Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

24 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum um vernd barna og ungmenna, nr. 58/1992. nr. 22/1995

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2025

S-3930/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Cuong To
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára og upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2025

S-1168/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Símoni Ingvari Jósefssyni (Ólafur Freyr Frímannsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði. Þar af var refsingu frestað vegna þriggja mánaða til tveggja ára. Auk þess var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2024

S-4225/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Draupni Orra Sonjusyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður) og Bergsveini Huga Óttarssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Tveir einstaklingar voru sakfelldir fyrir fíkniefnalagabrot sem þeir játuðu að hafa framið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. nóvember 2023

S-5162/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Þór Stefánssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Skilorðsdómur var dæmdur upp og ákærða gert að sæta 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár og að greiða 1.460.000 króna sekt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. nóvember 2017

S-196/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Auðuni Steindórssyni
Lykilorð: Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir þjófnað

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 3. júlí 2017

S-118/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir þjófnað

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 20. júní 2017

S-53/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Þorleifi Haraldssyni
Lykilorð: Gripdeild. Líkamsárás.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir líkamsárás og gripdeild.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 30. mars 2017

S-100/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir þjófnað og brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöfinni

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. ágúst 2016

S-543/2016

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Degi Þór Brynjarssyni
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum fíkniefni ætluð til sölu og dreifingar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. apríl 2014

S-756/2013

Sérstakur saksóknari (Kristín Ingileifsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Fylki Aðalsteini Jónssyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn lögum um virðisaukaskatt og lögum um bókhald, en sýknaður af ákæru vegna skilasvika.

Hæstiréttur birt 17. desember 2013

379/2013

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Einari Inga Sigurbergssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

E var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum, sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður einkahlutafélags, með því að hafa ekki staðið skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og gjöldunum sjálfum. Ekki var fallist á þá röksemd E að ætlaðir ágallar á rannsókn málsins skyldu leiða til ómerkingar hins áfrýjaða dóms. Vísað var til þess að sönnunarbyrði um sekt E hvíldi á ákæruvaldinu og yrði það að bera hallann af því ef rannsókn máls væri ábótavant og ákæra af þeim sökum ekki reist á nægilega traustum grunni. Talið var að E hefði verið ljóst að með því að vera framkvæmdastjóri félagsins tæki hann á sig tilteknar skyldur samkvæmt lögum. Í þeim skyldum hefði meðal annars falist að sjá til þess að staðin væru skil á afdreginni staðgreiðslu og skýrslum þess efnis. Var E sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og dæmdur í 10 mánaða fangelsi en refsingin var skilorðsbundin til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða 92.100.000 krónur í sekt og kæmi 12 mánaða fangelsi í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. maí 2013

S-940/2012

Sérstakur saksóknari (Matthea Oddsdóttir ftr) gegn Einari Inga Sigurbergssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var dæmdur í 10 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára og til greiðslu sektar fyrir meiriháttar brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og almennum hegningarlögum.

Hæstiréttur birt 27. september 2007

10/2007

Ákæruvaldið gegn X (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl)
Lykilorð: Líkamsárás. Skilorðsrof.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa skallað A með enninu í andlitið svo að fjórar framtennur brotnuðu auk þess sem A hlaut skurð í neðri vör. Við skýrslutöku hjá lögreglu í tilefni af kæru A, þar sem hann kvað X hafa skallað sig, viðurkenndi X að hafa verið þar að verki. Fyrir dómi kannaðist X hins vegar ekki við að hafa skallað A auk þess sem A kvaðst ekki geta verið viss um að X hafi valdið honum áverkanum. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að þeir hefðu báðir staðfest fyrir dómi að hafa gefið skýrslur hjá lögreglu þess efnis að X hefði framið það brot sem hann var sakaður um. Ekkert væri fram komið sem rýrði sönnunargildi játningar X og skýrslu A fyrir lögreglu og var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu X. Með brotinu rauf hann skilorð dóms frá 21. október 2003. Í samræmi við 60. gr. almennra hegningarlaga var 10 mánaða fangelsi samkvæmt þeim dómi tekið upp og dæmt með og var refsing hans ákveðin fangelsi í 14 mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. október 2006

S-311/2006

S- 311/2006 Ákæruvaldið (Helgi Már Ólafsson) gegn Guðmundi Helga Sigurðssyni Daníel Weidermann og Kjartani Benjamínssyni (Guðjón Ægir Sigurjónsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þrír karlmenn dæmdir í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár fyrir nytjastuld, hraðakstur og flótta undan lögreglu auk þess að greiða sektir í ríkissjóð og málsvarnarlaun.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2006

S-1154/2006

Ákæruvaldið (Guðjón Magnússon fulltrúi) gegn Tinnu Kristbjörgu Halldórsdóttur (Rúna Soffía Geirsdóttir hdl)
Lykilorð: Skilorð. Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærða var sakfelld fyrir skjalafals. Refsing 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Bótakröfum var vísað frá dómi.

Hæstiréttur birt 19. október 2006

77/2006

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn Árna Þór Vigfússyni (Gestur Jónsson hrl), Kristjáni Ragnari Kristjánssyni (Brynjar Níelsson hrl), Ragnari Orra Benediktssyni (Sigmundur Hannesson hrl) og Stefáni Hjörleifssyni (Helgi Jóhannesson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Á, K, R og S, sem starfað höfðu hjá einu eða fleiri af fimm einkahlutafélögum, voru sakfelldir fyrir brot gegn 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 með því að hafa ekki staðið réttilega skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda. Greitt hafði verið inn á skuldir félaganna og kom því til álita hvort staðin hefðu verið skil á verulegum hluta skattfjárhæðanna í skilningi 2. málsl. greinanna, eins og þeim var breytt með lögum nr. 134/2005, þannig að fyrirmæli þeirra um fésektarlágmark ættu ekki við. Talið var að undanþágur frá lágmarki fésektar giltu um viðurlög fyrir brotin sem R og S voru sakfelldir fyrir og voru þau því ekki talin meiri háttar í skilningi 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Umræddar undanþágur voru taldar eiga við hluta brota Á, en ekki við brot hans gegn 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 sem varðaði vanskil á 1.252.673 krónum. Þó var ekki talið að þessi fjárhæð eða atvik að öðru leyti væru slík að það gæti varðað við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Viðurlög fyrir flest brotin, sem K var sakfelldur fyrir, voru ákveðin á grundvelli undanþágu frá lágmarki fésektar, en ekki sá hluti sem tók til vanskila á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda samtals að fjárhæð 7.927.026 krónur. Af þessu virtu og þar sem brot K voru framin í rekstri fimm félaga voru þau talin meiri háttar og varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Tekið var fram að Á, K, og R hefðu verið dæmdir til fangelsisrefsingar fyrir brot gegn almennum hegningarlögum með dómi Hæstaréttar í máli nr. 347/2004. Að öðru leyti hefði Á ekki áður sætt refsingu, K og R ekki svo að máli skipti við ákvörðun refsingar og S ekki áður verið sakfelldur fyrir brot. Var Á dæmdur til að greiða sekt að fjárhæð 2.800.000 krónur, R til að greiða sekt að fjárhæð 750.000 krónur og S 300.000 krónur. Um ákvörðun refsingar K gilti 78. gr. almennra hegningarlaga og var ekki talið að honum hefði verið gerð þyngri fangelsisrefsing í fyrri dómi ef dæmt hefði verið um öll brotin þar. Hann var á hinn bóginn dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 18.500.000 krónur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. júní 2006

S-36/2006

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X
Lykilorð: Skilorð. Þjófnaður.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður dæmdur til fangelsisvistar fyrir þjófnað. Hluti dómsins var skilorðsbundinn en um skilorðsrof var að ræða.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 25. maí 2026 kl. 6:39

S-97/2006

Ákæruvaldið (Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi) gegn X (Hilmar Baldursson hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X dæmdur til fangelsisvistar fyrir líkamsárás. Með brotinu rauf S 7 mánaða skilorðsdóm.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. júní 2006

S-97/2006

Ákæruvaldið (Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi) gegn X (Hilmar Baldursson hdl)
Lykilorð: Líkamsárás. Skilorðsrof.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X dæmdur til fangelsisvistar fyrir líkamsárás. Með brotinu rauf S 7 mánaða skilorðsdóm.

Hæstiréttur birt 19. júní 2003

108/2003

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Guðmundi Jóhannssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

G var ákærður fyrir manndráp og líkamstjón af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið fólksbifreið austur Suðurlandsveg á röngum vegarhelmingi, á þeim vegarkafla þar sem vegurinn liggur í all krappri beygju ofarlega í Kömbum, án nægilegrar aðgæslu miðað við akstursskilyrði með þeim afleiðingum að bifreiðin skall framan á jeppabifreið sem ekið var í vestur. Við árekstur bifreiðanna hlaut farþegi í framsæti bifreiðar G svo mikla áverka að hann lést nær samstundis auk þess sem farþegar í báðum bifreiðunum urður fyrir líkamstjóni. Talið var sannað með framburði vitna að G hefði ekið bifreiðinni án nægilegrar aðgæslu við slæm akstursskilyrði í krappri beygju og á röngum vegarhelmingi þegar áreksturinn varð. Var G því sakfelldur fyrir brot gegn 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 14. gr. og c. og h. liðum 2. mgr. 36. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Var honum gert að sæta fangelsi í einn mánuð skilorðsbundið og sviptur ökurétti í eitt ár.

Hæstiréttur birt 18. mars 1999

481/1998

Ákæruvaldið (Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Ólafi Hallgrímssyni (Sigurður Gizurarson hrl)
Lykilorð: Húsbrot. Eignaspjöll. Skilorð.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ó gekk inn í ólæsta íbúð í fjölbýlishúsi að nóttu til en hann var mjög ölvaður. Velti Ó um koll tölvu sem stóð á borði og vaknaði konan X við umganginn. Kom hún Ó út úr íbúð sinni og hringdi á lögreglu. Var Ó handtekinn þar sem hann var að berja að dyrum íbúðarinnar. Ákært var fyrir húsbrot, eignaspjöll og brot gegn blygðunarsemi. Ó var dæmdur fyrir húsbrot og eignaspjöll en sýknaður af ákæru um að hafa brotið gegn blygðunarsemi X með lostugu athæfi.