Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-366/2006:

Ákæruvaldið

(Ásgeir Eiríksson fulltrúi)

gegn

Pétri Inga Rakelarsyni

Ökuréttarsvipting.

Sakfellt fyrir umferðarlagabrot. Þriggja mánaða ökuréttarsvipting vegna uppsafnaðra punkta

Mál þetta, sem dómtekið var 24. apríl 2006, höfðaði lögreglustjórinn í Keflavík með ákæru,  útgefinni 1. mars 2006, á hendur ákærða Pétri Inga Rakelarsyni, kt. 060586-2339, Hringbraut 92a, Keflavík, fyrir eftirtalin umferðarlagabrot:

Brot gegn reglum um umferðarmerki, með því að hafa, þriðjudaginn 9. ágúst 2005, ekið bifreiðinni GO-296 gegn einstefnu vestur Norðurtún í Keflavík.

II.

Hraðakstur, með því að hafa, miðvikudaginn 28. september 2005, ekið bifreiðinni GO-296 vestur Reykjanesbraut við Hvassahraun með allt að 115 km hraða á klst. þegar tekið hefur verið tillit til vikmarka, sem í þessu tilfelli voru 4 km á klst., en þarna er hámarkshraði 90 km á klst.

III.

Hraðakstur, með því að hafa, fimmtudaginn 2. febrúar 2006, ekið bifreiðinni YA- 673 norður Reykjanesbraut við Sprengisand í Reykjavík með allt að 101 km hraða á klst. þegar tekið hefur verið tillit til vikmarka, sem í þessu tilfelli voru 4 km á klst., en þarna er hámarkshraði 70 km á klst.

IV.

Hraðakstur, með því að hafa, mánudaginn 6. febrúar 2006, ekið bifreiðinni YA-673 suður Reykjanesbraut við Vífilsstaðalæk í Garðabæ með allt að 97 km hraða á klst. þegar tekið hefur verið tillit til vikmarka, sem í þessu tilfelli voru 4 km á klst., en þarna er hámarkshraði 70 km á klst.

Brot ákærða samkvæmt ákærulið I er talið varða við 1. mgr. 5. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, brot samkvæmt ákærulið II við 2. mgr. 37. gr. sömu laga og brot samkvæmt ákæruliðum III og IV  við 1 Þess er krafist  að ákærði verði dæmdur til refsingar sbr. 100. gr. umferðarlaga. Þess er jafnframt krafist að ákærði fái 1 punkt fyrir fyrsta, annan og fjórða tölulið ákæru og 2 punkta fyrir þriðja tölulið eða samtals 5 punkta, skv. 7. gr., sbr. viðauka, reglugerðar nr. 431/1998 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota og hann dæmdur til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 1. og 2. mgr. 101. gr. umferðarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 57/1997, og 8. gr., sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 431/1998 vegna 8 uppsafnaðra punkta, en ákærði er með ökurétt til bráðabirgða.

Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, þykir sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.

Samkvæmt vottorði Sakaskrár ríkisins var ákæru frestað á ákærða skilorðsbundið í 2 ár þann 16. apríl 2003 vegna þjófnaðartilraunar. Þann 25. nóvember 2003 var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í 3 ár fyrir þjófnaðartilraun. Þann 16. febrúar 2005 gekkst ákærði undir sátt hjá sýslumanninum í Keflavík vegna brots gegn 37. gr. umferðarlaga. Var honum gert að greiða 20.000 króna sekt og hann sviptur ökurétti í 3 mánuði frá sama degi. Loks gekkst ákærði undir sátt hjá sýslumanninum í Keflavík þann 7. júní 2005 vegna fíkniefnabrots þar sem honum var gert að greiða 45.000 króna sekt. Með broti sínu nú hefur ákærði rofið skilorð dómsins frá 25. nóvember 2003. Þar sem brot þau sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir varða sektum þykir rétt með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að láta skilorðið halda sér en dæma ákærða nú til að greiða sekt í ríkissjóð sem þykir hæfilega ákveðin 75.000 krónur og komi fangelsi í 6 daga í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Með brotum sínum nú hefur ákærði unnið til 5 punkta í ökuferilsskrá og að viðbættum þeim 3 punktum er hann átti staðfesta fyrir vegna brota 12. desember 2004 og 16. desember 2004, hefur hann hlotið samtals 8 punkta innan síðustu þriggja ára. Ákærði er með ökurétt til bráðabirgða og ber því að svipta hann ökurétti í  þrjá mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Engan kostnað leiddi af meðferð máls þessa.

Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður dóminnn upp.

Dómsorð:

Ákærði, Pétur Ingi Rakelarson, greiði 75.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, en sæti ella 6 daga fangelsi.

Ákærði skal sviptur ökurétti í þrjá mánuði frá birtingu dómsins.

Finnbogi H. Alexandersson