Ákærðu voru bæði fundinn sek um meiri háttar skattalagabrot í rekstri einkahlutafélags. Var hvoru um sig gert að sæta fangelsi í tíu mánuði, en fullnustu refsingu beggja frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var hvoru um sig gert að greiða sekt að fjárhæð 53.000.000 kr.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Margrét Harpa Garðarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Sverri Sigurjónssyni (
Sigurður Jónsson lögmaður)
S var skipaður verjandi X við rannsókn sakamáls, en lét af þeim störfum þegar annar lögmaður var skipaður í hans stað. S gerði kröfu um að héraðsdómari úrskurðaði um þóknun honum til handa vegna framangreindra starfa og var það gert. Kærði S úrskurðinn til Landsréttar og krafðist þess að þóknun hans yrði hækkuð. Þar sem ekki lá fyrir að máli gegn X væri lokið í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var ekki talið tímabært að kveða á um þóknun S með þeim hætti sem gert hafði verið. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi..
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hlyni Frey Gíslasyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Björgvin Sigurðarsyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Herði Hákoni Jónssyni (Guðmundur St. Ragnarsson)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svani Herbertssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sverrir Borgþór Aðalbjörnsson (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Héraðssaksóknari (
Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Ragnhildi Birnu Siggeirsdóttur (
Jóhannes Ásgeirsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurgeiri Hannessyni (
Grímur Már Þórólfsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Fannari Smára Guðmundssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurjóni Guðmundssyni (
Rebekka Ósk Gunnarsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi) gegn
Ólafi Ólafíusyni
Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Tinnu Hilmarsdóttur Konudóttur (
Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Ákærða sakfelld fyrir þjfónað, fíkniefna- og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gerardas Ulinskas (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot.
L ehf. krafði LH um greiðslu sex reikninga vegna starfa lögmanna L ehf. sem verjenda við skýrslutökur hjá LH. Aðila greindi á um hvort greiða skyldi lögmönnunum fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins og hvort L ehf. skyldi að ósk LH gefa tvo af reikningunum út að nýju með annarri kennitölu greiðanda. Jafnframt hvort miða skyldi þóknun vegna starfa verjendanna við reglugerð nr. 715/2009 og viðmiðunarreglur dómstólaráðs eða gjaldskrá lögmannsstofunnar. Í dómi Landsréttar kom fram að L ehf. hefði ekki sýnt fram á að ekki hefði verið tryggð sanngjörn og eðlileg þóknun fyrir verjendastörfin þótt ekki hefði verið greitt sérstaklega fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins. Auk þess hefði L ehf. verið rétt að verða við þeirri ósk að gefa tvo af reikningunum út að nýju. Þá þótti ekkert fram komið um að ákvarðað tímagjald LH, um þóknun verjendanna á grundvelli reglugerðar nr. 715/2009 og viðmiðunarreglna dómstólaráðs, hefði verið óhæfilega lágt eða að ákvarðanir þar um hafi falið í sér ólögmæta skerðingu á aflahæfi verjendanna og þar með brotið gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn hefði kröfum L ehf. á grundvelli þriggja af reikningunum ekki verið mótmælt að öðru leyti en að því er varðaði akstur. Hefði LH því borið að greiða þann hluta reikningsfjárhæðanna sem var óumdeildur, enda hefði viðtöku á greiðslu ekki verið hafnað að því leyti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (enginn) gegn
Bjarna Haukssyni (sjálfur)
B, sem kvaðst hafa verið skipaður verjandi X við fyrirtöku gæsluvarðhaldskröfu í héraðsdómi en ekki við meðferð máls fyrir dómi eftir útgáfu ákæru, kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var bréflegri kröfu hans um að dómurinn ákvarðaði honum þóknun vegna verjandastarfa í þágu X á rannsóknarstigi. B kvaðst ekki hafa verið upplýstur um að ákæra hefði verið gefin út á hendur X og að máli hans hefði lokið með dómi. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að 1. og 2. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála gerðu ráð fyrir því að dómari ákvæði þóknun verjanda í tengslum við meðferð sakamáls sem hann hefði til meðferðar. Þar sem málinu hefði lokið með dómi 23. febrúar 2017 hefði dómara málsins ekki verið rétt að taka það fyrir að nýju vegna kröfu um þóknun sem ekki hafi legið fyrir við meðferð þess. Engu að síður ætti B rétt á að þóknun hans vegna verjandastarfa yrði greidd úr ríkissjóði og það þótt erfiðleikum gæti verið háð að fella þóknunina undir sakarkostnað. Hann ætti þess kost að beina erindi sínu um ákvörðun þóknunar til ákæranda og ágreiningi þar um í framhaldinu til héraðsdóms á grundvelli 2. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008. Því var talið að héraðsdómara hefði réttilega hafnað kröfu varnaraðila eins og hún var lögð fyrir dómstóla og var niðurstaða hins kærða úrskurðar staðfest.
K var skipaður verjandi X við lögreglurannsókn, en ríkissaksóknari tók þá ákvörðun að fella málið niður. Gerði X þá kröfu um að héraðsdómari ákvarðaði K þóknun vegna framangreindra starfa og var það gert. Kærði X úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar og krafðist þess að þóknun til K yrði hækkuð, en með dómi Hæstaréttar var þóknunin hækkuð.
N, r. 219/2008 og Ríkissaksóknari (enginn) gegn
Birni Ólafi Hallgrímssyni (sjálfur)
B var skipaður verjandi X við lögreglurannsókn sakamáls, en lét af þeim starfa áður en meðferð málsins lauk. Gerði hann kröfu um að héraðsdómari ákvarðaði honum þóknun vegna framangreindra starfa og var það gert. Kærði B ákvörðunina til Hæstaréttar og krafðist þess að þóknun hans yrði hækkuð. Talið var að ekki lægi fyrir að máli gegn X væri lokið í skilningi 1. og 2. ml. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og hafi því ekki verið tímabært að kveða á um þóknun B með þeim hætti sem gert hafi verið. Var hin kærða ákvörðun því ómerkt.