Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lög: Lög um lögskráningu sjómanna nr. 35/2010

Landsréttur birt 9. október 2025

241/2025

A og B (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn C hf og TM tryggingum hf (enginn)

A og B höfðuðu mál gegn C hf. og T hf. til heimtu miskabóta vegna andláts sonar þeirra D. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að leggja yrði til grundvallar að D hafði drukknað eftir að hafa fallið fyrir borð af netabátnum E þegar samkvæmt gögnum málsins slokknaði skyndilega á síma hans líkt og hann hefði lent í vatni. Engin vitni hafi verið af falli D í sjóinn og var því með öllu óvíst hvað olli hinum hryggilega atburði. A og B byggðu málsókn sína á 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, en sönnunarbyrðina fyrir því að slys það sem olli dauða D væri að rekja til saknæmrar háttsemi, sem C hf. bæri ábyrgð á, hvíldi á A og B. Í dómi Landsréttar var rakið hvernig sú sönnun hefði ekki tekist og var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna C hf. og T af kröfum A og B.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2025

E-2568/2024

A og B (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn Brimi hf. og TM tryggingum hf (Stefán Björn Stefánsson lögmaður)

Stefnendur, foreldrar ungs manns, kröfðust miskabóta á hendur stefndu, útgerðarfyrirtæki og tryggingafélagi þess, í kjölfar þess að sonur þeirra hafði fallið útbyrðis af fiskveiðibáti þar sem hann var háseti og látist í sjó, sbr. 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Að mati dómsins þótti með öllu ósannað með hvaða hætti umrætt óhapp átti sér stað, auk þess sem ekki þótti heldur vera sýnt fram á að ætlaðir annmarkar í framgöngu skipstjóra og útgerðar í tengslum við málið væru þess eðlis að ætti eftir sem áður að leiða til þess að bótaskylda yrði felld á stefndu.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 27. júní 2023

S-64/2023

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Helgi Jensson lögreglustjóri) gegn Magnúsi Kristjáni Guðmundssyni
Lykilorð: Siglingalög.

Ákærði dæmdur fyrir að stjórna skipi án þess að hafa haft á tilteknu tímabili gild skipstjórnarréttindi, en auk þess fyrir að hafa á sama tímabili lögskráð annan mann, sem ekki hafi verið um borð í skipinu sem skipstjóra þess. Þá var hann sakfelldur fyrir að stjórna skipi undir áhrifum fíkniefna. Brot hans fólu í sér skilorðsrof á eldri dómi. Var sá dómur því dæmdur upp og ákærða gert að sæta fangelsi samtals í þrjá mánuði.

Landsréttur birt 18. júní 2021

71/2020

Ákæruvaldið gegn Guðmundi Níels Erlingssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

G var sakfelldur fyrir brot gegn 2. og 3. mgr. 238. gr. siglingalaga nr. 34/1985 með því að hafa sem skipstjóri nánar tilgreinds fiskiskips stjórnað skipinu óhæfur til að sinna skipstjórninni á fullnægjandi hátt vegna áhrifa nánar tilgreindra fíkniefna sem mældust í blóði og þvagi hans. G neitaði sök og hafnaði því að hafa verið við skipstjórn í umrætt sinn. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki yrði annað ráðið en að G hefði verið við skipstjórn þó svo að vera kynni að B yfirstýrimaður hefði einnig komið að siglingu skipsins undir handleiðslu G. Það væri og í samræmi við lögskráningu á skipið þar sem G var skráður sem skipstjóri og B sem yfirstýrimaður. Var því lagt til grundvallar að G hefði verið skipstjóri á skipinu í umrætt sinn og sem slíkur borið ábyrgð á stjórn þess. Var G gert að greiða 380.000 króna sekt til ríkissjóðs en ella sæta fangelsi í 24 daga. Þá var hann sviptur skipstjórnarréttindum í þrjá mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2018

E-1036/2017

Magnús Árni Gunnlaugsson (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf. (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður), Ingibergi G. Þorvaldssyni (Brynjólfur Eyvindsson lögmaður) og Íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Viðurkennd var bótaskylda varastefnda, útgerðarmanns, vegna líkamstjóns sem stefnandi hlaut í sjóslysi, þó þannig að stefnandi bar tjón sitt sjálfur að 1/3 hluta. Vátryggingafélag sem stefnt var aðallega var sýknað af dómkröfum stefnanda.

Landsréttur birt 16. febrúar 2018

14/2018

Ákæruvaldið gegn Stefáni Guðmundssyni (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður), Aðalsteini Steinþórssyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Ingimar Eydal Óskarssyni (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Karli Óskari Geirssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. desember 2016

S-54/2016

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn X (Daníel Isebarn Ágústsson hrl), Z (Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl), Y (Bjarki Þór Sveinsson hrl) og Ö (Sigríður Dís Guðjónsdóttir hdl)

Sakfellt fyrir brot gegn lögum um eftirlit með skipum, lögum um lögskráningu sjómanna, lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og siglingalögum

Hæstiréttur birt 21. maí 2015

695/2014

Halldór Jón Andersen (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Vinnslustöðinni hf, Sjómenn. Ráðningarsamningur. Ávana-, fíkniefni. Brottrekstur úr starfi, Í febrúar, 2013 var H, sem gegndi stöðu 1. stýrimanns á tilgreindu skipi V hf., látinn, undirgangast vímuefnapróf eftir komu skipsins til landsins. Í þvagsýninu, greindist tetrahýdrókannabínólsýra og var sú niðurstaða staðfest af, Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. H var umsvifalaust sagt upp starfi, sínu og höfðaði hann í kjölfarið mál gegn V hf. til heimtu skaðabóta. Talið var, að H hefði mátt vera fyllilega ljóst hverju það varðaði ef reglur V hf. um, vímuefnalausan vinnustað yrðu brotnar, en hann hafði gengist undir þessar, reglur ári áður með undirritun sinni. Þá hefði hann veitt samþykki sitt til, töku sýnisins, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd, meðferð persónuupplýsinga. Var því ekki fallist á með H að framangreint lyfjapróf, hefði falið í sér brot á friðhelgi einkalífs hans. Þar sem að ólögmætt ávana- og fíkniefni hafði mælst í þvagi H og með hliðsjón af ákvæðum 2. og 3. mgr, 238. gr. siglingalaga nr. 34/1985 hefði hann verið óhæfur til að stjórna og skipinu umrætt sinn. Var V hf. því sýknað af kröfum H (Einar Þór Sverrisson hrl)

Í febrúar 2013 var H, sem gegndi stöðu 1. stýrimanns á tilgreindu skipi V hf., látinn undirgangast vímuefnapróf eftir komu skipsins til landsins. Í þvagsýninu greindist tetrahýdrókannabínólsýra og var sú niðurstaða staðfest af Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. H var umsvifalaust sagt upp starfi sínu og höfðaði hann í kjölfarið mál gegn V hf. til heimtu skaðabóta. Talið var að H hefði mátt vera fyllilega ljóst hverju það varðaði ef reglur V hf. um vímuefnalausan vinnustað yrðu brotnar, en hann hafði gengist undir þessar reglur ári áður með undirritun sinni. Þá hefði hann veitt samþykki sitt til töku sýnisins, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Var því ekki fallist á með H að framangreint lyfjapróf hefði falið í sér brot á friðhelgi einkalífs hans. Þar sem að ólögmætt ávana- og fíkniefni hafði mælst í þvagi H og með hliðsjón af ákvæðum 2. og 3. mgr. 238. gr. siglingalaga nr. 34/1985 hefði hann verið óhæfur til að stjórna skipinu umrætt sinn. Var V hf. því sýknað af kröfum H.