Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
12 dómar fundust
Lykilorð: Söluþóknun
Söluumboð til sölu á lóð í eigu félags var talið gilda um breytingar á seljanda þegar fram í söluferlið var komið. Þá var talið sannað að seljendur hefðu samið um hlutaskiptingu á eign hins selda félags í stað hærri söluprósentu auk söluprósentu á lóðinni samkvæmt söluumboðinu.
Viðskiptavinur dæmdur til að greiða fasteignasölu þóknun vegna sölu fasteignar
Kaupendur fasteignar höfðuðu mál til þess að fá eignina afhenta úr hendi seljanda svo og afsals fyrir henni en kröfðust jafnframt skaðabóta eða afsláttar vegna galla á eigninni. Í gagnsök krafðist seljandinn þess að staðfest yrði riftun hennar á kaupsamningi um eignina vegna vanefnda kaupendanna. Hún krafðist jafnframt skaðabóta úr hendi þeirra. Riftun seljandans á kaupsamningnum var staðfest og seljandinn dæmdur til að endurgreiða kaupendunum kaupverðið.
Þóknun skiptastjóra ákveðin samkvæmt tímaskráningu hans. Þótt hún þætti rífleg miðað við umfang búsins þótti ekki hægt að hnika við henni. Þá var því hafnað að þóknunin skyldi einskorðuð við hlutfall af verðmæti eignarhluta búsins í fasteign.
Sölumaður á fasteignasölu talinn eiga rétt til hluta af söluþóknun vegna sölu á tveimur eignum, sem gengið var endanlega frá eftir starfslok sölumannsins.
Ágreiningur um greiðslu söluþóknunar vegna fasteignasölu.
Deilt var um þóknun til stefnanda vegna sölu á disilvélum.
Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda söluþóknun. Talið var að stefndi hefði ekki staðið við samning aðila um söluþjónustu fasteignasala.
Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda um greiðslu þóknunar vegna sölu á farartækjum.
Krafa stefnanda um ógreidd sölulaun vegna sölu fasteignar var tekin til greina að hluta.
Stefnandi sem rekur fasteignasölu hafði fasteign stefnda og rekstur veitingahúss í einkasölumeðferð. Samkvæmt söluumboði var gagnkvæmur uppsagnarfrestur þess 30 dagar. Stefndi sagði umboðinu upp en afsalaði fasteigninni án aðkomu stefnanda áður en umboð stefnanda til einkasölu féll niður. Var stefndi dæmdur til greiðslu söluþóknunar í samræmi við samning aðila.
S veitti U einkaumboð til sölu skips en U var einkafirma Þ. S afturkallaði síðar umboðið. Þrátt fyrir afturköllunina hafði Þ milligöngu um að koma á fundi með framkvæmdastjóra S og kaupanda skipsins. Þ krafðist sölulauna og kvaðst hafa fengið munnlegt umboð S til sölu skipsins eftir afturköllunina en S neitaði greiðslu og kvaðst framkvæmdastjóri þess hafa talið að Þ væri að starfa fyrir J þegar hann kom fundinum á. Talið var að Þ hefði borið að tryggja sér ótvírætt umboð frá S og yrði hann að bera sönnunarbyrði um að hann hefði gert það. Var S því sýknað af kröfu hans. Í sama máli krafði S Þ um málskostnað vegna dómsmáls sem hann höfðaði áður um sama sakarefni í nafni U, en því máli hafði verið vísað frá héraðsdómi þar sem U skorti aðildarhæfi. Var fallist á þessa kröfu enda var Þ metið til sakar að hafa staðið með þessum hætti að málatilbúnaði á hendur S.