Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi.
Ákærða sýknuð fyrir stórfelldar ærumeiðingar og umsáturseinelti, en sakfelld fyrir brot gegn nálgunarbanni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Heimi Erni Haraldssyni (
Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umsáturseinelti og dæmdur í tíu mánaða fangelsi, en þar af voru sjö mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár, og til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Heimi Erni Haraldssyni (
Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn nálgunarbanni og umsáturseinelti. Var honum gert að sæta fangelsi í 9 mánuði, skilorðsbundið að hluta til þriggja ára. Miskabætur.
Ákærði játaði brot gegn friðhelgi einkalífs, umsáturseinelti og brot gegn nálgunarbanni. Hegningarauki. Skilorðsbundið fangelsi og miskabætur til handa brotaþola.
BÞ var sakfelld fyrir brot gegn 232. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa á um fimm mánaða tímabili endurtekið hótað, fylgst með, sett sig í samband við og setið um A og B, fyrir utan heimili þeirra, gegn þeirra vilja, auk þess að hafa hrellt þær og niðurlægt þær með nánar tilgreindum hætti. Þá var BÞ einnig sakfelld fyrir eignaspjöll með því að hafa valdið skemmdum á bifreið í eigu A og fyrir að óhlýðnast lögreglu með því að hafa neitað að hlýða fyrirmælum lögreglumanna um að koma óvopnuð út af heimili sínu. Varðandi umsáturseinelti BÞ kom fram í dómi Landsréttar að ásetningur hennar til verksins hefði verið einbeittur og þá hefði BÞ virt að vettugi öll fyrirmæli lögreglu og óskir brotaþola um að hún léti af háttseminni. Háttsemi BÞ hafi verið til þess fallin að valda brotaþolum hræðslu og kvíða og nutu brotaþolar ekki friðhelgi á heimili sínu sem þær áttu kröfu á. Var refsing ákærðu ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Með dómi héraðsdóms hafði BÞ verið dæmd til að greiða A og B miskabætur. Einkaréttarkröfur A og B bárust ákæranda hins vegar ekki fyrr en eftir útgáfu ákæru. Af því tilefni var gefin út framhaldsákæra en í dómi Landsréttar kom fram að hvorki hefðu skilyrði fyrir útgáfu framhaldsákæru verið uppfyllt né hefði BÞ veitt samþykki til að kröfur A og B kæmust að í málinu. Var einkaréttarkröfum A og B því vísað frá héraðsdómi.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
David Jozef Burzynski (umsáturseinelti)
Ákærði sakfelldur fyrir umsáturseinelti og brot á nálgunarbanni.
Maður sakfelldur fyrir umsáturseinelti og kynferðislega áreitni.
Sakfellt fyrir umsáturseinelti. Fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi. Miskabætur
X var sakfelldur fyrir brot gegn 232. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sett sig endurtekið í samband við A á rúmlega sex mánaða tímabili og viðhaft nánar tilgreind ummæli. Í niðurstöðu Landsréttar var rakið að með því að setja sig endurtekið í samband við A með nánar tilgreindum hætti hefði X gerst sekur um háttsemi sem félli að verknaðarlýsingu 232. gr. a laga nr. 19/1940. Hafði X einbeittan ásetning til háttseminnar og lét ekki af henni þrátt fyrir að A hefði ítrekað óskað eftir því að X léti hana í friði. Hefðu þau skilaboð sem X sendi til A þannig verið til þess fallin að valda A hræðslu eða kvíða í skilningi 232. a laga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 600.000 krónur í miskabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sýknaður af refsikröfu ákæruvaldsins vegna umsáturseineltis, vopnalagabrots og skjalabrots, en gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Björk Þóru Grétarsdóttur (
Eva Hauksdóttir lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir umsáturseinelti, eignaspjöll og að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu. Þá var ákærða dæmd til greiðslu miskabóta og skaðabóta vegna skemmda á bifreið.
Ákærða sýknuð af ákæru fyrir umsáturseinelti og sakarkostnaður felldur á ríkissjóð.
Sakfellt fyrir líkamsárás, umferðarlagabrot, hótun og umsáturseinelti.
Ákærði var sakfelldur fyrir umsáturseinelti og dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Atla Má Rúnarssyni (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umsáturseinelti og brot á nálgunarbanni gagnvart fyrrum sambýliskonu og dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar.