Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-160/2007:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)

gegn

Ignasi Karlssyni

E

svofelldur

d ó m u r :

(Rúna Geirsdóttir hdl)

Ákært fyrir margvíslegan þjófnað, fjársvik og umferðarlagabrot. Sakfellt og ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi auk greiðslu sakarkostnaðar. Bótakröfu var vísað frá dómi.

Mál þetta, sem þingfest var þann 3. maí sl. og dómtekið 24. maí sl., var höfðað með þremur ákærum lögreglustjórans á Selfossi, dagsettum 17. apríl 2007 og 1. og 23. maí 2007, á hendur Ignasi Karlssyni, kt. 000000-0000, Bárugötu 8, Reykjavík, og E, kt. 000000-0000, Þverárseli 16, Reykjavík. Ákæra dagsett 17. apríl sl. var þingfest þann 3. maí og fékk málsnúmerið S-160/2007. Þann sama dag var ákæran dags. 1. maí 2007 í málinu S-233/2007 birt ákærða Ignasi og við fyrirtöku í málinu S-160/2007 þann 24. maí sl. var ákæra dags. 23. maí 2007 í málinu S-243/2007 birt ákærða. Var það mál einnig sameinað máli S-160/2007 og þáttur meðákærða, E skilinn frá málinu.

Með ákæru dagsettri þann 17. apríl sl. er ákærði ákærður fyrir „ a. þjófnað, með því að hafa í maí 2006 stolið opinberum stimpli úr afgreiðslu Útlendingastofnunar í Skógarhlíð 6, Reykjavík.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, en til vara við 245. gr. sömu laga. b. fyrir umferðarlagabrot með því að hafa mánudaginn 28. maí 2006 ekið bifreiðinni MY-749 búinni nagladekkjum og sviptur ökurétti, austur Suðurlandsveg, uns lögregla stöðvaði akstur ákærða við Arnberg á Selfossi.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 60. gr. umferðarlaga nr. 50,1987 sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga og lið 16.02-(06) í reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Með ákæru dagsettri 1. maí er ákærði ákærður „fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 27. ágúst 2006 ásamt ótilgreindum aðila, í Þvottastöð Löðurs að Stekkjarbakka 2 í Reykjavík stolið veggföstum seðlaskipti, sem innihélt 130.400 kr. í reiðufé, með því að spenna hann frá með vegg með kúbeini og hafa hann á brott með sér.

Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í málinu gerir Jón Haukur Sigurðsson kröfu f.h. Löðurs ehf., kt. 000000-0000, um að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 554.721, auk vaxta skv. 8. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi, en dráttarvaxta að liðnum mánuði frá birtingu bótakröfu til greiðsludags.“

Með ákæru dagsettri 23. maí 2007 „á hendur Ignasi Karlssyni, kt. 000000-0000, Bárugötu 8, Reykjavík og E, kt. 000000-0000, Þverárseli 16, Reykjavík.

I.

gegn ákærða E fyrir þjófnað með því að hafa síðdegis þriðjudaginn 18. júlí 2006 stolið úri og brúnu veski, sem innihélt debet- og kredit-greiðslukort, ökuskírteini, viðskiptakort Byko og 8.000 kr. í reiðufé, úr skáp í Sundhöll Reykjavíkur við Barónstíg, en veskið og úrið var í eigu Sturlu Óskars Bragasonar kt. 000000-0000.

Telst brot ákærða varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

II.

gegn ákærðu E og Ignasi fyrir fjársvik og tilraun til fjársvika, með því að hafa síðar sama dag notað eða gert tilraun til að nota stolin kort úr veski því er frá greinir í ákærulið I. til kaupa á vörum og veitingum í auðgunarskyni, sem hér að neðan greinir: a.       kl. 14:48, gegn ákærða E fyrir kaup á 20 frelsiskortum frá Símanum og 5 pökkum af Marlboro sígarettum, samtals að fjárhæð kr. 12.850,-, í Sunnubúðinni, Mávahlíð 26, í Reykjavík b.      kl. 14:52, gegn ákærða E fyrir kaup á frelsiskortum frá Símanum, samtals að fjárhæð kr. 5.000,- í Bónusvídeó, Mávahlíð 25 í Reykjavík c.       kl. 15:02, gegn ákærða E fyrir kaup á frelsiskortum frá Símanum, samtals að fjárhæð kr. 2.900,- í Bónusvídeó, Mávahlíð 25 í Reykjavík d.      kl. 15:18, gegn ákærða E fyrir kaup á veitingum, samtals að fjárhæð kr. 2.650,-  í Kebab Húsinu, Lækjargötu 2 í Reykjavík e.       kl. 15:32, gegn ákærða Ignasi, fyrir tilraun til kaupa á gullúri samtals að verðmæti kr. 1.100.000,- í verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs, Veltusundi 3b í Reykjavík, en ákærði sneri frá eftir synjum á hinu stolna korti. f.        kl. 15:45, gegn ákærða Ignasi, fyrir kaup á Tissot T-Touch úri að verðmæti kr. 69.900,- í verslun GÞ skartgripa og úra, Bankastræti 12 í Reykjavík g.       kl. 16:18, gegn ákærða Ignasi fyrir kaup á 3 passport 8500 radarvörum að heildarverðmæti kr. 99.361,- í verslun Nesradíós, Síðumúla 19 í Reykjavík h.       kl. 16:43, gegn ákærða E fyrir vörukaup að heildarverðmæti kr. 165 kr,- í Söluturninum Smiðjuvegi 60, Kópavogi Teljast brot ákærðu samkvæmt ákæruliðum II. a. – h. varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, utan ákæruliðar II. e., þar sem ætluð háttsemi ákærða Ignasar telst varða við 248. gr. sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.

Bónusvídeó kt. 000000-0000 gerir kröfu um að ákærða E verði með dómi gert að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 4.900,- vegna ákæruliða II. b. og c., auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi, en dráttarvaxta að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.

Skoðunarstöðin hf., kt. 000000-0000, gerir kröfu um að ákærða E verði með dómi gert að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 4.350,- vegna ákæruliðar II. a.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.“

Ákærði kom fyrir dóminn þann 3. maí sl. Varðandi ákæru dagsetta 17. apríl 2007 neitaði ákærði sök samkvæmt ákærulið a og taldi háttsemi í ákærulið b ekki rétt lýst, þar sem umrætt sinn hafi einungis eitt nagladekk verið undir bifreiðinni en játaði að hafa ekið sviptur ökurétti. Varðandi ákæru dagsetta 1. maí 2007 játaði ákærði sök en mótmælti bótakröfunni. Málið var aftur tekið fyrir þann 24. maí sl. og kom ákærði þá fyrir dóminn. Játaði hann þá sök varðandi ákærulið a í ákæru dagsettri 17. apríl sl. Óskaði sækjandi þá eftir að breyta lýsingu á háttsemi ákærða varðandi ákærulið b í þeirri ákæru þannig að ákærði hafi ekið bifreiðinni búinni einu nagladekki. Ákærði játaði sök varðandi ákæru dagsetta 23. maí sl. Er játning ákærða í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín, en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum margsinnis verið gerð refsing áður. Þann 13. janúar 2004 fékk ákærði ákærufrestun, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir tilraun til þjófnaðar. Þann 10. mars 2005 gekkst ákærði undir sátt fyrir ölvunarakstur og var gert að greiða 50.000 króna sekt til ríkissjóðs auk þess að vera sviptur ökurétti í tvo mánuði. Þann 27. apríl 2005 gekkst ákærði aftur undir sátt fyrir ölvunar- og hraðakstur og var gert að greiða 100.000 króna sekt og sviptur ökurétti í tvo mánuði. Þann 27. apríl 2005 gekkst ákærði undir sátt og var gert að greiða 60.000 króna sekt fyrir að aka sviptur ökurétti. Þann 25. maí 2005 var ákærði dæmdur til greiðslu 65.000 króna sektar og sviptur ökurétti í þrjá mánuði fyrir hraðakstur. Þann 14. júní 2005 gekkst ákærði undir sátt og var gert að greiða 60.000 króna sekt fyrir að aka sviptur ökurétti. Þann 17. október 2005 gekkst ákærði undir sátt og var gert að greiða 100.000 króna sekt fyrir að aka sviptur ökurétti og sama dag gekkst ákærði einnig undir sátt fyrir að aka sviptur ökurétti og hraðakstur. Þann 22. febrúar 2006 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga. Þann 4. maí 2006 gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun og var gert að greiða 120.000 króna sekt auk þess að vera sviptur ökurétti í fimm mánuði fyrir hraðakstur. Þann 18. september 2006 var ákærði dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir að aka sviptur ökurétti. Þann 20. september 2006 gekkst ákærði undir sátt og var gert að greiða 28.000 króna sekt fyrir fíkniefnalagabrot. Þann 6. desember 2006 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, þar af tveir mánuðir skilorðsbundnir til þriggja ára, fyrir brot gegn 248. gr. hegningarlaga og þann 15. desember 2006 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti, ölvunarakstur og brot gegn 248. gr. hegningarlaga og sviptur ökurétti í tvö ár. Var þar um hegningarauka að ræða við fyrri dóm frá 6. desember 2006. Brot þau er ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú eru hegningarauki við dóm frá 18. september 2006 en þá var ákærði dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti. Við ákvörðun refsingar nú skal því hafa hliðsjón af 78. sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði er nú sakfelldur fyrir umtalsverðan þjófnað, fjársvik og að aka sviptur ökurétti. Ákærði hefur borið því við að hann hafi hræðst ákveðinn mann og hefði framið brot það sem ákært er fyrir í ákæru dagsettri 1. maí sl. vegna ótta um líkamsmeiðingar af hálfu þess manns. Þá hafi ávinningur brotanna verið afhentur umræddum manni. Í skýrslu sem ákærði gaf hjá lögreglu þann 18. júlí 2006 við rannsókn á sakarefni í ákæruskjali útgefnu 23. maí sl. fullyrðir ákærði aðspurður, að hann hræðist ekki umræddan mann né sé hræddur um að missa vinnuna en sá maður sé vinnuveitandi sinn. Fær þessi málsvörn ákærða ekki stoð í gögnum málsins.

Brot þau sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú hefðu sannanlega haft áhrif á ákvörðun refsingar í dóminum frá 18. september 2006. Með hliðsjón af brotaferli ákærða svo og  því að hann gekkst greiðlega við brotum sínum þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Ekki þykja skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna.

Í málinu gerir Jón Haukur Sigurðsson kröfu fyrir hönd Löðurs ehf. um að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð 554.721 króna auk vaxta. Ákærði mótmælti bótakröfunni. Í gögnum málsins er bótakrafan sögð vera 554.721 króna og sundurliðuð þannig:

Nýr seðlaskiptir                                    kr. 324.721.

Peningar í seðlaskiptinum                      kr. 130.400.

Skemmdir á vegg og festingum  kr. 100.000.

Samtals                                                kr. 555.121.

Heildarbótakrafan er ekki í samræmi við niðurstöður samlagningar á sundurliðun kröfunnar auk þess að engin gögn hafa verið lögð fram kröfunni til stuðnings. Með vísan til 5. mgr. 172. gr. laga um meðferð opinberra mála er bótakröfunni vísað frá dómi.

Að þessum niðurstöðum virtum, með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála, ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Rúnu Geirsdóttur héraðsdómslögmanns, bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykir hæfilega ákveðin 284.856 krónur. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Þá ber að dæma ákærða til að greiða ferðakostnað en samkvæmt yfirliti hefur akstur verið mikill en lögregluskýrslur voru teknar af ákærða í Ólafsvík. Telst akstur verjanda hæfilega ákveðinn 46.991 króna.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ignas Karlsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.

Ákærði greiði allan sakarkostnað sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Rúnu Geirsdóttur héraðsdómslögmanns, 331.847 krónur.

Bótakröfu Jóns Hauks Sigurðssonar fyrir hönd Löðurs ehf. er vísað frá dómi.

Ástríður Grímsdóttir