Sakfellt fyrir ýmis brot gegn umferðar- og fíknilefnalöggjöfinni, þjófnað og vopnalagabrot.
E var sakfelldur fyrir fíknefnalagabrot, vopnalagabrot, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og tilraun til þjófnaðarbrots. Með vísan til sakaferils E var refsing hans ákveðin sex mánaða fangelsi auk þess sem hann var sviptur ökurétti í fjögur ár og fíkniefni og hnúajárn voru gerð upptæk.
Þrír voru ákærði fyrir líkamsárás. Tveir ákærðu voru sýknaðir, en sá þriðji sakfelldur fyrir að kýla brotaþola, en var ekki gerð refsing með vísan til aðdraganda atlögunnar sem ákærði var ekki upphafsmaður að. Brotaþola voru dæmdar bætur. Einn ákærðu í málinu var sakfelldur á grundvelli játningar hans fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði sem bundið var skilorði, og sviptur ökurétti í 18 mánuði.
Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Hafdísi Hödd Sigurðardóttur
Ákærða var dæmd til greiðslu 900.000 króna sektar, að viðlagðri 38 daga vararefsingu, fyrir að brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hún svipt ökurétti í þrjú ár og fjóra mánuði og skyldi einnig sæta upptöku fíkniefna.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
Þorvaldi Snæ Péturssyni
Þ var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld og akstur undir áhrifum fíkniefna. Sviptur ökurétti í fjóra mánuði
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot.
Karlmaður sakfelldur fyrir ræktun kannabisplantna, vörslu fíkniefna og akstur undir áhrifum fíkniefna.
Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltr, Birna Kristín Einarsdóttir fulltr) gegn
Sveinbirni Sveinssyni
Ákærði dæmdur til 60 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Auk þess dæmd ökuréttarsvipting og upptaka haldlagðra fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
Ómari Svan Ómarssyni (
Gísli M. Auðbergsson hdl)
Ó var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi við X haft í vörslum sínum 241,32 g af hassi og 29,73 g af MDMA, sem fundust við leit lögreglu í bifreið þeirra. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti, var refsing ákærða ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Þá voru fíkniefnin gerð upptæk.
A og B sættu dómi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og B auk þess fyrir brot gegn umferðarlögum og almennum hegningarlögum.
Dæmt annars vegar fanglesi og hins vegar skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Dæmd sekt og svipting ökuréttar fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Í héraði var Á fundinn sekur um að hafa ekið bifreið tvisvar sinnum óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ólöglegra fíkniefna. Var hann dæmdur til að greiða 140.000 krónur í sekt í ríkissjóð og sviptur ökurétti í níu mánuði. Málinu var skotið til Hæstaréttar vegna ágreinings um tímalengd ökuréttarsviptingar. Í Hæstarétti var ökuréttarsvipting Á þyngd í samræmi við dómvenju við ákvörðun ökuréttarsviptingar, sbr. nú reglugerðar nr. 328/2009. Var Á sviptur ökurétti í 14 mánuði að frádreginni 9 mánaða sviptingu ökuréttar sem hann sætti frá birtingu héraðsdóms.
Í héraði var K fundinn sekur um að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ólöglegra fíkniefna. Var hann dæmdur til að greiða 90.000 krónur í sekt í ríkissjóð og sviptur ökurétti í 6 mánuði. Málinu var skotið til Hæstaréttar vegna ágreinings um tímalengd ökuréttarsviptingar. Í Hæstarétti var ökuréttarsvipting K þyngd í samræmi við dómvenju við ákvörðun ökuréttarsviptingar, sbr. nú reglugerð nr. 328/2009. Var K sviptur ökurétti í 12 mánuði að frádreginni 6 mánaða sviptingu ökuréttar sem hann sætti frá birtingu héraðsdóms.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Aroni Erni Ívarssyni og Pétri Áskeli Svavarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Sakfellt fyrir þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum fíkniefna og fíkniefnabrot.
A var sakfelldur fyrir að hafa í þrígang ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni sökum neyslu fíkniefna og fyrir að hafa fíkniefni í vörslum sínum. Með brotum sínum rauf hann skilyrði reynslulausnar. Gert að sæta fangelsi í 11 mánuði og sviptur ökurétti í 20 mánuði.
Ákæruvaldið (
Ragna Bjarnadóttir fulltrúi)
gegn
Jens Hjartarsyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var hann dæmdur í 6 mánaða fangelsi, til greiðslu 140.000 króna sektar og til ökuréttarsviptingar í 12 mánuði.
Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi) gegn
Fannari Frey Bjarnasyni (enginn)
Sakfellt var fyrir vörslur fíkniefna og akstur undir áhrifum fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Guðlaugi Helga Valssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað, hraðakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Með brotum sínum rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og voru eftirstöðvar refsingar ákærða teknar upp og dæmdar með þessu máli. Refsing ákveðin fangelsi í 6 mánuði og sekt að fjárhæð 210.000 krónur. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 12 mánuði.
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Jóel Mar Hólmfríðarsyni (
Logi Guðbrandsson hrl)
J var sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis. Hann hafði áður verið sakfelldur fyrir ölvunarakstursbrot en var ekki orðinn fullra 18 ára þegar hann framdi það brot. Með vísan til dómvenju var refsing J ákveðin sekt 190.000 krónur. Þá fór um ökuréttarsviptingu J eftir þágildandi 2. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 en ekki 4. mgr. greinarinnar þar sem fyrra ölvunarakstursbrot J hafði ekki ítrekunaráhrif vegna aldurs hans, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var J sviptur ökurétti í eitt ár frá birtingu héraðsdóms að telja.