Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

14 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 43/1987 — Lög um lögskráningu sjómanna

Hæstiréttur birt 27. október 2011

12/2011

Sigurjón Sigurjónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

S varð fyrir slysi um borð í skipinu B er var í eigu Í ehf. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta og lýsti S fjárhæð, sem honum hafði verið dæmd úr hendi Í ehf., í bú félagsins sem reyndist eignalaust. S fékk greiddar bætur úr slysatryggingu launþega en samkvæmt skilmálum hennar skyldi uppgjör á bótum ekki fara eftir reglum skaðabótalaga nr. 50/1993. S höfðaði mál gegn Í og reisti kröfu sína einkum á því að lögskráningarstjóra hafi orðið á saknæm mistök með því að tryggja ekki við lögskráningu áhafnar B að hún væri vátryggð á þann hátt að skipverjar ættu rétt til þess að vátryggingabætur til þeirra í slysatilvikum yrðu reiknaðar eftir reglum skaðabótalaga eins og kjarasamningar kvæðu á um. Féllst Hæstiréttur á með S að fram væri komið að lögskráningarstjóri hafi ekki gengið úr skugga um hvort líf- og slysatryggingar S hafi verið í samræmi við gildandi lög og kjarasamninga eins og honum var skylt að gera samkvæmt 6. tölulið 1. mgr. 7. gr. laga nr. 43/1987 um lögskráningu sjómanna. Þar sem bú Í ehf. hafi verið eignalaust við gjaldþrotaskiptin væri Í ábyrgt fyrir ætlaðri vanrækslu útgerðar við að hafa líf- og slysatryggingu S í gildi. Hæstiréttur féllst á hinn bóginn ekki á að S hafi notið samningsbundinnar vátryggingar er miðaðist um fjárhæð við ákvæði skaðabótalaga heldur færi um slysatryggingar hans einvörðungu eftir 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985. S hefði því ekki sýnt fram á að saknæm vanræksla við lögskráningu hans hafi leitt af sér tjón og var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2010

E-275/2010

Sigurjón Sigurjónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vátryggingafélag Íslands hf. (Hákon Árnason hrl)

Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda vegna likamstjóns er hann varð fyrir um borð í skipi. Stefndi fékk greiddar bætur skv. 172. gr. siglingalaga frá réttargæslustefnda, en taldi sig eiga rétt á bótum á grundvelli skaðabótalaga. Ísl. ríkinu stefnt vegna ætlaðrar mistaka við lögskráningu.

Hæstiréttur birt 23. ágúst 2010

394/2010

Sigurjón Sigurjónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli S gegn Í var vísað frá dómi án kröfu. Í málinu krafðist S viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna slyss sem hann varð fyrir um borð í skipi. Var krafa hans reist á því að lögskráningarstjóra hafi orðið á saknæm mistök með því að tryggja ekki að lögskráningu áhafnar skipsins að hún væri vátryggð á þann hátt að skipverjar ættu rétt til þess að vátryggingabætur til þeirra í slysatilvikum yrðu reiknaðar eftir reglum skaðabótalaga. Í dómi Hæstaréttar var talið að S hafi fullnægt skilyrðum 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um lögvarða hagsmuni. Þá var talið að málatilbúnaður hans væri nægilega skýr til þess að dómur yrði lagður á kröfu hans. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka kröfu S til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júní 2010

E-275/2010

Sigurjón Sigurjónsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vátryggingafélag Íslands hf. (Hákon Árnason hrl)

Viðurkenningarkröfu stefnanda vísað frá dómi án kröfu, þar sem ekki voru færðar nægar líkur fyrir því að stefnandi hafi orðið fyrir tjóni. Þar með var talið að ekki væri fullnægt skilyrðum 2. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 16. nóvember 2006

309/2006

Sveinn Lárus Ólafsson (Jónatan Sveinsson hrl) gegn ACE Insurance S.A.N.V (Baldvin Hafsteinsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

S keypti af A lög- og samningsbundna líf- og slysatryggingu sjómanna fyrir áhöfn sína 14. júní 2001. Var um að ræða vátryggingu í samræmi við ákvæði 172. gr. siglingalaga nr. 34/1985. Þann 30. júní 2001 kvað gerðardómur upp úrskurð sem breytti ákvæði kjarasamnings þess sem S var aðili að, varðandi slysatryggingar sjómanna þannig að bætur skyldu ákvarðast á grundvelli reglna skaðabótalaga nr. 50/1993 ef það leiddi til hærri heildarbóta en samkvæmt 172. gr. siglingalaga. Skipverji í áhöfn S slasaðist við vinnu sína 14. ágúst 2001. S var dæmdur skyldur til að greiða skipverjanum skaðabætur í samræmi við úrlausn gerðardómsins. S krafðist þess að A yrði gert að greiða S sömu fjárhæð og honum sjálfum var skylt að greiða skipverjanum. Í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var í Hæstarétti, var kröfu S hafnað. Þar sem A var hvorki aðili að umræddum kjarasamningi né bundinn af niðurstöðu gerðardómsins var bótaskylda hans eingöngu leidd af vátryggingasamningum hans við S. A hafði þegar innt af hendi bótagreiðslur í samræmi við vátryggingasamninga aðila og var því sýknaður af kröfu S.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2006

E-7516/2005

Sigurður Ólafsson (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Faxaflóahöfnum sf (Guðríður A. Kristjánsdóttir hdl)
Lykilorð: Skaðabætur.

Stefnandi, sem vann við að festa olíuskip við bryggju, slasaðist við það að landfesting, framspringur, sem hafði fest undir fríholti á viðlegukantinu, kipptist upp og sveiflaðist á hann. Hafnsögumaður, sem gaf stefnanda skipun um að lempa springinn aðgætti ekki áður að slaki væri kominn á hann en hann mun hafa gefið skipstjóra fyrirmæli um það. Stefndi dæmdur ábyrgur vegna þessa gáleysis og gert að greiða stefnanda bætur vegna líkamstjóns.

Hæstiréttur birt 22. september 2005

87/2005

Arnar Þór Ragnarsson (Einar Gautur Steingrímsson hrl, Friðrik Á. Hermannsson hdl) gegn Lárusi Lárberg ehf (Halldór Jónsson hrl)

A krafðist þess að L ehf. greiddi sér tiltekna fjárhæð vegna vangreiddra launa. Þá krafðist hann skaðabóta vegna frávikningar úr skipsrúmi er svöruðu til launa í þrjá mánuði, sbr. 44. gr. sjómannalaga nr. 35/1985. Við úrlausn málsins var vísað til þess að verksamningur hefði verið gerður milli eiganda L ehf. og R ehf., um útgerð á því skipi sem A starfaði á, en síðargreinda félagið var í eigu A. Ekki var fallist á að sú skipan, sem þar var ákveðin, stangaðist á við ófrávíkjanleg ákvæði laga eða að samningurinn hafi að öðru leyti ekki verið gildur. Samkvæmt honum bar R ehf. skyldur gagnvart A og öðrum skipverjum varðandi greiðslu launa og önnur réttindi, sem þeim voru tryggð með lögum og kjarasamningum. Stóð L ehf. því ekki í samningssambandi við A um ráðningarkjör hans og var félagið því sýknað af kröfum A.

Hæstiréttur birt 22. september 2005

86/2005

Vilhjálmur Birgisson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Lárusi Lárberg ehf (Halldór Jónsson hrl)

V krafðist þess að L ehf. greiddi sér tiltekna fjárhæð vegna vangreiddra launa. Þá krafðist hann skaðabóta vegna frávikningar úr skipsrúmi er svöruðu til launa í þrjá mánuði, sbr. 44. gr. sjómannalaga nr. 35/1985. Við úrlausn málsins var vísað til þess að verksamningur hefði verið gerður milli eiganda L ehf. og R ehf., um útgerð á því skipi sem V starfaði á. Ekki var fallist á að sú skipan, sem þar var ákveðin, stangaðist á við ófrávíkjanleg ákvæði laga eða að samningurinn hafi að öðru leyti ekki verið gildur. Samkvæmt honum bar R ehf. skyldur gagnvart V og öðrum skipverjum varðandi greiðslu launa og önnur réttindi, sem þeim voru tryggð með lögum og kjarasamningum. Stóð L ehf. því ekki í samningssambandi við V um ráðningarkjör hans og var félagið því sýknað af kröfum V.

Hæstiréttur birt 22. september 2005

62/2005

Arnar Þór Ragnarsson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Lárusi Guðmundssyni (Halldór Jónsson hrl)

A krafðist þess að L greiddi sér tiltekna fjárhæð vegna vangreiddra launa. Við úrlausn málsins var vísað til þess að verksamningur hefði verið gerður milli L og R ehf., um útgerð á skipi því sem A starfaði á, en síðargreinda félagið var í eigu A. Ekki var fallist á að sú skipan, sem þar var ákveðin, stangaðist á við ófrávíkjanleg ákvæði laga eða að samningurinn hafi að öðru leyti ekki verið gildur. Samkvæmt honum bar R ehf. skyldur gagnvart A og öðrum skipverjum varðandi greiðslu launa og önnur réttindi, sem þeim voru tryggð með lögum og kjarasamningum. Stóð L því ekki í samningssambandi við A um ráðningarkjör hans og var því sýknaður af kröfum V.

Hæstiréttur birt 22. september 2005

61/2005

Vilhjálmur Birgisson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Lárusi Guðmundssyni (Halldór Jónsson hrl)

V krafðist þess að L greiddi sér tiltekna fjárhæð vegna vangreiddra launa. Við úrlausn málsins var vísað til þess að verksamningur hefði verið gerður milli L og R ehf., um útgerð á skipi því sem V starfaði á. Ekki var fallist á að sú skipan, sem þar var ákveðin, stangaðist á við ófrávíkjanleg ákvæði laga eða að samningurinn hafi að öðru leyti ekki verið gildur. Samkvæmt honum bar R ehf. skyldur gagnvart V og öðrum skipverjum varðandi greiðslu launa og önnur réttindi, sem þeim voru tryggð með lögum og kjarasamningum. Stóð L því ekki í samningssambandi við V um ráðningarkjör hans og var því sýknaður af kröfum V.

Hæstiréttur birt 22. september 2005

60/2005

Árni Birgisson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Lárusi Guðmundssyni (Halldór Jónsson hrl)

Á krafðist þess að L greiddi sér tiltekna fjárhæð vegna vangreiddra launa. Við úrlausn málsins var vísað til þess að verksamningur hefði verið gerður milli L og R ehf., um útgerð á skipi því sem Á starfaði á. Ekki var fallist á að sú skipan, sem þar var ákveðin, stangaðist á við ófrávíkjanleg ákvæði laga eða að samningurinn hafi að öðru leyti ekki verið gildur. Samkvæmt honum bar R ehf. skyldur gagnvart Á og öðrum skipverjum varðandi greiðslu launa og önnur réttindi, sem þeim voru tryggð með lögum og kjarasamningum. Stóð L því ekki í samningssambandi við Á um ráðningarkjör hans og var því sýknaður af kröfum Á.

Hæstiréttur birt 25. nóvember 2004

262/2004

Sveinn Lárus Ólafsson (Jónatan Sveinsson hrl) gegn ACE Insurance S.A.N.V (Baldvin Hafsteinsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

S hafði keypt slysatryggingu fyrir áhöfn báts síns hjá A í júní 2001. Þegar skipverji á bátnum höfðaði mál á hendur S vegna slyss sem skipverjinn varð fyrir um borð í ágúst sama ár, höfðaði S sjálfstætt mál gegn A í stað þess að stefna honum til réttargæslu og skora á hann um meðalgöngu í máli skipverjans. Var fallist á kröfu S um að vátryggingarsamningur milli A og S hafi verið í gildi þegar slysið varð. Á skorti að kröfugerð og málsástæður væru skýrt greindar í sóknar- og varnargögnum og enn var óljóst um inntak bótaskyldu. Í héraðsdómi var skírskotað til sönnunarfærslu í máli skipverjans gegn S, sem enn var ekki dæmt. Bar því að ómerkja héraðsdóm að því er varðaði inntak ábyrgðar A og vísa frá héraðsdómi kröfu S um það efni.