Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

17 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 93. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 17. desember 2021

240/2021

Ákæruvaldið gegn Aroni Árnasyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa margítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af sjö sinnum undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk slævandi lyfja í eitt skipti, akstur yfir löglegum hámarkshraða í fimm skipti og akstur gegn rauðu umferðarljósi í tvö skipti. Þá var A sakfelldur fyrir að hafa í tvígang haft í vörslum sínum ávana- og fíkniefni. Samkvæmt dómvenju, að virtum sakaferli A og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var staðfest niðurstaða héraðsdóms um 22 mánaða fangelsisrefsingu og ævilanga ökuréttarsviptingu. Ekki þóttu efni til að binda refsinguna skilorði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2020

S-6914/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Tinnu Jensdóttir (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar-vopna og fíkniefnalagabrot. Dæmd til greiðslu sektar og svipt ökurétti í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. mars 2020

S-7539/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Tryggva Loga Jóhannssyni
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og þjófnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2020

S-3243/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jakobi Inga Ragnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökuréttindum í 2 ár og 2 mánuði.

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

132/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Axel Óla Breiðfjörð Albertssyni (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í tvö tilgreind skipti ekið bifreið óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og að hafa í annað skiptanna vanrækt vátryggingarskyldu bifreiðarinnar. Að sakaferli hans virtum og með vísan til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í sjö mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. nóvember 2019

S-4695/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Þorbergi Viktorssyni (Þorsteinn Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna- hegningar- og umferðarlagabrot. Dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Landsréttur birt 18. október 2019

62/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ingibjörgu Björnsdóttur (Flosi Hrafn Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

I var sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa í sjö tilgreind skipti ekið bifreið óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna, að hafa í fimm af þeim skiptum einnig verið undir áhrifum slævandi lyfja og og að hafa í eitt skiptanna haft í vörslum sínum fíkniefni. Í dómi Landsréttar kom fram að í dómaframkvæmd í málum þar sem ákært væri fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hefur verið gerð sektarrefsing vegna fyrstu og annarrar ákæru í samræmi við ákvæði 8. mgr. 100. gr. umferðarlaga. Var refsing I því ákveðin sekt að fjárhæð 2.200.000 krónur að viðlagðri vararefsingu. Að auki var hún svipt ökurétti í fimm ár og gert að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. janúar 2019

S-504/2018

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Axel Óla Breiðfjörð Albertssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka í tvígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms sem var dæmdur upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í sjö mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2018

S-503/2018

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Herði Kristgeirssyni (Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka í fjögur skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í tvö ár, auk þess sem hann var sviptur ökurétti í 5 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2018

S-594/2018

Ákæruvaldið (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X
Málaflokkur: Skjalafals

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlaga- og skjalabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. október 2017

S-277/2017

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Marcin Grzegorzewicz (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í sex mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, í síðara tilvikinu einnig án lögboðinna vátryggingar.

Hæstiréttur birt 6. júní 2013

62/2013

Davíð Örn Bjarnason (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf (Guðjón Ármannsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

ABÍ sf. krafði D um greiðslu bóta vegna tjóns sem hlotist hafði af notkun óvátryggðs ökutækis, þegar árekstur varð milli bifreiðar sem D ók og annarrar bifreiðar. Var krafa ABÍ sf. reist á endurkröfurétti félagsins samkvæmt reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar og 94. og 94. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var sannað að D hefði verið í órétti þegar slysið varð og að hann ætti sök á árekstrinum á grundvelli sakarreglunnar. Þá var ekki talið að 2. mgr. 95. gr. laganna, um endurkröfurétt vátryggingafélags þegar tjóni hefur verið valdið af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, ætti við, þar sem það ákvæði tæki aðeins til vátryggðra ökutækja og bóta sem vátryggingafélag hefði greitt á grundvelli 91. gr. umferðarlaga. Þá þótti ljóst að reglugerð nr. 424/2008 væri sett með stoð í umferðarlögum og endurkröfuréttur ABÍ sf., sem mælt var fyrir um í reglugerðinni, væri að auki í samræmi við almennar reglur um endurkröfu greiddra bóta, sbr. 22. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var því talið að ABÍ sf. ætti rétt til endurkröfu á hendur D vegna þess tjóns sem hann olli í árekstrinum. Hins vegar voru bæturnar lækkaðar um helming á grundvelli 24. gr. skaðabótalaga.

Hæstiréttur birt 23. maí 2013

26/2013

Iceland, Excursions og Allrahanda ehf (Hjördís Halldórsdóttir hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)
Lykilorð: Útboð. Opinber innkaup.

R efndi til útboðs um þjónustu hópferðabifreiða og skiptist útboðið í þrjá hluta. I ehf. bauð í alla hluta útboðsins en gengið var til samninga við önnur fyrirtæki. I ehf. kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála sem kvað upp úrskurð þess efnis að R hefði brotið gegn lögum nr. 84/2007 um opinber innkaup við val á tilboði H ehf. í 1. hluta útboðsins. Í málinu krafðist I ehf. skaðabóta úr hendi R á grundvelli 101. gr. laganna á þeirri forsendu að R hefði brotið gegn 71. gr. sömu laga með því að taka ógildu tilboði H ehf. í akstur fyrir grunnskóla í 1. hluta útboðsins, en tilboð H ehf. hafði að mati I ehf. ekki uppfyllt hæfisskilyrði útboðslýsingarinnar. Talið var að H ehf. hefði uppfyllt hæfniskröfur um fjölda bifreiða samkvæmt útboðinu og að I ehf. hefði ekki tekist að sýna fram á að eignarhald bjóðenda á hópbifreiðum þeim sem nota átti við verkefnið hefði verið nauðsynlegt þar sem slíku skilyrði yrði ekki fundinn staður í skilmálum útboðsins þegar ákvæði þess voru virt. Þá hafði H ehf., sem var í eigu nokkurra hópbifreiðafyrirtækja, sinnt skólaakstri fyrir R í 14 ár og í fylgiskjali með tilboði fyrirtækisins hefði komið fram að fyrirtækið hafði yfir að ráða þeim vagnfjölda sem tilskilinn var í útboðinu. Hefði H ehf. því ekki borið frekari nauðsyn til að sýna fram á að það gæti fullnægt ákvæðum útboðsins, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga nr. 84/2007. Þá var það ekki talið hafa áhrif á gildi tilboðs H ehf. í skilningi 71. gr. laganna hvernig skilmálum um ábyrgir og tryggingar, hópferðaleyfisveitingar og undirverktaka var háttað. Að endingu var ekki fallist á það með I ehf. að mat R á reynslu H ehf. og starfsmanna þess af akstri skólabarna hefði verið rangt. Að öllu þessu virtu hefði R því verið rétt að meta tilboð H ehf. þannig að það uppfyllti skilmála útboðsins en einnig var talið að jafnræðis hefði verið gætt við matið. Var R því sýknað af kröfu I ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2012

E-4455/2011

Iceland Excursions Allrahanda ehf (Hjördís Halldórsdóttir hdl) gegn Reykjavíkurborg (Eyþóra Kristín Geirsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda vegna kostnaðar stefnanda við að undirbúa tilboð og taka þátt í útboði á skólaakstri. Einnig krafðist stefnandi þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda stefnda vegna missis stefnanda á hagnað þar sem tilboði hans var ekki tekið. Dómurinn féllst ekki á að ólögmætt hafi verið að taka tilboði Hópferðamiðstöðvarinnar ehf. og voru skilyrði skaðabótaskyldu því ekki fyrir hendi. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda í málinu.