Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

504 dómar fundust

Lykilorð: Skjalafals

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2026 kl. 8:54

S-7497/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals. Sýkna.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sýknaður af skjalafalsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. mars 2026 kl. 4:23

S-4384/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Heiðari Lár Halldórssyni (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir gripdeild, skjalafals, tilraun til skjalafals, og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára ásamt því að vera sviptur ökurétti í 5 ár.

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

168/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals. Sýkna.
Málaflokkur: Skjalafals

X var gefið að sök skjalafals með því að hafa sem framkvæmdastjóri og prókúruhafi tiltekins einkahlutafélags framvísað í blekkingarskyni með beiðni í útibúi banka umboði vegna yfirdráttarheimildar veltureiknings sem veitti honum heimild til að óska eftir yfirdráttarheimild hjá bankanum. Skjalið hefði verið með falsaðri undirritun A stjórnarformanns félagsins, fyrir hönd þess, en undirritunin hefði verið ljósrituð á skjalið. Með hinum áfrýjaða dómi var X sakfelldur í samræmi við ákæru. Í dómi Landsréttar var rakið að X neitaði sök en A kannaðist á hinn bóginn ekki við að hafa skrifað undir skjalið. Þá kom fram að þegar gögn málsins væru virt heildstætt fengi framburður A ekki þá stoð í gögnunum að nægði til að sakfella X gegn eindreginni neitun hans. Hefðu ekki verið færðar sönnur á að X hefði falsað undirritun A á fyrrgreint skjal með þeim ásetningi að nota það til að blekkja í lögskiptum svo sem áskilið sé í 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Taldi Landsréttur því að ákæruvaldið hefði ekki axlað þá sönnunarbyrði um sekt X sem á því hvíldi samkvæmt 108. gr., sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var X því sýknaður af sakargiftum samkvæmt ákæru.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. janúar 2026

S-5204/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Revazi Shaverdashvili (Sjálfur)
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir skjalafals, brot gegn lögum um útlendinga og brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og dæmdur til að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í einn mánuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. janúar 2026

S-4553/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Aron Þóri Hafþórssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, þjófnað og umferðarlagabrot. Þá var hann dæmdur til greiðslu bóta og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Landsréttur birt 16. desember 2025

82/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Eric Asamoah (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skjalafals

E var sakfelldur fyrir skjalafals með því að hafa í Flugstöð Leifs Eiríkssonar framvísað í blekkingarskyni við lögreglu breytifölsuðu vegabréfi frá Ghana. Við ákvörðun refsingar ákærða var litið til þess að ekki lægi fyrir að E hefði áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Að því gættu og með vísan til 5. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og fastmótaðrar dómvenju var refsing E ákveðin fangelsi í 30 daga.

Landsréttur birt 11. desember 2025

261/2025

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn Lárusi Guðmundi Jónssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skjalafals

L var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa ritað nafn A undir umsókn B ehf. um leigu bílaleigubifreiðar og samþykki viðskiptaskilmála og notað skjalið til þess að stofna til viðskipta við C ehf. Í dómi Landsréttar kom fram að í málinu lægi ekkert fyrir um að L hafi haft umboð til að skuldbinda B ehf. þegar þau atvik sem lýst er í ákæru áttu sér stað. Framburður A væri trúverðugur og afdráttarlaus um að L hafi enga heimild haft frá honum til að rita nafn hans á skjalið. Þá væri framburður L um að hann hafi fengið fullt umboð A til að rita nafn hans undir skuldbindingar fyrir hönd C ehf. ótrúverðugur og ætti sér ekki stoð í gögnum málsins. Yrði að leggja til grundvallar að með því að afhenda C ehf. umsóknina hafi L af ásetningi notað falsað skjal til að koma því til leiðar að B ehf. stofnaði til viðskipta við D ehf. um leigu bifreiða. Var refsing L ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. desember 2025

E-144/2023

A B (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn C D (Aníta Rögnvaldsdóttir lögmaður)

Stefndu voru sýknuð af kröfum stefnenda um ógildingu afsals og afmáningu þess úr þinglýsingabók. Ekki þótti sýnt fram á að undirskriftir stefnenda á afsalinu væru falsaðar. Þá var ekki talið að uppfyllt væru skilyrði samningalaga til ógildingar afsalsins, né heldur að forsendur þess væru brostnar þannig að réttlætti ógildindu þess. Þá voru stefndu sýknuð af varakröfu stefnenda um skaðabætur, þar sem krafan væri fallin niður fyrir fyrningu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2025

S-5143/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Remigijus Uzkuraitis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og vopnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað í tvö ár. Var ákærða einnig gert að greiða sekt til ríkissjóðs, sviptingu ökuréttinda í 2 ár og 3 mánuði ásamt upptöku vopns.

Héraðsdómur Austurlands birt 8. október 2025

S-144/2025

Ákæruvaldið (Fríða Thoroddsen aðstoðarsaksóknari) gegn Aroni Þormari Thomassyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og almennum hegningarlögum. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði og skyldi tveggja mánaða hluti þeirrar refsingar falla niður að tveimur árum liðnum héldi ákærði almennt skilorð. Enn fremur var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á ávana- og fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. október 2025

S-2379/2025

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Olsi Zylyftari (enginn)
Lykilorð: Fangelsi. Skjalafals. Sönnun.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. júní 2025

S-81/2025

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Berglindi Elfarsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Ágústi Guðna Geirssyni (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður) og Geir Aron Geirssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Lykilorð: Peningaþvætti. Skjalafals.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

B var sakfelld fyrir skjalafals með því að hafa útbúið tilhæfulausar kröfur í kerfum Sjúkratrygginga sem urðu til þess að þrír einstaklingar fengu greiðslur frá stofnuninni. Einn þeirra er látinn en hinir tveir voru sakfelldir fyrir brot gegn 1. mgr. 264. gr. laga nr. 19/1940

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. maí 2024

S-1009/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn David Hutsaliuk (Enginn)
Lykilorð: Skjalafals. Útivist.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur fyrir skjalafals í skilorðsbundna refsingu.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. apríl 2025

S-480/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn X (Björn Jóhannesson lögmaður)
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var sýknaður af kröfum ákæruvaldins er vörðurðu ætlað skjalafals, þar sem ekki þótti sannað að ákærði hafi raunverulega haft ásetning til að blekkja í lögskiptum og vekja ranga hugmynd um efni skjals þess er sakarefnið varðaði. Undir rekstri málsins var einkaréttarkröfu sem getið var í ákæru vísað frá dómi sökum vanreifunar bæði hvað varðaði aðild kröfuhafa, sem og fjárhæð dómkrafna og orsakasamhengi á milli hins málatilbúnaðar kröfuhafa og sakarefnis málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2025

S-1005/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Martins Arvis Kaimins
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og skjalafals. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga ásamt því að vera sviptur réttinum til að öðlast ökuskírteini í 4 mánuði.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 4. mars 2025

S-54/2024

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Helgi Jensson lögreglustjóri) gegn X (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var sýknaður af ákæru fyrir skjalafals, sbr. 155. gr. almennra hegningarlaga.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 17. febrúar 2025

S-96/2024

Ákæruvaldið (Sigurður Hólmar Kristjánsson lögreglustjóri) gegn X (Sunna Axelsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. febrúar 2025

S-2869/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. febrúar 2025

S-2549/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Serhat Akin
Lykilorð: Fangelsi. Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í fangelsi og til greiðslu sektar fyrir skjalafals ásamt öðru broti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2025

S-3939/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Olti Derishaj
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga skilorðsbundið til tveggja ára ásamt því að vera sviptur réttinum til að öðlast ökuskírteini í 4 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. janúar 2025

S-5764/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Simonas Miliauskas
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og fíkniefnilagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára. Einnig var honum gert að greiða fésekt og sviptingu ökuréttinda í 18 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. nóvember 2024

S-5819/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Viggó Sigurðssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Dómfelldi var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og skjalafals. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 7 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2024

S-5723/2024

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Einari Braga Þorkelssyni (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Skjalafals, fjársvik, brot í nánu sambandi og vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2024

S-2720/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðjóni Bergi Jakobssyni (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjölmörg brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalögum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. október 2024

S-1781/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Eligijus Ruseckas
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði játaði sök og farið var með málið eftir 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði var dæmdur fyrir skjalafals og akstur ökutækis án ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. september 2024

S-2013/2024

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Mohammed Abdulfattah Mohammed M Alhajj (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Austurlands birt 28. júní 2024

S-193/2023

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Helgi Jensson lögreglustjóri) gegn X (Hlynur Jónsson lögmaður)
Lykilorð: Fjársvik. Skjalafals.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir skjalafalls og fjársvik. Ólögmæti. Sýkna að hluta. Sakarkostnaður.

Landsréttur birt 27. júní 2024

459/2023

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Ashraf Almansor (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals. Útlendingur.
Málaflokkur: Skjalafals

A var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa framvísað í blekkingarskyni við starfsmenn Ú, vegna umsóknar sinnar um dvalarleyfi hér á landi, grunnfölsuðu sýrlensku sakavottorði, útgefnu á nafn A þann 27. desember 2015 og breytifalsaðri þýðingu sakavottorðsins. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna, var talið ótrúverðugt að A hefði talið að framangreind skjöl væru ófölsuð. Því var talið sannað að A hefði framvísað þessum skjölum við starfsmenn Ú til þess að hafa áhrif á meðferð umsóknar hans um dvalarleyfi og þar með blekkja þá í lögskiptum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hann hefði ekki áður sætt refsingu og var það metið honum til refsimildunar, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var A gert að sæta fangelsi í 30 daga sem bundið var skilorði í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. júní 2024

S-956/2024

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Adil Abdishakur Guled
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals.

Landsréttur birt 21. júní 2024

764/2023

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Unnari Sigurði Hansen (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

U var ákærður fyrir þjófnaðarbrot, húsbrot, umferðar- og fíkniefnalagabrot, nytjastuld og skjalafals. Við meðferð málsins í héraði játaði U skýlaust brot sín og var farið með málið sem játningarmál samkvæmt heimild í 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Fyrir Landsrétti var eingöngu til endurskoðunar ákvæði héraðsdóms um refsingu U. Með vísan til hins forsendna hins áfrýjaða dóms en að teknu tilliti til upplýsinga um breytta hagi U var refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2024

S-2484/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Gunnari Hannessyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, skjalafals og rangar sakargiftir og var dæmdur í 45 daga fangelsi, en þar af 15 dagar skilorðsbundnir í 2 ár, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. apríl 2024

S-1923/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Piotr Andrzejczyk
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals. Var honum gert að sæta fangesli í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2024

S-3463/2023

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Mohammad Rahimi
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2024

S-3398/2023

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ali Saberi
Lykilorð: Skjalafals.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. janúar 2024

S-95/2024

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Zinovi Kravchonoak (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Lykilorð: Skjalafals. Þjófnaður.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir þjófnað og skjalafals.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. janúar 2024

S-3465/2023

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Muhumed Hamsa
Lykilorð: Fangelsi. Skjalafals. Útivist.
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir skjalafals.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. janúar 2024

S-6868/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ruslan Aliyeu
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals, umferðarlagabrot og brot gegn útlendingalögum og gert að sæta fangelsi í 75 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað í 2 ár.

Hleð fleiri dómum…