Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

16 dómar fundust

Lagagrein: 5. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 8. febrúar 2019

752/2018

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Kamil Piotr Wyszpolski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

K var sakfelldur fyrir að hafa þrisvar sinnum brotist inn í íbúðarhús og stolið þaðan verðmætum, fyrir tilraun til þjófnaðar og líkamsárás og fyrir umferðarlagabrot. Refsing K var ákveðin með vísan til 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. mgr. 71. gr. sömu laga. Var refsing ákærða með hliðsjón af 77. gr. sömu laga ákveðin fangelsi í 18 mánuði.

Landsréttur birt 4. maí 2018

27/2018

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Stefáni Má Guðfinnusyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir að aka bifreið í fjórgang undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptur ökurétti, þar af í einu tilviki einnig undir áhrifum slævandi lyfja og í öðru tilviki einnig fyrir skjalabrot með því að aka bifreið á röngum skráningarmerkjum. Fyrstu brotin framdi hann áður en dómur 7. apríl 2016 gekk og var honum að því leyti gerður hegningarauki en önnur brot sem hann var sakfelldur fyrir framdi hann eftir þann tíma. Með vísan til sakaferils S þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. S krafðist sýknu í málinu með vísan til þess að hann teldi að við skipun eins dómara málsins í Landsrétti hefði verið brotið gegn 59. gr. og 70. gr. stjórnarskrárinnar og 2. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem S hafði játað þá háttsemi, sem honum var gefin að sök í ákæru taldi Landsréttur að hann hefði ekki fært fram haldbær rök fyrir sýknukröfu sinni.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 19. maí 2017

S-2/2017

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn X (Kristján Óskar Ásvaldsson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði dæmdur í níu mánaða fangelsi vegna aksturs sviptur ökurétti, líkamsárásar og brots gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Þá var ákærði talinn hafa rofið skilorð eldri dóms.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. mars 2011

S-500/2009

Ákæruvaldið (Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi) gegn Einari Helgasyni (Jón Þór Ólason hdl)
Lykilorð: Hylming. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sýknaður af líkamsárás. Sakfelldur fyrir þjófnaðar-, fíkniefna- og umferðarlagabrot auk hylmingar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 10. júní 2010

S-254/2010

Ákæruvaldið (Jónína Guðmundsdóttir ftr) gegn Heimi Frey Geirssyni (sjálfur)
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir umferðalagabrot og skjalamisnotkun.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. maí 2009

S-1396/2008

Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson ftr) gegn Ólafi Inga Bjarnasyni (Kjartan Reynir Ólafsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir hraðakstur og fyrir að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Ekki var hins vegar talið sannað að ákærði hefði ekið of hratt miðað við aðstæður á öðrum vegarkafla og síðan á öfugum vegar helmingi og ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu og var ákærði sýknaður af þeim brotum. Refsing ákveðin sekt að fjárhæð 45.000 krónur.

Hæstiréttur birt 4. desember 2008

170/2008

Bryndís Sigurðardóttir (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Bifreiðin SH 720 í eigu B skemmdist í árekstri við aðra bifreið. S var við stjórn bifreiðarinnar þegar áreksturinn varð. B krafði vátryggingafélagið SA um bætur úr húftryggingu bifreiðarinnar vegna skemmda á henni, en SA neitaði greiðslu. SA reisti sýknukröfu sína á því að með vísan til vátryggingaskilmála húftryggingarinnar væri félaginu óskylt að bæta tjónið þar sem ökumaður bifreiðarinnar hefði verið undir áhrifum fíkniefna og hefði því ekki getað stjórnað bifreiðinni örugglega þegar umferðaróhappið varð og jafnframt hefði hann sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að aka á of miklum hraða inn á gatnamótin, þar sem áreksturinn átti sér stað, gegn rauðu ljósi. Talið var, á grundvelli framburðar vitnis, að S hefði ekki haft augun á umferðarvitanum þegar hann nálgaðist gatnamótin heldur hefði hann byrjað að hemla þegar bifreið sú, sem var fyrir framan hann á hægri akrein hemlaði. Jafnframt var talið sannað miðað við staðsetningu bifreiðanna er lentu í árekstrinum að rautt ljós hefði logað nokkra stund í akstursstefnu SH 720 þegar áreksturinn varð. Ennfremur var sannað að S hefði ekið á 70 til 80 km hraða á klukkustund, en leyfilegur hámarkshraði þar var 60 km á klukkustund. Þegar litið var til þessa atvika var fallist á með SA að S hefði valdið árekstrinum af stórkostlegu gáleysi í skilningi 20. gr. laga nr. 20/1954 um vátryggingasamninga og SA sýknað af kröfum B.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. júní 2007

S-842/2006

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn Héðni Smára Ingvaldssyni (Jón Egilsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákært fyrir ýmis umferðarlagabrot og að virða ekki stöðvunarmerki lögreglu. Sakfellt og ákærði dæmdur til að greiða 70.000 króna sekt til ríkissjóðs, sviptingar ökuréttar í þrjá mánuði og greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. apríl 2007

S-377/2007

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson fulltrúi) gegn Daníel Guðlaugssyni

Karlmaður dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot og rangar sakargiftir. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann hafði rofið skilorð dóms frá 5. október 2005.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. febrúar 2007

S-743/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Guðbjarti Smára Franssyni (Óskar Sigurðsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður dæmdur til greiðslu 40.000 krónu sektar fyrir að aka of hratt á svæði þar sem vegaframkvæmdir voru.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. nóvember 2006

S-300/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Ingimar Baldvinssyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður dæmdur til að greiða kr. 60.000.- í sekt fyrir að sinna ekki stöðvunarskyldu lögreglunnar. Ákærði var sviptur ökurétti í 3 mánuði vegna punkta auk þess að greiða málsvarnarlaun. Sýknaður af því að hafa notað þokuljós þar sem ekki var talið sannað að veðurskilyrði til notkunar þeirra hafi ekki verið til staðar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. maí 2006

S-366/2006

Ákæruvaldið (Ásgeir Eiríksson fulltrúi) gegn Pétri Inga Rakelarsyni
Lykilorð: Ökuréttarsvipting.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir umferðarlagabrot. Þriggja mánaða ökuréttarsvipting vegna uppsafnaðra punkta

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. desember 2005

S-1680/2005

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr) gegn Gunnari Róberti Guðjónssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

G var ákærður fyrir brot gegn hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann var sakfelldur að öðru leyti en því að ekki var talið sannað að hann hefði ætlað að selja 16 grömm af kókaíni sem fundust við húsleit á heimili hans. Honum var gert að greiða sekt.

Hæstiréttur birt 13. október 2005

151/2005

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Aðalsteini Árdal Björnssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

A var dæmdur til tveggja ára fangelsisrefsingar fyrir 35 brot, þar af fyrir að aka tíu sinnum sviptur ökurétti og jafnframt tvisvar undir áhrifum, sex þjófnaði, níu skjalafalsbrot, eina gripdeild, fjóra nytjastuldi, tvö fíkniefnalagabrot og eitt brot gegn 1. mgr. 5. gr. umferðarlaga. A var virt það til refsiþyngingar að hann var vanaafbrotamaður, og hafði ítrekað gerst sekur um sumar tegundir brotanna. Á hinn bóginn var tekið tillit til þess að hann hafði játað brot sín hreinskilnislega. Vísað var til 77. gr. almennra hegningarlaga auk 78. gr. um hegningarauka. Þá voru dæmdar með 165 daga eftirstöðvar reynslulausnar ákærða.

Hæstiréttur birt 16. júní 2005

52/2005

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Berki Birgissyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

B var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ráðist að manni og slegið hann nokkrum sinnum í höfuðið með öxi. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir sjö líkamsárásir, brot á vopnalögum og brot á umferðarlögum. Með brotum sínum rauf hann skilorð þriggja mánaða fangelsisdóms, sem hann hafði fengið á árinu 2003 vegna ofbeldisbrots og brots á fíkniefnalöggjöfinni. Ekki var fallist á það með B að dómsformaður í héraði hefði verið vanhæfur til að fara með málið þar sem hann hefði kveðið upp úrskurð á rannsóknarstigi um að B skyldi sæta geðrannsókn. B var dæmdur í fangelsi í sjö ár og sex mánuði.