Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-3056/2017:

Landsbankinn hf.

(Ásgeir Jónsson lögmaður)

gegn

Sigmari Júlíusi Eðvarðssyni

I.

Dómkröfur o.fl.:

(Hjalti S. Mogensen lögmaður)

Ábyrgð. Aðilaskipti. Kröfulýsingarfrestur. Kröfuréttur. Lánastofnanir. Lánssamningur. Lögskýring. Málsástæður. Ógilding samnings. Skjöl. Sönnun. Sýkna. Uppgjör.

Sýknað af fjárkröfu á grundvelli lánssamnings.

Dómkröfur o.fl.:

Mál þetta var höfðað 19. september 2017 og dómtekið 18. febrúar 2019. Stefn andi er Landsbankinn hf., Austurstræti 11, Reykjavík. Stefndi er Sigmar Júlíus Eðvarðsson, [...], [...].

Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 7.352.406 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, af 7.352.406 krónum frá 28. september 2013 til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að mati dómsins og tekið verði tillit til virðisaukaskatts.

Stefndi krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda, til vara að stefnukrafan verði lækkuð verulega. Til viðbótar við aðal- og varakröfu krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda samkvæmt framlögðum máls kostnaðarreikningi.

II.

Málsatvik:

Mál þetta má rekja til lánssamnings milli Hydra ehf. og Landsbanka Íslands hf. nr. 3372, dagsettur 27. júlí 2005, hér nefnt fyrra lánið eða fyrri lánssamningur eftir því sem við á. Lánið var jafnframt samþykkt af tuttugu og fimm sjálfskuldar ábyrgðaraðilum, þar með talið stefnda, og var ábyrgð þeirra hlutfallsleg (l. pro rata).   Um   var   að   ræða   samning   um   fjölmyntalán   til   fimm   ára   að   jafnvirði 80.000.000   króna   og   var   miðað   við   sterlingspund   (e.   Pound   sterling,   GBP). Lánsfjárhæðin var greidd í íslenskum krónum inn á bankabók Hydra ehf. þann 2. ágúst 2005 í samræmi við viðauka samningsins um útborgun sem var undirritaður 27. júlí sama ár. Hlutfallsleg ábyrgð hvers og eins sjálfsskuldarábyrgðaraðila var í samræmi við hlutafjáraukningu sem þeir voru skráðir fyrir í Hydra ehf. á þessum tíma. Stefndi var í ábyrgð fyrir 44.671 sterlingspundum. Samkvæmt g- og h-liðum 9. gr. lánssamningsins var lántaka, Hydra ehf., óheimilt að setja nokkrar eignir sínar eða dótturfélaga sinna að veði umfram það sem þegar hefði verið gert við gerð samningsins,   auk   þess   sem   félagið   skuldbatt   sig   til   að   setja   ekki   sérstakar tryggingar fyrir lánum sem það tók eða öðrum fjárhagslegum skuldbindingum, hverju nafni sem þær nefndust, nema sams konar trygging væri jafnframt sett fyrir skuldbindingu   félagsins   samkvæmt   lánssamningnum.  Að   sögn   stefnda   veðsetti Hydra ehf., í janúar 2006, þrátt fyrir fyrrgreint bannákvæði, flugvélar og aðrar eignir til Landsbanka Íslands hf. vegna tveggja lánasamninga sem gerðir voru á þeim tíma, sbr. umfjöllun í dómi Hæstaréttar í máli nr. 119/2009. Láninu var skuld breytt með viðaukum, dagsettum 1. nóvember 2006 og 22. nóvember 2007. Á ár unum 2005-2007 greiddi Hydra ehf. átta sinnum inn á lánið. Vanskil urðu vegna lánsins og beindi bankinn þá kröfum sínum að ábyrgðarmönnunum, þar með talið að stefnda.

Vegna vanskila Hydra ehf. og vegna kröfu Landsbanka Íslands hf. á hendur stefnda til þess að standa undir ábyrgð sinni vegna lánsins gerði stefndi lánssamn ing við bankann, dagsettan 27. apríl 2008 nr. 11874, hér eftir nefnt síðara lánið eða síðari lánssamningur eftir því sem við á. Lán þetta var að fjárhæð 42.000 sterlings pund. Með síðara láninu gerði stefndi upp ábyrgð sína vegna fyrra lánsins. Fleiri sjálfskuldarábyrgðaraðilar vegna fyrra lánsins gerðu einnig upp ábyrgðir sínar á svipuðum tíma, þar með talið með því að taka nýtt lán hjá bankanum. Stefnandi eignaðist kröfu á hendur stefnda með almennri ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 9. október 2008 um ráðstöfun eigna og skulda Landsbanka Íslands hf. Stefndi hætti síðar að greiða af láninu.

Hydra ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta 28. maí 2008 en á þeim tíma hafði nafni félagsins verið breytt í Eignarhaldsfélagið City S.A. ehf. Landsbanki Íslands hf. lýsti upphaflega almennri kröfu í þrotabúið út af fyrra láninu. Kröfulýsingin var síðar lækkuð vegna innborgana sem komu inn á lánið. Við lok gjaldþrotaskipta á árinu 2013 fékk bankinn aðeins úthlutað að hluta upp í kröfu sína.

Með almennri tilkynningu 10. júní 2011 á vefsíðu stefnanda var vísað til dóms Hæstaréttar Íslands frá 9. sama mánaðar í máli nr. 155/2011. Tekið var fram að með dóminum hefði verið fallist á röksemd annars aðila málsins, skuldara sem tekið hafði lán hjá forvera stefnanda á árinu 2007, að lánið væri ekki í erlendri mynt heldur í íslenskum krónum með ólögmætri gengistryggingu við erlenda mynt. Að því virtu bæri stefnanda að endurreikna lánið í samræmi við lög nr. 38/2001. Þá var tekið   fram   í   tilkynningunni   að   bankinn   myndi   jafnframt   endurreikna   önnur sambærileg   lán   og   miða   endurútreikning   við   lægstu   óverðtryggðu   útlánsvexti Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Samhliða sendi stefnandi bréf þar sem stefnda var tilkynnt að bankinn væri að skoða hvort skilmálar síðara lánsins féllu undir for dæmisgildi dómsins varðandi ólögmæta gengistryggingu. Með bréfi stefnanda 29. nóvember 2011 var stefnda tilkynnt að það væri mat bankans að síðara lánið félli ekki undir efnisatriði dómsins og að því virtu yrði það ekki endurútreiknað. Með bréfi til stefnanda 12. desember 2011 tilkynnti stefndi að hann teldi að fyrra lánið hefði verið ólögmætt og taka ætti tillit til þess til lækkunar á síðara láninu.

Einar Pétursson, starfsmaður Landsbankans hf., gaf skýrslu vitnis við aðal meðferð.

III.

Helstu málsástæður og lagarök stefnanda:

Stefnandi reisir dómkröfur sínar á síðara láninu, sbr. lánssamning Landsbanka Íslands hf. og stefnda, dagsettan 27. apríl 2008. Samkvæmt þeim samningi hafi Landsbanki Íslands hf., sem lánveitandi, og stefndi, sem lántaki, samið um fjöl myntalán til þriggja ára að fjárhæð 42.000 sterlingspund. Í samningnum hafi verið miðað við að ef stefndi greiddi afborganir, vexti og dráttarvexti eða aðrar greiðslur í íslenskum krónum þá skyldi hann greiða samkvæmt sölugengi bankans á gjalddaga. Stefndi hafi lofað að taka að láni og bankinn að lána umsamda fjárhæð, sbr. gr. 1.1 í samningnum. Stefndi skyldi greiða lánveitanda 0,30% lántökugjald af heildarfjárhæðinni og skyldi lántökugjaldið dragast af við útborgun lánsins, sbr. gr. 5.1 í samningnum. Stefnandi vísar til þess að stefndi hafi með beiðni 25. júlí 2008 óskað eftir útgreiðslu lánsins 31. sama mánaðar til samræmis við gr. 1.2 og viðauka nr. 1 í samningnum. Hafi það leitt til þess að greidd voru til hans 41.874,00 sterlingspund.

Stefnandi vísar til þess að borið hafi að greiða lánið að fullu á næstu þremur árum með sex jöfnum afborgunum á sex mánaða fresti. Fyrsti gjalddagi afborgana og vaxta hafi verið 1. janúar 2009, sbr. gr. 2.1 í samningnum. Stefndi hafi lofað að greiða bankanum vexti sem skyldu vera breytilegir vextir jafnháir LIBOR-vöxtum (e. London Inter Bank Offered Rate) í samræmi við lengd vaxtatímabils hverju sinni,   auk   3,75%   vaxtaálags.   Með   LIBOR-vöxtum   hafi   verið   átt   við   vexti   á millibankamarkaði í London eins og þeir voru auglýstir kl. 11:00 fyrir hádegi að staðartíma í London á BBA-síðu Reuters eða sambærilega vexti eins og þeir birtust á   síðu   3750   á   Dow   Jones   Telerate   skjá,   tveimur   virkum   dögum   fyrir   hvert vaxtatímabil, sbr. gr. 3.2 í samningnum. Þessu til viðbótar hafi verið kveðið á um að vextir skyldu reiknast frá útborgunardegi lánsins og þeir greiðast eftir á á gjald dögum á sex mánaða fresti í fyrsta skipti 1. janúar 2009, sbr. gr. 2.1 og 3.3 í samn ingnum. Þá skyldi við vaxtaútreikning taka mið af vaxtareglum er varða dagafjölda sem í gildi væru á alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum á hverjum tíma, sbr. gr. 3.4 í samningnum.

Stefnandi   vísar   til   þess   að   stefnda   beri   skylda   til   að   greiða   dráttarvexti samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001 af gjaldfallinni eða gjaldfelldri fjárhæð, frá gjalddaga til greiðsludags, standi hann ekki skil á greiðslu vaxta eða afborgunar á gjalddaga. Í gr. 6.1 í lánssamningnum sé kveðið á um að lánveitandi skyldi hafa val um það hvort krafist yrði dráttarvaxta af fjárhæðinni í erlendri mynt, eða af skuldinni   breyttri   í   íslenskar   krónur.   Þá   sé   þar   einnig   kveðið   á   um   að   séu dráttarvextir krafðir í erlendum myntum þá skyldu þeir vera vextir samkvæmt gr. 3.1 í lánssamningnum, auk viðeigandi álags að viðbættu 10% viðbótarálagi. Ef skuldinni   yrði   hins   vegar   breytt   í   íslenskar   krónur   á   gjalddaga   þá   skyldu dráttarvextir   reiknast   á   íslenskar   krónur   eftir   ákvörðun   Seðlabanka   Íslands samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001. Þá vísar stefnandi til gr. 6.2 í lánssamn ingnum varðandi vanefndir stefnda. Þar sé kveðið á um skyldu hans til að greiða lánveitanda, auk vaxta og dráttarvaxta, allan kostnað sem bankinn legði út í vegna vanefndanna, málssóknar eða annarra réttargjalda, lögmannsþóknunar eða annars sem bankanum bæri að greiða, svo og annan lögfræðilegan kostnað vegna inn heimtu alls lánsins.

Stefnandi vísar til viðauka við lánssamninginn, dagsettan 16. apríl 2009, þar sem   fram   komi   að   eftirstöðvar   lánsins   5.   janúar   2009   hafi   verið   42.000,00 sterlingspund.  Auk   þess   hafi   gjaldfallnir   vextir   á   þeim   tíma   verið   1.757,06 sterlingspund og hafi þeir átt að greiðast við undirritun viðaukans. Samkvæmt skilmálabreytingunni   hafi   lánveitandi   og   stefndi   orðið   ásáttir   um   breytingar   á lánssamningnum. Nánar tiltekið hafi verið gerð breyting á lánstíma samkvæmt gr. 2.1 í lánssamningnum með þeim hætti að eftirstöðvar lánsins hafi átt að greiða að fullu með sex jöfnum afborgunum á sex mánaða fresti. Næsti gjalddagi afborgana og vaxta hafi átt að vera 15. júlí 2009 og þá hafi vextir átt að reiknast frá 5. janúar sama ár. Að öðru leyti hafi verið lagt til grundvallar að lánssamningurinn skyldi haldast óbreyttur.

Stefnandi vísar til 10. gr. lánssamningsins varðandi uppsagnarákvæði. Þar sé kveðið   á   um   heimild   lánveitanda   til   gjaldfellingar   að   uppfylltum   ákveðnum skilyrðum. Nánar tiltekið sé þar um að ræða heimild til að fella lán samkvæmt samningnum í gjalddaga einhliða, fyrirvaralaust og án viðvörunar eða sérstakrar uppsagnar. Heimildin sé meðal annars til staðar hafi vanskil á greiðslu afborgana eða vöxtum varað í fjórtán daga eða lengur, sbr. a-lið gr. 10.1 í lánssamningnum. Þá sé í grein 10.2 sama samnings, þegar þannig stendur á, jafnframt kveðið á um að lánveitanda sé heimilt að umreikna skuldina í íslenskar krónur á gjalddaga eða uppsagnardegi miðað við skráð sölugengi bankans á þeim myntum sem hver lánshluti samanstandi af og krefja stefnda um greiðslu í samræmi við ákvæði lánssamningsins. Þessu til viðbótar sé í grein 10.3 í lánssamningnum kveðið á um það að komi til gjaldfellingar samkvæmt gr. 10.1 í sama samningi þá beri allar skuldir í öllum tilvikum dráttarvexti í samræmi við gr. 6.1 í samningnum af gjaldfallinni eða gjaldfelldri fjárhæð.

Varðandi stöðu vanskila tekur stefnandi fram að elsti ógreiddi gjalddagi lánsins sé 15. janúar 2010. Þá hafi lokagjalddagi samkvæmt samningnum verið 16. janúar 2012. Þann 2. febrúar 2015 hafi eftirstöðvar lánsins verið 35.000,00 sterlingspund og áfallnir samningsvextir verið 1.664,87 sterlingspund, eða samtals 36.664,87 sterlingspund. Þann dag hafi sölugengi sterlingspunds verið 200,53. Umreiknaðar eftirstöðvar lánsins hafi því verið 7.352.406 krónur sem sé stefnufjárhæð málsins, auk dráttarvaxta og kostnaðar. Stefnandi gerir kröfu um dráttarvexti af stefnufjárhæð frá 28. september 2013, eða fjórum árum fyrir þingfestingardag málsins. Dráttarvextir fyrir tímabilið 15. júlí 2010 til 27. september 2013 hafi hins vegar fallið niður fyrir fyrningu og því sé ekki krafist dráttarvaxta fyrir það tímabil. Stefnandi tekur fram að stefnda hafi verið sent innheimtubréf 2. febrúar 2015 en skuldin ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir.

Stefnandi tekur fram að um samninginn gildi íslensk lög. Þá sé í gr. 15.1 í samningnum kveðið á um að mál vegna ágreinings um réttindi og skyldur aðila skuli rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Um aðild að málinu vísar stefnandi til fyrrgreindrar ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins frá 9. október 2008. Um lagarök að öðru leyti vísar stefnandi til meginreglna kröfu- og samningsréttar um greiðsluskyldu fjárskuldbindinga og efndaskyldu loforða. Kröfur um dráttarvexti, þar   með   talið   vaxtavexti,   styður   stefnandi   við   lög   nr.   38/2001.   Krafa   um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála. Þá er krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun reist á lögum númer 50/1988 en stefnandi tekur fram að hann sé ekki virðisaukaskattsskyldur og því beri honum nauðsyn til að fá dóm fyrir skatti þessum úr hendi stefndu. Þessu til viðbótar vísar stefnandi til samningsskilmála og 3. mgr. 42. gr. laga nr. 91/1991 að því er varðar varnarþing.

Helstu málsástæður og lagarök stefnda:

Stefndi reisir varnir sínar aðallega á því að samningi aðila frá 27. apríl 2008 vegna síðara lánsins eigi að víkja til hliðar í heild eða að hluta þar sem það sé ósann gjarnt og andstætt góðri viðskiptavenju að stefnandi beri samninginn fyrir sig, sbr. 36. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ólögmæta löggerninga. Eigi það bæði við um aðal- og varakröfu hans. Stefndi tekur fram að við mat á þessu eigi að líta til efnis samnings, stöðu samningsaðila, atvika við samningsgerð og atvika sem síðar komu til. Þá byggir stefndi á því að við mat á því hvort lagaákvæðið eigi við um þann samning eigi að líta til atriða í samningi milli sömu aðila vegna fyrra lánsins sem tengist gerð samningsins vegna síðara lánsins. Um þetta vísar stefndi meðal annars til sjónarmiða sem fram koma í 36. gr. c laga nr. 7/1936, sbr. 4. gr. laga nr. 14/1995. Stefndi vísar til þess að stefnandi hafi eignast kröfu Landsbanka Íslands hf. á hendur honum á grundvelli fyrrgreindrar ákvörðunar Fjármálaeftirlits ins 9. okt. 2008. Að því virtu og samkvæmt almennum reglum um aðilaskipti að kröfuréttindum þá öðlist stefnandi ekki rýmri rétt á hendur stefnda með þeirri ráð stöfun en forveri hans naut. Stefndi byggir á því að hann haldi öllum mótbárum þrátt fyrir aðilaskiptin, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 348/2013.

Til rökstuðnings fyrir sýknu á framangreindum lagagrundvelli byggir stefndi á því að lækkun kröfulýsingar Landsbanka Íslands hf. í þrotabú Eignarhaldsfélagsins City S. A. ehf., áður Hydra ehf., hafi valdið honum tjóni. Stefndi vísar til þess að bankinn hafi upphaflega lýst almennri kröfu í þrotabúið að fjárhæð 93.204.643 krónur út af fyrra láninu. Úrskurðardagur þrotabúsins hafi verið 28. maí 2008 og kröfulýsing bankans hafi verið dagsett 28. júlí sama ár. Kröfulýsingin hafi síðan verið lækkuð miðað við kröfuskrá bankans 8. september 2008 og hún verið send skiptastjóra með tölvuskeyti 15. sama mánaðar. Bankinn hafi þá verið búinn að taka tillit til innborgana sem komið höfðu inn á fyrra lánið 31. júlí 2008 og 6. ágúst sama ár frá ábyrgðarmönnum þess láns. Að því virtu hafi endanleg fjárhæð á kröfu bankans í búið vegna fyrrgreinds láns verið umtalsvert lægri en ella, nánar tiltekið 21.333.498 krónur. Með lækkun kröfunnar hafi bankinn fengið umtalsvert lægri fjárhæð   greidda   við   búskiptin   eða   sem   nam   12.849.727   krónum.   Niðurstaða samkvæmt úthlutunargerð hafi því verið sú að bankinn fékk upp í kröfu sína, í september/október   2013,   samtals   6.972.897   krónur.   Þá   tekur   stefndi   fram   að fyrrgreind lækkun hafi verið sett fram af bankanum eftir að kröfulýsingarfresti lauk í þrotabúið. Að því virtu hafi stefndi ekki haft nokkurn möguleika á því að lýsa kröfu í búið vegna tjóns síns út af ábyrgðinni. Stefndi byggir á því að það hafi verið alvarleg mistök hjá bankanum að lækka kröfuna í þrotabúið eins og að framan greinir. Þá hafi ekkert samráð verið haft við stefnda í þessu sambandi. Með þessu hafi bankinn fallið frá rétti til greiðslu úr þrotabúinu á kostnað stefnda en um þetta fari eftir reglum samkvæmt 103. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Með þessu hafi bankinn valdið stefnda tjóni sem sé sennileg afleiðing af saknæmri hátt semi bankans. Stefndi byggir á því að ef kröfulýsingin hefði ekki verið lækkuð þá hefði   framangreind   fjárhæð,   12.849.727   krónur,   átt   að   greiðast   til   hans   sem ábyrgðarmanns, að öllu leyti eða hluta, og lækka dómkröfuna í þessu máli. Stefndi gerir því þá kröfu að öll framangreind fjárhæð komi til lækkunar á stefnukröfu í þessu máli. Þá telur stefndi að framangreind háttsemi stefnanda séu enn frekari rök fyrir því að víkja beri lánssamningnum til hliðar á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 svo leiði til sýknu.

Varnir stefnda taka einnig til þess að víkja eigi síðari lánssamningnum til hliðar á fyrrgreindum lagagrundvelli þar sem fyrra lánið hafi verið með ólögmætri gengis tryggingu. Nánar tiltekið byggir stefndi á því að höfuðstóll fyrra lánsins, milli Hydra ehf., Landsbanka Íslands hf. og tuttugu og fimm ábyrgðaraðila, hafi verið í íslenskum krónum en tekið breytingum miðað við gengi erlends gjaldmiðils. Slík gengistrygging lána sé ólögmæt. Að því virtu hafi gengistrygging fyrra lánsins farið í bága við 13. og 14. gr. laga nr. 38/2001. Stefndi vísar til dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 155/2011 og stefnanda hafi verið skylt að endurreikna lánið í kjölfar fyrrgreinds dóms. Þá hafi bankinn gefið út skuldbindandi loforð með opinberri yfirlýsingu 10. júní 2011. Höfuðstóll fyrra lánsins hafi því verið of hár. Ef bankinn hefði endurreiknað lánið þá hefði krafa hans á ábyrgðaraðila orðið mun lægri en lögð   var   til   grundvallar   uppgjöri   við   þá.   Stefnandi   hafi   því   fengið   verulega ofgreiðslu á sínum tíma. Stefnandi verði því að endurreikna fyrra lánið en það leiði til þess að hann þurfi að lækka kröfu sína í þessu máli enda hafi höfuðstóll síðara lánsins verið of hár sem nemur hinni ólögmætu gengistryggingu fyrri lánssamningsins. Þessu til viðbótar byggir stefndi á því að það sé ljóst að fyrra lánið sé löngu upp greitt og rúmlega það. Í fyrsta lagi með innborgunum Hydra ehf. inn á lánið á árunum 2005-2007. Í annan stað með innborgunum ábyrgðaraðila inn á lánið á árinu 2008 en þær hafi miðast við að gera bankann skaðlausan og gera lánið upp miðað við að um væri að ræða lögmætt erlent lán. Í þriðja lagi þegar tekið sé tillit til úthlutunargerðar úr búi Hydra ehf. en þar hafi stefnandi í sept ember/október 2013 fengið 6.972.897 krónur upp í kröfu sína. Þá hafi þessi greiðsla komið til stefnanda löngu eftir að ábyrgðaraðilar gerðu upp ábyrgðir sínar vegna fyrra lánsins með peningagreiðslum og nýjum lánssamningum. Að því virtu hefði stefnandi átt að ráðstafa henni til að lækka kröfuna samkvæmt stefnu í þessu máli en það hafi hann ekki gert.

Stefndi reisir varnir sínar einnig á því að 36. gr. laga nr. 7/1936 eigi við þar sem líkur bendi til þess að stefnandi hafi þegar fengið greidda fjármuni vegna fyrra lánsins   sem   geri   hann   skaðlausan.   Stefnandi   hafi   ekki   endurreiknað   lánið   til samræmis við dómafordæmi Hæstaréttar. Að því virtu telur stefndi að frekari greiðslur inn á síðara lánið myndu leiða til ólögmætrar auðgunar stefnanda. Höfuð stóll skuldar hans samkvæmt síðara láninu hafi verið alltof hár í upphafi enda hafi fjárhæðin tekið mið af ólögmætum útreikningum stefnanda vegna fyrra lánsins. Staða samningsaðila hafi verið ójöfn við samningsgerðina, stefnandi sé fjármálafyrirtæki   sem   hafi   á   að   skipa   sérfróðum   starfsmönnum   en   stefndi   sé einstaklingur og neytandi. Mjög hafi hallað á stefnda við samningsgerðina og öll ákvæði samningsins verið samin einhliða af stefnanda. Stefndi vísar nánar til atvika í tengslum við síðari lánssamninginn sem stangist á við góða viðskiptahætti og venjur, sbr. 19. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Stefndi eigi ekki að bera hallann   af   því   að   hafa   gengist   í   ábyrgð   vegna   fyrra   lánsins   sem   starfsmenn stefnanda máttu vita að var ólögmætt frá upphafi. Síðara lánið hafi verið allt of hátt. Meginþorri sjálfskuldarábyrgðarmanna fyrra lánsins hafi gert upp ábyrgðir sínar en ábyrgð þeirra hafi ávallt miðast við að fyrra lánið væri lögmætt erlent lán. Þá hafi stefnandi   fengið   greiddar   inn   á   lánið   6.972.897   krónur   frá   þrotabúinu.   Þeir fjármunir eigi að koma til lækkunar stefnukröfu í máli þessu geti stefnandi ekki sýnt fram á eðlilega ráðstöfun þeirra.

Til viðbótar framangreindum málsástæðum til stuðnings aðal- og varakröfu þá gerir stefndi rökstuddar athugasemdir við höfuðstóls- og vaxtakröfu stefnanda vegna síðara lánsins sem hann telur að geti haft áhrif á formhlið málsins og kunni að leiða til frávísunar þess frá dómi án kröfu. Krafa samkvæmt stefnu málsins sé ekki gerð í íslenskum krónum enda hafi stefnandi aldrei tilkynnt honum að síðari láninu hafi verið umbreytt í íslenskar krónur. Þá komi ekki fram í vaxtakröfu hvort verið sé að fara fram á innlenda eða erlenda dráttarvexti og engin leið sé fyrir stefnda að átta sig á því. Enn fremur gerir stefndi athugasemd við kröfu stefnanda um virðisaukaskatt á málflutningsþóknun. Telur stefndi þá kröfu vera óréttmæta þar sem stefnandi geti innskattað virðisaukaskatt á málflutningsþóknun. Um lagarök að öðru leyti vísar stefndi til laga nr. 38/2001, einkum 13. og 14. gr. þeirra laga. Þá vísar stefndi til laga nr. 7/1936, einkum 36. gr. og 36. gr. c. Varðandi kröfu um málskostnað vísar stefndi til 129. gr. og 130. gr. laga nr. 91/1991 en því til viðbótar vísar stefndi til laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og tekur fram að hann sé ekki virðisaukaskattsskyldur og því sé nauðsynlegt að taka tillit til þess við ákvörðun málskostnaðar. Með hliðsjón af úrlausn málsins þykja ekki efni til að greina nánar frá málsástæðum og lagarökum stefnda, sbr. e-lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 10. gr. laga nr. 78/2015.

IV.

Niðurstöður:

Ágreiningur   máls   þessa   lýtur   að   því   hvort   stefnda   beri   greiðsluskylda eftirstöðva   láns   samkvæmt   síðari   lánssamningnum,   dagsettum   27.   apríl   2008. Óumdeilt er að stefndi undirritaði umræddan lánssamning sem lántaki. Samkvæmt lánssamningnum var fjárhæð lánsins þar skýrlega tilgreind í sterlingspundum og var því um lögmætt lán í erlendri mynt að ræða. Með viðauka 16. apríl 2009 var gerð   breyting   á   lánstíma   o.fl.   Í   málinu   liggur   fyrir   að   tilefni   þess   að   síðari lánssamningurinn var gerður var uppgjör á sjálfskuldarábyrgð stefnda vegna fyrri lánssamningsins   milli   Landsbanka   Íslands   hf.   og   Hydra   ehf.   en   stefndi   var   í hlutfallslegri ábyrgð sem nam 44.671 sterlingspundi vegna þess samnings. Með viðauka 1 með síðari lánssamningnum, dagsettum 25. júlí 2008, óskaði stefndi eftir ráðstöfun lánsins inn á fyrra lánið 31. sama mánaðar. Fyrir liggur að aðilaskipti urðu á kröfu stefnanda á hendur stefnda, sbr. ákvörðun Fjármálaeftirlitsins 9. október 2008. Stefndi heldur öllum mótbárum gegn kröfu stefnanda þrátt fyrir aðilaskiptin,   sbr.   dóm   Hæstaréttar   Íslands   frá   21.   nóvember   2013   í   máli   nr. 348/2013. Annað hliðstætt mál út af öðrum sjálfsskuldarábyrgðaraðila, sem var í hlutfallslegri ábyrgð út af sama láni til Hydra ehf., hefur áður verið til umfjöllunar fyrir dómstólum, sbr. dóm Hæstaréttar frá 11. maí 2017 í máli nr. 587/2016. Mála tilbúnaður aðila í því máli er að mörgu leyti hliðstæður málatilbúnaði aðila í þessu máli enda samkynja sakarefni og atvik máls keimlík. Að því virtu hefur dómurinn leiðbeiningargildi fyrir úrlausn þessa máls.

Í máli þessu háttar svo til að stefnandi lýsti fyrst kröfu í fyrrgreint þrotabú, aðal skuldara samkvæmt fyrri lánssamningnum, með kröfulýsingu 28. júlí 2008, samtals að fjárhæð 93.210.868 krónur, sem send var innan kröfulýsingarfrests. Í niðurlagi kröfulýsingarinnar var tekið fram að hún myndi taka breytingum vegna skuld breytinga sjálfskuldarábyrgðaraðila. Þá var kröfulýsingin lækkuð 15. september sama ár, að liðnum kröfulýsingarfresti, niður í 21.339.723 krónur, án samráðs við stefnda og var ástæðan fyrir lækkuninni sú að flestir ábyrgðaraðilar höfðu gert upp ábyrgðir sínar, þar með talið stefndi með síðara láninu sem hér er til umfjöllunar. Með   þessu   fékk   stefnandi   lægri   úthlutun   úr   þrotabúinu   sem   nam   12.849.727 krónum. Þá liggur fyrir að stefndi lýsti ekki kröfu í umrætt þrotabú. Hið sama á við um aðra ábyrgðarmenn sem gerðu upp ábyrgðir sínar. Stefndi reisir dómkröfur sínar á því að með þessu hafi stefnandi ekki lýst ýtrustu kröfum og þar með ekki gætt hagsmuna sinna til fulls og fallið frá rétti til greiðslu af óveðsettum eignum úr þrotabúinu. Þá hafi þetta verið gert án samráðs við stefnda og leitt til tjóns fyrir hann og aðra sjálfskuldarábyrgðaraðila enda hafi stefnandi gengið að ábyrgðar aðilunum áður en ljóst var hversu mikið fengist upp í lánið frá þrotabúinu. Með þessu hafi verið farið gegn 103. gr. laga nr. 21/1991. Háttsemi stefnanda hafi að þessu leyti þýðingu við mat á ábyrgð hans og hvort víkja eigi til hliðar og ógilda fjárskuldbindingu hans samkvæmt síðari lánssamningnum á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936.

Stefnandi mótmælir framangreindum vörnum stefnda og tekur fram að 103. gr. laga   nr.   21/1991   taki   aðeins   til   óskiptrar   ábyrgðar   en   ekki   til   hlutfallslegrar ábyrgðar. Stefnandi bendir einnig á að stefnda hefði verið unnt að beina kröfu að þrotabúinu jafnvel þótt kröfulýsingarfrestur væri liðinn. Það hafi hann hins vegar ekki   gert   og   stefnandi   geti   ekki   borið   ábyrgð   á   því   og   hann   ekki   haft leiðbeiningarskyldu í því sambandi. Síðari lánssamningurinn hafi verið gerður um mánuði áður en þrotabúið var tekið til skipta með úrskurði 28. maí 2008. Kröfu lýsingarfrestur hafi verið til 18. ágúst 2008. Þegar stefnandi hafi fengið fyrirmæli frá stefnda 25. júlí sama ár um greiðslu inn á fyrra lánið þann 31. sama mánaðar út af ábyrgðinni, hafi kröfulýsingarfresturinn ekki verið liðinn. Þetta hafi nítján aðrir ábyrgðaraðilar gert með sama hætti og sumir tekið ný lán eins og stefndi en aðrir greitt með peningum á tímabili frá júní til september 2008. Enginn þeirra sem staðið hafi við ábyrgðir sínar hafi hins vegar lýst kröfum í þrotabúið. Þá hafi skipta lok í búinu verið 20. september 2013 en fyrri úthlutun úr því hafi verið í mars sama ár. Að þessu virtu hafi liðið um fimm ár frá greiðslu stefnda þar til byrjað var að úthluta úr búinu. Stefnandi bendir á að hann hafi ekki verið eini kröfuhafi þrota búsins og því sé ljóst að bankinn hafi ekki getað staðið á því að fá úthlutað miðað við upphaflega kröfulýsingu þar sem ábyrgðarmennirnir lýstu ekki kröfum í búið. Ef það hefði gerst þá hefði það bitnað á öðrum kröfuhöfum sem lýstu kröfum í búið. Þá komi hvergi fram í lögum að stefnanda, sem kröfuhafa, hafi verið óheimilt að lækka kröfuna í þrotabúið en sú ráðstöfun hafi verið eðlileg og samrýmst 104. gr. laga nr. 21/1991.

Það liggur í eðli sjálfskuldarábyrgðar að ábyrgðarmaður tekur að sér skuld aðal skuldara eins og hann hefði sjálfur stofnað hana. Að því virtu verður hann almennt sjálfur að gæta að því að hann bíði ekki tjón við sjálfskuldarábyrgðina eins og hverju öðru er hann kann að ráðast í. Kröfuhafi hefur almennt ekki skyldu til að gæta hagsmuna sjálfskuldarábyrgðarmanns í þessu tilliti. Annað mál er það að samkvæmt meginreglum kröfuréttar getur kröfuhafi ekki með því að gæta ekki að rétti sínum aukið skuldbindingu ábyrgðarmanns. Í máli þessu háttar svo til að ábyrgð stefnda vegna skuldar þrotabúsins var hlutfallsleg en ekki óskipt. Ákvæði 103. gr. laga nr. 21/1991 taka samkvæmt orðanna hljóðan aðeins til óskiptrar ábyrgðar. Sambærilegum ákvæðum er ekki til að dreifa í þeim lögum sem taka til hlutfallslegrar ábyrgðar í þessu tilliti. Markmið og tilgangur ákvæðanna er að standa vörð um hagsmuni kröfuhafa og ábyrgðarmanna. Við skýringu á 103. gr. laga nr. 21/1991 verður að líta til þess tilgangs lagagreinarinnar, að tryggja að úthlutun vegna tiltekinnar kröfu fari ekki umfram þá hlutdeild sem í hennar hlut skal koma miðað við heildarfjárhæð kröfunnar en þessi verkan greinarinnar tryggir rétt   annarra   kröfuhafa.   Þá   ber   einnig   að   leggja   til   grundvallar   þá   reglu lagagreinarinnar   að   kröfuhafa   er   rétt   að   lýsa   heildarfjárhæð   kröfu   í   þrotabú skuldara, þótt hún hafi að einhverju leyti fengist greidd frá ábyrgðarmönnum, eða líkur standi til þess að greiðsla muni berast frá þeim. Síðar, eða við lok skipta, skal svo koma til lokauppgjörs ef hallar á einhvern í þeim lögskiptum, sbr. 104. gr. sömu laga. Ekki verður séð að skilsmunur óskiptrar og hlutfallslegrar sjálfskuldar ábyrgðar hafi þýðingu í þessu sambandi þegar svo háttar til sem í þessu máli að þrotamaður er einn skuldari og ber ábyrgð á skuldinni allri. Að þessu virtu þykir rétt að beita ákvæðum 103. gr. laga nr. 21/1991 um hlutfallslega sjálfskuldarábyrgð í framangreindu tilliti eins og um væri að ræða óskipta sjálfskuldarábyrgð. Fyrir liggur að stefnandi lýsti upphaflega kröfu í þrotabúið 28. júlí 2008 en lækkaði kröfu lýsingu sína í það 15. september sama ár, eftir að hann fékk greitt frá stefnda, sem leiddi til þess að hann fékk lægri úthlutun við skiptalok sem nam 12.849.727 krón um. Fjárhæðin er óumdeild milli aðila og er hún hærri en stefnufjárhæð í þessu máli. Með þessu gerði stefnandi ekki ýtrustu kröfur á hendur þrotabúinu til að tak marka tjón sitt vegna vanefnda þrotabúsins sem aðalskuldara á greiðslu skuldar innar. Lækkunin á kröfulýsingunni var andstæð því sem til var ætlast samkvæmt 103. gr. laga nr. 21/1991 og hún var gerð án samráðs við stefnda. Stefnandi gætti því ekki að rétti sínum í samræmi við lög við skipti á þrotabúinu og til tjóns fyrir stefnda. Að virtum þessum atvikum verður að telja að stefnandi hafi í raun ekki sýnt fram á að hann eigi lögvarða kröfu á hendur stefnda og verður því fallist á með stefnda að rétt sé að víkja síðari lánssamningnum til hliðar á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga nr. 7/1936.

Þessu til viðbótar liggur fyrir að undir rekstri máls þessa, eftir að varnir stefnda komu fram um að krafan á hendur honum væri uppgreidd, voru lögð fram gögn af hálfu stefnanda, útreikningar og fylgiskjöl, þar sem leitast var við að sýna fram á hið gagnstæða. Stefndi gerði athugasemdir við þau gögn og lagði meðal annars fram þrjár kvittanir, dagsettar 30. júní 2008, vegna innborgana sem hann taldi að ekki hefði verið tekið tillit til, samtals að fjárhæð 14.093.472 krónur, vegna fyrra lánsins. Sú fjárhæð er hærri en stefnufjárhæð í máli þessu. Þegar að því virtu væri ljóst að lánið, sem stefndi var í ábyrgð fyrir, væri uppgreitt. Stefnandi brást við þessu með því að leggja fram þrjár bakfærslukvittanir vegna sama láns með sömu fjárhæð, auk þess sem hann lagði fram yfirlýsingu frá innheimtustýringu stefnanda, dagsetta 21. september 2018, ásamt tveimur yfirlitum auðkenndum nr. I og II með fylgiskjölum. Í yfirlýsingunni greinir meðal annars að ekki hafi varðveist í kerfum stefnanda skýringar á bakfærslunum að öðru leyti en því að greiðslur sem fóru inn á lánið 30. júní 2008 hafi ekki átt að fara inn á það. Til að bakfæra greiðslurnar hafi þurft að bakfæra allar aðrar greiðslur frá þeim tíma til 1. september 2008 og setja þær svo aftur inn á lánið. Stefndi byggði á því við aðalmeðferð að stefnandi hefði með hliðsjón af framangreindum gögnum ekki sýnt fram á það að krafan á hendur honum væri lögvarin og ekki þegar greidd. Þá tók stefnandi efnislega afstöðu til varna stefnda á þessum grundvelli og vísaði til fyrrgreindra gagna og fylgiskjala og gerði nánar grein fyrir þeim. Að þessu virtu komast fyrrgreindar málsástæður að í málinu.   Vitnið   Einar   Pétursson,   starfsmaður   stefnanda,   kom   ekki   að   gerð fyrrgreindrar yfirlýsingar innheimtustýringar og gat ekki borið um hvaða forsendur lágu henni til grundvallar. Þá leiddi stefnandi ekki önnur vitni til að skýra bak færslurnar eða efni yfirlýsingarinnar og gögn sem henni fylgdu. Bakfærslu kvittanirnar eru dagsettar 16. og 18. maí 2018, sem er eftir að mál þetta var höfðað og stuttu áður en skjölin voru lögð fram. Skjölin bera því ekki með sér að vera sam tímagögn um bakfærslur sem hefði verið eðlilegt í almennu tilliti í máli af þessum toga.   Bakfærslukvittanirnar   eru   gefnar   út   af   stefnanda   en   ekki   forvera   hans, Landsbanka Íslands hf. Nöfn starfsmanna koma ekki fram á bakfærslukvittunum gagnstætt því sem almennt á við um greiðslukvittanir sem liggja fyrir í málinu. Þá er ósamræmi í greiðsluauðkennum samkvæmt yfirliti nr. I um innborganir á lánið og yfirliti nr. II um bakfærslur, sbr. fyrrgreinda yfirlýsingu innheimtustýringar. Að mati dómsins eru fyrrgreind sóknargögn svo ófullkomin að ekki fæst samrýmst því sem ætlast má til um gæði og áreiðanleika gagna sem stafa frá fjármálastofnun til framlagningar í þágu meðferðar máls fyrir dómi og ætlað er að sýna fram á lögvarða kröfu á hendur skuldara. Af þessu leiðir að stefnandi hefur ekki fært fram viðhlítandi sönnur fyrir því að krafa hans á hendur stefnda sé ekki þegar greidd. Að öllu framangreindu virtu verður stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.

Með vísan til 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnanda gert að greiða stefnda   málskostnað   sem   ræðst   af   málskostnaðarreikningi   stefnda,   2.369.035 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Af hálfu stefnanda flutti mál þetta Ásgeir Jónsson lögmaður. Af hálfu stefnda flutti málið Hjalti S. Mogensen lögmaður.

Daði Kristjánsson, héraðsdómari og dómsformaður, kveður upp dóm þennan ásamt meðdómsmönnunum Ástráði Haraldssyni héraðsdómara og Sigurbirni Einars syni viðskiptafræðingi.

D Ó M S O R Ð:

Stefndi, Sigmar Júlíus Eðvarðsson, er sýkn af kröfum stefnanda, Landsbankans hf. Stefnandi greiði stefnda 2.369.035 krónur í málskostnað.

Daði Kristjánsson Ástráður Haraldsson Sigurbjörn Einarsson

Heimildaskrá