Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

160 dómar fundust

Lykilorð: Hæfi dómara

Landsréttur birt 15. júní 2026 kl. 16:15

400/2026

A (Leifur Runólfsson lögmaður) gegn barnaverndarþjónustu B (Árni Ármann Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að héraðsdómarinn C viki sæti í málinu. Við fyrirtöku málsins í héraði krafðist A þess að dómarinn viki sæti í málinu á grundvelli vanhæfis samkvæmt g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í hinum kærða úrskurði sem Landsréttur staðfesti var það ekki talið leiða til vanhæfis dómara í forsjársviptingarmáli að hann hafi áður úrskurðað um vistun barnanna utan heimils á grundvelli 28. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í því máli voru ekki gerðar sömu kröfur og í þessu máli og því um tvö aðskilin mál að ræða. Fyrri úrskurður var reistur á þeim gögnum sem lágu fyrir á þeim tíma sem málið var til úrlausnar fyrir dómi. Því voru ekki talin vera fyrir hendi atvik eða aðstæður sem væru til þess fallin að draga óhlutdrægni héraðsdómarans með réttu í efa, sbr. g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991.

Landsréttur birt 22. apríl 2026 kl. 14:51

841/2025

íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Solveigu Jóhannsdóttur (Gísli Guðni Hall lögmaður)

Efniságreiningur málsins varðaði lögmæti skerðingar á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem gerð var árið 2023. Með hinum kærða úrskurði vék héraðsdómari sæti, að eigin frumkvæði, á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, þar sem hún væri sjóðfélagi í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til áratuga og niðurstaða málsins varðaði fjárhagslega hagsmuni dómarans. Í úrskurði Landsréttar var litið til þess að héraðsdómari ætti sameiginlegt með nokkuð afmörkuðum hópi fólks að hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins, sem yrði að telja umtalsverða og sérstaka. Þá væri til þess að líta að efniságreiningur málsins lyti að því hvort heimilt hefði verið samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar að gera grundvallarbreytingu á lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna og væru sameiginlegir hagsmunir þeirra af úrlausn málsins því víðtækari en stefnukrafa málsins gæfi til kynna. Með þessum athugasemdum, en að öðru leyti með vísan til forsendna úrskurðar héraðsdóms, var hann staðfestur.

Landsréttur birt 27. mars 2026 kl. 16:47

164/2024

A (Arnar Þór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sonja H. Berndsen lögmaður)

A krafðist þess að B, sérfróður meðdómsmaður í málinu, viki sæti á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Landsréttur féllst ekki á með A að fyrir hendi væru atvik eða aðstæður sem væru til þess fallnar að draga mætti óhlutdrægni B með réttu í efa í skilning g- liðar 5. gr. laga um meðferð einkamála. Var kröfu A um að B yrði gert að víkja sæti í málinu því hafnað.

Hæstiréttur birt 13. mars 2026

14/2026

Íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Solveigu Jóhannsdóttur (Gísli Guðni Hall lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að héraðsdómari í málinu viki sæti. Lagði Landsréttur til grundvallar að héraðsdómarinn hefði haft umtalsverða og sérstaka fjárhagslega hagsmuni af úrslitum málsins þar sem hann hefði um árabil greitt iðgjöld í A-deild Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þeir dómarar sem stóðu að úrskurði Landsréttar hefðu sjálfir um árabil einnig verið sjóðfélagar í A-deild lífeyrissjóðsins. Yrði því ekki annað ráðið en að þeir hefðu verið í áþekkri stöðu og sá héraðsdómari sem þeir töldu rétt að viki sæti í málinu vegna vanhæfis. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að við þær aðstæður hefði landsréttardómarana brostið hæfi til að fara með málið og leysa úr því. Þar sem málið hafði ekki hlotið löglega meðferð fyrir Landsrétti var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og málinu vísað til réttarins til meðferðar á ný.

Landsréttur birt 13. mars 2026

154/2026

A B og C ehf (Eva Halldórsdóttir lögmaður) gegn D og E (enginn)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu A, B og C ehf. um að sérfróði meðdómsmaðurinn K viki sæti í máli D og E gegn þeim var hafnað. Í úrskurði Landsréttar kom fram að hinn sérfróði meðdómsmaður, sem héraðsdómari hafði lýst yfir að hann hygðist kveðja til starfans, hefði ekki tekið sæti í dómi þegar hinn kærði úrskurður var kveðinn upp. Væru úrskurðarorð hins kærða úrskurðar því ónákvæm um að hafna því að meðdómsmaðurinn skyldi víkja sæti í málinu. Jafnframt var talið að um væri að ræða atriði sem taka mætti afstöðu til með ákvörðun sem á þessu stigi sætti ekki kæru til Landsréttar samkvæmt 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í ljósi framangreinds var málinu vísað frá Landsrétti af sjálfsdáðum.

Landsréttur birt 25. febrúar 2026

1/2026

Icelandair ehf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Isavia ohf og Isavia ANS ehf (Hlynur Halldórsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Hæfi dómara.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu I ehf. um að héraðsdómari viki sæti í málinu. Héraðsdómari hafði áður kveðið upp úrskurð um frávísun málsins sem Landsréttur felldi úr gildi. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að þegar málshöfðun aðila væri reist á 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála væri óhjákvæmilegt að dómari kannaði skilyrði málshöfðunar á þeim grunni, meðal annars hvort aðili hefði leitt nægar líkur að tjóni. Þótt dómari kvæði nokkuð fast að orði í slíkri úrlausn yrði hann af þeirri ástæðu einni ekki vanhæfur á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 til að fara með málið. Benti Landsréttur á að dómari væri ekki bundinn af þessari úrlausn sinni við efnismeðferð málsins auk þess sem gagnaöflun hefði ekki verið lýst lokið. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Landsréttur birt 8. janúar 2026

841/2025

Íslenska ríkið (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) gegn Solveigu Jóhannsdóttur (Gísli Guðni Hall lögmaður)

Efniságreiningur málsins varðaði lögmæti skerðingar á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem gerð var árið 2023. Með hinum kærða úrskurði vék héraðsdómari sæti, að eigin frumkvæði, á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, þar sem hún væri sjóðfélagi í Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins til áratuga og niðurstaða málsins varðaði fjárhagslega hagsmuni dómarans. Með úrskurði Landsréttar var talið að jafnvel þótt héraðsdómari ætti það sameiginlegt með stórum hópi fólks að eiga fjárhagslegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins yrði ekki fram hjá því litið að verulega fleiri væru í þeirri stöðu að eiga engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins en þeir sem hagsmuni gætu átt af því. Þá væri til þess að líta að efniságreiningur málsins lyti að því hvort heimilt hefði verið samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar að gera grundvallar- breytingu á lífeyrisréttindum ríkisstarfsmanna og væru sameiginlegir hagsmunir þeirra af úrlausn málsins því víðtækari en ráða mætti af stefnukröfu málsins. Með þessum athugasemdum, en að öðru leyti með vísan til forsendna úrskurðar héraðs- dóms, var hann staðfestur.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

985/2024

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Magnús Óskarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Í málinu var X ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa veist að brotaþola A með ítrekuðum hnéspörkum í höfuð og búk. Fyrir héraðsdómi gekkst X við þeirri háttsemi sem lýst var í ákæru en hafnaði heimfærslu háttseminnar til 2. mgr. 218. gr. fyrrgreindra laga. Í aðdraganda aðalmeðferðar málsins hafði héraðsdómari sent tölvupóst til verjanda ákærða þar sem hann lýsti því meðal annars að hann teldi afar hæpið að heimfæra háttsemina undir 217. gr. almennra hegningarlaga. Taldi Landsréttur að með ummælum í tölvupóstinum hefði héraðsdómari lýst afstöðu sinni til þeirra efnisvarna sem X hafði teflt fram í málinu. Þar með hefði verið kominn upp réttmætur vafi um óhlutdrægni dómarans, en skylda dómara til að gæta að hæfi sínu sneri meðal annars að því að efnisleg afstaða hans til ágreinings kæmi ekki fram fyrr en í dómi. Var hinn áfrýjaði dómur því ómerktur og heimvísað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

Landsréttur birt 13. nóvember 2025

911/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Flóki Ásgeirsson lögmaður) (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)

X var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn 193. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og dæmdur til tíu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar, auk þess sem X var gert að greiða A miskabætur. X krafðist ómerkingar dómsins og byggði meðal annars á því að sérfróður meðdómsmaður hefði verið vanhæfur til að taka sæti í dóminum á grundvelli g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í úrskurði Landsréttar kom fram að með vísan til þess sem fram væri komið í málinu hefði ekki verið upplýst um nánari ástæður þess hvers vegna hinn sérfróði meðdómsmaður taldi tengsl sín við brotaþola A koma í veg fyrir að hann kæmi að meðferð einkamáls milli ákærða og A árið 2016. Í ljósi sakarefnis málsins og þeirrar óvissu sem væri uppi um inntak tengslanna yrði að leggja til grundvallar að sú staðreynd að meðdómsmaðurinn taldi á sínum tíma rétt að skorast undan aðkomu að ágreiningi um forsjá barns A og X, væri til þess fallin að draga hafi mátt óhlutdrægni hans með réttu í efa með vísan til vanhæfisreglu g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 og þeirra grunnraka sem liggja að baki reglunni. Af þeim sökum þótti óhjákvæmilegt að ómerkja hinn áfrýjaða dóm ásamt meðferð málsins frá upphafi aðalmeðferðar og vísa því til héraðsdóms til löglegrar meðferðar.

Hæstiréttur birt 27. október 2025

56/2025

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn X (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu X um að Jóni Höskuldssyni Landsréttardómara yrði gert að víkja sæti í málinu.

Hæstiréttur birt 2. september 2025

46/2025

Ólafur Þór Jónsson og Sigríður Jónsdóttir (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu Ó og S um að sérfróðum meðdómsmanni þar fyrir rétti yrði gert að víkja sæti í málinu.

Hæstiréttur birt 2. september 2025

45/2025

Eydís Lára Franzdóttir og Guðni Kjartan Franzson (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu E og G um að sérfróðum meðdómsmanni þar fyrir rétti yrði gert að víkja sæti í málinu.

Hæstiréttur birt 2. september 2025

44/2025

Reykjaprent ehf, Sigríður Sólrún Jónsdóttir, Jón Gestur Ólafsson, Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu R ehf. o.fl. um að sérfróðum meðdómsmanni þar fyrir rétti yrði gert að víkja sæti í málinu.

Landsréttur birt 27. júní 2025

239/2025

Sigríður Jónsdóttir og Ólafur Þór Jónsson (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

S og Ó kröfðust þess að G, sérfróður meðdómsmaður, viki sæti í máli þeirra gegn L og Í sökum vanhæfis en einnig á þeim grundvelli að hann skorti þá sérkunnáttu sem þyrfti til að leysa úr málsástæðum sem byggt væri á í málinu. Í úrskurði Landsréttar var menntun og starfsreynsla G rakin og komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði til að bera þá sérkunnáttu sem þörf væri á til að leysa úr málinu en í þeim efnum var einnig litið til þess að G hefði tvívegis hlotið tilnefningu dómstólasýslunnar til að gegna starfi sérfróðs meðdómanda sem rafmagnsverkfræðingur. Hvað hið sérstaka hæfi varðaði vísuðu S og Ó til g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og byggðu einkum á því að G væri vanhæfur til að fara með málið sökum þess að hann væri ríkisstarfsmaður. Landsréttur taldi þau tengsl G við Í sem S og Ó hefðu borið við svo almenn að þau gætu ekki ein og sér leitt til þeirrar niðurstöðu að hann teldist vanhæfur. Þá féllst Landsréttur ekki á að slík tengsl væru á milli vinnuveitanda G og L að réttmætur vafi gæti talist vera fyrir hendi um óhlutdrægni hans í málinu. Kröfu S og Ó var því hafnað.

Landsréttur birt 27. júní 2025

238/2025

Eydís Lára Franzdóttir og Guðni Kjartan Franzson (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

E og GK kröfðust þess að G, sérfróður meðdómsmaður, viki sæti í máli þeirra gegn L og Í sökum vanhæfis en einnig á þeim grundvelli að hann skorti þá sérkunnáttu sem þyrfti til að leysa úr málsástæðum sem byggt væri á í málinu. Í úrskurði Landsréttar var menntun og starfsreynsla G rakin og komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði til að bera þá sérkunnáttu sem þörf væri á til að leysa úr málinu en í þeim efnum var einnig litið til þess að G hefði tvívegis hlotið tilnefningu dómstólasýslunnar til að gegna starfi sérfróðs meðdómanda sem rafmagnsverkfræðingur. Hvað hið sérstaka hæfi varðaði vísuðu E og GK til g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og byggðu einkum á því að G væri vanhæfur til að fara með málið sökum þess að hann væri ríkisstarfsmaður. Landsréttur taldi þau tengsl G við Í sem E og GK hefðu borið við svo almenn að þau gætu ekki ein og sér leitt til þeirrar niðurstöðu að hann teldist vanhæfur. Þá féllst Landsréttur ekki á að slík tengsl væru á milli vinnuveitanda G og L að réttmætur vafi gæti talist vera fyrir hendi um óhlutdrægni hans í málinu. Kröfu E og GK var því hafnað.

Landsréttur birt 27. júní 2025

237/2025

Reykjaprent ehf, Sigríður Sólrún Jónsdóttir, Jón Gestur Ólafsson, Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

R o.fl. kröfðust þess að G, sérfróður meðdómsmaður, viki sæti í máli þeirra gegn L og Í sökum vanhæfis en einnig á þeim grundvelli að hann skorti þá sérkunnáttu sem þyrfti til að leysa úr málsástæðum sem byggt væri á í málinu. Í úrskurði Landsréttar var menntun og starfsreynsla G rakin og komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði til að bera þá sérkunnáttu sem þörf væri á til að leysa úr málinu en í þeim efnum var einnig litið til þess að G hefði tvívegis hlotið tilnefningu dómstólasýslunnar til að gegna starfi sérfróðs meðdómanda sem rafmagnsverkfræðingur. Hvað hið sérstaka hæfi varðaði vísuðu R o.fl. til g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og byggðu einkum á því að G væri vanhæfur til að fara með málið sökum þess að hann væri ríkisstarfsmaður. Landsréttur taldi þau tengsl G við Í sem R o.fl. hefðu borið við svo almenn að þau gætu ekki ein og sér leitt til þeirrar niðurstöðu að hann teldist vanhæfur. Þá féllst Landsréttur ekki á að slík tengsl væru á milli vinnuveitanda G og L að réttmætur vafi gæti talist vera fyrir hendi um óhlutdrægni hans í málinu. Kröfu R o.fl. var því hafnað.

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

402/2023

Landsbankinn hf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn BPS ehf., Eignarhaldsfélaginu Borgun slf. (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Snorri Stefánsson lögmaður, 2. prófmál) og Teya Iceland hf. og Hauki Oddssyni (Gestur Jónsson lögmaður)

L höfðaði mál á hendur BP, E, T og H og krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda þeirra á tjóni hans vegna söluhagnaðar sem hann hefði notið ef hann hefði selt 31,2% eignarhlut sinn í B að teknu tilliti til upplýsinga sem hann taldi þá hafa búið yfir við kaupin en ekki látið honum í té um hlut T í V og þá væntu hlutdeild er honum fylgdi í söluhagnaði við nýtingu nánar tiltekins valréttarsamnings. Landsréttur rakti að í málinu væri uppi sú sérstaka staða að seljandi söluhlutar reisti málatilbúnað sinn á því að kaupandi hefði búið yfir upplýsingum um söluhlutinn sem seljandinn hefði ekki haft vitneskju um og nýtt sér það í viðskiptum þeirra. L byggði í þessum efnum einkum á því að hann hefði vegna ákvörðunar S ekki búið yfir viðhlítandi upplýsingum um rekstur B og að gerð sameiginlegrar viljayfirlýsingar aðila við kaupin um gagnaöflun ætti rót sína að rekja til þessarar stöðu hans. Landsréttur taldi hins vegar að yfirlýsingin hefði ekki sem slík skapað L sérstaka stöðu með tilliti til upplýsingaskyldu umfram það sem leiða mætti af almennum reglum. Þá taldi hann jafnframt að ekki væru efni til að draga í efa þá málsvörn BP og E að af hálfu fyrirsvarsmanna þeirra hefði ekki verið fyrir hendi vitneskja um þýðingu hlutdeildar B í fyrrgreindum söluhagnaði, og að þeir hefðu ekki mátt gera sér grein fyrir henni, og féllst sömuleiðis á forsendur héraðsdóms um að ekki væru efni til að gera greinarmun á T og H annars vegar og BP og E hins vegar að þessu leyti. Landsréttur leit jafnframt til þess að L hefði ekki látið framkvæma áreiðanleikakönnun á B þrátt fyrir að áskilja sér rétt þar um og að ekkert benti til þess að ómögulegt hefði verið fyrir hann að ganga úr skugga um þau atriði sem deilt væri um með slíkri könnun. Að framangreindu og öðru virtu taldi rétturinn að þrátt fyrir að BP, E, T og H hefðu ekki upplýst L sérstaklega um aðild B að V og þann annmarka sem var á ársreikningi B væru ekki efni til að fella bótaskyldu á þá á þeim grunni sem L bar fyrir sig í málinu og að hann yrði sjálfur að bera hallann af því hvernig til tókst.

Landsréttur birt 9. janúar 2025

986/2024

Ákæruvaldið (enginn) gegn X (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem héraðsdómarinn vék sæti í málinu. X kærði úrskurðinn til Landsréttar og krafðist þess að héraðsdómarinn viki ekki sæti í málinu og þá var þess krafist að dómarar við Landsrétt vikju sæti við úrlausn kærumáls þessa. Í úrskurði Landsréttar kom fram að áform X um að leiða nafngreindan dómara við Landsrétt sem vitni við aðalmeðferð málsins í héraði yllu ekki vanhæfi annarra dóma við réttinn til að skera úr um hæfi héraðsdómarans. Jafnframt var ekki talið að fyrir hendi væru atvik eða aðstæður sem væru til þess fallnar að draga mætti óhlutdrægni héraðsdómara í efa í skilningi g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi.

Landsréttur birt 4. desember 2024

402/2023

Landsbankinn hf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn BPS ehf. (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður), Eignarhaldsfélaginu Borgun slf. (Kristinn Hallgrímsson lögmaður) og Teya Iceland hf. og Hauki Oddssyni (Gestur Jónsson lögmaður)

E krafðist þess að I, sérfróður meðdómsmaður í málinu, viki sæti á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. E byggði á því að I stæði með óbeinum hætti að rekstri dómsmáls á hendur tilgreindu hlutafélagi sem lögmaður E færi með fyrir hönd þess. Umræddur málarekstur tæki til ráðgjafarvinnu sem I hefði að stærstum hluta haft með höndum. Í úrskurði Landsréttar var rakið að fyrir lægi að I hefði ekki tengsl við sakarefni málsins, aðila, fyrirsvarsmenn, vitni eða lögmenn heldur lytu þær aðstæður sem væru til skoðunar í meginatriðum að því að lögmaður eins málsaðila af fjórum, sem tekið hefðu til varna gegn kröfum áfrýjanda, væri lögmaður félags í dómsmáli sem einkahlutafélag, að hluta til í eigu I, hefði höfðað á hendur því. Aðkoma lögmannsins að þeim málarekstri yrði eðli máls samkvæmt ekki lögð að jöfnu við persónulega aðild hans, enda gætti hann þar eingöngu hagsmuna skjólstæðings sem lögmaður á grundvelli laga nr. 77/1998 um lögmenn. Ekki var því fallist á að fyrir hendi væru atvik eða aðstæður sem væru til þess fallnar að draga mætti óhlutdrægni I með réttu í efa í skilningi g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991. Kröfu E var því hafnað.

Landsréttur birt 30. ágúst 2024

632/2024

A (Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður) gegn B (Leifur Runólfsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að báðir héraðsdómarar við Héraðsdóm Norðurlands eystra vikju sæti í málinu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að þegar krafa A var tekin fyrir og lögð í úrskurð hefði B ekki lagt fram greinargerð og málinu ekki verið úthlutað til dómara. Þar sem enginn dómari hefði tekið sæti í málinu þegar A krafðist þess að héraðsdómarar vikju sæti, var talið að A ætti ekki lögvarða hagsmuni af kröfu sinni á þeirri stundu. Var kröfu A vísað frá héraðsdómi án kröfu.

Hæstiréttur birt 19. júní 2024

4/2024

Húsaklæðning ehf (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Kambavaði 1, húsfélagi (Hildur Ýr Viðarsdóttir lögmaður)

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að sérfróður meðdómandi í málinu í Landsrétti hefði verið vanhæfur á grundvelli c-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til að fara með málið og dæma í því. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.

Landsréttur birt 19. júní 2024

446/2024

E - ark ehf (Gunnar Árnason fyrirsvarsmaður) gegn Skattinum (enginn)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu E ehf. um að dómstjóri og aðrir héraðsdómarar við Héraðsdóm Reykjaness vikju sæti í málinu. Við fyrirtöku málsins í héraði krafðist E ehf. þess að dómstjóri og aðrar héraðsdómarar við Héraðsdóm Reykjaness vikju sæti í málinu á grundvelli vanhæfis samkvæmt g-lið 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í hinum kærða úrskurði sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna var rakið að í 1. mgr. 43. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla komi fram að dómarar séu sjálfstæðir í dómstörfum og leysi þau af hendi á eigin ábyrgð. Við úrlausn mála fara þeir eingöngu eftir lögum og lúta ekki boðvaldi annarra. Héraðsdómarar verða því aldrei stöðu sinnar vegna vanhæfir til að fara með mál af þeirri ástæðu einni að málið varði persónu, störf eða hagsmuni annars héraðsdómara, sbr. dómur hæstaréttar 8. nóvember 2002 í máli 487/2002. Því hefur mögulegt vanhæfi annarra dómara við Héraðsdóm Reykjaness á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki sjálfvirk áhrif á hæfi þess dómara sem fer með meðferð málsins. Við mat á því hvort dómari sé vanhæfur samkvæmt g- lið 5. gr. laga nr. 91/1991 nægir ekki að málsaðili dragi óhlutdrægni dómara í efa heldur verður að standa þannig á að þriðji maður gæti dregið óhlutdrægni dómarans í efa. Ekki þótti sýnt fram á að dómstjóri sem fór með málið, stæði í neinum tengslum við sakarefnið, félagið sjálft eða hjón þau sem standa að baki félaginu þannig að með réttu mætti draga óhlutdrægni hans í efa. Jafnframt þótti ekki sýnt fram á önnur tengsl milli dómstjórans og annarra dómara við Héraðsdóms Reykjaness en þau sem almennt væru fyrir hendi á millistórum vinnustað svo valdið geti sérstöku vanhæfi dómstjóra eða eftir atvikum annarra dómara til meðferðar skiptamálsins á hendur E ehf. Var því kröfu E ehf. um að dómstjóri og aðrir héraðsdómarar við Héraðsdóm Reykjaness vikju sæti við meðferð málsins hafnað.

Landsréttur birt 7. júní 2024

20/2023

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Héraðsdómur var ómerktur og málinu vísað heim til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju, þar sem nánar tilgreind ummæli héraðsdómara við meðferð málsins í héraði gáfu ákærða með réttu tilefni til að draga óhlutdrægni dómarans í efa, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 22. maí 2024

337/2024

Héraðssaksóknari gegn X (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur vikju sæti í máli er varðaði kröfu hennar um að rannsókn héraðssaksóknara í tilgreindu máli yrði felld niður að því er hana varðar. Krafa X um dómararnir vikju sæti byggðist á því að tveir dómarar við dómstólinn hefðu í fyrri störfum sínum við embætti héraðssaksóknara haft mjög ríka aðkomu að rannsókn málsins þegar þeir störfuðu þar sem saksóknarar. Því yrðu samdómarar þeirra settir í þá stöðu að dæma um fyrri störf þeirra og eftir atvikum leggja mat á framburð þeirra fyrir dómi og því hefði dómstólinn ekki þá ásýnd hlutleysis sem nauðsynleg væri. Héraðssaksóknari byggði á því að ekkert er varðaði aðkomu viðkomandi dómara að rannsókn málsins hefði leitt til þess að aðrir dómarar við Héraðsdóm væru vanhæfir til að leysa úr ágreiningi málsins. Í úrskurði Landsréttar var aðkoma dómarana tveggja að rannsókn málsins talin til þess fallin að draga mætti óhlutdrægni annarra dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur með réttu í efa, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008. Vísað var til þess í úrskurðinum að þar sem málatilbúnaður X tengdist störfum dómaranna tveggja við rannsókn málsins og að ekki væri unnt að útiloka að við efnislega úrlausn málsins þyrftu dómarar að leggja mat á lögmæti verka sem dómararnir tveir önnuðust við rannsóknina. Við Héraðsdóm Reykjavíkur starfi 24 dómarar og þó að þeir starfi almennt einir í dómi sé nokkuð algengt að þeir sitji í dómi með öðrum dómurum. Var því öllum dómurum við Héraðsdóm Reykjavíkur gert að víkja sæti í málinu, sbr. 1. málslið 1. mgr. 34. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla.

Hæstiréttur birt 2. maí 2024

57/2023

A (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur S hf. og krafðist viðurkenningar á bótaskyldu vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir þegar hárgreiðslustóll, sem hún hafði sest í, gaf sig með þeim afleiðingum að hún féll í gólfið. Deildu aðilar um hvort líkamstjón A yrði rakið til saknæmrar háttsemi þannig að hún ætti rétt á bótum úr frjálsri ábyrgðartryggingu hárgreiðslustofunnar B sf. hjá S hf. Í dómi Hæstaréttar var lagt til grundvallar að orsök þess að A féll í gólfið hefði verið sú að málmfesting sem hélt uppi armi stólsins hefði brotnað. Hæstiréttur tók fram að í dómaframkvæmd hefðu almennt verið lagðar ríkar skyldu á eigendur eða umráðamenn fasteigna, þar sem rekin er verslunar- eða þjónustustarfsemi sem laðar að viðskiptavini, til að gera ráðstafanir sem sanngjarnar mættu teljast til að tryggja öryggi þeirra. Til þess yrði þó að líta að kröfur til viðhalds og eftirlits með búnaði yrðu að vera í eðlilegu samhengi við hættueiginleika hans, aldur og endingartíma, svo og eftirlits- og viðhaldsþörf. Hárgreiðslustóll geti með engu móti talist tæki eða búnaður sem sérstök hætta stafi af þótt óhöpp geti vissulega orðið við notkun slíkra stóla. Ekki var talið að A hefði fært sönnur á að tjón hennar yrði rakið til saknæmrar vanrækslu vátryggingartaka á viðhaldi stólsins eða eftirliti með honum. Þá var ekki talið að sá dráttur sem varð á því að S hf. tilkynnti vátryggingartaka um tjónstilkynningu A eða tregða B sf. til að upplýsa um það hver gert hefði við stólinn ætti að leiða til þess að sönnunarbyrði um saknæma vanrækslu vátryggingartaka yrði snúið við. Var S hf. sýknað af kröfum A.

Hæstiréttur birt 19. apríl 2024

16/2024

Þórður Már Jóhannesson (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) og Sólveig Guðrún Pétursdóttir (Ragnar Halldór Hall lögmaður) gegn Lyfjablómi ehf (Jón Þór Ólason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem öllum dómurum réttarins var gert að víkja sæti í máli. Hæstiréttur vísaði til þess að í Landsrétti væri náið samstarf á milli allra dómara réttarins. Hæstiréttur tók fram að vanhæfi eins dómara við áfrýjunardómstól leiddi ekki sjálfkrafa til þess að aðrir dómarar teldust vanhæfir. Samkvæmt f-lið 5. gr. laga nr. 91/1991 ylli það vanhæfi dómara ef hann tengdist eða hefði tengst vitni í máli með sama hætti og segði í d-lið sömu greinar. Rökin að baki þessari hæfisreglu væru að dómari gæti þurft að leggja mat á trúverðugleika framburðar vitnis og slík tengsl dómarans við vitni væru hlutlægt séð til þess fallin að efast mætti með réttu um óhlutdrægni hans við það mat. Í málinu væri landsréttardómarinn vitni og í greinargerðum fyrir Landsrétti væri vísað til framburðar dómarans og skjala sem voru talin stafa frá honum. Hæstiréttur taldi að þótt ekki væri augljóst að við úrlausn málsins myndi reyna á að dómarar Landsréttar þyrftu að leggja mat á sönnunargildi og trúverðugleika framburðar landsréttardómarans væri ekki unnt að útiloka það. Með vísan til raka að baki vanhæfisreglu g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 og grunnraka að baki reglu f-liðar sömu greinar var talið að sú aðstaða að einn dómari Landsréttar hefði verið vitni í málinu í héraði væri til þess fallin að draga mætti óhlutdrægni annarra dómara við Landsrétt með réttu í efa.

Hæstiréttur birt 4. apríl 2024

14/2024

Jón Hilmar Karlsson (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Þrotabúi Karls Emils Wernerssonar (Árni Ármann Árnason lögmaður)

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu um að landsréttardómari viki sæti í málinu. Þá voru ekki efni til að ómerkja úrskurð Landsréttar án kröfu vegna þess að allir dómarar málsins kváðu upp hinn kærða úrskurð þar með talinn sérfróður meðdómsmaður, enda bæri fyrir Landsrétti öllum dómurum máls að ráða til lykta atriðum um rekstur þess sem sæti kæru til Hæstaréttar.

Landsréttur birt 5. mars 2024

566/2022

Lyfjablóm ehf (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn Þórði Má Jóhannessyni (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur (Ragnar Halldór Hall lögmaður)
Lykilorð: Hæfi dómara.

Með vísan til málsatvika og málatilbúnaðar aðila var talið að fyrir hendi væru réttmætar ástæður til þess að draga í efa óhlutdrægni dómara við Landsrétt, sbr. g- lið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var því öllum dómurum Landsréttar gert að víkja sæti í málinu, sbr. 1. málslið 2. mgr. 25. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla, sbr. 43. gr. laga nr. 76/2019.

Landsréttur birt 27. febrúar 2024

132/2024

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ragnar Björgvinsson lögmaður) og Y (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu X og Y um að héraðsdómari málsins skyldi víkja sæti á grundvelli g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var hafnað.

Landsréttur birt 23. janúar 2024

55/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (enginn) gegn X (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Hæfi dómara.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu X var hafnað að héraðsdómari málsins skyldi víkja sæti í máli á grundvelli g-lið 1. mgr.6. gr. laga nr. 88/2008.

Hæstiréttur birt 23. nóvember 2023

49/2023

LOGOS slf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn Sjöstjörnunni ehf (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem úrskurður héraðsdóms um að héraðsdómari í málinu viki sæti var staðfestur. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að seta héraðsdómarans í öðru máli um ágreining S ehf. við annan aðila leiddi ekki til þess að hann hefði verið vanhæfur til að fara með mál S ehf. á hendur L slf. á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var úrskurður Landsréttar því felldur úr gildi og mælt fyrir um að héraðsdómarinn skyldi ekki víkja sæti í málinu.

Landsréttur birt 15. nóvember 2023

747/2023

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Y (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu Á um að héraðsdómari víki sæti í máli ákæruvaldsins gegn X og Y. Byggði Á kröfu sína um ætlað vanhæfi héraðsdómarans á því að með tilteknum ummælum í fyrri úrskurði í máli gegn X og Y hafi hann tjáð sig um efni málsins á þann hátt að hann væri vanhæfur til áframhaldandi meðferðar þess. Í úrskurði Landsréttar var rakið að við mat á hæfi dómara samkvæmt g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 til meðferðar máls væri til þess að líta að tilgangur hæfisreglna væri ekki eingöngu að tryggja að dómari sitji ekki í máli nema hann sé óhlutdrægur gagnvart aðilum þess og efni, heldur einnig að tryggja traust aðilanna sem og almennings til dómstóla með því að dómari leysiekki úr máli þegar réttmætar ástæður standi til þess að draga óhlutdrægni hans í efa. Hæfisreglur taki ekki eingöngu til réttar sakaðs manns til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér fyrir óhlutdrægum dómstóli, heldur miði þær einnig að því að gætt sé óhlutdrægni gagnvart ákæruvaldinu. Að þessu gættu beri dómara að gæta að hæfi sínu áður en mál er tekið til dóms þannig að efnisleg afstaða hans til einstakra liða ákæru komi ekki fram fyrr en í dómi eftir að aðalmeðferð þess er lokið. Voru ummælin að mati dómsins, eins og beinast lá að skilja þau, þess eðlis að honum bæri að víkja sæti í málinu. Var héraðsdómaranum því gert að víkja sæti í máli Á gegn X og Y.

Hæstiréttur birt 18. október 2023

7/2023

Stilling hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn þrotabúi Fashion Group ehf (Svanhvít Axelsdóttir lögmaður)

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að sérfróður meðdómandi í málinu í Landsrétti hefði verið vanhæfur til að fara með málið og dæma í því á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.

Landsréttur birt 13. september 2023

434/2023

LOGOS slf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn Sjöstjörnunni ehf (Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður)

L slf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu S ehf. um að héraðsdómari viki sæti í málinu. Í hinum kærða úrskurði kom fram að málatilbúnaður S ehf. væri meðal annars reistur á atriðum sem höfðu komið til skoðunar í öðru máli félagsins þar sem sami héraðsdómari hefði átt sæti. Ljóst væri að með afstöðu sinni til þeirra atriða sem höfðu komið til skoðunar í máli sem S ehf. höfðaði gegn K ehf. væru fyrir hendi aðstæður sem væru til þess fallnar að draga óhlutdrægni dómarans með réttu í efa. Staðfesti Landsréttur hinn kærða úrskurð með vísan til forsendna.

Landsréttur birt 28. júní 2023

369/2023

Björgólfur Thor Björgólfsson (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) gegn Málsóknarfélagi hluthafa Landsbanka Íslands (enginn)

B kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hans um að sérfróði meðdómsmaðurinn J viki sæti í máli M gegn honum. Krafa B byggði annars vegar á því að J hefði á árinu 2015 aðstoðað endurskoðunarfyrirtækið P ehf. í tilteknum atriðum í málsvörn félagsins í máli sem slitastjórn L hf. höfðaði á hendur því. Hins vegar hefði J borið ábyrgð á eftirliti ársreikningaskrár með reikningsskilum L hf. á árunum 2005 til 2007. Í úrskurði Landsréttar var vísað til þess að M byggði mál sitt á hendur B á því að vegna saknæmrar og ólögmætrar háttsemi B hafi ársreikningar og árshlutareikningar L hf. frá útgáfu ársreiknings fyrir rekstrarárið 2005 gefið ranga mynd af áhættu bankans vegna tengsla við B og félag í hans eigu. Lá fyrir að málatilbúnaður M beindist að ársreikningum L hf. fyrir fall bankans í október 2008 en á þeim tíma var P ehf. endurskoðandi bankans og áritaði reikninga hans. Ekki var talið útilokað að það myndi reyna á störf P ehf. og áritun endurskoðenda þess á reikninga bankans við úrlausn málsins. Taldi Landsréttur að ekki væri hægt að útiloka að J hefði við aðstoð og ráðgjöf við málsvörn P ehf. í máli slitastjórnar L hf. gegn félaginu vegna endurskoðunar þess á reikningum bankans þegar myndað sér skoðun á reikningsskilum bankans. Í ljósi aðkomu og ráðgjöf J í tengslum við málsvörn P ehf. sem varðaði endurskoðun bankans og áritun ársreikninga var talið að draga mætti með réttu í efa óhlutdrægni hans við úrlausn málsins. Hið sama ætti við um starf hans sem yfirmanns eftirlits með beitingu alþjóðlegra reikningsstaðla hjá ársreikningaskrá. Var J því gert að víkja sæti í málinu með vísan til g-liðar 1. mgr. 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Landsréttur birt 19. apríl 2023

283/2023

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms um að héraðsdómari væri vanhæf til að fara með mál sóknaraðila gegn varnaraðila. Málinu var vísað frá Landsrétti af sjálfdáðum þar sem hinn kærði úrskurður hafði ekki lengur efnislega þýðingu fyrir rekstur málsins.

Landsréttur birt 24. mars 2023

196/2023

Ákæruvaldið (enginn) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að héraðsdómari viki sæti í máli ákæruvaldsins gegn X á grundvelli g-liðar 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Um ætlað vanhæfi vísaði X til þess að héraðsdómarinn hefði áður en hann var skipaður dómari gegnt embætti saksóknara við embætti héraðssaksóknara sem gaf út ákæru á hendur honum. Þá starfi eiginkona hans nú hjá embættinu sem aðstoðarsaksóknari. Í úrskurði Landsréttar var vísað til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu um að við úrlausn þess hvort dómari teljist óvilhallur í skilningi 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans hafi verið greint á milli athugunar er miði að því að ganga úr skugga um hvaða viðhorf hefðu ráðið hjá dómara í tilteknu máli (huglægur mælikvarði) og hvort fyrir hendi væru hlutlæg atriði sem gæfu réttmætt tilefni til að draga í efa að dómari væri óvilhallur (hlutlægur mælikvarði). Þessi viðmið hefðu verið lögð til grundvallar í íslenskri réttarframkvæmd eins og ráða mætti af dómum Hæstaréttar. Fyrir lægi að atvik máls sem vörðuðu X hefðu öll gerst eftir að héraðsdómarinn lét af störfum hjá embætti héraðssaksóknara. Hefði hann enga aðkomu haft að máli X við meðferð þess hjá embættinu. Var ekki talið að óhlutdrægni héraðsdómarans yrði með réttu dregin í efa vegna þess eins að hann starfaði áður hjá embætti héraðssaksóknara. Af sömu ástæðu yrði óhlutdrægni hans ekki dregin í efa vegna þess að hann var jafnframt í sínu fyrra starfi samstarfsmaður sækjanda málsins. Þá hefði eiginkona héraðsdómarans ekki átt neina aðkomu að máli X við meðferð þess hjá héraðssaksóknara. Þótt fyrir lægi að hvorki héraðsdómarinn né eiginkona hans hefðu neinna hagsmuna að gæta af meðferð máls X, sem varðaði hreina opinbera hagsmuni en ekki einkahagsmuni yrði á hinn bóginn, eins og atvikum væri háttað, talið að X mætti með réttu draga í efa hlutlægt séð þá óhlutdrægni dómara sem krafist væri. Væri þar horft til þess að eiginkona héraðsdómarans starfi sem aðstoðarsaksóknari á sama sviði innan embættis héraðssaksóknara og sá saksóknari sem annist saksókn í málinu. Var þá jafnframt horft til þess að ekki lægi ótvírætt fyrir hvort mál X hefði verið rætt á fundum sem hún hefði setið og væri ekki loku fyrir það skotið að mál X ætti eftir að koma til umræðu á fundum þess sviðs sem sækjandi málsins og eiginkona héraðsdómarans ynnu saman á, meðan á rekstri þess stæði. Að öllu þessu gættu var talið að fyrir hendi væru atvik eða aðstæður sem væru til þess fallnar að draga óhlutdrægni héraðsdómarans í efa með réttu, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008. Var honum samkvæmt því gert að víkja sæti.

Hæstiréttur birt 1. mars 2023

40/2022

Ernst & Young ehf og Rögnvaldur Dofri Pétursson (Tómas Jónsson lögmaður) gegn þrotabúi Sameinaðs Sílikons hf (Geir Gestsson lögmaður)

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að einn dómari málsins í Landsrétti hefði verið vanhæfur til að fara með málið og dæma í því á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.

Landsréttur birt 9. febrúar 2023

92/2023

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Margrét María Sigurðardóttir lögreglustjóri) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður) (Fríða Thoroddsen réttargæslumaður)
Lykilorð: Kærumál. Hæfi dómara.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu varnaraðila X samkvæmt g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála um að héraðsdómari skyldi víkja sæti var hafnað.

Hæstiréttur birt 16. nóvember 2022

32/2022

A (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Ebba Schram lögmaður)

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að einn dómari málsins í Landsrétti hefði verið vanhæfur til að fara með málið og dæma í því á grundvelli b-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2022

22/2022

Arev verðbréfafyrirtæki hf Jón Scheving Thorsteinsson (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn Arev NII slhf (Gunnar Sturluson lögmaður)

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að tveir dómara málsins í Landsrétti hefðu verið vanhæfir til að fara með málið og dæma í því á grundvelli g-liðar 5. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Dómur Landsréttar var því ómerktur og málinu vísað til löglegrar meðferðar fyrir Landsrétti.

Hleð fleiri dómum…