Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Farþegaflutningar

Flokkur:
Landsréttur birt 4. mars 2022

104/2021

Allrahanda GL ehf (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður, Jóhann Fannar Guðjónsson lögmaður, 3. prófmál) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

A ehf. höfðaði mál gegn I ohf. og krafðist þess aðallega að viðurkennd yrði með dómi skaðabótaskylda I ohf. vegna missis hagnaðar sem A ehf. taldi sig hafa notið ef ekki hefði komið til ákvörðunar I ohf. um að hafna tilboði A ehf. í útboði um aðgang að aðstöðu hópferðabifreiða við flugstöð Leifs Eiríkssonar og semja við H hf. Til vara krafðist A ehf. skaðabóta úr hendi I ohf. vegna tjóns sem hefði hlotist af undirbúningi og þátttöku í útboðinu. Deildu málsaðilar um það hvort I ohf. hefði gætt réttra reglna við framkvæmd útboðsins. Í dómi Landsréttar kom fram að ákvæðum laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, að undanskildum ákvæðum kafla XI og XII, yrði ekki beitt um útboðsferlið. Þá vísaði rétturinn til þess að í lögum væri ekki að finna ákvæði sem með einhverjum hætti vikju til hliðar almennum reglum um framkvæmd útboða samkvæmt lögum nr. 65/1993 um framkvæmd útboða. Var ákvæðum laga nr. 65/1993 því beitt við úrlausn á ágreiningi málsaðila. Í dóminum kom fram að sá sem býður út rekstur á þjónustu ákveði hvort og að hve miklu leyti kröfur til tæknilegra eiginleika þjónustu séu gerðar að hæfisskilyrðum. Krafa í útboðskilmálum um að bjóðandi skyldi hafa yfir að ráða miðstöð eða aðalstoppistöð hefði ekki verið gerð að hæfiskilyrði og var málsástæðum A ehf. um að I ohf. hafi borið að vísa frá tilboði H hf. hafnað. Þá var ekki talið að bjóðendur hefðu þurft að hafa tiltæka miðstöð eða aðalstoppistöð þegar tilboð voru gerð heldur væri nægjanlegt að hún væri til staðar þegar starfsemin hæfist. Þá taldi Landsréttur að þótt H hf. hafi samið við AD ehf. um að annast framkvæmd á þjónustunni bæri fyrrnefnda félagið ábyrgð á efndum samningsins gagnvart I ohf. Af þeim ástæðum hafi það ekki verið nauðsynlegt fyrir I ohf. að ganga sérstaklega úr skugga um það hvort AD ehf. uppfyllti hæfiskröfur greina 0.3.6.1 og 0.3.6.2 í útboðsskilmálum. Var I ohf. því sýknað af kröfum A ehf.

Landsréttur birt 16. febrúar 2018

14/2018

Ákæruvaldið gegn Stefáni Guðmundssyni (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður), Aðalsteini Steinþórssyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Ingimar Eydal Óskarssyni (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Karli Óskari Geirssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.