Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Jóni Valgeiri Pálssyni
Maður sakfelldur fyrir eignaspjöll.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Alexander Murdo Macleod (sjálfur)
Sakfellt fyrir eignaspjöll en ákærði játaði. Bótakröfu vísað frá dómi.
Sakfellt fyrir húsbrot.
Ákæruvaldið (
Kristín Völundardóttir lögreglustjóri)
gegn
Sveini Fannari Jónssyni (
Björn Jóhannesson hrl)
Karlmaður sakfelldur fyrir líkamsárás.
Karl og kona dæmd í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað, eignaspjöll og fleira.
Sakfellt fyrir líkamsárás. Refsing ákveðin sem hegningarauki og eldri dómur dæmdur upp, alls 3ja mánaða fangelsi skilorðsbundið til 3ja ára.
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir fulltrúi)
gegn
Linda Rut Hreggviðsdóttur (
Sigmundur Hannesson hrl)
Sakfellt fyrir þjófnað. Refsing ákveðin sem hegningarauki og eldri dómur dæmdur upp, alls átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára.
S var sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefna- og umferðarlagabrot. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa slegið A hnefahögg í andlitið. Féll A við það aftur fyrir sig og skall með hnakka í jörðina og fékk við það glóðarauga og dreift heilamar. Í framhaldinu stappaði S með fæti ofan á líkama A. Með hliðsjón af því hversu alvarlegur verknaður ákærða var, vísan til 1., 3. og 6. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og því að ákærða var einnig ákveðin refsing vegna skilorðsrofs var refsing hans ákveðin fangelsi í 14 mánuði.
Ákæruvaldið (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
Sadun Lankathilaka (
Grímur Sigurðarson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að slá dreng í höfuðið þannig að drengurinn féll í gólfið og hlaut heilamar. Að auki sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Refsing fangelsi í 14 mánuði.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Arnari Vali Valssyni (
Skúli Bjarnason hrl)
A var ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa stungið Y með hnífi í bakið með þeim afleiðingum að hann hlaut lífshættulegan áverka. Hann var einnig ákærður fyrir þjófnað og tilraun til nytjastuldar. A játaði í öllum tilvikum þá háttsemi sem honum var gefin að sök, en fyrir Hæstarétti krafðist hann mildunar refsingar og byggði einkum á því að heimfæra ætti árás hans á hendur Y undir 218. gr. almennra hegningarlaga og gæta refsilækkunarástæðna, sbr. 70. gr. og 74. gr. sömu laga. Í dómi Hæstaréttar var tekið fram að þótt aðdragandi þess að A stakk Y hefði verið skammur yrði ekki litið framhjá þeim ásetningi, sem bjó að baki för hans um nóttina á fund Y, vopnaður hættulegum hníf. Var ekki talið að A hafi getað dulist þegar hann réðist að Y að bani hlytist eða kynni að hljótast af djúpri hnífsstungu inn í líkama hans. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu A fyrir brot gegn 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. Einnig var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu A vegna annarra sakargifta. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fimm ár og sex mánuði og var hann jafnframt dæmdur til að greiða Y skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Pétri Gísla Finnbjörnssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Karlmaður dæmdur til 30 daga refsingar fyrir þjófnað, skilorðsbundið í 3 ár. Skaðabótakröfu vísað frá dómi vegna vanreifunar.
A.V.V. Sakfelldur fyrir tilraun til manndráps skv. 211. gr. sbr. 20. gr. alm. hgl. og 244. gr., 259. gr. sbr. 20. gr. alm. hgl. B.Ö.B. Sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. Ekið á mann.
Ákæruvaldið (
Dagmar Arnardóttir fulltrúi)
gegn
Mikael Alexander Davíðssyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Frestað ákvörðun refsingar, skilorðsbundið í 2 ár, vegna ungs aldurs 15 ára gamals pilts sem hafði gerst sekur um þjófnað. Bótakröfu vísað frá dómi að hluta.
Ákæruvaldið (Guðmundur Siemsen fulltrúi) gegn
Sigurði Steindóri Björnssyni
Dæmdur í 9 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár. Bótakröfu vísað frá dómi.
Úrskurður héraðsdóms um að bú R væri tekið til gjaldþrotaskipta var staðfestur.
Synjað mótmælum skuldara um að bú hans verði tekið til gjaldþrotaskipta
Ákæruvaldið (Guðmundur H. Gunnarsson fulltrúi) gegn
Ólafi Arnarsyni
Karlmaður dæmdur til greiðslu 65.000 króna sektar fyrir eignaspjöll. Bótakröfu vísað frá dómi.
Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás, fíkniefnabrot og umferðarlagabrot. Brot ákærða voru hegningarauki við dóm frá 17. nóvember 2005 og var honum ekki gerð frekari refsing.
Karlmaður dæmdur í 2 mánaða fangelsi fyrir mörg þjófnaðar- og nytjastuldarbrot, auk umferðarlagabrota. Refsing var ákveðin sem hegningarauki. Skaðabætur dæmdar til handa tjónþolum, en hluta bótakrafna var vísað frá dómi vegna vanreifunar.
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir fulltrúi)
gegn
Stian Guðmundssyni Grönli (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Karlmaður, fæddur árið 1987, dæmdur fyrir að ræna pitsusendil. Andvirði ránsfengsins var um 5.000 krónur. Refsing dæmd fangelsi í 12 mánuði, sem rétt þótti að skilorðsbinda í 4 ár, vegna aðstæðna og ungs aldurs ákærða. Bótakröfu vísað frá dómi vegna vanreifunar.
Þ var sakfelldur fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa í félagi við annan mann brotist inn í flugstöð Flugfélags Íslands og stolið þar og reynt að stela þar tilteknum verðmætum. Einnig var hann sakfelldur fyrir nytjastuld samkvæmt 1. mgr. 259. gr. og brot gegn 1. mgr. 226. gr. laganna fyrir að hafa svipt ræstitækni, sem fyrir var í flugstöðinni, frelsi og haldið honum þar nauðugum. Verknaði Þ var í ákæru ekki lýst sem ránsbroti samkvæmt 252. gr. almennra hegningarlaga, svo sem verknaðarlýsing brotanna saman gæti hafa gefið tilefni til. Því var refsing ákærða eingöngu miðuð við brot eftir ákvæðum 226. og 244. gr. Þegar litið var til þess m.a. að sakborningarnir höfðu haldið manninum nauðugum í flugstöðinni í um klukkustund og höfðu skipst á að vera með hníf meðan á því stóð, þótti refsing Þ hæfilega ákvæðin fangelsi í 14 mánuði.
Á og K voru sakfelldur fyrir hylmingu, með því að hafa veitt viðtöku fé, sem S hafði dregið sér í starfi sínu hjá L hf., haldið því ólöglega fyrir eiganda þess og hagnýtt það í eigin þágu og félaga sem þeir áttu að hluta eða öllu leyti. Þá var R sakfelldur fyrir peningaþvætti, með því að hafa á sama hátt veitt viðtöku fé, sem S hafði dregið sér, og hagnýtt það í eigin þágu eða ráðstafað því til annarra. Á, K og R höfðu verið ákærðir fyrir að „hafa mátt vera ljóst“ að vörslur fjárins í höndum S hefðu ekki stofnast með löglegum hætti. Af því tilefni tók Hæstiréttur fram að lög um meðferð opinberra mála áskildu ekki að í ákæru væri lýst huglægri afstöðu ákærða til verknaðarins sem ákært væri fyrir, enda skæru dómstólar en ekki ákæruvald úr um saknæmi. Við ákvörðun refsingar Á og K var litið til þess að brot þeirra vörðuðu fjölmargar greiðslur, sem spönnuðu yfir talsverðan tíma, og voru flestar að verulegri fjárhæð. Námu brotin alls stórfelldri fjárhæð, sem átti sér ekki hliðstæðu í öðrum dómsmálum. Með því að K hafði á hendi fjárvörslur þeirra að megin stofni og átti ríkari þátt í verknaðinum var nokkur munur gerður á refsingu þeirra. Var Á gert að sæta fangelsi í 15 mánuði, en K í 18 mánuði. Refsing R var ákveðin fangelsi í 3 mánuði.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Guðrúnu Halldóru Valsdóttur (
Hilmar Ingimundarson hrl)
G var ákærð fyrir þjófnað, fjársvik og umferðarlagabrot og gekkst hún við sakargiftum. Rauf hún með brotum sínum skilorð eldri dóms, sem var tekinn upp og dæmdur með samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði með vísan til 71. gr., sbr. og 255. gr. þeirra laga. G var jafnframt svipt ökurétti og dæmd til greiðslu skaðabóta.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Baldvin Sævari Viðarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
B var ákærður fyrir að hafa veist að H á dansleik og sparkað í hann með þeim afleiðingum að H fótbrotnaði. B neitaði sök og verulegs ósamræmis gætti í framburði vitna um atburðarás. Talið að ekki hefði tekist að sanna sök B og var hann sýknaður.