Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-631/2022:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Svani Herbertssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Einkaréttarkrafa. Hegningarauki. Skilorð. Skilorðsbundnir dómar. Skilorðsrof. Þjófnaður. Þóknun verjanda. Útivist. Útivistardómur.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 6. apríl 2022, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 8. febrúar 2022, á hendur Svani Herbertssyni, kt. 000000-0000, [---], 105 Reykjavík,

I.

Fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 14. október 2019 stolið einni flösku af Glens vodka samtals að söluandvirði 3.898 krónur úr verslun ÁTVR við Skeifuna 5, Reykjavík.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 14. október 2019 stolið einni flösku af Eldurís vodka samtals að söluandvirði 3.990 krónur úr verslun ÁTVR við Skeifuna 5, Reykjavík.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III.

Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 15. desember 2020 stolið sex dósum af Egils Gull pilsner samtals að söluandvirði 894 krónur úr verslun Hagkaups við Skeifuna 15, Reykjavík.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV.

Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 21. febrúar 2021 stolið vörum samtals að söluandvirði 2.386 krónur úr verslun Nettó við Fiskislóð 3, Reykjavík.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarlegar kröfur

  1. Vegna ákæruliðar I. gerir Skúli Bjarnason, lögmaður, kröfu, fyrir hönd Áfengis- og tóbaksverslunar ríkissins (ÁTVR) kt. 410169-4369, um skaðabætur að fjárhæð kr. 3.898.,- auk vaxta skv. 8. gr. l. nr. 38/2001 af þeirri fjárhæð,- frá 14. október 2018 til 24. nóvember 2019. Eftir það er krafist dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. sbr. 9. gr. laganna til greiðsludags. Að auki er krafist lögmannskostnaðar að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi, sem áskilinn er réttur til að leggja fram síðar.
  2. Vegna ákæruliðar gerir Skúli Bjarnason, lögmaður, kröfu, fyrir hönd Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) kt. 410169-4369, um skaðabætur að fjárhæð kr. 3.990.,- auk vaxta skv. 8. gr. l. nr. 38/2001 af þeirri fjárhæð,- frá 14. október 2018 til 24. nóvember 2019. Eftir það er krafist dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr. sbr. 9. gr. laganna til greiðsludags. Að auki er krafist lögmannskostnaðar að mati dómsins eða samkvæmt málskostnaðarreikningi, sem áskilinn er réttur til að leggja fram síðar.

    Ákæra og fyrirkall var birt fyrir ákærða 15. mars síðastliðinn en á fyrirkalli kemur fram að ákærði óskar eftir því að dómara málsins tilnefni og skipi ákærða verjanda. Var Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður skipaður verjandi ákærða við þingfestingu málsins 23. mars síðastliðinn en þingsókn féll niður af hálfu verjanda og ákærða við fyrirtöku málsins í dag, án þess að boðað hafi verið til lögmætra forfalla. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkalli að þannig gæti farið um meðferð þess kæmi til útivistar af hálfu ákærða.

    Einkaréttarkrafa Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á hendur ákærða, sbr. 1. ákærulið, var felld niður þar sem ekki var mætt í þinghald 23. mars 2022 af hálfu bótakrefjanda.

    Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í maí [---]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. janúar 2022, var ákærða gert að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 17. desember 2020 fyrir þjófnað. Að öðru leyti kemur sakarferill ákærða ekki til skoðunar við ákvörðun refsingar nú.

    Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir samkvæmt ákæruliðum nr. I, II og III voru framin áður en framangreindur dómur frá 17. desember 2020 var kveðinn upp og verður honum því dæmdur hegningarauki nú, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Með broti samkvæmt ákærulið nr. IV hefur ákærði rofið skilorð framangreinds dóms frá 17. desember 2020. Verður skilorðsbundin refsing dómsins því tekin upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og ákvæðum 60., 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 90.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð málsins.

    Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari fyrir Vilhjálm R. Þórhallsson aðstoðarsaksóknara. Kristín Jónsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Svanur Herbertsson, sæti fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 90.000 krónur.

Kristín Jónsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.60. gr.77. gr.78. gr.1. mgr. 244. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.