Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Námslán

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2023

E-2235/2022

Menntasjóður námsmanna (Hildur Þórarinsdóttir lögmaður) gegn A og B (Sveinn Guðmundsson lögmaður)

Stefnandi krafði stefndu, aðalskuldara og ábyrgðarmann, um greiðslu eftirstöðva námsláns sem stefnandi gjaldfelldi eftir að vanskil urðu af hálfu aðalskuldara. Ábyrgðarmaðurinn tók til varna í málinu en aðalskuldarinn ekki. Varnir ábyrgðarmannsins byggðust einkum á því að hún væri laus undan skuldbindingunni á þeim grundvelli að stefnandi hefði einhliða breytt skilmálum ábyrgðarsamningsins og vanrækt tilkynningarskyldur gagnvart ábyrgðarmanninum. Ekki var fallist á þessar varnir ábyrgðarmannsins. Því var fallist á greiðsluskyldu aðalskuldarans og ábyrgðarmannsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. janúar 2023

E-4394/2021

Menntasjóður námsmanna (Hildur Þórarinsdóttir lögmaður) gegn Tinnu Rut Jóhannsdóttur (Einar Þór Sverrisson lögmaður)
Lykilorð: Námslán. Skuldabréf.

Deilt var um greiðslu eftirstöðva námsláns. Var það niðurstaða dómsins að dómkrafa stefnanda væri gild krafa og byggðist á skýrum ákvæðum skuldabréfs sem stefnandi hafði undirritað. Taldi dómurinn að þau sjónarmið sem lágu til grundvallar breytingum á 165. gr. laga nr. 21/1991, með lögum nr. 142/2010 ættu ekki við um úrlausn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. maí 2021

E-6843/2020

Menntasjóður námsmanna (Kristján Þorbergsson lögmaður) gegn A og B

Fallist var á greiðslukröfu stefnanda gagnvart stefnda, skuldara námsláns í vanskilum, á gjaldfelldum eftirstöðvum lánsins. Í ljósi ákvæðis nr. II til bráðabirgða við lög nr. 60/2020, sem tóku gildi áður en umrætt lán var gjaldfellt af hálfu stefnanda samkvæmt skilmálum sínum, var hins vegar talið að ábyrgð meðstefnda, ábyrgðarmanns þess sama láns, næði nú einungis til gjaldfallinna afborganna af láninu, sem ábyrgðarmaðurinn taldist þegar hafa greitt, en ekki til þess meginhluta lánsins sem taldist hafa verið í skilum áður en umrædd lög, sem fjalla m.a. um brottfall ábyrgða, tóku gildi og var hinn meðstefndi ábyrgðarmaður því sýknaður af dómkröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2020

Y-7537/2019

A (Arnar Ingi Ingvarsson lögmaður) gegn Lánasjóði íslenskra námsmanna (Hildur Þórarinsdóttir lögmaður)

Kröfu sóknaraðila um ógildingu kröfuábyrgða var vísað frá dómi af sjálfsdáðum. Þá var hafnað kröfu sóknaraðila um að fella úr gildi aðfarargerð sýslumanns sem lauk með árangurslausu fjárnámi.