Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Haffæri

Landsréttur birt 16. febrúar 2018

14/2018

Ákæruvaldið gegn Stefáni Guðmundssyni (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður), Aðalsteini Steinþórssyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Ingimar Eydal Óskarssyni (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Karli Óskari Geirssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.

Hæstiréttur birt 15. mars 2001

353/2000

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson (Jónas Haraldsson hdl) gegn Básafelli hf (Sigurbjörn Magnússon hrl)

A, sem var skipstjóri hjá B, rifti ráðningarsamningi sínum við B. Hafði A ásamt öðrum skipverjum verið sagt upp störfum á skipinu G eftir að bilun hafði komið upp í því og því verið siglt til hafnar. Degi síðar var haffærisskírteini G afturkallað og rifti A þá ráðningarsamningi sínum við B. Afturköllunin var síðan felld úr gildi með úrskurði samgönguráðuneytis en það var þó ekki talið leiða til þess að telja bæri skipið hafa verið haffært þegar A rifti ráðningarsamningnum. Byggði A rétt sinn til riftunar á 19. gr. sjómannalaga, sem heimilaði skipverja að krefjast lausnar úr skiprúmi ef skip yrði óhaffært og skipstjóri bætti ekki úr því. Ósannað var talið að A eða aðrir skipverjar hefðu talið skipið óhaffært og andmælt framlengingu haffærisskírteinisins þegar eftir því var leitað nokkrum dögum áður en skipið bilaði. Þá var lagt til grundvallar að ekki hefði verið ætlunin að halda skipinu til veiða eftir að það bilaði. Fallist var á að 19. gr. sjómannalaga næði til skipstjóra eins og annarra skipverja. Á hinn bóginn var ekki fallist á að A hefði sýnt fram á að B hefði vanefnt ráðningarsamning þeirra með þeim hætti að 19. gr. sjómannalaga veitti honum rétt til að rifta honum. Var B því sýknaður af kröfum A.

Hæstiréttur birt 15. mars 2001

352/2000

Sigurður H. Garðarsson (Jónas Haraldsson hdl) gegn Básafelli hf (Sigurbjörn Magnússon hrl)

S, sem var stýrimaður hjá B, rifti ráðningarsamningi sínum við B. Hafði öðrum skipverjum verið sagt upp störfum á skipinu G eftir að bilun hafði komið upp í því og því verið siglt til hafnar en S hafði sjálfur sagt upp skömmu áður. Degi síðar var haffærisskírteini G afturkallað og rifti S þá ráðningarsamningi sínum við B. Afturköllunin var síðan felld úr gildi með úrskurði samgönguráðuneytis en það var þó ekki talið leiða til þess að telja bæri skipið hafa verið haffært þegar S rifti ráðningarsamningnum. Byggði S rétt sinn til riftunar á 19. gr. sjómannalaga, sem heimilaði skipverja að krefjast lausnar úr skiprúmi ef skip yrði óhaffært og skipstjóri bætti ekki úr því. Ósannað var talið að S eða aðrir skipverjar hefðu talið skipið óhaffært og andmælt framlengingu haffærisskírteinisins þegar eftir því var leitað nokkrum dögum áður en skipið bilaði. Þá var lagt til grundvallar að ekki hefði verið ætlunin að halda skipinu til veiða eftir að það bilaði. Ekki var fallist á að S hefði sýnt fram á að B hefði vanefnt ráðningarsamning þeirra með þeim hætti að 19. gr. sjómannalaga veitti honum rétt til að rifta honum. Var B því sýknaður af kröfum S.