Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 11. gr. laga nr. 94/1976 — Lög um skráningu og mat fasteigna

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júní 2016

E-3218/2014

Sigurður Olsen og Ruth Guðnadóttir (Ágúst Ólafsson hdl) gegn Sigurvin Lárusi Jónssyni Jóni Lárusi Sigurðssyni og Sif Sigurvinsdóttur (Smári Hilmarsson hdl)

Fallist var á með kaupendum fasteignar að hún hefði verið haldin göllum við afhendingu hennar og að þau ættu rétt á því að skuldajafna skaðabótakröfu sinni af því tilefni við kröfu seljenda um eftirstöðvar kaupverðs.

Hæstiréttur birt 8. október 2015

22/2015

Þjóðskrá Íslands og Fljótsdalshérað (Soffía Jónsdóttir hrl, Sonja María Hreiðarsdóttir hdl, Jón Jónsson hrl) gegn Landsvirkjun sf (Guðjón Ármannsson hrl, Ásgerður Ragnarsdóttir hdl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 25. september 2003

564/2002

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf (Kristján Þorbergsson hrl) gegn Sandgerðisbæ (Jónas A. Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu deildu FLE hf. og bæjarfélagið S um skyldu þess síðarnefnda til endurgreiðslu oftekins fasteignaskatts á árunum 1998, 1999 og 2000. Óumdeilt var að vegna mistaka hafði álagningarstofn vegna fasteignaskatts FLE verið ákvarðaður 36.8% of hár á tímabilinu 1989-2000. Byggði FLE hf. endurgreiðslukröfu sína á ákvæðum laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda. Í ljósi fyrningarákvæðis 4. gr. laganna laut krafa hans aðeins að fyrrgreindum þremur árum. Talið var að krafa um endurgreiðslu oftekinna skatta stofnist þegar ofgreiðsla á sér stað. Krafa þessi hafi því verið til þegar FLE hf. tók við öllum eignum, réttindum og skyldum FLE 1. október 2000 samkvæmt lögum nr. 76/2000, sbr. 13. gr. laganna. Töldust umrædd kröfuréttindi því hafa flust til FLE hf. og félagið því réttur aðili málsins. Var kröfu FLE hf. réttilega beint að S í samræmi við 1. gr. laga nr. 29/1995. Þar sem fasteignaskattur hafði verið ákvarðaður samkvæmt röngum álagningarstofni á árunum 1998, 1999 og 2000 bar S að endurgreiða FLE hf. hinn oftekna skatt með vöxtum í samræmi við ákvæði laga nr. 29/1995.