Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lagagrein: 12. gr. laga nr. 111/2000 — Lög um sjúklingatryggingu
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna meðferðar stefnanda hjá lækni sem keypt hafði hjá stefnda annars vegar sjúklingatryggingu og hins vegar starfsábyrgðartryggingu. Fallist var á kröfuna að því er varðar bótaskyldu vegna sjúklingatryggingar á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000, en viðurkenningarkröfu stefnanda á grundvelli starfsábyrgðartryggingar læknisins var vísað frá dómi vegna vanreifunar.
A höfðaði mál gegn S vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í skurðaðgerð sem A gekkst undir í júní 2016. A krafðist aðallega viðurkenningar á skaðabótaskyldu S en til vara að felld yrði úr gildi ákvörðun S frá 8. maí 2020, þar sem S komst að þeirri niðurstöðu að ekki lægi fyrir bótaskylt tjón sem að öllum líkindum mætti rekja til þátta sem féllu undir gildissvið sjúklingatryggingar samkvæmt 2. gr. laga um sjúklingatryggingar nr. 111/2000. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, þar sem fram kom að A hefði ekki sýnt fram á að um bótaskylt tjón hefði verið að ræða sem fallið gæti undir gildissvið 2. gr. laga nr. 111/200, staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sýknu S af aðalkröfu A. Þá taldi Landsréttur, að fenginni niðurstöðu um sýknu S af aðalkröfu A, hagsmuni A ekki standa til þess að fá ákvörðun S fellda úr gildi, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var varakröfu A því vísað frá héraðsdómi.
Ekki var fallist á kröfu stefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þar sem skilyrði 2. gr. laganna voru ekki talin uppfyllt. Stefndi var því sýknaður í málinu.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að viðurkenndur yrði réttur til bóta úr sjúklingatryggingu tveggja lækna vegna líkamstjóns sem byggt var á að stefnandi hefði orðið fyrir í skurðaðgerð.
Í málinu var deilt um hvort A hefði orðið fyrir líkamstjóni sem mætti rekja til óforsvaranlegrar meðferðar sjúkraþjálfara í kjölfar krossbandsaðgerðar sem hann gekkst undir. A höfðaði mál gegn V hf. og krafðist þess að tjón hans yrði bætt úr sjúklingatryggingu sjúkraþjálfarans. Í héraði var sakarefni málsins skipt með heimild í 1. mgr. 31. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þannig að fyrst var fjallað um hvort bótakrafa A væri fyrnd. Lagt var til grundvallar að A hefði fengið eða mátt fá vitneskju um meint tjón sitt í síðasta lagi í mars 2013 og hefði fyrningarfrestur meintrar bótakröfu samkvæmt 2. gr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þá tekið að líða, sbr. 19. gr. laganna. Þá var ekki fallist á að fyrningu kröfunnar hefði verið slitið með kvörtun hans til landlæknis samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu. Var því talið að sú krafa, sem A kynni að hafa átt á hendur V hf., hefði verið fallin niður fyrir fyrningu.
Talið var að krafa stefnanda vegna sjúkraþjálfunar sem hann hafði gengist undir í kjölfar aðgerðar hefði verið fyrnd við höfðun málsins, sbr. 19. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingar.
A höfðaði mál á hendur tryggingafélagi og krafðist viðurkenningar á rétti á fébótagreiðslu á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna sjúkdómsmeðferðar sem B lýtalæknir framkvæmdi á árinu 2007 og fólst í ísetningu PIP brjóstapúða. Tryggingafélagið var sýknað þar sem ekki þótti sýnt fram á að B hefði gert mistök í skilningi laganna og þá var ósannað að tjón A mætti rekja til galla í brjóstapúðunum.