Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 53/2003"

20 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. apríl 2016

E-4161/2015

Eduard Alexandrovich Sakash (Leifur Runólfsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

Íslenska ríkið sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingamála.

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett sé á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til samræmis...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2015

E-79/2015

Sergiy Sidor (Kristrún Elsa Harðardóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu hælisleitanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður þess efnis að hann yrði endursendur til Noregs á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett hafi verið á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til...

Hæstiréttur birt 1. október 2015

114/2015

Christian, Kwaku og Boadi (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem kröfu L um að A yrði gert skylt að veita allar upplýsingar um tiltekinn vefhlekk, notanda hans og fleira, var hafnað. Var vísað til þess að krafa L hefði hvorki beinst að tilteknum mun né skjali né heldur upplýsingum sem tiltekinn munur eða skjal hefði að geyma. Krafan ætti því ekki lagastoð í ákvæðum 68. og 69. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett sé á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til samræmis...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2015

E-4559/2014

A (Leifur Runólfsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu hælisleitanda um að fella úr gildi úrskurð þess efnis að ekki skyldi fjallað um hælisumsókn hans hér á landi heldur í Svíþjóð.

...96/2002, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett er á grundvelli laganna. Túlka beri ákvæði laganna og reglugerðarinnar til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. febrúar 2015

E-2753/2014

A (Áslaug Gunnlaugsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu hælisleitanda um að fella úr gildi úrskurð þess efnis að ekki yrði fjallað um hælisumsókn hans hér á landi heldur á Ítalíu.

...96/2002, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga, sem sett er á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til samræmis...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. febrúar 2015

E-2759/2014

A (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins og fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar, þess efnis að umsókn hans um hæli á Íslandi verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

...Stefndu byggja á því að um úrlausnarefni þetta gildi aðallega ákvæði útlendingalaga og reglugerð nr. 53/2003, um útlendinga, sem sett sé á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2015

E-2763/2014

A (Saga Ýrr Jónsdóttir hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins og fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar, þess efnis að umsókn hans um hæli á Íslandi verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett sé á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til samræmis...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2015

E-2762/2014

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett sé á grundvelli laga nr. 96/2002. Stefndu telja að túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2015

E-2760/2014

A (Ólafur Karl Eyjólfsson hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð innanríkisráðuneytisins og fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar, þess efnis að umsókn hans um hæli á Íslandi verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett sé á grundvelli laga nr. 96/2002. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til samræmis...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2014

E-842/2014

A (Hrefna Dögg Gunnarsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hdl)

Stjórnsýsla. Stjórnvaldsúrskurður. Hælisleitandi. Dyflinnarreglugerð. Frestun réttaráhrifa. Ógilding.

...96/2002 ásamt síðari breytingum og reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga sem sett er á grundvelli þeirra. Túlka beri ákvæði fyrrgreindra laga og reglugerðar til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar...

Hæstiréttur birt 24. október 2013

405/2013

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Samuel, Eboigbe og Unuke (Ragnar Aðalsteinsson hrl)

S, nígerískur ríkisborgari, krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem ákveðið var að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur ásamt umsókn sinni til Svíþjóðar. Var ákvörðunin reist á d-lið 1. mgr. 46. gr. a. og a-lið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Í málinu lá fyrir að Svíþjóð hafði að beiðni Útlendingastofnunar samþykkt að S yrði á grundvelli e-liðar 1. mgr. 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar fluttur aftur þangað, en S hafði áður sótt um hæli þar í landi en verið synjað. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að ekki hefði verið sýnt fram á að málsmeðferð í Svíþjóð vegna málefna hælisleitanda hefði verið haldin slíkum kerfislegum ágöllum að hún færi í bága við 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá hafði ekkert komið fram í málinu um að sænsk stjórnvöld myndu ekki veita S þá vernd sem áskilin væri í alþjóðlegum skuldbindingum Svíþjóðar á sviði mannréttinda, þar á meðal reglunni um „non-refoulement“ sem öll ríki Evrópusambandsins væru bundin af, yrði S sendur aftur til Svíþjóðar. Var því talið að 45. gr. laga nr. 96/2002 stæði því ekki í vegi að íslenskum stjórnvöldum væri með vísan til 46. gr. a. laganna heimilt að synja að taka umsókn S um hæli til efnismeðferðar. Þá var jafnframt talið að skilyrði undantekningarheimildar 2. mgr. 46. gr. a. væru ekki uppfyllt í málinu, þrátt fyrir að S hefði frá því í júlí eða ágúst 2012 átt í sambandi við íslenska konu, enda hafði hann ekki sýnt fram á að aðstæður hans væru að öðru leyti svo sérstakar að ákvæðið ætti við. Loks var ekki fallist á það með S að stjórnvöld hefðu brotið gegn 9. og 10. gr. stjórnsýslulaga við meðferð málsins. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu S.

...96/2002 og reglugerð nr. 53/2003. Á grundvelli þessara ákvæða hafi stefndu gert samning við Reykjanesbæ um framfærslu hælisumsækjenda. Samningur stefndu við Reykjanesbæ eigi sér þar af leiðandi skýra...

Hæstiréttur birt 17. október 2013

191/2012

Jan, Anfinn og Wahl (Oddgeir Einarsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. mars 2012. Hann krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 1.000.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 7. nóvember 2010 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti, en til vara að málskostnaður fyrir Hæstarétti verði felldur niður. Stefndi krefst aðallega staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti, en til vara að krafa áfrýjanda verði lækkuð og málskostnaður felldur niður. Með bréfi innanríkisráðuneytisins 3. júní 2013 var áfrýjanda veitt gjafsókn fyrir Hæstarétti. Er gjafsóknin takmörkuð við öflun ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í málinu og nær ekki til annarra þátta þess.

...674/1995 sem felld hafi verið brott með reglugerð nr. 53/2003 og þeim orðum greinargerðarinnar að eðlilegra þyki að hafa þessi ákvæði í lögum en reglugerð. Fráleitt sé að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2013

E-3271/2012

Samuel Eboigbe Unuke (Katrín Oddsdóttir hdl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hdl)

Felldur var úr gildi úrskurður innanríkisráðuneytisins þar sem ákveðið var að endursenda stefnanda til Svíþjóðar án þess að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði tekin til meðferðar. Einnig var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að fella niður framfærslu stefnanda.

...96/2002 og reglugerð nr. 53/2003. Á grundvelli þessara ákvæða hafi stefndu gert samning við Reykjanesbæ um framfærslu hælisumsækjenda. Samningur stefndu við Reykjanesbæ eigi sér þar af leiðandi skýra...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2011

E-6159/2010

Jan Anfinn Wahl (Oddgeir Einarsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu stefnanda vegna frávísunar hans frá landinu.

...674/1995 sem felld hafi verið brott með reglugerð nr. 53/2003 og þeim orðum greinargerðarinnar að eðlilegra þyki að hafa þessi ákvæði í lögum en reglugerð. Fráleitt sé að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2011

E-6158/2010

Leif Ivar Kristiansen (Flosi Hrafn Sigurðsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu stefnanda vegna frávísunar hans frá landinu.

...674/1995 sem felld hafi verið brott með reglugerð nr. 53/2003 og þeim orðum greinargerðarinnar að eðlilegra þyki að hafa þessi ákvæði í lögum en reglugerð. Fráleitt sé að...

Hæstiréttur birt 25. nóvember 2010

166/2010

Alexander, Kendrick og Alonzo (Lárentsínus Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigmundur Hannesson hrl)

Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 15. mars 2010. Hann krefst þess að ákvörðun bótanefndar samkvæmt lögum nr. 69/1995 um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota 3. október 2006 verði felld úr gildi og stefnda gert að greiða sér 3.100.000 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 20. ágúst 2006 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti. Stefndi krefst aðallega staðfestingar héraðsdóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti, en til vara að krafa áfrýjanda verði lækkuð og málskostnaður felldur niður. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur. Rétt er að aðilarnir beri hvor sinn kostnað af málinu fyrir Hæstarétti.

...Í því sambandi sé bent á að samkvæmt reglugerð nr. 53/2003, sbr. 58. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sé útlendingi ekki heimilt að dvelja hér á landi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2009

E-3632/2009

Alexander Kendrick Alonzo (Lárentsínus Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigmundur Hannesson hrl)

Talið var að stefnandi, sem starfaði hér á landi í her Bandaríkjanna,hefði verið staddur hér á landi um stundarsakir í skilningi laga nr. 69/1995 og ætti því ekki rétt á bótum úr hendi stefnda, íslenska ríkisins, vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir.

...Í því sambandi sé bent á að samkvæmt reglugerð nr. 53/2003, sbr. 58. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sé útlendingi ekki heimilt að dvelja hér á landi...

Hæstiréttur birt 12. mars 2009

353/2008

Íslenska ríkið og Útlendingastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hrl) gegn Amadou Shernu Daillo (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

A óskaði hælis á Íslandi og tók Ú í framhaldi af því málið til meðferðar. Óskaði Ú meðal annars upplýsinga frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um aðstæður í heimalandi A, en tók ákvörðun um að synja umsókn A áður en svar barst. A kærði ákvörðunina til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, sem staðfesti hana. Talið var að bætt hafi verið að nokkru leyti úr annmarka á ákvörðun Ú við úrskurð ráðuneytisins, en þá hafði borist svar frá Flóttamannastofnuninni. Í svarinu komi þó fram að ekki væri útilokað að veita nákvæmari upplýsingar ef fyrirspurnin væri nákvæmari. Yrði að líta svo á að þessar upplýsingar hafi verið aðgengilegar og því hafi þess ekki verið gætt að afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga svo sem skylt sé að gera samkvæmt 3. mgr. 50. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Hafi því verið brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Voru ákvörðun Ú, um að synja umsókn A um hæli, og úrskurður dóms- og kirkjumálaráðuneytisins sem staðfesti hana, felld úr gildi.

...62/1994, reglugerð nr. 53/2003, Alþjóðasamning um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 og viðauka við hann frá 1967, mannréttindasáttmála Evrópu, samning Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi frá 1966...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2008

E-4843/2007

Amadou Shernu Daillo (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Útlendingastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Með dóminum var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. júní 2006 um að synja umsókn stefnanda um hæli og neita honum um dvararleyfi og að honum skyldi vísað úr landi. Úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 10. janúar 2007, þar sem ákvörðun Útlendingastonunar var staðfest, var einnig felldur úr gildi. Á báðum stigum stjórnsýslunnar hafði þess ekki verið gætt að afla fullnægjandi upplýsinga um aðstæður stefnanda sjálfs í heimalandinu áður en ákvörðun var tekin. Með því var ekki farið að 10. gr. stjórnsýslulaga en samkvæmt þeirri lagagrein ber stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.

...62/1994, reglugerð nr. 53/2003, Alþjóðasamning um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 og viðauka við hann frá 1967, mannréttindasáttmála Evrópu, samning Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi frá 1966...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júní 2006

E-6286/2005

Reginald Iheme (Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði dómsmálaráðuneytisins frá 31. ágúst 2005 en með honum var staðfestur úrskurður Útlendingarstofnunar 18. mars s.á. um að synja beiðni stefnanda um hæli á Íslandi sem flóttamanni. Ekki var fallist á kröfuna enda ekki fallist á að úrskurðurinn væri efnislega rangur eins og stefnandi hafði haldið fram. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda í málinu.

...96/2002, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga, alþjóðasamningi um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka frá 1967, Mann­réttinda­sáttmála Evrópu og fleiru eins og lýst sé nánar í...