að gerð sé grein fyrir hvers konar fyrirtæki hið síðarnefnda sé. Aðilar samningsins frá 9. desember 2009 hafi verið varnaraðili og fjármögnunarleiga Íslandsbanka hf., en hvorki Íslandsbanki hf. né Ergo. Þá telur varnaraðili að kennitala Ergo, 490503-32330, geti ekki verið rétt þar sem það fyrirtæki hafi ekki verið stofnað á árinu 2003.
Um lagarök kveðst varnaraðili vísa til 28., 29., 30. og 31. gr. laga nr. 7/1936, um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, 20. gr. laga nr. 75/1997, um samningsveð, 23. kapítula Jónsbókar frá 1281, 1. gr. tilskipunar um áritun afborgana á skuldabréf frá 1798, 61., 71., 72. og 74. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, auk laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.
IV
Meðal gagna málsins er reikningur frá varnaraðila til Íslandsbanka Fjármögnunar, dagsettur 7. desember 2009, vegna „Punch Press skv. reikn. frá Nibbler nr. 9059“, eins og þar er ritað. Reikningurinn er að fjárhæð 2.702.340 krónur, auk virðisaukaskatts að fjárhæð 662.073 krónur, og er hann áritaður um greiðslu af framkvæmdastjóra varnaraðila, Benedikt G. Stefánssyni. Í kjölfar þessa reiknings, eða 9. desember 2009, munu varnaraðili og Íslandsbanki Fjármögnun hafa gert með sér umræddan samning um fjármögnunarleigu að fjárhæð 2.702.340 krónur. Undir samninginn ritar Benedikt G. Stefánsson, f.h. varnaraðila, en einnig sem sjálfskuldarábyrgðarmaður. Af samningsfjárhæðinni hefur varnaraðili aðeins greitt 413.937 krónur, og því ljóst að um veruleg vanskil er að ræða. Eins og áður greinir er tekið fram í samningnum að Íslandsbanki Fjármögnun sé hluti af Íslandsbanka hf. Þá kemur fram í aðfararbeiðni að 11. júlí 2001 hafi nafni Íslandsbanka Fjármögnunar verið breytt í Ergo.
Varnaraðili hefur á engan hátt sýnt fram á að hann hafi verið beittur þvingunum við undirritun áðurnefnds samnings, eða að ógilda beri hann af öðrum ástæðum. Ekki verður heldur séð að fyrri fjármögnunarleigusamningur varnaraðila og Glitnis hf. breyti neinu um greiðsluskyldu varnaraðila samkvæmt hinum nýja samningi. Þá eiga varnir hans um meintan aðildarskort sóknaraðila sér enga stoð, enda skýrlega tekið fram í gögnum málsins að Íslandsbanki Fjármögnun sé hluti af Íslandsbanka hf. og að nafni fyrrnefnda félagsins hafi verið breytt í Ergo 11. júlí 2011.
Að áliti dómsins, sem stutt er framlögðum gögnum, hefur sóknaraðili fært fram fullar sönnur fyrir rétti sínum, svo og að fullnægt sé skilyrðum 78. gr. laga nr. 90/1989, um aðför, til þess að verða við kröfu hans. Verður krafan tekin til greina, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Með vísan til 1. mgr. 84. gr. laga nr. 90/1989, sbr. og 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, verður varnaraðila gert að greiða sóknaraðila málskostnað. Þykir hann hæfilega ákveðinn 100.000 krónur.
Ingimundur Einarsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Sóknaraðila, Íslandsbanka hf., f.h. Ergo, er heimilt að fá, með beinni aðfarargerð, plötupressu, samkvæmt reikningi nr. 9059 (reikningi nr. 33 frá Plötupressu ehf.), tekna úr vörslum varnaraðila, Plötupressu ehf. Varnaraðili greiði sóknaraðila 100.000 krónur í málskostnað.
Ingimundur Einarsson