Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

21 dómar fundust

Lykilorð: Krafa um óg. aðfarargerð í heild

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. júlí 2024

Y-6581/2023

Hilmar Ágúst Hilmarsson (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn þrotabúi ACE Handling ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Hafnað var kröfu sóknaraðila um ógildingu þriggja aðfarargerða sem lauk með því að árangurslaust fjárnám var gert hjá honum að kröfu varnaraðila. Talið var að sá háttur sem hafður var á birtingu boðana til fjárnámsgerðanna með svokölluðum rekjanlegum bréfum fullnægði skilyrði 2. mgr. 21. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Þá var sýslumanni talið hafa verið heimilt að taka aðfararbeiðnirnar fyrir í umdæmi sínu á grundvelli 1. tl. 1. mgr. 16. gr. sömu laga þótt varnaraðili ætti lögheimili erlendis.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2020

Y-3992/2020

Kaupvík ehf og Sighvatur Sigurðsson (Gylfi Jens Gylfason lögmaður) gegn Myndformi ehf (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður)

Kröfu sóknaraðila um að fella úr gildi aðfarargerðir sýslumanns var hafnað

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. júlí 2012

Y-5/2012

Eidel ehf (Valgeir Kristinsson hrl) gegn Jóhönnu S. Rögnvaldsdóttur (Ragnar Þ. Jónasson hdl)

Krafa sóknaraðila um að felld yrði úr gildi að hluta fjárnámsgerð sýslumanns tekin til greina. Gerðarbeiðandi var ekki talin hafa eignast lögvarða fjárkröfu vegna viðurkenningardóms, sem væri aðfararhæf.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. nóvember 2011

Y-10/2011

Anna Thelma Magnúsdóttir (Haukur Örn Birgisson hrl) gegn Arion banka hf (Þorsteinn Ingi Valdimarsson hdl)

Kröfu um að fjárnám verði endurupptekið var hafnað þar sem skilyrði ákvæðis um endurupptöku fullnustugerða sem byggðu á ólögmætum gengistryggðum samningum, var ekki uppfyllt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. apríl 2011

Y-2/2010

Ár 2011 og miðvikudaginn 13. apríl og er á dóm­þingi Héraðs­dóms Suður­lands að Austurvegi 4 og Selfossi og í málinu nr. og Y-2/2010: og Heklusetrið og ehf. (Sigurður Sigurjónsson hrl) og Arion banki hf. (Karl Óttar Pétursson hrl) gegn Gagarín ehf (Steinn Finnbogason hdl)

Synjað um ógildingu aðfarargerðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2010

Y-2/2009

Steelers FinCo ehf (Jón Elvar Guðmundsson hdl) gegn Tollstjóranum í Reykjavík (Sigurður Gísli Gíslason hrl)

Frávísunarkrafa varnaraðila var tekin til greina, þar sem krafa sóknaraðila um úrlausn héraðsdómara um aðfarargerð barst ekki innan frests skv. 1. mgr. 92. gr. laga nr. 90/1989

Héraðsdómur Suðurlands birt 11. júlí 2007

Y-1/2007

Sjóvá – Almennar tryggingar hf (Þröstur Ríkharðsson hdl) gegn Kjartani Björnssyni (Christiane L. Bahner hdl)

Fjárnámsgerð hafði verið stöðvuð hjá sýslumanni þar sem ekki lá ljóst fyrir hvort gerðarþoli hefði stofnað til sjálfskuldarábyrgðar með undirritun sinni á skilmálabreytingu. Þar sem eingöngu var um eina undirritun að ræða á skjalinu, vantaði annað hvort undirritun skuldara sjálfs eða sjálfskuldaraðila. Var ákvörðun sýslumanns því staðfest.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 22. nóvember 2006

Y-1/2006

Birgir Líndal Ingþórsson (Stefán Þórarinn Ólafsson hdl) gegn Húnaþingi vestra (Jón Höskuldsson hdl)

Deilt um rétt sveitarstjórnar til að leggja fjallskilagjald á hross, sem voru í hagagöngu í sveitarfélaginu en eigandi þeirra er búsettur í öðru sveitarfélagi. Talið að slík álagning á eiganda hrossanna væri óheimil.