Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 822/2004"

19 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. maí 2025

E-3895/2024

A (Guðmundur Sæmundsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Viðurkenndur var réttur stefnanda til bóta að tveimur þriðju hlutum úr hendi hins stefnda tryggingafélags á grundvelli 1. mgr. 4. gr. laga nr. 30/2019 en vegna meðábyrgðar var talið að stefnandi þyrfti að bera einn þriðja hluta af tjóni sínu sjálfur á grundvelli 4. mgr. ákvæðisins.

...77/2019 og reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja og hámarkshraði þess tilgreindur 25 km/klst. Bif- hjólið var afskráð hjá Samgöngustofu 9. júní 2021 í kjölfar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2025

E-599/2024

A, f.h. ólögráða dóttur og B (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) og og Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennd var full og óskert skaðabótaskylda hins stefnda tryggingarfélags úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns sem farþegi á léttu bifhjóli varð fyrir við árekstur bifhjólsins og bifreiðarinnar. Talið var að tjónið skyldi bætt úr ökutækjatryggingu bifreiðarinnar með vísan til 1.mgr.4.gr. laga nr. 30/2019 þar sem tjónið hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar. Ekki var fallist á að fella niður eða lækka bætur vegna tjóns farþegans enda þótt farþegi hjólsins sem fyrir tjóninu varð hefði verið hjálmlaus og þótt farþeginn hefði verið á bifhjólinu ásamt öðrum farþega og ökumanni en við mat á því að súháttsemi fæli ekki í sér stórkostlegt gáleysi kom m.a. ungur aldur farþegans sem var 14 ára þegar slysið varð.

...77/2019 og reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Hjólið var síðar afskráð hjá Samgöngustofu 9. júní 2021 í kjölfar þess að skráningarskylda léttra bifhjóla í flokki...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2025

E-488/2024

A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) og og Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennd var full og óskert skaðabótaskylda hins stefnda tryggingarfélags úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns sem farþegi á léttu bifhjóli varð fyrir við árekstur bifhjólsins og bifreiðarinnar. Talið var að tjónið skyldi bætt úr ökutækjatryggingu bifreiðarinnar með vísan til 1.mgr.4.gr. laga nr. 30/2019 þar sem tjónið hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar. Ekki var fallist á að fella niður eða lækka bætur vegna tjóns farþegans enda þótt farþegi hjólsins sem fyrir tjóninu varð hefði verið hjálmlaus og þótt farþeginn hefði verið á bifhjólinu ásamt öðrum farþega og ökumanni en við mat á því að súháttsemi fæli ekki í sér stórkostlegt gáleysi kom m.a. ungur aldur farþegans sem var 14 ára þegar slysið varð.

...77/2019 og reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Hjólið var síðar afskráð hjá Samgöngustofu 9. júní 2021 í kjölfar þess að skráningarskylda léttra bifhjóla í flokki...

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

397/2023

TM tryggingar hf (Einar Brynjarsson lögmaður) gegn A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður)

A slasaðist þegar hann var að afferma vörubifreið með tengivagni en hann starfaði sem bílstjóri og vann við að flytja vörur. A hafði opnað afturhurð tengivagnsins og reist að hluta til arm sem var ætlað að tryggja að hurðin héldist opin. Festingin losnaði og hurðin skall aftan á hann með þeim afleiðingum að hann féll til jarðar. Höfðaði A mál til viðurkenningar á bótaskyldu úr lögboðinni slysatryggingu ökumanns bifreiðarinnar vegna þess líkamstjóns sem hann varð fyrir í slysinu. Í dómi Landsréttar kom fram að leggja yrði til grundvallar að bifreiðin hefði verið í hefðbundinni notkun þegar slysið bar að höndum. Þá yrði slysið rakið til þess að festingarbúnaður virkaði ekki sem skyldi við þær veðuraðstæður sem voru uppi. Að þessu virtu yrði slysið rakið til sérstaks búnaðar bifreiðarinnar og eiginleika ökutækisins sem flutningabifreiðar. Var því fallist á að T hf. bæri bótaábyrgð á tjóni A en ekki var fallist á málsástæður T hf. um að fella skyldi niður rétt A til bóta eða skipta sök. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um viðurkenningu á bótaskyldu T hf.

...hafi ekki verið í samræmi við gildandi reglur um gerð slíkra tækja, sbr. reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Í 3. gr. téðrar reglugerðar í lið 11...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. apríl 2023

E-4856/2021

A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf. og B (Stefán Björn Stefánsson lögmaður)

Fallist var á bótaskyldu stefnda tryggingarfélags úr lögbundinni slysatryggingu ökumanns flutningabifreiðar vegna þess líkamstjóns sem stefnandi, starfsmaður sem ók bifreiðinni, varð fyrir í slysi við það að hleri á tengivagni bifreiðarinnar fauk upp og lenti á stefnanda. Var fallist á það með stefnanda að armur sem hélt hleranum hafi ekki virkað sem skyldi við þær sérstöku aðstæður sem hér um ræðir og að heimfæra bæri atvikið undir notkunarhugtak 2. mgr. 92. gr., sbr. 88 gr., þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987.

...hafi ekki verið í samræmi við gildandi reglur um gerð slíkra tækja, sbr. reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Í 3. gr. téðrar reglugerðar í lið 11...

Landsréttur birt 15. febrúar 2019

321/2018

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Jóhanni Frey Frímannssyni (Geir Gestsson lögmaður, Almar Þór Möller lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sinni, sem var ekki í notkunarhæfu ástandi, ófær um að stjórna henni örugglega vegna notkunar á deyfandi lyfjum, án nægilegrar aðgæslu og langt yfir leyfilegum hraða með þeim afleiðingum að bifreiðin rakst aftan á aðra fólksbifreið, sem ekið var í sömu átt, en við það kastaðist sú bifreið framan á smárútu sem ekið var á móti báðum bifreiðunum og ökumaður hinnar fólksbifreiðarinnar lést og farþegi í smárútunni slasaðist. Varðaði brot J við 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga og reglugerðar um gerð og búnað ökutækja. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils J og tekið tilliti til ákvæða 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, einkum 1., 2. og 3. töluliðar, og höfð hliðsjón af 1. mgr. 77. gr. sömu laga, auk þess sem refsing hans var tiltekin sem hegningarauki. Var refsing J ákveðin fangelsi í níu mánuði. Þá var J sviptur ökurétti í eitt ár.

...mgr., greinar 06.10 og grein 15.0, í reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar...

Hæstiréttur birt 9. maí 2018

462/2017

Gunnar Þór Guðmundsson (Hildur Sólveig Pétursdóttir lögmaður) og Eimskip Íslands ehf (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn G, Á ehf. og E ehf. til viðurkenningar á óskiptri bótaskyldu þeirra vegna líkamstjóns sem hann hlaut í vinnuslysi í apríl 2015 þegar álprófílbúnt féll á hann við affermingu aftanívagns vöruflutningabifreiðar. Í héraðsdómi var krafa A viðurkennd á hendur öllum stefndu og áfrýjaði Á ehf. ekki fyrir sitt leyti. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af því að G taldist atvinnurekandi í skilningi 12. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og slysið hefði orðið í atvinnurekstri sem hann veitti forstöðu og atvikum öllum yrði ekki talið að skilyrði væru til þess að fella niður skaðabótaábyrgð hans með vísan til 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og skaðabótaskylda hans því viðurkennd. Þá var talið að ekki væri efni til að A yrði látinn bera meðábyrgð á tjóni sínu, sbr. 1. mgr. 23. gr. a skaðabótalaga. Þá kom fram að samkvæmt skilmálum í farmbréfinu hefði farmflytjandi borið ábyrgð á hleðslu farmsins en viðskiptamaður borið ábyrgð á affermingu hans en slysið hefði verið við affermingu farmsins af bifreið E ehf. og því ekki á ábyrgð þess félags. Einnig var talið ósannað að umbúnaður eða frágangur farmsins hefði verið með þeim hætti að til skaðabótaskyldu E ehf. hefði stofnast. Var E ehf. því sýknað af kröfu A.

...grein e-liðar hennar falli eftirvagninn (PL 849) og lyftarinn/vinnuvélin undir reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Þá vísi stefnandi til reglugerðar nr. 367/2006 um...

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 5. febrúar 2018

S-165/2017

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Jóhanni Frey Frímannssyni (Almar Þór Möller lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

J var dæmdur í 8 mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum.

...mgr., greinar 06.10 og grein 15.0, í reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2017

E-4218/2015

A (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn B (Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl) og Álgluggum og hurðum ehf. og Eimskipi Íslandi og ehf. (Guðjón Ármannsson hrl)

Viðurkennd var óskipt skaðabótaskylda stefndu gagnvart stefnanda vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir í vinnuslysi þegar notaður var lyftari við affermingu á álprófílbúntum af tengivagni vöruflutningabifreiðar. Þótti sannað, meðal annars m.t.t. fyrirliggjandi matsgerðar, með hvaða hætti umrætt vinnuslys hefði átt sér stað þegar álprófílbúntin féllu ofan af pallinum og lentu á stefnanda. Í málinu komu enn fremur til álita sjónarmið varðandi vinnuveitendaábyrgð, sem og um mögulega eigin sök tjónþola, sem þótti þó ekki eiga hér við.

...grein e-liðar hennar falli eftirvagninn (PL 849) og lyftarinn/vinnuvélin undir reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Þá vísi stefnandi til reglugerðar nr. 367/2006 um...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2015

E-2361/2014

A (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran hrl)

Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda vegna líkamstjóns.

...Þá standist tröppuumbúnaður ekki reglugerð nr. 822/2004. Stefnandi telur að Snæland Grímsson ehf. hafi sýnt af sér vítavert gáleysi með því að nota langferðabifreið, sem sé vanbúin með þessum...

Hæstiréttur birt 20. september 2012

38/2012

A (Óðinn Elísson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf og B (Kristín Edwald hrl)

A krafði B, eiganda bifreiðar, og S hf., sem veitt hafði ábyrgðartryggingu vegna ökutækisins, um bætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir er hann varð fyrir bifreið B á Miklubraut. Óumdeilt var að B bæri skaðabótaábyrgð á líkamstjóni A á grundvelli umferðarlaga og að S hefði veitt ábyrgðartryggingu vegna bifreiðarinnar. S hafði greitt A bætur sem námu þriðjungi tjóns hans, en aðilar deildu um það hvort A hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi umrætt sinn og hvort hann skyldi af þeim sökum bera óbætt tjón sitt sjálfur í heild eða að hluta. Hæstiréttur vísaði til þess að háttsemi A, sem var verulega ölvaður er slysið átti sér stað, hefði verið meginorsök líkamstjónsins sem hann varð fyrir. Hins vegar yrðu B og S hf. að bera hallann af óvissu um það hvort annmarkar sem voru á bifreið B hefðu verið meðorsök slyssins. Var A því látinn bera ½ tjóns síns sjálfur.

...einnig reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, þar sem m.a. sé kveðið á um að eigandi ökutækis beri ábyrgð á því að ökutæki sé í lögmæltu...

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. nóvember 2011

S-109/2011

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Brynjari Þór Sigurðssyni (Gísli M. Auðbergsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir brot gegn ávana- og fíniefnalöggjöf og umferðarlögum.

...50, 1987, sbr. lög nr. 66, 2006 og 6 tl. 16.02. gr. reglugerð nr. 822, 2004. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. október 2011

E-1381/2011

Baldur Þorsteinsson (Hervör Pálsdóttir hdl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf og Elvari Hákoni Má Jóhannssyni (Hulda Árnadóttir hdl)

Eigin sök stefnanda talin vegna 2/3 vegna umferðaóhapps sem hann lenti í á Miklubraut í Reykjavík.

...einnig reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, þar sem m.a. sé kveðið á um að eigandi ökutækis beri ábyrgð á því að ökutæki sé í lögmæltu...

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. janúar 2009

S-699/2008

Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður) gegn Eðvaldi Orra Guðmundssyni og svofelldur (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir gáleysislegan akstur. Ökuréttarsvipting.

...um heimild ráðherra til að setja reglur um skráningu ökutækja, skráningarmerki o.fl. Reglugerð nr. 822/2004 er hinsvegar sett með heimild í m.a. 60. gr. umferðarlaga. Í 1...

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. ágúst 2008

S-791/2008

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested ftr) gegn Elmari Eggertssyni
Málaflokkur: Fíkniefnamál

E var sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Hann var dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og til greiðslu sektar. Þá var honum gert að greiða sekt og jafnframt sviptur ökurétti.

...gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, sbr. reglugerð nr. 822/2004. Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og sviptingar...

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. júní 2008

S-187/2008

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Atla Rafni Viðarssyni (Sigurður Jónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákært fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot. Ákærði játaði fyrir dómi og dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára auk 20.000 króna sektar og til greiðslu sakarkostnaðar.

...sömu laga og lið 16.02-(06) í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. III. Með því að hafa, að kvöldi þriðjudagsins 21. ágúst 2007 að Smáratúni...

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. mars 2008

S-568/2007

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Elíasi Andra Óskarssyni (Hilmar Ingimundarson hrl) og X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot.

...lið 16.02-(06) í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga. B. gegn ákærðu X fyrir fíkniefnabrot og brot á...

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. mars 2008

S-566/2007

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn A (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir þjófnað og vörslur fíkniefna.

...lið 16.02-(06) í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga. gegn ákærðu A fyrir fíkniefnabrot og brot á lögum...

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. júní 2007

S-160/2007

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson fulltrúi) gegn Ignasi Karlssyni og E svofelldur (Rúna Geirsdóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákært fyrir margvíslegan þjófnað, fjársvik og umferðarlagabrot. Sakfellt og ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi auk greiðslu sakarkostnaðar. Bótakröfu var vísað frá dómi.

...sömu laga og lið 16.02-(06) í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“ Með ákæru dagsettri 1...