Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 16. febrúar 2007.
Mál nr. S-50/2007:
S- 050/2007
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Ágústi Fannari Ágústssyni
Steingrími Björgvin Sigurjónssyni
svohljóðandi
d ó m u r:
(sjálfur)
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir innbrot í hjólhýsi. Rauf reynslulausn sem var dæmd með.
Mál þetta, sem þingfest var 2. febrúar 2007 og dómtekið 14. febrúar sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 7. desember 2006, á hendur Ágústi Fannari Ágústssyni, kt. 000000-0000, Vestursíðu 10, Akureyri, og Steingrími Sigurjónssyni, kt. 000000-0000, Aðalstræti 20a, Akureyri, „fyrir innbrot og húsbrot með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 26. ágúst 2006, brotist inn í hjólhýsi sem stóð við Hrísmýri á Selfossi, dvelja þar um nóttina og hagnýta sér sængurföt og salernisaðstöðu í hjólhýsinu, auk þess að stela þar einum kassa af Faxe bjór, opna hann á staðnum og drekka nokkurn fjölda dósa úr honum.
Telur ákæruvaldið brot ákærðu varða við 231. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.“
Ákærði Ágúst Fannar Ágústsson mætti við þingfestingu málsins 2. febrúar sl., og játaði sök greiðlega að öðru leyti en því að hafa drukkið bjórinn en hann kvaðst ekki neyta áfengis. Féll ákæruvaldið frá sakarefni varðandi 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála á hendur ákærða Ágústi. Ákærði Steingrímur Sigurjónsson mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birt fyrirkall. Ekki var hægt að ljúka málinu samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 og var þáttur ákærða Steingríms skilinn frá málinu S-0801/2006 með vísan til 2. mgr. 23. gr. laga nr. 19/1991. Var því gefin út handtökuskipun á hendur ákærða og var hann færður í fylgd lögreglu fyrir dóminn.
Ákærði játaði brot sitt greiðlega fyrir dóminum. Var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot þau sem greinir í ákæru. Brot ákærða er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu var ákærði dæmdur þann 20. ágúst 1999 í 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir þjófnað. Þann 14. júlí 2000 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi skilorðsbundið til 2ja ára fyrir þjófnaðarbrot, hegningarauki. Þann 9. mars 2001 var ákærði dæmdur í sjö mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna til þriggja ára fyrir þjófnað. Þann 29. júní var ákærði dæmdur í sjö mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna til þriggja ára fyrir þjófnað, hegningarauki. Þann 28. september 2001 var ákærði dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af sex mánuðið skilorðsbundna til þriggja ára fyrir þjófnað, hegningarauki. Þann 14. desember 2001 var ákærði dæmdur fyrir þjófnaðarbrot en ekki gerð sérstök refsing. Einnig 22. október 2002 var ákærða ekki gerð sérstök refsing fyrir brot á 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þann 26. október 2002 var ákærði dæmdur í fangelsi í fjóra mánuði skilorðsbundið í þrjú ár fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlag. Þann 11. september 2003 var ákærði dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, þar af tólf mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára fyrir þjófnað. Þann 23. janúar 2004 var ákærði dæmdur í tólf manaða fangelsi fyrir þjófnað. Þann 27. júní 2005 var ákærði dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir þjófnað og þann 31. maí 2006 var ákærði dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þjófnað. Ákærði hefur ítrekað rofið reynslulausn. Brot það sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú framdi hann þegar hann var á reynslulausn en hann fékk reynslulausn síðast 6. mars 2006 í eitt ár á eftirstöðvum refsingar 70 daga. Með dómi 31. maí 2006 hefur reynslulausn verið látin halda sér en ákærði braut samt sem áður aftur af sér. Frá árinu 1999 hefur ákærði tíu sinnum fengið dóma fyrir þjófnað en síðustu fimm árin sex sinnum fyrir utan önnur brot.
Með brotum þeim sem ákærði er nú dæmdur fyrir rauf hann skilyrði reynslulausnarinnar á sjötíu dögum. Samkvæmt 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 ber að ákvarða ákærða refsingu eftir reglum 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Af öllu ofanvirtu, því að ákærði hefur ítrekað gerst brotlegur við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, hann framdi brotið í sameiningu við annan og þess að ákærði virðist ekki láta segjast þrátt fyrir þau tækifæri sem honum eru fengin með reynslulausn þykir refsing ákærða með hliðsjón af sakarferli hans hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Ekki þykir fært að skilorðsbinda refsinguna.
Enginn sakarkostnaður hlaust af máli þessu.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Steingrímur Björgvin Sigurjónsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.
Ástríður Grímsdóttir.