Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna (óskipt sameign, landamerki o.fl.). nr. 74/2022

Landsréttur birt 5. júní 2025

489/2023

Dagmar Sigríður Lúðvíksdóttir og Einar Lúðvíksson (Jón Sigurðsson lögmaður) gegn Veiðifélagi Eystri-Rangár (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Dóru Lúðvíksdóttur (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Með dómi Landsréttar var DS, E og D bannað að hindra umferð V og veiðimanna á vélknúnum ökutækjum eftir akvegum sem liggja um land jarðanna Bakkavallar og Vallarhjáleigu í Rangárþingi eystra að veiðistöðum á veiðisvæðum 8 og 9 í Eystri- Rangá og hindra aðgengi stefnda að þremur sleppitjörnum í sameignarlandi Árgilsstaða 1 og 2 og eyðileggja þær eða koma í veg fyrir nýtingu þeirra að öðru leyti. Í dómi Landsréttar var rakið að með því að hindra umferð vélknúinna ökutækja eftir vegum sem liggja um land tilgreindra jarða og aðgengi V að sleppitjörnum hefðu DS, E og D þannig komið í veg fyrir að V gæti sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem nánar hefði verið útfært í samþykktum og lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Þá hefði framganga DS, E og D í því skyni að hindra aðgengi veiðimanna á vélknúnum ökutækjum sem keypt hefðu veiðileyfi á grundvelli tiltekins samnings farið í bága við fyrirmæli 4. mgr. 37. gr. laga nr. 61/2006. Varðandi eyðileggingu sleppitjarna kom fram í dómi Landsréttar að ekki lægi fyrir að tekin hefði verið ákvörðun um að breyta nýtingu landsins, sem fyrir lá að væri í sameign dánarbús föður DS, E og D og fleiri, á löglega boðuðum fundi. Þegar af þeirri ástæðu væri DS, E og D óheimilt að eyðileggja sleppitjarnirnar eða koma í veg fyrir nýtingu þeirra að öðru leyti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. apríl 2025

E-6055/2024

Stefán Grímur Olgeirsson (Jón Ögmundsson lögmaður) gegn Henning Eyþóri Jónassyni, Laufeyju Kristjánsdóttur Benóný Harðarsyni og Sigrúnu Ösp Sigurjónsdóttur (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður)

Deilt var um afmörkun lóðaréttinda, en stefnandi byggði kröfu sína um viðurkenningu á umfangi þeirra á fyrirliggjandi afsali sér til handa. Stefndu höfðu uppi kröfu um frávísun málsins og byggðu þá á þrenns konar ástæðum. Ein þeirra var sú að stefnandi hefði ekki farið með ágreining þeirra um afmörkun lóðaréttinda eins og mælt væri fyrir um í 1. málslið 1. mgr. 6. gr. i í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna, um sáttameðferð fyrir sýslumanni, sem sé forsenda þess að unnt hafi verið að höfða mál þetta. Var á þetta fallist og málinu vísað frá dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. apríl 2025

E-53/2024

Eignanet ehf (Ívar Pálsson lögmaður) gegn Kristjáni Björgvini Bragasyni (Jón Egilsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda sem vörðuðu landamerki á milli fasteigna aðila, sem og af kröfum er vörðuðu umferðarrétt um aðkomuveg á landi stefnanda. Viðurkennt var að stefndi ætti ekki að öðru leyti rétt til umferðar um land stefnanda. Þá var stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað.

Landsréttur birt 8. nóvember 2024

767/2024

A (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn B C og D (Ívar Pálsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur B, C og D og krafðist þess að viðurkenndur yrði for- kaupsréttur hennar að jörðinni R. Héraðsdómur vísaði málinu frá dómi á þeim grundvelli að A hefði orðið kunnugt um ráðstöfun jarðahlutans með tölvubréfi 23. október 2023. Málshöfðunarfrestur samkvæmt 32. gr. jarðalaga nr. 81/2004 hefði því verið liðinn þegar málið var höfðað 22. maí 2024. Að virtum atvikum í aðdraganda málshöfðunar A taldi Landsréttur aftur á móti ekki efni til að líta svo á að fyrrgreint tölvubréf markaði upphaf málshöfðunarfrests í lögskiptum aðila. A hefði þvert á móti haft réttmæta ástæðu til að ætla að ekki væri tilefni til málshöfðunar fyrr en henni varð ljós afstaða varnaraðila til erindis lögmanns hennar 20. nóvember 2023 þar sem hún tilkynnti um nýtingu forkaupsréttar. Sú staða hefði ekki verið fyrir hendi fyrr en hún fékk upplýsingar um að skiptayfirlýsingu hefði verið þinglýst í bága við forkaupsrétt hennar. Málshöfðunarfrestur téðs ákvæðis var því ekki talinn standa því í vegi að A gæti leitað dóms um viðurkenningarkröfu sína. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Landsréttur birt 8. nóvember 2024

766/2024

A (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn B C og D (Ívar Pálsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur B, C og D og krafðist þess að viðurkenndur yrði forkaupsréttur hans að jörðunum S og T. Héraðsdómur vísaði málinu frá dómi á þeim grundvelli að A hefði orðið kunnugt um ráðstöfun jarðahlutanna með tölvubréfi 23. október 2023. Málshöfðunarfrestur samkvæmt 32. gr. jarðalaga nr. 81/2004 hefði því verið liðinn þegar málið var höfðað 22. maí 2024. Að virtum atvikum í aðdraganda málshöfðunar A taldi Landsréttur aftur á móti ekki efni til að líta svo á að fyrrgreint tölvubréf markaði upphaf málshöfðunarfrests í lögskiptum aðila. A hefði þvert á móti haft réttmæta ástæðu til að ætla að ekki væri tilefni til málshöfðunar fyrr en honum varð ljós afstaða varnaraðila til erindis lögmanns hans 20. nóvember 2023 þar sem hann tilkynnti um nýtingu forkaupsréttar. Sú staða hefði ekki verið fyrir hendi fyrr en hann fékk upplýsingar um að skiptayfirlýsingu hefði verið þinglýst í bága við forkaupsrétt hans. Málshöfðunarfrestur téðs ákvæðis var því ekki talinn standa því í vegi að A gæti leitað dóms um viðurkenningarkröfu sína. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Landsréttur birt 23. apríl 2024

158/2024

Sýslumaðurinn á Suðurnesjum (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (sjálfur)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi ákvörðun sóknaraðila um að vísa frá þinglýsingu skiptayfirlýsingu þess efnis að við skipti á dánarbúi maka S skyldi koma í hlut hans tilgreindur eignarhluti í jörð og lagt fyrir þinglýsingarstjóra að þinglýsa skjalinu. Landsréttur vísaði til þess að úrskurður um kröfur sóknaraðila í málinu fælu ekki í sér úrlausn um tiltekin réttindi sem hann hefði lögvarða hagsmuni af að fá skorið úr um í skilningi 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 1. mgr. 3. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978, en ekki skipti máli við mat á því atriði þó svo að aðild í málinu í héraði hefði verið hagað svo að sóknaraðili væri þar til varnar. Var málinu því vísað frá Landsrétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. febrúar 2024

T-232/2024

Skúli Thoroddsen (Sjálfur) gegn sýslumanninum á Suðurnesjum (Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Ákvæði jarðalaga nr. 81/2004 voru talin það óskýr að ekki væri á þeim byggjandi um forkaupsrétt sameigenda jarða við erfðir. Var höfnun sýslumanns á að þinglýsa skiptayfirlýsingu dánarbús felld úr gildi og lagt fyrir sýslumann að þinglýsa yfirlýsingunni.

Landsréttur birt 7. október 2022

347/2021

Auður Helga Ólafsdóttir (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður, Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður, 3. prófmál) gegn Veiðifélagi Langadalsár, Hvannadalsár (Grímur Sigurðsson lögmaður) og Þverár (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður, 2. prófmál)

A var einn eigenda jarðarinnar Rauðamýrar en jörðinni fylgdi veiðiréttur í Hvannadalsá. A höfðaði mál á hendur V og krafðist þess að fá greiddan arð fyrir árin 2015 og 2017 vegna þess eignarhlutar sem hún var þinglýstur eigandi að. Í dómi Landsréttar kom fram að sameigendur Rauðumýrar hefðu gert með sér samkomulag árið 2000 en í því hefðu öll fjármál sameignarinnar verið falin fjárhaldsmanni. Á aðalfundi sameigenda á árinu 2015 hefði G verið kosinn fjárhaldsmaður og hefði arðgreiðsla þess árs verið greidd til hans. Með því hefði V uppfyllt skyldu sína til útgreiðslu arðs það árið. Vegna ósættis sameigenda hefði G látið af starfi sínu sem fjárhaldsmaður árið 2016. Þar sem fjárhaldsmanni hefði ekki verið fyrir að fara til að taka við arðgreiðslum árið 2017 hefði V uppfyllt skyldu sína til útgreiðslu arðs til sameigendanna með því að inna greiðslur af hendi til hvers og eins þeirra. Málamyndagerningur milli A og H, þess efnis að eignarhluta hans skyldi þinglýst á nafn A, gæti engu breytt um það. Var V sýknað af öllum kröfum A.