Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 52. gr. laga nr. 8/1993 — Samkeppnislög

Hæstiréttur birt 4. febrúar 2016

278/2015

Ker hf (Anton Björn Markússon hrl, Guðmundur Siemsen hdl, 1. prófmál) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæði með yfirgripsmiklu og óslitnu samráði með olíuvörur hér á landi á tímabilinu 1993 til 2001 og voru félögunum gerðar sektir. Félögin skutu ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp úrskurð í málinu í janúar 2005 þar sem staðfestar voru allar helstu niðurstöður í ákvörðun samkeppnisráðs, en félögunum voru þó gerðar lægri sektir. K ehf. höfðaði mál þetta til ógildingar á framangreindum úrskurði, en til vara niðurfellingar og til þrautavara lækkunar sektar, sem þar var ákveðin, svo og til endurgreiðslu fjárhæðar hennar. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans í Hæstarétti, var öllum málsástæðum K ehf. til stuðnings framangreindum kröfum hafnað. Ekki var fallist á að 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við endurtekinni málsmeðferð til úrlausnar um refsiverða háttsemi, hafi staðið því í vegi að samkeppnisyfirvöld héldu áfram rannsókn sinni á samstarfi olíufélaganna eftir að rannsókn ríkislögreglustjóra á hinu ólögmæta samráði hófst. Var sérstaklega vísað til þess að K ehf. hefði hvorki verið ákært né sakfellt fyrir brot á 10. gr. samkeppnislaga þegar samkeppnisyfirvöld tóku ákvörðun í málinu. Þá var ekki fallist á að málsmeðferð samkeppnisyfirvalda hafi brotið gegn andmælarétti K ehf. samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Taldi dómurinn að Samkeppnisstofnun og samkeppnisráð hefðu gert það sem í þeirra valdi stóð til þess að gefa K ehf. færi á því að tjá sig um efni málsins áður en ákvörðun í því var tekin. Þá hefði K ehf. ekki útskýrt hvernig upplýsingar, sem starfsmenn þess bjuggu yfir og gátu varpað sök á þá eða félagið við samhliða lögreglurannsókn, hefðu verið K ehf. nauðsynlegar til þess að andmæla málavöxtum eins og Samkeppnisstofnun lýsti þeim. Dómurinn hafnaði einnig þeirri málsástæðu K ehf. að brot félagsins væru fyrnd. Taldi dómurinn að samráð olíufélaganna hefði falið í sér samfellda brotastarfsemi sem hafi ekki lokið fyrr en í desember 2001. Á því tímamarki hafi fyrning á broti K ehf. hafist og hefði fimm ára fyrningarfrestur 5. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 því ekki verið liðinn þegar samkeppnisráð tók ákvörðun sína í október 2004. Þá taldi dómurinn að samkeppnisyfirvöld hefðu sýnt fram á með viðhlítandi hætti að olíufélögin hefðu haft sannanlegan ábata af hinu ólögmæta samráði þannig að fullnægt hafi verið skilyrði 2. mgr. 52. gr. þágildandi samkeppnislaga til þess að ákvarða sektir allt að 10% af veltu K ehf. vegna síðastliðins almanaksárs af hlutaðeigandi starfsemi. Loks var málsástæðum K ehf. um brot á jafnræðis- og meðalhófsreglum hafnað. Í ljósi framangreinds voru SE og Í sýknuð af kröfum K ehf.

Hæstiréttur birt 4. febrúar 2016

277/2015

Olíuverslun Íslands hf (Eyvindur Sólnes hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæði með yfirgripsmiklu og óslitnu samráði með olíuvörur hér á landi á tímabilinu 1993 til 2001 og voru félögunum gerðar sektir. Félögin skutu ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp úrskurð í málinu í janúar 2005 þar sem staðfestar voru allar helstu niðurstöður í ákvörðun samkeppnisráðs, en félögunum voru þó gerðar lægri sektir. O hf. höfðaði mál þetta til ógildingar á framangreindum úrskurði, en til vara niðurfellingar og til þrautavara lækkunar sektar, sem þar var ákveðin, svo og til endurgreiðslu fjárhæðar hennar. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans í Hæstarétti, var öllum málsástæðum O hf. til stuðnings framangreindum kröfum hafnað. Ekki var fallist á að 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við endurtekinni málsmeðferð til úrlausnar um refsiverða háttsemi, hafi staðið því í vegi að samkeppnisyfirvöld héldu áfram rannsókn sinni á samstarfi olíufélaganna eftir að rannsókn ríkislögreglustjóra á hinu ólögmæta samráði hófst. Var sérstaklega vísað til þess að O hf. hefði hvorki verið ákærð né sakfelld fyrir brot á 10. gr. samkeppnislaga þegar samkeppnisyfirvöld tóku ákvörðun í málinu. Þá var ekki fallist á að málsmeðferð samkeppnisyfirvalda hafi brotið gegn andmælarétti O hf. samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Taldi dómurinn að Samkeppnisstofnun og samkeppnisráð hefðu gert það sem í þeirra valdi stóð til þess að gefa O hf. færi á því að tjá sig um efni málsins áður en ákvörðun í því var tekin. Þá hefði O hf. ekki útskýrt hvernig upplýsingar, sem starfsmenn hennar bjuggu yfir og gátu varpað sök á þá eða félagið við samhliða lögreglurannsókn, hefðu verið O hf. nauðsynlegar til þess að andmæla málavöxtum eins og Samkeppnisstofnun lýsti þeim. Dómurinn hafnaði einnig þeirri málsástæðu O hf. að brot félagsins væru fyrnd. Taldi dómurinn að samráð olíufélaganna hefði falið í sér samfellda brotastarfsemi sem hafi ekki lokið fyrr en í desember 2001. Á því tímamarki hafi fyrning á broti O hf. hafist og hefði fimm ára fyrningarfrestur 5. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 því ekki verið liðinn þegar samkeppnisráð tók ákvörðun sína í október 2004. Þá taldi dómurinn að samkeppnisyfirvöld hefðu sýnt fram á með viðhlítandi hætti að olíufélögin hefðu haft sannanlegan ábata af hinu ólögmæta samráði þannig að fullnægt hafi verið skilyrði 2. mgr. 52. gr. þágildandi samkeppnislaga til þess að ákvarða sektir allt að 10% af veltu O hf. vegna síðastliðins almanaksárs af hlutaðeigandi starfsemi. Loks var málsástæðum O hf. um brot á jafnræðis- og meðalhófsreglum hafnað. Í ljósi framangreinds voru SE og Í sýknuð af kröfum O hf.

Hæstiréttur birt 4. febrúar 2016

272/2015

Skeljungur hf (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppnisstofnun hóf í desember 2001 rannsókn á ætluðu ólögmætu samráði þriggja olíufélaga sem hefði brotið í bága við 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993. Á grundvelli rannsóknarinnar tók samkeppnisráð ákvörðun í október 2004, þar sem komist var að niðurstöðu um að félögin hefðu brotið gegn fyrrgreindu ákvæði með yfirgripsmiklu og óslitnu samráði með olíuvörur hér á landi á tímabilinu 1993 til 2001 og voru félögunum gerðar sektir. Félögin skutu ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp úrskurð í málinu í janúar 2005 þar sem staðfestar voru allar helstu niðurstöður í ákvörðun samkeppnisráðs, en félögunum voru þó gerðar lægri sektir. S hf. höfðaði mál þetta til ógildingar á framangreindum úrskurði, en til vara niðurfellingar og til þrautavara lækkunar sektar, sem þar var ákveðin, svo og til endurgreiðslu fjárhæðar hennar. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans í Hæstarétti, var öllum málsástæðum S hf. til stuðnings framangreindum kröfum hafnað. Ekki var fallist á að 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við endurtekinni málsmeðferð til úrlausnar um refsiverða háttsemi, hafi staðið því í vegi að samkeppnisyfirvöld héldu áfram rannsókn sinni á samstarfi olíufélaganna eftir að rannsókn ríkislögreglustjóra á hinu ólögmæta samráði hófst. Var sérstaklega vísað til þess að S hf. hefði hvorki verið ákærður né sakfelldur fyrir brot á 10. gr. samkeppnislaga þegar samkeppnisyfirvöld tóku ákvörðun í málinu. Þá var ekki fallist á að málsmeðferð samkeppnisyfirvalda hafi brotið gegn andmælarétti S hf. samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Taldi dómurinn að Samkeppnisstofnun og samkeppnisráð hefðu gert það sem í þeirra valdi stóð til þess að gefa S hf. færi á því að tjá sig um efni málsins áður en ákvörðun í því var tekin. Þá hefði S hf. ekki útskýrt hvernig upplýsingar, sem starfsmenn hans bjuggu yfir og gátu varpað sök á þá eða félagið við samhliða lögreglurannsókn, hefðu verið S hf. nauðsynlegar til þess að andmæla málavöxtum eins og Samkeppnisstofnun lýsti þeim. Dómurinn hafnaði einnig þeirri málsástæðu S hf. að brot félagsins væru fyrnd. Taldi dómurinn að samráð olíufélaganna hefði falið í sér samfellda brotastarfsemi sem hafi ekki lokið fyrr en í desember 2001. Á því tímamarki hafi fyrning á broti S hf. hafist og hefði fimm ára fyrningarfrestur 5. mgr. 81. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 því ekki verið liðinn þegar samkeppnisráð tók ákvörðun sína í október 2004. Þá taldi dómurinn að samkeppnisyfirvöld hefðu sýnt fram á með viðhlítandi hætti að olíufélögin hefðu haft sannanlegan ábata af hinu ólögmæta samráði þannig að fullnægt hafi verið skilyrði 2. mgr. 52. gr. þágildandi samkeppnislaga til þess að ákvarða sektir allt að 10% af veltu S hf. vegna síðastliðins almanaksárs af hlutaðeigandi starfsemi. Loks var málsástæðum S hf. um brot á jafnræðis- og meðalhófsreglum hafnað. Í ljósi framangreinds voru SE og Í sýknuð af kröfum S hf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2015

E-3292/2013

Skeljungur hf (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfum stefnanda um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi og að stefnandi fengi sekt, sem hann hafði innt af hendi, endurgreidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2015

E-3291/2013

Olíuverzlun Íslands hf (Eyvindur Sveinn Sólnes hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfum stefnanda um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi og að stefnandi fengi sekt, sem hann hafði innt af hendi, endurgreidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2015

E-3002/2013

Ker ehf (Anton Björn Markússon hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfum stefnanda um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi og að stefnandi fengi sekt, sem hann hafði innt af hendi, endurgreidda.

Hæstiréttur birt 6. maí 2010

245/2009

Skeljungur hf (Hörður F. Harðarson hrl), Ker hf (Jón Ögmundsson hrl) og Olíuverzlun Íslands hf (Eyvindur Sólnes hrl) gegn Dala-Rafni ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl, Magnús Pálmi Skúlason hdl)
Lykilorð: Samkeppni. Skaðabætur.

D krafði olíufélögin S, K og O skaðabóta vegna tjóns, sem hann taldi sig hafa orðið fyrir við kaup á eldsneyti á árunum 1996 til 2001 vegna ólögmæts samráðs þeirra, en þau hefðu samkvæmt ákvörðun samkeppnisráðs 28. október 2004 og úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála 29. janúar 2005 brotið gegn 10. gr. þágildandi samkeppnislaga nr. 8/1993 með víðtæku samráði sínu um verðlagningu á olíuvörum og skiptingu markaðar á árunum, sem krafa D laut að. D hefði þurft að taka á sig hærra eldsneytisverð, sem stafað hefði af hinu ólögmæta samráði og leitt til aukins rekstrarkostnaðar hans á þessu tímabili, en krafa hans væri um bætur sem því nam. Talið var að þrátt fyrir umfangsmikla öflun gagna við málsmeðferð stjórnvalda á sviði samkeppnismála, sem D hefði að nokkru fengið aðgang að, hefði hann ekkert lagt fram, sem sýndi að S, K og O hefðu sérstaklega haft samráð um viðskipti við hann. Hann hefði heldur ekki vísað til gagna eða rökstutt á annan hátt svo að viðhlítandi væri að S, K og O hefðu gagngert haft samráð um verðlagningu gasolíu til útgerðarmanna, en hefði þess í stað að mestu látið við það sitja að draga almennar ályktanir af ákvörðun samkeppnisráðs. Til þess að S, K og O gætu borið skaðabótaskyldu gagnvart D yrði hann að leiða í ljós að félögin hefðu haft samráð annaðhvort beinlínis um viðskipti við hann eða almennt um verðlagningu á þeim vörum, sem hann keypti af einhverju þeirra á umræddu tímabili. Að því er varðaði skipagasolíu hefði D hvorugt tekist og voru því ekki efni til að fallast á aðalkröfu D eða þann þátt í varakröfu, sem laut að kaupum á gasolíu fyrir skip. Varakrafa D, að því leyti sem hún laut að verðlagningu á bensíni sem samráð S, K og O hafði tekið til, þótti haldin slíkum annmörkum að ófært var að taka hana til greina. Voru S, K og O því sýknuð af kröfum D.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. apríl 2009

E-2121/2007

Dala-Rafn ehf (Hlynur Halldórsson hdl) gegn Skeljungi hf. (Hörður Felix Harðarson hrl), Olíuverzlun Íslands hf. (Eyvindur Sveinn Sólnes hdl) og Keri hf. (Telma Halldórsdóttir hdl)
Lykilorð: Samkeppni. Skaðabótamál.

Stefnandi krafði stefndu um skaðabætur vegna tjóns hans af ólögmætu samráði stefndu við sölu á eldsneyti. Bætur voru dæmdar að álitum.

Hæstiréttur birt 20. október 2005

122/2005

Sverrir Kjartansson (Steingrímur Gautur Kristjánsson hrl) gegn Landssíma Íslands hf (Andri Árnason hrl)

S krafðist bóta fyrir tjón sem hann taldi L hafa bakað sér á árinu 1993 í tengslum við lok á samningi aðila um söfnun S á auglýsingum í símaskrá. Var krafa S um heimvísun málsins ekki tekin til greina. S reisti kröfu sína meðal annars á því, að eftir slit samningsins hafi L hagnýtt sér eignarréttindi hans og hugverk á þann hátt að í bága hafi farið við ákvæði höfundalaga. S var ekki talinn hafa sýnt fram á að L hafi hagnýtt sér eignarréttindi hans né nein þau verk, sem kynnu að njóta verndar höfundalaga. Þurfti þá ekki að leysa frekar úr því, að hvaða marki slík verk kynnu að hafa orðið til í hans hendi í tengslum við starf hans í þágu L meðan samningur var í gildi milli þeirra. Fékk S því ekki byggt kröfu sína á þessari málsástæðu. Aðrar málsástæður S lutu að því að hann hafi eignast fjárkröfu á hendur L við lok samningssambands aðilanna árið 1993. Var S ekki talinn hafa haldið kröfu sinni, sem sprottin væri beint af samningssambandi málsaðila, fram innan hæfilegs tíma frá því samningssambandi lauk. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu L.