Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-227/2009:

D Ó M U R

nr. S-227/2009:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X og

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Z

(Þorsteinn Hjaltason hdl)

Ávana- og fíkniefni. Játningarmál. Fangelsi. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Ökuréttarsvipting.

Dæmt annars vegar fanglesi og hins vegar skilorðsbundið fangelsi og sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.

„fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudagskvöldið 2. júní 2009, verið með í vörslum sínum 2,55 grömm af hassi, en lögreglan fann efnin þegar hún hafði afskipti af honum við verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð, Sunnuhlíð 12 á Akureyri.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 15.838, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Mál nr. S-228/2009 var sameinað þessu. Það höfðaði sami sýslumaður gegn ákærða X, einnig 9. september sl.; „fyrir eftirtalin brot:

A Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 21. desember 2007, ekið bifreiðinni RI-370, undir áhrifum fíkniefna (í blóðsýni úr ákærða mældist tetrahýdrólkannabinól 1,3 ng/ml, amfetamín 50 ng/ml og kókaín 50 ng/ml) og sviptur ökurétti, frá Reykjavík áleiðis til Borgarness, þar sem lögreglan stöðvaði akstur hans við verslunina Hyrnuna í Borgarnesi.

Telst þetta varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. A, og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 66/2006.

B Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa þennan sama dag verið með í vörslum sínum í bifreiðinni, þegar lögreglan stöðvaði hann á greindum stað, 0,36 grömm af amfetamíni, 29,52 grömm af hassi, 0,34 grömm af maríhúana og 0,01 gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 13.089, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er þess krafist að ákærði verði dæmdur til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra um ferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“

Mál nr. S-230/2009 var sameinað þessu. Það höfðaði sami sýslumaður, einnig 9. september sl., með ákæru á hendur X og Z; „fyrir eftirtalin brot:

A Á hendur ákærða [Z], fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudagskvöldið 2. febrúar 2009 og aðfaranótt þriðjudagsins 3. febrúar 2009, ekið bifreiðinni VV-454, undir áhrifum fíkniefna (í blóðsýni úr ákærða mældist tetrahýdrólkannabinól 1,3 ng/ml) frá Reykjavík áleiðis til Akureyrar, uns lögregla stöðvaði akstur hans við Þelamerkurskóla í Hörgárbyggð.

Telst þetta varða við [...] 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. A, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 66/2006.

B Á hendur ákærðu báðum, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa ofangreint kvöld og nótt verið með í vörslum sínum í nefndri bifreið 194,25 grömm af hassi og 0,40 grömm af maríhúana, en efni þessi höfðu þeir keypt í Reykjavík og hugðust flytja þau til Akureyrar, en hentu þeim út úr bifreiðinni um leið og þeir urðu varir við lögregluna.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrám nr. 15.220 og 15.221, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er þess krafist að ákærði [Z] verði dæmdur til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“

Mál nr. S-229/2009 var sameinað þessu. Það höfðaði sami sýslumaður, einnig 9. september sl., á hendur ákærða Z; „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 21. júní 2009, verið með í vörslum sínum í bílskúr á heimili sínu [...] á Akureyri, 10,65 grömm af hassi, en hann hafði skömmu áður keypt um 15 grömm af efninu og selt um 3 til 4 grömm til óþekktra aðila daginn áður en lögreglan hafði afskipti af honum á heimili hans og haldlagði það af efninu sem eftir var.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 15.969, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Þáttur ákærða X í máli nr. S-305/2009 var skilinn frá því máli og sameinaður þessu. Það mál höfðaði sami sýslumaður 5. október sl., með ákæru á hendur ákærða X og [A]; „fyrir eftirtalin fíkniefnalagabrot:

A Gegn ákærða [X], fyrir að hafa föstudagskvöldið 14. nóvember 2008, verið með í vörslum sínum, þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Skessugili á Akureyri og á þáverandi heimili sínu að [...] á Akureyri, 0,63 grömm af kókaíni og 13,09 grömm af amfetamíni. [...] Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og sbr. lög nr. 82/1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á efnum þeim, sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrám nr. 14.920, 14.921 & 14.922, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærðu hafa báðir komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningum þeirra, sem samrýmast rannsóknargögnum og ekki er ástæða til að efa að séu sannleikanum samkvæmar, er nægilega sannað að þeir hafi gerst sekir um þá háttsemi sem í framangreindum ákærum er lýst og þar er rétt heimfærð til laga.  Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu en þegar hefur farið fram, með heimild í 164. gr. laga nr. 88/2008.

Ákærði X hefur sætt mörgum refsidómum, einkum fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, en einnig fyrir brot gegn almennum hegningarlögum. Hann sætti síðast refsingu samkvæmt dómi upp kveðnum 10. júlí 2008, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og var þá dæmdur í 6 mánaða fangelsi. Óafplánaðar eftirstöðvar refsingar samkvæmt eldri dómum, 160 daga fangelsi, voru þá dæmdar með. Eftir þetta var hann sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með dómi upp kveðnum 18. desember 2008, en ekki gerð sérstök refsing. Ákærði hefur 12 sinnum frá og með árinu 1994 verið sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga, síðast með dómi 23. október 2006, er hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir slíkt brot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.  Hann hefur hins vegar ekki verið sakfelldur fyrir brot gegn 45. gr. umferðarlaga síðan 22. október 1999, en þá var hann með dómi sviptur ökurétti ævilangt.  Hann hefur aldrei sætt refsingu fyrir brot gegn 45. gr. a. umferðarlaga með áorðnum breytingum.

Við ákvörðun refsingar ber að gæta reglna 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, hvað varðar brot ákærða framin 21. desember 2007, og að öðru leyti reglna 77. gr. almennra hegningarlaga. Með tilliti til þessa og sakaferils ákærða ákveðst refsing hans fangelsi í fjóra mánuði.

Með bréfi 15. mars 2007 ákvað lögreglustjóri að taka umsókn ákærða um ökuskír teini til greina og að honum yrði látið í té ökuskírteini þegar hann hefði staðist próf í umferðarlöggjöf, akstri og meðferð ökutækis og að öðrum skilyrðum uppfylltum.

Fékk ákærði með þessu ökurétt endurveittan.  Ber nú samkvæmt 1. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. l. nr. 66/2006, að svipta hann þeim rétti.  Samkvæmt 4. mgr. sömu gr. ber m.a. að ákveða sviptingartíma eftir magni ávana- og fíkniefna í blóði ökumanns.  Magn kókaíns í blóðsýni sem tekið var úr ákærða eftir akstur hans 21. desember 2007 mældist 50 ng/ml.  Telst það mikið magn samkvæmt reglugerð nr. 328/2009. Verður ákærði því sviptur ökurétti í eitt ár frá birtingu þessa dóms að telja.

Ákærði Z var með dómi 10. júlí 2009 sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga, en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Ekki er um skilorðsrof að ræða, þar sem þau brot sem ákærði er hér sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppsögu þess dóms, en samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga með áorðnum breytingum verður hann tekinn upp og málin dæmd í einu lagi eftir reglum 78. og 77. gr. almennra hegningarlaga.  Refsing ákærða ákveðst fangelsi í tvo mánuði, sem rétt er að skilorðsbinda eins og nánar greinir í dómsorði. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða 70.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi sex daga fangelsi í stað hennar, verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.  Samkvæmt 1. og 4. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum ber að svipta ákærða ökurétti og ákveðst sviptingartíminn fjórir mánuðir frá birtingu dóms að telja.

Ákærði X verður dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, sem samkvæmt yfirliti nemur 188.787 krónum. Við það bætist útlagður kostnaður vegna ferðar skipaðs verjanda hans, sem nemur 24.550 krónum, og þóknun hans, sem ákveðst eins og í dómsorði greinir að virðisaukaskatti meðtöldum.

Ákærði Z verður dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar sem samkvæmt yfirliti nemur 81.715 krónum. Við bætist þóknun skipaðs verjanda hans, sem ákveðst eins og greinir í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum.

Gera ber upptæk haldlögð fíkniefni eins og krafist er og nánar er rakið í dómsorði.

Dóminn kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X sæti fangelsi í fjóra mánuði.

Ákærði Z sæti fangelsi í tvo mánuði og greiði 70.000 krónur í sekt til ríkissjóðs. Fresta ber fullnustu fangelsisrefsingar þessa ákærða og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Fangelsi í sex daga komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja.

Ákærði X er sviptur ökurétti í eitt ár frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði Z er sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði X greiði 300.487 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl., 87.150 krónur.

Ákærði Z greiði 143.965 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Þorsteins Hjaltasonar hdl., 62.250 krónur.

Gerð eru upptæk 236,97 grömm af hassi, 0,74 grömm af marihúana, 13,45 grömm af amfetamíni, 0,63 grömm af kókaíni og 0,01 gramm af tóbaksblönduðu hassi, sem tilgreind eru með nr. 15838, 13089, 15220, 15221, 15969, 14922 og 14920 í efnaskrá lögreglu.

Heimildaskrá