Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Jóni Kérúlf Grétarssyni (
Gísli M. Auðbergsson hdl)
J var sakfelldur fyrir brot á 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur til tveggja mánaða fangelsis sem skilorðsbundið var til þriggja ára.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Dæmd sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.
Ákæruvaldið (
Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)
gegn
Ester Ósk Óskarsdóttur Þórarni M. Stefánssyni (
Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Sambýlisfólk sakfellt fyrir vörslur fíkniefna auk þess var maðurinn sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og konan sakfelld fyrir akstur án öryggisbelta.
D var sakfelldur fyrir fjölda auðgunarbrota, nytjastuldi, húsbrot, brot gegn valdstjórninni og umferðar- og fíkniefnalagabrot. Með brotum sínum rauf hann skilorð eldri dóms þar sem sex af níu mánaða fangelsisrefsingu var skilorðsbundin. Sá hluti var tekinn upp og dæmdur með og var refsing hans ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Í var sakfelldur fyrir fjölda auðgunarbrota, þar af þrjú ránsbrot, nytjastuldi, stórfelld eignaspjöll ásamt umferðarlaga- og fíkniefnabrotum. Refsing hans var ákveðin þriggja ára fangelsi. Þá var P sakfelldur fyrir ýmis auðgunar- og umferðarlagabrot og hann dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar. J var einnig sakfelldur fyrir auðgunar-, umferðarlaga- og fíkniefnabrot og hann dæmdur í 14 mánaða fangelsi. Á var ennfremur sakfelldur fyrir þrjú ránsbrot. Fyrir Hæstarétt voru lagðar upplýsingar um að hann hefði breytt lífi sínu mjög til betri vegar auk þess sem hann hafði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi sem gat haft áhrif á ákvörðun refsingar. Með hliðsjón af þessu var refsing hans ákveðin skilorðsbundið fangelsi í 12 mánuði. Að lokum var S sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir, ýmis auðgunarbrot, þar á meðal þrjú fullframin rán og eina ránstilraun, nytjastuld, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ein líkamsárásanna var fólskuleg og stórhættuleg og hefði hæglega getað leitt til bana þess sem fyrir henni varð. Á hinn bóginn var tekið tillit til þess að hann var á 15. og 16. aldursári þegar hann framdi brotin. Refsing hans var ákveðin fangelsi í fjögur ár.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
S- 050/2007 Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Ágústi Fannari Ágústssyni og Steingrími Björgvin Sigurjónssyni (sjálfur)
Karlmaður dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir innbrot í hjólhýsi. Rauf reynslulausn sem var dæmd með.
A, B, C, D og E kröfðust þess að rannsókn R á ætluðum skattalagabrotum þeirra yrði dæmd ólögmæt en til vara að allir starfsmenn embættisins vikju sæti við rannsóknina. Talið var að með nánar tilgreindum ummælum hefði ríkislögreglustjóri orðið vanhæfur í málinu og var því fallist á varakröfu sakborninganna að því leyti. Ekki var hins vegar talið að röksemdir sakborninganna ættu að leiða til þess að aðalkrafa þeirra næði fram að ganga. Þá var því hafnað að öðrum starfsmönnum embættisins bæri að víkja sæti í málinu.
G og H sakfelldir fyrir þjófnað með því að brjótast inn í matvöruverslun. Auk þess var G sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og H fyrir nytjastuld með því að taka bifreið og aka henni undir áhrifum fíkniefna.
Ákæruvaldið (Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi) gegn
Guðmundi Friðrik Friðrikssyni
Skilorðsrof. Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, tvær líkamsárásir og vörslu fíkniefni. 6 mánaða fangelsi, þar af þrír mánuðir skilorðsbundnir. Upptaka á fíkniefnum.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Úlfari Ólafssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Ú var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og hilmingu, svo og ólögmæta meðferð fundins fjár. Brot þessi voru umfangsmikil. Húsleit var tvívegis gerð á heimili Ú haustið 1999 og fannst í bæði skiptin mikið þýfi. Við ákvörðun refsingar var og til þess litið að Ú átti að baki langan brotaferil. Að þessu gættu þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði og hafði þá verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa frá eldri dómum fyrir auðgunarbrot.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir saksóknari)
gegn
Kristjáni Markúsi Sívarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
K sætti fimm ákærum fyrir tvær meiriháttar líkamsárásir, hnífaburð og hótanir, eignaspjöll, vörslu fíkniefna ásamt fjölda innbrota. Talið var sannað, gegn andmælum K, að hann hefði gerst sekur um brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga hvað varðaði aðra þá líkamsárás sem hann var ákærður fyrir. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr., 233. gr., 244. gr.,1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, lögum nr. 65/1975 um ávana- og fíkniefni og lögum nr. 46/1977 um skotvopn, sprengiefni og skotelda, á grundvelli játningar hans. K var dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og greiðslu skaðabóta.