Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

155 dómar fundust

Lykilorð: Óvígð sambúð

Landsréttur birt 26. febrúar 2026

1/2025

A (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn B (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)

B og A, sem voru í óvígðri sambúð og áttu barn saman, deildu um hvort fara skyldi eftir þinglýstum eignarheimildum við uppgjör vegna sölu þeirra á fasteigninni E í kjölfar sambúðarslita, svo sem hafði verið gert. Af hálfu B var á því byggt að skráning á eignarhlutföllum væri röng þar sem A hefði ekkert lagt fram til kaupanna, hvorki í formi fjár né með greiðslu afborgana af fasteignaláni. Ásamt því hélt B fram málsástæðum um brostnar forsendur og ólögmæta auðgun. Í dómi Landsréttar kom fram að í samræmi við almennar reglur fjármunaréttarins bæri B sönnunarbyrði fyrir því að í skráningu eignarhlutfalla fælust ekki réttar upplýsingar. Var enn fremur rakið að A hefði verið mun tekjulægri en B lengst af sambúðartímans en A hefði orðið barnshafandi á sambúðartímanum og vegna veikinda á meðgöngu hefði hún verið lítið í vinnu eða í veikindaleyfi. Auk þess hefði A verið í fæðingarorlofi eftir fæðingu barnsins. Allt að einu var talið að A hefði tekið þátt í greiðslu afborgana af lánum þegar hún fór aftur að vinna að loknu fæðingarorlofi. Þá kom fram að kaup aðila á fasteigninni E, og einnig fasteigninni D, hefðu að stærstum hluta verið fjármögnuð með sameiginlegri lántöku þar sem aðilar hefðu tekið á sig jafna ábyrgð og áhættu af henni. Þá hefðu aðilar getað nýtt sér rétt A til 90% láns til kaupa á fasteigninni D þar sem um fyrstu fasteignakaup A var að ræða. B hefði jafnframt í skýrslu sinni í héraði kannast við að A hefði tekið þátt í greiðslu afborgana af áhvílandi láni á fasteigninni og óumdeilt var að báðir aðilar hefðu innt af hendi fé til reksturs á sameiginlegu heimili þeirra. Loks var rakið að við kaup á fasteigninni E hefðu aðilar, að frumkvæði B, breytt skráningu eignarhluta frá því sem hann hafði verið þegar aðilar áttu fasteignina D, úr því að vera jafnir í að eignarhlutur B hækkaði í 60% og hlutur A lækkaði í 40%. Taldi Landsréttur að B hefði ekki tekist að sýna fram á að framlag hans til eignamyndunar í fasteigninni E hefði verið svo miklu meira en A, að líta bæri svo á að skráning eignarhlutfalla hefði ekki að geyma réttar upplýsingar. Var A því sýknuð af kröfu B.

Landsréttur birt 23. febrúar 2026

852/2025

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi A og B við opinber skipti til slita fjárfélagi við lok óvígðrar sambúðar. Ágreiningsefni málsins laut að því hvort skipta ætti fasteign aðila til helminga við fjárskiptin, þrátt fyrir að þinglýstur eignarhlutur B væri aðeins 20% á móti 80% eignarhlut A. Með hinum kærða úrskurði var fallist á kröfu B og viðurkennd helmingshlutdeild hans í fasteigninni. Í úrskurði Landsréttar var rakið að á sambúðartímanum hefði skapast slík fjárhagsleg samstaða með aðilum að forsendur væru til að meta sérstaklega hlutdeild B í þeirri eignamyndun sem varð á sambúðartímanum, hvað sem liði opinberri skráningu fasteignarinnar. Þá kom fram að þegar virt væri að sambúð aðila hefði varað í um 15 ár og veruleg eignamyndun orðið á sambúðartímanum, B hefði aflað mun hærri tekna en A allan sambúðartímann, tekist á hendur ábyrgð á láni til jafns við A og tekið þátt í endurbótum á eigninni meðan aðilar og börn þeirra hefðu búið þar saman yrði að telja að B bæri stærri hlutur í fasteigninni en þinglýstur eignarhlutur mælti fyrir um. Með hliðsjón af atvikum öllum bæri honum helmingshlutdeild í fasteign aðila og var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Hæstiréttur birt 4. febrúar 2026

57/2025

A (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður) gegn B (Geir Gestsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B við opinber skipti til fjárslita vegna sambúðarslita þeirra. Með hinum kærða úrskurði var hafnað kröfum A um að viðurkennd yrði eignarhlutdeild hans í nánar tilgreindri íbúð og endurgreiðslu vegna útlagðra fjárframlaga, meðal annars vegna ráðstöfunar séreignarsparnaðar hans inn á sameiginlegt lán aðila. Þá var jafnframt fallist á kröfu B um að hjólhýsi skyldi við fjárslitin teljast eign hennar. Með dómi Hæstaréttar var úrskurður Landsréttar staðfestur að öðru leyti en að komist var að þeirri niðurstöðu að við skiptin skyldi taka tillit til 854.373 króna kröfu A vegna ráðstöfunar séreignarsparnaðar hans. Meðal þess sem litið var til var að greiðslurnar hefðu verið bundnar þeirri forsendu að sambúð aðila myndi endast og A öðlast eignarhlut í fasteign B í samræmi við þær.

Landsréttur birt 28. nóvember 2025

685/2025

A (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn B (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Deildu aðilar um eignarhald á íbúð og frístundahúsi, en þær eignir höfðu verið skráðar í jafnri eigu beggja, og bifreið sem var skráð eign A. Með hinum kærða úrskurði voru teknar til greina kröfur B um að þessar eignir væru alfarið hans eign. Í úrskurði Landsréttar var rakið að þegar vikið væri frá opinberri skráningu eignarhlutfalla yrði ráðið af dómaframkvæmd að byggt væri á heildarmati á aðstæðum sem gæti leitt til þess að eignarhlutföll væru ákvörðuð að álitum. Við mat á eignarhaldi á íbúð málsaðila tók Landsréttur fram að þar sem B hafi einn lagt til fjármuni í útborgun eignarinnar og sambúð aðila staðið í fremur skamman tíma eftir kaupin væri tilefni til að leggja til grundvallar önnur eignarhlutföll en þau sem leiddu af opinberri skráningu. Leit rétturinn til þess að sambúð aðila hafði varað í um níu ár, að þegar henni var slitið höfðu þau átt íbúðina í um þrjú ár og haldið þar sameiginlegt heimili. Viðurkenndi rétturinn að álitum 80% eignarhlutdeild B í íbúðinni. Við mat á eignarhaldi frístundahússins leit rétturinn til þess að nokkurt jafnræði hefði verið með aðilum varðandi ófjárhagsleg framlög við byggingu hússins en fjárhagsleg framlög A hefðu í samanburði við fjárútlát B verið minni háttar. Var viðurkennd að álitum 90% eignarhlutdeild B í frístundahúsinu. Loks var viðurkennd að álitum 50% eignarhlutdeild B í bifreið sem var skráð eign A.

Landsréttur birt 2. september 2025

548/2025

A (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn B (Geir Gestsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á fjárfélagi við lok óvígðrar sambúðar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að þegar litið væri heildstætt á atvik máls, hvernig fjármálum aðila var háttað á sambúðartímanum, fyrirkomulag á skráningu eigna, hversu skamman tíma sambúðin stóð yfir og aðstæður þeirra að öðru leyti yrði ekki talið að tilgreindar greiðslur sem A innti af hendi hefðu leitt til eignarhlutdeildar hans í íbúð B. Telja yrði að stærstur hluti þeirra hafi ekki falið í sér annað en eðlileg framlög til heimilisrekstrar. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Landsréttur birt 26. júní 2025

359/2025

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr nánar tilgreindum ágreiningi við opinber skipti til slita á fjárfélagi við lok óvígðrar sambúðar. Með úrskurði Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að andvirði 39% eignarhluta B í nánar tilgreindri fasteign kæmi óskert í hlut B við fjárskiptin og að eftirstöðvar láns á fasteigninni skyldu að öllu leyti teljast skuld A og dragast frá 39% eignarhluta hennar. Þá var vísað frá héraðsdómi kröfu B um að A endurgreiddi henni 8.561.924 krónur og kröfu A um að hún fengi í sinn hlut 3.396.956 krónur vegna útlagðs kostnaðar sem hún hefði greitt í þágu B frá sambúðarslitum. Loks voru staðfest ákvæði hins kærða úrskurðar um að nánar tilgreind bifreið skyldi afhent A utan skipta og um að hafna kröfum B um að tillit yrði tekið til viðgerðarkostnaðar af bifreiðinni og viðhalds á fasteigninni eftir sambúðarslit.

Landsréttur birt 19. júní 2025

461/2024

A (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn B (Stefán A. Svensson lögmaður)

A höfðaði mál gegn B og krafðist þess að henni yrði gert að greiða honum 23.420.641 krónu auk dráttarvaxta. A og B voru fyrrverandi sambúðarfólk og byggði krafa A á því að munnlegt samkomulag hefði verið um að hann og B skyldu leggja fram jafn mikla fjármuni til kaupa á fasteign sem þau hefðu keypt árið 2014. B hefði hins vegar ekki lagt til jafn mikla fjármuni til kaupanna og A, og hefði því orðið að samkomulagi milli þeirra að B skyldi gera upp mismuninn í kjölfar þess að fasteignin var seld árið 2019. Í dómi Landsréttar kom fram að þar sem A og B hefðu verið að jöfnu þinglýstir eigendur fasteignarinnar, hvíldi það á A að sýna fram á að munnlegt samkomulag hefði verið til staðar um að hann ætti rétt á að fá meira en helming af söluverði fasteignarinnar í sinn hlut. Engin bein gögn lágu fyrir um að samkomulag hefði verið milli aðila um jöfn framlög þegar eignin var keypt eða að B hefði við sölu eignarinnar samþykkt að A fengi meira en helming söluandvirðisins í sinn hlut. Þá varð ekki ráðið með óyggjandi hætti að A hefði lagt fram umtalsvert meiri fjármuni til eignarmyndunar á sambúðartíma aðila. Í ljósi þess að A hefði ekki lagt fram önnur gögn sem sýndu að munnlegur samningur hefði komist á milli aðila var hann látinn bera hallann af þeim sönnunarskorti. Var B því sýknuð af kröfu A.

Hæstiréttur birt 21. maí 2025

22/2025

A (Berglind Svavarsdóttir lögmaður) gegn B (Sævar Þór Jónsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B um skiptingu á söluandvirði fasteignar við opinber skipti til fjárslita milli þeirra. Með hinum kærða úrskurði var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að skipta söluandvirði fasteignarinnar að frádregnum áhvílandi skuldum þannig að 55% kæmu í hlut A en 45% í hlut B. Fyrir Hæstarétti laut ágreiningur aðila að beitingu síðari málsliðar 2. mgr. 109. gr. laga nr. 20/1991 en A byggði á því að úrskurður héraðsdóms sem staðfestur var með hinum kærða úrskurði hefði verið í ósamræmi við greinina. Byggði A á því að samkvæmt 2. mgr. 109. gr. laga nr. 20/1991 hefði borið að draga frá eignarhluta hvors um sig helmingshlut hvors þeirra í eftirstöðvum lána sem hvíldu á eigninni. Í niðurstöðu Hæstaréttar var vísað til þess að áhvílandi skuldir á eigninni hefðu hvílt í jöfnum hlutum á A og B. Með því að draga skuldirnar í heild sinni frá söluverðinu og skipta síðan hreinni eign á milli aðila hefði ekki verið tekið tillit til þess munar sem var á eignarhlutum þeirra andspænis jafnri ábyrgð á skuldum sem hvíldu á eigninni. Í stað þess hefði borið að skipta söluandvirði eftir reglum 109. gr. laga nr. 20/1991 í þeim hlutföllum komist hafði verið að niðurstöðu um í hinum kærða úrskurði en draga að því búnu helmingshlut hvors þeirra í áhvílandi skuldum eignarinnar frá hlut hvors um sig. Var krafa A því tekin til greina.

Landsréttur birt 11. apríl 2025

59/2025

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi A og B við opinber skipti til slita á fjárfélagi við lok sambúðar. Með hinum kærða úrskurði var viðurkennd 30% hlutdeild B í nánar tilgreindri fasteign og 40% hlutdeild í ökutækjum og hjólhýsi. Vísað var frá dómi kröfu B um hlutdeild í innbúi aðila. Að öðru leyti var kröfum B um hlutdeild í eignum skráðum á A, endurgjald vegna afnota A af eignarhlut B í fyrrgreindri fasteign og hlutdeild í leigu vegna bílskúrs hafnað. Loks var kröfu A um endurgjald úr hendi B vegna afnota af nánar tilgreindri bifreið hafnað og undi hann þeirri niðurstöðu. Með úrskurði Landsréttar var vísað frá Landsrétti kröfu B um helmingshlutdeild í innbúi. Þá var staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um að slík fjárhagsleg samstaða hefði myndast með aðilum á sambúðartíma að meta yrði hlutdeild B í eignamyndun sem orðið hefði á sambúðartíma. Þótti í ljósi atvika allra rétt að viðurkenna að álitum 20% eignarhlutdeild B í fasteigninni á móti 80% eignarhlutdeild A. Þá þótti hæfilegt að játa A sama hlutfall í ökutækjum og hjólhýsi. Vísað var frá héraðsdómi kröfu B um hlutdeild í leigutekjum A af bílskúr. Að öðru leyti var hinn kærði úrskurður staðfestur.

Landsréttur birt 9. apríl 2025

116/2025

A (Gizur Bergsteinsson lögmaður) gegn B (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Með hinum kærða úrskurði var viðurkennt að 30% af hreinni eign A í nánar tiltekinni fasteign skyldi falla í hlut B. Landsréttur tók undir þá niðurstöðu, sem greindi í forsendum hins kærða úrskurðar, að hvað sem liði opinberri skráningu á fasteignum, aðgreindum skattskilum og óskráðri sambúð aðila, hefði fjárhagsleg samstaða verið með þeim á sambúðartímanum. Jafnframt að eftir heildarmat á eignastöðu aðila við upphaf sambúðar, fjárhagslegri samstöðu á sambúðartíma, lengd sambúðar, fjölskylduhögum, vinnuframlagi innan og utan heimilis, öflunar A í tvígang á menntun á sambúðartímanum, tekjuöflun aðila og framlag til eignamyndunar, þar með talið framlag föður B við endurbætur og breytingar á fasteignum, og notkun aðila á þeim, að fallast yrði á að forsendur væru til að meta sérstaklega hlutdeild B í þeirri eignamyndun sem varð á sambúðartímanum. Landsréttur rakti meðal annars að töluverð eignamyndun hefði orðið í fasteignum A á sambúðartímanum og staðfesti hinn kærða úrskurð.

Landsréttur birt 7. apríl 2025

127/2025

A (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) gegn B (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Deildu aðilar um eignarhald á tilgreindri fasteign, greiðslur A inn á höfuðstól tveggja áhvílandi lána og hvort B bæri að greiða A tilgreinda fjárhæð vegna afhendingar A á bifreið til B og greiðslu A af sparnaðarreikningi til B. Í hinum kærða úrskurði var komist að þeirri niðurstöðu að stofnast hefði til sameignar um hina umdeildu fasteign, sem var þinglýst eign A, og viðurkennd að álitum þriðjungs eignarhlutdeild B í fasteigninni. Í úrskurði Landsréttar var tekið undir þá niðurstöðu héraðsdóms að við mat á eignarhluta hvors aðila um sig í fasteigninni bæri að líta til innborgana A af séreignasparnaði sínum inn á veðlán fasteignarinnar fyrir viðmiðunardag skipta. Þótt sú fjárhæð væri samkvæmt gögnum málsins hærri en lagt var til grundvallar í hinum kærða úrskurði þóttu ekki efni til að hnika niðurstöðu hans um eignarhlutföll aðila. Þá var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að hafna kröfu A um greiðslu tiltekinnar fjárhæðar úr hendi B.

Landsréttur birt 3. apríl 2025

513/2023

A (Áslaug Árnadóttir lögmaður) gegn B (Bjarnfreður Ólafsson lögmaður)

A og B voru í óvígðri sambúð frá 2006 til 2019. Við lok sambúðar þeirra gerðu A og B með sér samkomulag 7. maí 2019 um fjárskipti þeirra á milli. Samkvæmt samkomulaginu skyldi tilgreind fasteign ásamt áhvílandi skuldum, hesthús og fyrirtækið DD ehf. koma í hlut A en félög í eigu og skráð á kennitölu B skyldu koma í hans hlut, meðal annars N ehf. A höfðaði mál á hendur B og gerði þá aðalkröfu að B yrði gert að afhenda henni alla hluti í C ehf. og greiða henni tilgreinda fjárhæð með dráttarvöxtum. Til vara krafðist A þess að B yrði gert að greiða henni fjárhæð sem svaraði til helmings ætlaðs verðmætis þriggja félaga í eigu B í maí 2019, Æ ehf., BB ehf. og C ehf. Deildu A og B í fyrsta lagi um það hvort, og þá að hvaða marki, samkomulag þeirra hafi miðað að því að þau fengju jafn mikil verðmæti í sinn hlut. Í öðru lagi stóð ágreiningur um það hvort það leiddi af samkomulagi þeirra að A ætti að fá í sinn hlut C ehf. en ekki B. Í þriðja lagi greindi A og B á um það hvort skilyrðum væri fullnægt til þess að víkja ákvæði samkomulagsins að hluta til hliðar á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Byggði A á því að ákvæði samkomulagsins hölluðu verulega á hana og væri ástæða þess sú að B hefði látið hjá líða að upplýsa hana um mikilvæg atriði í tengslum við þær eignir sem hefðu komið í hans hlut. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að efni samkomulags aðila gæfi ekki til kynna að eignarráð tiltekinna verðmæta hefðu átt að færast frá B til A. Sú ályktun styddist meðal annars við það að B skyldi fá í sinn hlut félög í sinni eigu. Gera yrði ráð fyrir því að tilvísun til skattframtals 2019 hefði verið reist á þeirri hugmynd að eignarhald verðmæta væri þar rétt skrá í árslok 2018 en svo hafi ekki verið raunin. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms að C ehf. hafi samkvæmt samkomulaginu átt að koma í hlut B. Landsréttur fjallað þar næst um varakröfu A. Lagði rétturinn til grundvallar að við umfjöllun um vitneskju málsaðila og verðmæti eigna yrði að miða við dagsetningu samkomulagsins. Hvorki samkomulagið né önnur gögn málsins þóttu styðja þá staðhæfingu A að með því hafi verið stefnt að jafnri skiptingu heildarverðmæta málsaðila. Ekki lægju fyrir upplýsingar um heildarverðmæti eigna og skulda A og B 7. maí 2019 þótt matsgerðir lægju fyrir um verðmæti einstakra félaga. Væru matsgerðirnar lagðar til grundvallar mætti þó slá því föstu að verðmæti hreinnar eignar, sem kom í hlut A á samningsdegi, hafi verið þó nokkuð lægra en verðmæti þess sem B fékk í sinn hlut. Sá munur á verðmæti heildareigna málsaðila að þessu leyti gat þó ekki gert útslagið um gildi samkomulagsins. Landsréttur rakti atriði sem tengdust sjónarmiðum sem tilgreind eru í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 7/1936 og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru efni til að líta svo á að skilyrðum 1. mgr. sömu greinar væri fullnægt svo verða mætti við kröfum A. Þá taldi rétturinn skilyrðum 30. og 33. gr. sömu laga ekki fullnægt. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu B af kröfum A.

Landsréttur birt 14. mars 2025

947/2024

A (sjálfur) gegn B (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti vegna slita á óvígðri sambúð. Með hliðsjón af framburði B var fallist á með A að upphaf sambúðar skyldi miðast við 1. janúar 2014. Fyrir lá að þá átti A, sem naut góðra tekna og var að nálgast eftirlaunaaldur, talsverðar eignir hér á landi og var skuldlaus. B var á hinn bóginn eignalaus við upphaf sambúðar og tekjulaus meiri hluta sambúðartímans. Með hliðsjón af framangreindu og öðrum atvikum var ekki talið að unnt væri að líta svo á að fjárhagsleg samstaða hefði myndast með aðilum á sambúðartímanum. Ekki var því fallist á kröfu B um að fasteignir og sparnaður, sem A átti hér á landi frá því áður en til sambúðar stofnaðist og sem eingöngu höfðu aukist að verðgildi vegna hækkunar á fasteignaverði og ávöxtunar fjármuna, kæmu til skipta við slit á óvígðri sambúð þeirra. Á hinn bóginn var staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um B hefði öðlast 25% eignarhlutdeild í fasteign, sem A hafði fest kaup á í U á sambúðartímanum með vísan til þess að hann hefði tryggt sér leigurétt að lóð fasteignarinnar til langs tíma fyrri tilstuðlan B, svo og með hliðsjón af því að sambúð aðila stóð í átta ár, þau eignuðust saman tvö börn og framlagi B til við heimilisstörf og uppeldi barna.

Landsréttur birt 7. febrúar 2025

988/2024

A (Sævar Þór Jónsson lögmaður) gegn B (Berglind Svavarsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Deildu aðilar einkum um skiptingu á söluandvirði fasteignar þeirra og uppgjör áhvílandi veðskulda. Í úrskurði Landsréttar kom fram að héraðsdómur hefði, að lokinni ítarlegri umfjöllun um stöðu málsaðila í ljósi gagna málsins og að undangengnu heildstæðu mati á þeim atriðum sem taka bæri tillit til, komist að þeirri niðurstöðu að eignarhlutir aðila að fasteigninni, og hlutir þeirra í söluandvirði hennar að frádregnum áhvílandi skuldum, skyldu ákveðnir að álitum þannig að 55% kæmu í hlut B en 45% í hlut A. Ný gögn sem lögð voru fyrir Landsrétt þóttu ekki breyta ályktunum héraðsdóms. Var niðurstaða héraðsdóms um eignarhluta þeirra hvors um sig í fasteigninni því staðfest.

Landsréttur birt 20. desember 2024

806/2024

A (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður) gegn B (Berglind Svavarsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Deildu aðilar um eignarhald á tilgreindri fasteign, ábyrgð á áhvílandi veðskuldum og húsaleigu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að fjárhagsleg samstaða hefði verið með aðilum á sambúðartíma þeirra. Á hinn bóginn lægi fyrir að A hefði ein lagt til eigin fé við kaup á fasteigninni og ein greitt afborganir af því láni sem A og B tóku sameiginlega til kaupanna. Var á það fallist með A að framlag hennar til eignamyndunar í fasteigninni hefði verið hærra en B. Stæðu því rök til þess að víkja frá þinglýstum eignarheimildum í fasteigninni og voru eignarhlutföll aðila metin að álitum þannig að eignarhluti A í fasteigninni næmi 60% af heildareigninni en eignarhluti varnaraðila 40%. Þá var talið að B ætti rétt á endurgjaldi úr hendi A vegna hagnýtingar hennar á sameiginlegri fasteign þeirra og þótti endurgjaldið að álitum hæfilega ákveðið 100.000 krónur fyrir hvern mánuð frá viðmiðunardegi skipta til uppgjörsdags. Loks var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að vísa frá dómi kröfu A er laut að ágreiningi um greiðslu veðskulda.

Landsréttur birt 17. október 2024

439/2023

A (Sigmundur Guðmundsson lögmaður) gegn B (Jóhann Fannar Guðjónsson lögmaður, Grímur Már Þórólfsson lögmaður, 1. prófmál)

Í kjölfar sambúðarslita A og B var deilt um eignarhluta aðila í fasteign sem þau voru bæði skráðir eigendur að. Samkvæmt kaupsamningi og afsali var B skráð sem eigandi 60% eignarhluta í fasteigninni en eignarhluti A var 40%. B krafðist þess að viðurkenndur yrði 100% eignarréttur hennar að fasteigninni. Með héraðsdómi var fallist á kröfu B og meðal annars talið að A gæti ekki byggt á því, gegn andmælum B, að greiðslur hans til hennar hefðu runnið til afborgana á þeim veðlánum sem hvíldu á fasteigninni fremur en til endurgreiðslu láns sem B hafði veitt A í september 2021 til að hann gæti komið að kaupunum. Í dómi Landsréttar kom fram að samskipti aðila bæru með sér að B hefði verið meðvituð um að reglulegum millifærslum A til hennar væri ætlað að standa straum af afborgunum vegna veðlánanna í samræmi við samkomulag aðila. Þá benti ekkert til þess að B hefði talið greiðslurnar vera til endurgreiðslu á láni sem hún veitti A í september 2021 og var ekki fallist á að það leiddi af meginreglum kröfuréttar að B hefði verið frjálst að ráðstafa greiðslunum inn á lánið. Vísað var til þess að B bæri sönnunarbyrði fyrir því að skráð eignarhlutföll hefðu ekki að geyma réttar upplýsingar og hefði hún ekki sýnt fram á að slíkur munur væri á framlögum aðila að fallast bæri á kröfur hennar. Var A því sýknaður af kröfum B.

Landsréttur birt 30. september 2024

622/2024

A (Jón Magnússon lögmaður) gegn B (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli málsaðila um fjárskipti við sambúðarslit þeirra. Ágreiningur aðila laut að því hvort og þá í hvaða mæli B ætti tilkall til hlutdeildar í eignamyndun í fasteign á sambúðartíma en fasteignin var á viðmiðunardegi skipta þinglýst eign A. Með hinum kærða úrskurði var fallist á varakröfu B þess efnis að hrein eign B í fasteigninni á viðmiðunardegi skipta hafi að 40% hluta tilheyrt B en að 60% hluta A. Í greinargerð sinni til Landsréttar gerði A ýmsar athugasemdir við niðurstöðu héraðsdóms um ráðstöfunartekjur aðila á sambúðartíma og taldi héraðsdóm meðal annars ekki hafa tekið tillit til meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins og bóta úr opinberum sjóðum, einkum barna- og vaxtabóta. Í úrskurði Landsréttar var áréttað að meðlag tilheyrir barni og skuli notað í þágu þess, sbr. 2. mgr. 63. gr. barnalaga nr. 76/2003. Gætu umræddar meðlagsgreiðslur þegar af þeirri ástæðu enga þýðingu haft við úrlausn um ágreining aðila í málinu. Þá yrði ekki annað séð en að héraðsdómur hafi við heildarmat sitt horft bótagreiðslna A samkvæmt framansögðu. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Landsréttur birt 27. júní 2024

463/2024

A (Þórður Már Jónsson lögmaður) gegn B (Bjarni Hauksson lögmaður)

A krafðist þess að fram færu opinber skipti til fjárslita milli málsaðila við slit á óvígðri sambúð. Deilt var um hvort sambúð málsaðila hafi staðið samfleytt í tvö ár í skilningi 100. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Með úrskurði héraðsdóms var kröfu sóknaraðila hafnað. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að málsaðilar hefðu ekki verið skráð sem sambúðaraðilar í Þjóðskrá en sóknaraðili var á tilgreindum tíma skráður til heimilis að lögheimili varnaraðila. Um sönnun þess hvort sambúð aðila hafi staðið samfleytt í tvö ár yrði að telja að þau samtímagögn sem lægju fyrir um þetta atriði hefðu ríkt sönnunargildi við mat á því hversu lengi sambúð málsaðila varði samfleytt, enda væru þau til komin áður en ágreiningur aðila reis í málinu. Yrði sóknaraðili að bera hallann af því að hafa ekki brugðist við tilkynningu Þjóðskrár um fyrirhugaða breytta skráningu lögheimilis hans en hann hreyfði engum andmælum við skráningunni fyrr en eftir að hann hafði krafist þess að búa aðila yrði tekið til opinberra skipta. Að virtum gögnum málsins yrði enn fremur ekki séð að sóknaraðila hefði tekist að færa á það sönnur með þeim ljósmyndum sem hann lagði fram fyrir Landsrétt að aðilar hafi verið í sambúð í skilningi 100. gr. laga nr. 20/1991. Að því gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 6. mars 2024

30/2023

A (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur T og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun T um að synja henni um greiðslu heimilisuppbótar. Umsókn A um heimilisuppbót 9. mars 2020 hafði verið synjað með vísan til þess að samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands væri A í skráðri sambúð og uppfyllti því ekki skilyrði 8. gr. laga nr. 99/2007 um að vera einhleyp og búa ein. Óumdeilt var í málinu að A og fyrrverandi sambýlismaður hennar höfðu slitið samvistir á fyrri hluta árs 2015. Þar sem þau höfðu ekki komið sér saman um forsjá og umgengni barna sinna voru þau hins vegar enn skráð í sambúð í þjóðskrá og með lögheimili á sama stað á því tímabili sem umsókn A um heimilisuppbót náði til. Varðandi aðild málsins komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að það hefði ekki verið á forræði T að leiðrétta skráningu á sambúðarstöðu A í þjóðskrá væri unnt að leysa úr dómkröfu A án aðildar Þjóðskrár Íslands. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu, að teknu tilliti til markmiðs með greiðslu heimilisuppbótar eins og það yrði skýrt í ljósi fyrirmæla 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar, yrði að túlka 8. gr. laga nr. 99/2007 með þeim hætti að þar væri að finna efnisleg lagaskilyrði um raunverulega félagslega og fjárhagslega stöðu lífeyrisþega og hvort hann væri í reynd einn um heimilisrekstur. Þá taldi Hæstiréttur að meðferð á máli A hefði verið í andstöðu við 37. og 38. gr. laga nr. 100/2007 svo og rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga með því stefndi og úrskurðarnefndin hefðu láta hjá líða að taka tillit til gagna um aðstæður og hagi áfrýjanda og skoða stöðu hennar heildstætt. Taldi rétturinn að óheimilt hefði verið að hafna umsókn A um heimilisuppbót af þeirri ástæðu einni að hún væri enn skráð í sambúð í þjóðskrá. Var því fallist á kröfu A um ógildingu úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála.

Landsréttur birt 9. febrúar 2024

864/2023

A (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Fyrir Landsrétti snerist ágreiningur aðila í raun eingöngu um það hvort A ætti rétt á sérstakri greiðslu úr hendi B við fjárskiptin vegna þess að hann greiddi útborgun í kaupum aðila á fasteign, meðal annars með fjármunum sem eftir stóðu af bótum fyrir varanlega örorku sem hann hafði fengið greiddar. Fram kom í úrskurði Landsréttar að þegar horft væri til tekna aðila á sambúðartímanum yrði ekki annað ráðið en að framlög þeirra til eignamyndunar og rekstrar heimilisins á sambúðartímanum hafi almennt verið því sem næst jöfn, fyrir utan bæturnar. Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 kæmu bætur fyrir líkamstjón ekki til skipta við fjárslit milli hjóna að því marki sem telja mætti að þeim hafi ekki verið eytt. Ættu sjónarmiðin að baki þessari reglu einnig við um fjárskipti sambúðarfólks. Sannað væri að A hefði lagt til kaupa á fasteign aðila að minnsta kosti þá fjárhæð af bótunum sem krafa hans tók til en miðað við kröfugerð hans hefðu um 8,8 milljónir króna af bótum vegna örorku A þegar runnið inn í sameiginlegan heimilisrekstur aðila án sérstakrar tilgreiningar. Að öllu framangreindu virtu var krafa A tekin til greina.

Landsréttur birt 21. desember 2023

822/2023

A (Jóhann Fannar Guðjónsson lögmaður) gegn B (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. A krafðist þess að fasteignin M skyldi skiptast milli aðila að jöfnu eða að honum yrði ákvörðuð önnur lægri eignarhlutdeild í fasteigninni, sem var þinglýst eign B. Þá var ágreiningur milli aðila um viðmiðunardag skipta og greiðslu skiptakostnaðar. Með úrskurði Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að A hefði ekki fært fyrir því sönnur að líta skyldi framhjá þinglýstri eignarheimild B fyrir fasteigninni og var kröfu A um hlut í fasteigninni því hafnað. Jafnframt var staðfest niðurstaða héraðsdóms um viðmiðunardag skipta. Hins vegar var rakið í niðurstöðu Landsréttar að samkvæmt beiðni skiptastjóra til héraðsdóms hefðu aðilar sammælst um að fela honum að senda ágreiningsefnin til úrlausnar dómsins með vísan til 112. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., sem fjallaði um ágreining um atriði sem 2. mgr. 103. gr. og 104. til 111. gr. laganna tækju til. Væri ágreiningur um skiptakostnað ekki þar á meðal og var kröfum aðila um greiðslu skiptakostnaðar því vísað frá héraðsdómi án kröfu.

Landsréttur birt 14. desember 2023

784/2023

A (Eva Hauksdóttir lögmaður) gegn B (Valborg Þ. Snævarr lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. Vísað var frá Landsrétti tilgreindum kröfum A og stóð þá eftir ágreiningur málsaðila um eignarhald á fasteign þeirra og innistæðu á tveimur tilgreindum bankareikningum. Landsréttur tók fram að við fjárslit við lok óvígðrar sambúðar gilti sú meginregla að hvor aðili tæki þær eignir sem hann átti við upphaf sambúðar eða eignaðist meðan á sambúð stóð og að þinglýstar eignarheimildir og skráning veittu líkindi fyrir eignarrétti. Sá sem héldi því fram að í slíkri skráningu fælust ekki réttar upplýsingar bæri sönnunarbyrði fyrir þeirri staðhæfingu. Ekki var talið að A hefði sýnt fram á að hin opinbera skráning á eignarhlutum þeirra í fasteigninni væri röng þannig að á hana væri hallað. Var því staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að A væri eigandi að 30% hlut í fasteigninni en B 70%. Þá komst rétturinn að þeirri niðurstöðu að málsaðilar ættu hvor um sig helming innistæðu á tveimur bankareikningum.

Landsréttur birt 7. september 2023

514/2023

Dánarbú A (Grímur Sigurðsson lögmaður) gegn B (Lára Valgerður Júlíusdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi málsaðila í tengslum við opinber skipti til fjárslita vegna slita á óvígðri sambúð A og B. Í málinu krafðist db. A þess að nánar tilgreind fasteign, tvær bifreiðar, tjaldvagn, innstæður á tveimur bankareikningum og verðmæti hlutafjár í C ehf. skildi skipt að jöfnu á milli db. A og B. B krafðist þess aftur á móti að öllum kröfum db. A yrði hafnað og að viðurkenndur yrði 98,53% eignarhlutur hans í umræddri fasteign, en samkvæmt opinberri skráningu var eignarhlutfall A 10% en B 90%. Þá krafðist B að viðurkenndur yrði 100% eignarréttur hans að öðrum eignum sem A gerði kröfu um að skipt yrði til helminga. Í úrskurði héraðsdóms var fallist á að við opinber skipti til fjárslita A og B skyldi skipta til helminga bifreiðunum tveimur og tjaldvagninum en umræddri fasteign var skipt í samræmi við opinbera skráningu. Þá var kröfum db. A hafnað um að til skipta kæmu verðmæti hlutafjár C ehf. og innstæður á tilgreindum bankareikningum B. Með úrskurði Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að ríkt hafi fjárhagsleg samstaða með A og B á sambúðartímanum. Þá kom einnig fram að þrátt fyrir gögn sem B lagði fyrir Landsrétt hafi ekki verið efni til að hrófla við niðurstöðu héraðsdóms um skiptingu fasteignarinnar í samræmi við opinbera skráningu hennar. Samkvæmt framangreindu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var staðfest niðurstaða hans um skiptingu eigna A og B við fjárslitin.

Hæstiréttur birt 6. júní 2023

10/2023

A (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn B (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B í tengslum við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna slita óvígðrar sambúðar. Landsréttur vísaði kröfu A um hlutdeild í innbúi frá héraðsdómi en hafnaði kröfum hennar um hlutdeild í öðrum eignum og réttindum sem skráð voru eign B. Fyrir Hæstarétti krafðist A að öllum eignum þeirra á viðmiðunardegi skipta yrði skipt að jöfnu milli þeirra án tillits til þess hvernig skráningu eignanna hefði verið háttað. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar um að vísa frá héraðsdómi kröfu A um hlutdeild í innbúi aðila með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar. Þá féllst Hæstiréttur hvorki á að kröfur A væru fyrndar né fallnar niður á grundvelli tómlætis. Í dómi Hæstaréttar var rakið að sambúð aðila hafi staðið yfir frá árinu 1999 til 2017, að undanskildu einhverra mánaða tímabili á árunum 2004 til 2005, og þau eignast þrjú börn saman. B hafi verið eignameiri en A í upphafi sambúðar og aflað tekna í meiri mæli en A á sambúðartímanum. Rekstur heimilis og uppeldi barna hefði aftur á móti í ríkara mæli hvílt á herðum A. Hæstiréttur taldi að slík fjárhagsleg samstaða hefði skapast með aðilum að hvað sem líði opinberri skráningu einstakra verðmæta sem deilt væri um í málinu væru allt að einu forsendur til þess að meta sérstaklega hlutdeild A í þeirri eignamyndun sem orðið hefði á sambúðartímanum. Hvað sem fjár- og vinnuframlagi B umfram A hafi liðið hefðu umrædd eignarréttindi meðal annars orðið til með framlagi A til þátta sem ekki fólust í beinum fjárframlögum. Hæstiréttur féllst því á kröfu A um hlutdeild í þeirri eignarmyndun sem varð í fasteign, sem var skráð eign B, á sambúðartímanum með þeim hætti að viðurkennd var að álitum 30% eignarhlutdeild hennar í fasteigninni á móti 70% eignarhlutdeild B. Þá var fallist á þá kröfu A að innistæða á tilteknum bankareikningi B á viðmiðunardegi kæmi til jafnra skipta milli aðila sem og sex nánar tilgreind ökutæki. Hvorki var hins vegar fallist á kröfu A um að til skipta kæmi hlutafé B í þremur einkahlutafélögum né óverulegar innistæður á nokkrum bankareikningum.

Landsréttur birt 15. maí 2023

122/2023

A (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður) gegn B (Þórður Már Jónsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli málsaðila við opinber skipti vegna fjárslita á óvígðri sambúð. Ágreiningur aðila laut að því hvernig skipta bæri söluandvirði 40% hluta tiltekinnar fasteignar sem var þinglýst eign A við sambúðarlok. Með hinum kærða úrskurði var fallist á kröfu B um að staðfesta ákvörðun skiptastjóra þess efnis að skipta bæri söluandvirði 40% hluta fasteignarinnar í jöfnum hlutföllum milli A og B. Í úrskurði Landsréttar var eins og málið lá fyrir var ekki fallist á kröfu B um að skipta söluandvirðinu í jöfnum hlutföllum milli A og B, en fallist var á að faðir B hefði með framlögum sínum átt þátt í þeirri eignamyndun sem varð í þinglýstum hluta A á tveimur fasteignum á sambúðartíma málsaðila. Þar sem framlögunum var ætlað að vera B til hagsbóta yrði fallist á það að B ætti rétt til hlutdeildar í eignamyndun fasteignarinnar og þar með til hlutdeildar í söluandvirði 40% hlutar í tilgreindri fasteign sem var þinglýst eign A. Var því fallist á varakröfu A að honum bæri 75% söluandvirðis hins umdeilda hlutar í fasteigninni en B 25%.

Landsréttur birt 2. febrúar 2023

797/2022

A (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) gegn B (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfum A um að vikið yrði frá skráðu eignarhlutfalli fasteignarinnar C með nánar tilgreindum hætti við opinber skipti vegna fjárslita á óvígðri sambúð A og B.

Landsréttur birt 15. desember 2022

589/2022

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B um fasteignirnar Þ og Æ við opinber skipti vegna fjárslita á óvígðri sambúð þeirra. Með hinum kærða úrskurði var tekin til greina krafa B um viðurkenningu á því að hún væri eigandi að helmingi fasteignarinnar Æ og eigandi 25% hluta Þ sem og krafa B um að A skyldi greiða henni tilgreinda fjárhæð vegna afnota A af Æ og tilgreind hlutföll af leigutekjum af Þ og Æ. Í úrskurði Landsréttar kom fram að við fjárslit óvígðrar sambúðar beri að líta á sambúðarfólk sem tvo sjálfstæða einstaklinga. Þá gildi sú meginregla að hvor aðili taki þær eignir sem hann átti við upphaf sambúðar eða eignaðist meðan á sambúðinni stóð. Þinglýstar eignarheimildir og opinber skráning eigna veiti líkindi fyrir eignarétti og af því leiði að sá sem heldur fram að í slíkri skráningu felist ekki réttar upplýsingar beri sönnunarbyrði fyrir þeirri staðhæfingu. Var niðurstaða héraðsdóms um viðurkenningu á því að B væri réttur eigandi helmings fasteignarinnar samkvæmt þinglýstum heimildum staðfest. Að því er varðaði fasteignina Þ var rakið að með því að B hafi á sambúðartíma aðila greitt af láni um fimm ára skeið sem tekið var til fjármögnunar á Þ, þótti B hafa fært sönnur á framlag sitt til byggingar Þ. Auk þeirra fjármuna sem B lagði beint til bæri að líta til óbeinna framlaga hennar, enda hefði verið fjárhagsleg samstaða með aðilum á 19 ára sambúðartíma þeirra og tekjur þeirra sambærilegar mestan hluta þann tíma. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um 25% eignarhluta B í Þ. Loks var kröfu B um greiðslu fjármuna úr hendi A vegna afnota af Þ og kröfu vegna leigutekna af Þ og Æ vísað frá héraðsdómi án kröfu.

Landsréttur birt 13. desember 2022

617/2022

A (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Helga Björg Jónsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B við opinber skipti til slita á óvígðri sambúð. A krafðist þess fyrir Landsrétti að kröfum B sem fallist var á í hinum kærða úrskurði yrði hafnað en til vara að hlutdeild B í fasteign A, Ö, yrði úrskurðuð lægri. Einnig að kröfum B um hlutdeild í innbúi og ökutækjum, sem skráð voru á nafn A á viðmiðunardegi skipta, yrði hafnað. B krafðist þess að við skiptin skyldi öllum eignum fjárfélags þeirra skipt að jöfnu, án tillits til þess hvernig skráningu eigna var háttað, þannig að viðurkennd yrði helmingshlutdeild B í „skírri eign búsins” eins og þær voru á viðmiðunardegi skipta. Þá krafðist B helmingshlutdeildar í almennum lífeyrissparnaði og séreignasparnaði. Byggði B á því að nánast öll eignamyndun hefði orðið á sambúðartíma þeirra og fjárhagsleg samstaða verið með þeim allan þann tíma. Í úrskurði Landsréttar var rakið að að lögum gildi ekki settar efnisreglur um skiptingu eigna sambúðarfólks við lok sambúðar hliðstætt því sem eigi við um hjúskap. Í dómaframkvæmd beri að líta á slíka aðila sem tvo sjálfstæða einstaklinga og í hlut hvors um sig komi þá þær eignir sem viðkomandi kom með í sambúðina eða eignaðist á meðan henni stóð. Opinber skráning eignarhalds hafi því þýðingu í þessu sambandi og hvíli sönnunarbyrðin á þeim sem haldi fram sameiginlegri eignamyndun, þrátt fyrir opinbera skráningu eignar á gagnaðila eða tilurð hennar að öðru leyti. B yrði því látin bera sönnunarbyrði fyrir því að hún hafi innt af hendi bein eða óbein framlög til eignamyndunar á sambúðartímanum enda væri sönnun í þeim efnum forsenda þess að fallist yrði á kröfur hennar. Engin gögn lágu fyrir um innbú aðila og var kröfu B um hlutdeild í því vísað frá dómi án kröfu. Að öðru leyti var talið ósannað að B hefði með vinnu eða á annan hátt skapað grundvöll fyrir hlutdeild í eignarrétti að eignum sem skráðar voru á A og kröfum hennar þess efnis hafnað.

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

369/2022

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra við lok óvígðrar sambúðar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að með vísan til þeirra gagna sem lægju fyrir í málinu, auk framburða vitna í héraði, ætti A rétt á endurgreiðslu sem næmi 2.057.163 krónum vegna fjárframlaga hennar til endurbóta á fasteigninni Ö. Var endurgreiðslukröfu A vegna endurbóta á fasteigninni að öðru leyti hafnað. Þá var ekki talið unnt að fallast á kröfu A vegna vinnuframlags hennar við endurbætur á fasteigninni á grundvelli þeirra gagna sem lágu fyrir, þar á meðal vinnuskýrslna og dagbókarfærslna sem unnar voru einhliða af A, gegn andmælum B. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur hvað varðaði kröfu A um endurgjaldskröfur á hendur B vegna vinnuframlags hennar. Loks var viðurkennd krafa A um að við skiptin kæmu í hennar hlut nánar tilgreindir innanstokksmunir.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2022

49/2021

B (Helga Melkorka Óttarsdóttir lögmaður) gegn A (Einar Páll Tamimi lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B í tengslum við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna slita óvígðrar sambúðar. Fyrir Hæstarétti afmarkaðist kröfugerð aðila af því hvort leggja skyldi til grundvallar við skiptin að B hefði á viðmiðunardegi skipta átt 500.000.000 króna á erlendum bankareikningum, líkt og A gerði kröfu um og fallist var á í dómi Landsréttar, eða hvort fallist yrði á kröfu B um að hann hefði á þeim degi átt 5.717.589 krónur á erlendum bankareikningum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að engin gögn eða töluleg útlistun hefði verið lögð fram til stuðnings kröfu A. Engu að síður hefði A leitt að því sterkum líkum að innstæðurnar hefðu verið hærri en B hefði upplýst um og því væri ekki hægt að leggja efnisdóm á kröfuna með því að hafna henni. Vegna vanreifunar kröfunnar varð á hinn bóginn ekki komist hjá því að vísa henni sjálfkrafa frá héraðsdómi. Að því er varðaði kröfu B vísaði rétturinn til þess að hún hefði fyrst komið fram við meðferð málsins fyrir Hæstarétti. Þá fyrst hefði B falið skiptastjóra umboð til að afla umbeðinna upplýsinga og í kjölfarið lagt fram yfirlit frá erlendum banka sem hann studdi kröfu sína við. Af því sem lá fyrir í málinu um tilraunir skiptastjóra til að afla fyrrnefndra upplýsinga og viðbrögð B við þeim var með engu móti talið afsakanlegt að krafa hans hefði fyrst verið höfð uppi fyrir Hæstarétti. Kröfu B var því vísað frá Hæstarétti.

Landsréttur birt 31. janúar 2022

733/2021

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. Ágreiningur aðila í tengslum við fjárskipti þeirra hafði áður komið til kasta dómstóla og af þeim sökum vísaði héraðsdómur tveimur kröfuliðum A frá dómi. Landsréttur tók fram í úrskurði sínum að þar sem héraðsdómur hefði ekki leyst efnislega úr þessum kröfum gæti A ekki haft þær uppi fyrir Landsrétti en tók til greina varakröfu A um að fella hinn kærða úrskurð úr gildi varðandi þessa kröfuliði. Þá staðfesti Landsréttur þá niðurstöðu héraðsdóms að hafna þeirri kröfu A að viðurkennt yrði að B bæri að greiða henni helming af eftirstöðvum áhvílandi veðskuldar á tilgreindri fasteign auk helmings allra afborgana frá afsalsdegi til greiðsludags. Einnig ómerkti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að taka ekki til greina kröfu A þess efnis að nánar tilteknir innbúsmunir kæmu í hlut hennar. Loks vísaði Landsréttur frá héraðsdómi kröfu B um húsaleigu úr hendi A fyrir búsetu í tilgreindri fasteign yfir tiltekið tímabil.

Landsréttur birt 22. desember 2021

598/2021

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn B (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. Í úrskurði Landsréttar var viðurkennt að B væri eigandi 70% hlutdeildar í nettóeign tilgreindrar fasteignar málsaðila og að A ætti 30% í eigninni. Í samræmi við þessa eignarhlutdeild skyldi B greiða A 300.000 krónur fyrir afnot hennar af fasteigninni frá sambúðarslitum 1. júní 2020 þar til hún var afhent nýjum eigendum 1. júní 2021. Loks var staðfest ákvæði hins kærða úrskurðar um að hafna kröfu B um að viðurkennt yrði að hún væri helmingseigandi að hlutum í einkahlutafélaginu Q.

Landsréttur birt 10. desember 2021

663/2020

A (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður) gegn dánarbúi B (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

A og B voru í óvígðri sambúð frá árinu 2015. B lést árið 2018 og tók dánarbú hans þá við öllum fjárhagslegum réttindum hans. Dánarbúið höfðaði mál á hendur A og krafðist endurgreiðslu verulegs hluta fjármuna sem B innti af hendi til A á tímabilinu frá 15. apríl 2015 til 28. mars 2018. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að A hafi ekki getað haft réttmætar væntingar um eða mátt treysta því að B hefði innt af hendi umræddar greiðslur til hennar án væntinga um endurgreiðslu. Yrði lagt til grundvallar að greiðslurnar hafi verið lán sem B veitti A sem henni bæri að endurgreiða dánarbúi hans. Þegar af þeirri ástæðu kæmi ekki til álita hvort uppfyllt væru skilyrði þess að ólögfestri reglu kröfuréttar um óréttmæta auðgun yrði beitt í málinu. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var hann staðfestur um skyldu A til að greiða dánarbúi B 35.300.000 krónur ásamt dráttarvöxtum.

Landsréttur birt 23. nóvember 2021

618/2021

A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður) gegn B (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna hans, kom fram að við fjárslitin kæmu í hlut hvors þeirra um sig þær eignir sem þau voru skráð fyrir á viðmiðunardegi skipta, utan nánar tilgreindrar bifreiðar sem skyldi koma að fullu í hlut A og félagsins C ehf. sem skyldi koma að fullu í hlut B. Þá skyldi A greiða B húsaleigu vegna afnota hennar af sameiginlegri fasteign þeirra frá viðmiðunardegi skipta og þar til afnotum hennar lyki. Kröfu B, um að A endurgreiddi honum helming útlagðs kostnaðar vegna tilgreindrar fasteignar, var vísað frá dómi en viðurkenndur endurkröfuréttur hans vegna helmings þess kostnaðar sem hann kynni að leggja út vegna fasteignarinnar allt til úthlutunar hennar. Jafnframt var kröfu B um að A greiddi honum fyrir afnot nefndrar bifreiðar hafnað. Auk þess var kröfu hans, um að A endurgreiddi honum að fullu útlagðan kostnað vegna bifreiðarinnar, vísað frá dómi. Loks var endurkröfuréttur B á hendur A viðurkenndur vegna þess kostnaðar sem hann kynni að leggja út vegna bifreiðarinnar allt til úthlutunar hennar.

Landsréttur birt 22. október 2021

162/2020

E (Jón G. Briem lögmaður) gegn B (Jón Auðunn Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

A hóf sambúð með C ekki síðar en árið 1964 og eignuðust þau dótturina B, stefndu í máli þessu. C lést árið 2009 og lauk einkaskiptum á dánarbúi hans sama ár en stefnda tók ein arf eftir hann. A lést árið 2018 og var dánarbú hennar tekið til opinberra skipta. Dánarbú A höfðaði mál á hendur stefndu til viðurkenningar á því að dánarbúið væri helmingseigandi tiltekinnar fasteignar og að stefnda yrði dæmd til greiðslu skaðabóta þar sem A hafi átt tilkall til helmings eigna sem komu til skipta úr dánarbúi C. Fyrir Landsrétti var málið rekið af E, syni A úr fyrra hjónabandi, sbr. heimild í 3. mgr. 68. gr. laga nr. 20/1991. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að sambúð A og C varði í það minnsta í 45 ár. Gögn málsins bentu hins vegar til þess að C hafi alfarið fjármagnað byggingu fasteignarinnar sem um var deilt og var einnig þinglýstur eigandi eignarinnar. Þá bentu gögn málsins til þess að fjárhagur og eignir A og C hafi að öðru leyti verið aðskildar alla þeirra sambúðartíð. Áfrýjandi var því ekki talinn hafa sýnt fram á að veruleg fjárhagsleg samstaða hafi myndast með A og C svo að talið yrði að A hafi átt tilkall til hlutdeildar í eignarmyndun C á sambúðartímanum. Var niðurstaða héraðsdóms um að sýkna stefndu af kröfum áfrýjanda því staðfest.

Landsréttur birt 14. október 2021

190/2021

B, D, E og G (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn A (Guðjón Ármannsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Í málinu krafðist A þess að við skipti á dánarbúi H yrði viðurkenndur réttur hennar til helmings af hreinni eign dánarbúsins en A og H höfðu verið í sambúð um tólf ára skeið er H lést. Byggði A á því að eignastaða H hefði verið neikvæð við upphaf sambúðar aðila en á sambúðartíma þeirra hefði orðið mikil eignaaukning hjá H sem henni bæri réttur til helmingshlutdeildar í. Taldi bú H við andlát hans meðal annars nokkrar jarðir, húseignir, vélar og tæki og tæplega 300.000 lítra greiðslumark mjólkur. Í úrskurði Landsréttar er rakið að gera verði greinarmun á því hvort eignir í óvígðri sambúð hafi myndast áður en sambúðin hófst eða eftir þann tíma, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 472/2016. Með hliðsjón af málsgögnum var talið að A hefði sýnt fram á að hún hefði innt af hendi framlög til eignamyndunar á sambúðartíma sem fólst í lækkun skulda, kaupum á vélum og tækjum, 57.860 lítra aukningu greiðslumarks mjólkur og endurbótum og uppbyggingu á þremur húseignum dánarbúsins. Var á það fallist að henni bæri réttur til helmingshlutdeildar í tilgreindum eignum. Á hinn bóginn var ekki talið að henni bæri réttur til helmingshlutdeildar í öðrum eignum sem féllu til dánarbúsins.

Landsréttur birt 29. september 2021

507/2021

A (Einar Páll Tamimi lögmaður) gegn B (Helga Melkorka Óttarsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi A og B í tengslum við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna slita á óvígðri sambúð. B hafði ekki lagt fram yfirlit um erlenda bankareikninga í hans nafni þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir skiptastjóra, en B hafði viðurkennt tilvist þessara reikninga. A staðhæfði að inni á þessum reikningum væru 500.000.000 króna. Landsréttur féllst á þá kröfu A að við fjárslit aðila skyldi lagt til grundvallar að B hafi á viðmiðunardegi skipta átt á þessum erlendu bankareikningum 500.000.000 króna, en leggja bar staðhæfinguna til grundvallar þar sem A átti þess ekki kost að afla þessara yfirlita sjálf. Þá var ágreiningur um við hvaða gengi skyldi miðað við verðmat á hlutabréfum í erlendum félögum sem féllu til B. Var lagt til grundvallar gengi hlutabréfanna á viðmiðunardegi skipta, en ekki hæsta skráða gengi bréfanna eftir viðmiðunardag skipta. Að öðru leyti var staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar þar sem vísað var frá dómi þeirri kröfu A að til eigna B á viðmiðunardegi skipta sem kæmu til fjárslita teldist innbú, listaverk og lausafé sem ekki hefðu á því tímamarki verið á sameiginlegu lögheimili aðila og öðrum kröfum hennar hafnað.

Hæstiréttur birt 15. september 2021

36/2021

Málaflokkur: Erfðaréttur

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu A um að dánarbú móður hans, C, sem lést í ágúst 2016, yrði tekið til opinberra skipta, en B eiginmaður hennar sat í óskiptu búi eftir hana. A var eina barn C og fyrri eiginmanns hennar en B á tvo syni. A og B gerðu með sér sameiginlega erfðaskrá þar sem kom fram að það væri sameiginleg ákvörðun hjónanna að hið langlífara þeirra gæti setið í óskiptu búi eftir lát hins skammlífara eins lengi og það vildi með þeim fyrirvara að sú heimild myndi falla úr gildi ef það þeirra sem lengur lifði gengi í hjónaband að nýju eða hæfi sambúð. Í dómi Hæstaréttar kom fram að augljóslega hefði að baki þessari ákvörðun verið sá vilji að koma í veg fyrir að langlífari maki stofnaði til fjárhagslegrar samstöðu er fylgi hjúskap eða óvígðri sambúð og gæta þannig hagsmuna stjúpniðja sem ættu arf inni í óskiptu búi. Vísaði rétturinn til þess að því er varðaði hjúskap leiddi þetta beint af 2. mgr. 13. gr. erfðalaga og óþarft að taka það atriði fram í erfðaskránni en ekkert sambærilegt ákvæði væri í erfðalögum um óvígða sambúð og því hafi þurft að gera áskilnað þar um í erfðaskrá. Að því gættu að það skilyrði þjónaði sama tilgangi og umrætt ákvæði erfðalaga var talið heimilt að mæla fyrir um í erfðaskránni að langlífari makinn gæti ekki setið í óskiptu búi ef hann stofnaði til sambúðar og var lagt til grundvallar í málinu að B hefði stofnað til sambúðar í skilningi erfðaskrárinnar. Var því krafa A tekin til greina um að dánarbúið yrði tekið til opinberra skipta á grundvelli 3. mgr. 38. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl.

Hæstiréttur birt 23. júní 2021

23/2021

A (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn B, D, E og G (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem kröfu A um að viðurkenndur yrði réttur hennar til helmings allra nettóeigna dánarbús H var vísað frá héraðsdómi vegna vanreifunar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að krafa A hefði verið til umfjöllunar á þremur skiptafundum dánarbúsins án þess að athugasemdir hefðu komið fram um form hennar á þeim vettvangi. Taldi dómurinn að grundvöllur málatilbúnaðar A væri nægilega skýr um það að hún teldi sig hafa öðlast hlutdeild í þeirri eignaaukningu sem varð á sambúðartímanum. Loks var bent á að mótmæli varnaraðila við gögnum sem lögð hefðu verið fram af hálfu A og málsástæðum reistum á þeim vörðuðu efnishlið málsins og leiddu ekki til frávísunar þess. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnismeðferðar.

Landsréttur birt 10. maí 2021

190/2021

B, D, E og G (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn A (Guðjón Ármannsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Í málinu krafðist A þess að við skipti á dánarbúi H yrði viðurkenndur réttur hennar til helmings allra nettó eigna dánarbúsins en A og H höfðu verið í sambúð um tólf ára skeið er H lést. Byggði A á því að eignastaða H hefði verið neikvæð við upphaf sambúðar aðila en á sambúðartíma þeirra hefði orðið mikil eignaaukning hjá H sem henni bæri helmingshlutdeild í. Taldi bú H við andlát hans meðal annars nokkrar jarðir, húseignir, vélar og tæki og 300.000 lítra greiðslumark í mjólk. Í úrskurði Landsréttar kom fram að eins og málinu væri háttað hefði verið nauðsynlegt að rökstyðja eignartilkall A sérstaklega vegna einstakra eigna en ólík sjónarmið kynnu að ráða eignastöðu í hverju tilviki. Með hliðsjón af því taldi Landsréttur að krafa A væri vanreifuð og var henni því vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 25. nóvember 2020

432/2020

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi A og B í tengslum við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna slita á óvígðri sambúð. Landsréttur féllst á niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að fjárhagur aðila hefði að miklu leyti verið sameiginlegur, og fjárhagsleg samstaða hafi þannig verið með A og B á sambúðartíma þeirra, en taldi að í ljósi atvika og aðstæðna aðila skyldi virða eignarhlutdeild B í fasteigninni sem þau bjuggu í á sambúðartíma að álitum.

Landsréttur birt 20. mars 2020

91/2020

A (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður) gegn B (Ólafur Örn Svansson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. A krafðist þess að söluandvirði fasteignar, sem hafði verið þinglýst eign B á viðmiðunardegi skipta, myndi falla undir skiptin. Með hliðsjón af því hvernig fjármálum aðila og fyrirkomulagi á skráningu eigna þeirra hefði verið háttað á sambúðartímanum og aðstæðum þeirra að öðru leyti var ekki talið að greiðslur, sem A innti af hendi í aðdraganda kaupa fasteignarinnar, gætu einar og sér leitt til hlutdeildar hans í eignamyndun fasteignarinnar. Var kröfu hans því hafnað.

Landsréttur birt 20. mars 2020

355/2019

A (Þórir Júlíusson lögmaður) gegn B (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir lögmaður, Ragnar Björgvinsson lögmaður, 2. prófmál)

Í kjölfar sambúðarslita A og B var deilt um uppgjör á söluandvirði fasteignar þeirra. Þinglýstur eignarhluti B var 62% og eignarhluti A 38% en fasteignin var fjármögnuð annars vegar með misháu fjárframlagi A og B og hins vegar með töku lána sem þau báru jafna ábyrgð á. Uppgjör söluandvirðis hafði farið fram með þeim hætti að fyrst voru greiddar upp áhvílandi veðskuldir og sölukostnaður og því sem eftir stóð skipt milli A og B í samræmi við þinglýsta eignarhluta þeirra. B gerði athugasemdir við þá uppgjörsaðferð en hún taldi að skipta hefði átt söluandvirðinu milli þeirra í samræmi við eignarhluta áður en veðskuldir væru dregnar frá. Í dómi Landsréttar kom fram að sú meginregla gilti við slit sambúðar að líta bæri á sambúðarfólk sem tvo sjálfstæða einstaklinga og að hvor aðila taki sínar eignir og beri ábyrgð á sínum skuldum. Með þeirri uppgjörsaðferð sem notuð var hefði B í raun verið látin greiða hluta af skuld sem óumdeilt var að A bar ábyrgð á. Var því fallist á að B hefði eignast kröfu á hendur A sem næmi þeirri fjárhæð sem hún hefði greitt af skuld A. Þá var talið að A hefði ekki haft réttmæta ástæðu til að ætla að B hefði samþykkt breytingar á samkomulagi þeirra um jafna ábyrgð á veðskuldum og var A látinn bera hallann af sönnunarskorti um hið gagnstæða. Var krafa B því tekin til greina.

Landsréttur birt 27. nóvember 2019

702/2019

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi milli A og B sem reis við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna loka óvígðrar sambúðar. A krafðist þess að fasteign sem þau höfðu búið í kæmi óskipt í hlut hennar, en A og B voru þinglýstir eigendur að 50% eignarhluta hvort. A þótti ekki hafa fært fyrir því viðhlítandi rök að efni væri til að víkja frá þinglýstum heimildum um eignarrétt að fasteigninni. Var kröfu A því hafnað og staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um að fasteignin kæmi til jafnra skipta.

Landsréttur birt 1. nóvember 2019

159/2019

A (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn B (Björn Jóhannesson lögmaður)

A og B keyptu saman fasteign í óvígðri sambúð. Við sambúðarslit greindi þau á um eignarhlutdeild í fasteigninni og hvort ætti að leggja nánar tilgreint samkomulag til grundvallar eignarhlutföllunum en B taldi að það skyldi ekki gert, m.a. vegna brostinna forsendna. Í málinu lá fyrir að B var einn skráður eigandi fasteignarinnar og fjármagnaði kaupin að mestu með láni er hann tók, en bæði lögðu jafnframt til fé við kaupin. Í dómi Landsréttar kom fram að það hefði verið forsenda fyrir samkomulaginu að sameiginlegar og gagnkvæmar skyldur þeirra um greiðslur af láninu sem B tók vegna íbúðarkaupanna yrðu efndar. Það hefði ekki gengið eftir vegna sambúðarslitanna og atvik hefðu orðið með öðrum hætti en samkomulagið gerði ráð fyrir, en fyrir lá að sambúðin varði í sjö mánuði. Taldi rétturinn því að með þessu hefðu mikilvægar forsendur brostið fyrir samkomulaginu um eignarhlutdeildina. Voru kröfur B því teknar til greina.

Hleð fleiri dómum…