Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

14 dómar fundust

Lykilorð: Lánastofnanir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. nóvember 2018

E-22/2018

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Jórunni Friðjónsdóttur (Jónas Þór Jónasson lögmaður)

Fallist á kröfu stefnanda en ágreiningur snérist um dráttarvaxtakröfu. Stefndi bar því við að hafa ekki fengið bréf frá stefnanda þar sem stefndi var upplýstur um ábyrgðarkröfu, sbr. tilkynningarskyldu 7. gr. laga nr. 32/2009 ábyrgðarmenn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2017

E-3903/2016

Elsa Bjartmarsdóttir (Sveinn Andri Sveinsson hrl) gegn Landsbankanum hf (Hrannar Jónsson hdl)

Því slegið föstu að lán sem stefnandi hafði tekið hjá fyrirrennara stefnda hafi verið löglegt lán í erlendri mynt, í stað þess að vera íslenskt lán bundið með ólögmætum hætti við gengi erlendrar myntar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2011

E-5841/2010

Norðurvík ehf (Ólafur Örn Svansson hrl) gegn Íbúðalánasjóði (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

Talið var að stefnda, Íbúðalánasjóði, hefði verið óheimilt að setja það skilyrði fyrir lánveitingu til stefnanda að hann legði fram ábyrgðaryfirlýsingu frá fjármálafyrirtæki. Á það var fallist að stefnda bæri að bæta stefnanda þann kostnað sem hlotist hefði af því að afla ábyrgðaryfirlýsingarinnar.