Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Andrzej Nurzynski (
Axel Kári Vignisson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir brot á lyfja-, áfengis- og tóbaksvarnarlögum. Upptaka. Sýkna að hluta.
A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Viðari Gunnarssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. líkamsárás, þjófnað og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku haldlagðra ávana- og fíkniefna o.fl.
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.
Ákvörðun dómsmálaráðherra um framsal X til Þýskalands var staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Atla Hrannari Heimissyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og lyfjalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundu Helgadóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir umferðar-, fíkniefna- og lyfjalagabrot.
Ákæruvaldið (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Ársæli Hersteini Guðleifssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var sakfelldur fyrir tilraun til lyfja-, lyfsölu- og tollalagabrots. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess var hann dæmdur til að sæta upptöku á sterum og öðrum vefaukandi lyfjum.