Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Allsherjarregla
Bergþóra Snæbjörnsdóttir,
Christa Hlín Lehmann,
Daníel Þór Bjarnason,
Elía Hörpu Önundarson,
Lea María Lemarquis,
Nerea Enriquez Santos,
Pétur Eggerz Pétursson,
Qussay Odeh (
Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) og
Steinunn Lukka Sigurðardóttir (
Oddur Ástráðsson lögmaður, 2. prófmál)
gegn
íslenska ríkinu (
Sonja H. Berndsen lögmaður)
Félagið Ísland-Paestína boðaði til mótmæla við húsnæði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins þar sem ríkisstjórnin kom saman til fundar þann 31. maí 2024. Lögreglan var með nokkurn viðbúnað á svæðinu en erfiðlega gekk að koma ráðherrum að fundarstað þar sem mótmælendur reyndu að hindra för ráðherrabíla. Þegar ríkisstjórnarfundi lauk var enn nokkur fjöldi mótmælenda á staðnum og reyndu nokkrir þeirra að hindra för ráðherrabíls með því að leggjast í götuna eða standa í vegi fyrir honum. Í kjölfar þess að tekist hafði að koma fyrsta ráðherrabílnum fram hjá hópnum beitti lögregla úðavopni gagnvart mótmælendum, en von var á fleiri ráðherrabílum. Deilt var um hvort notkun úðavopna hafi verið nauðsynleg eða hvort eðlilegra hefði verið að grípa til vægari úrræða. Einnig var deilt um aðra valdbeitingu lögreglu. Áfrýjendur kröfðust miskabóta vegna aðgerða lögreglu en þau höfðu öll fengið piparúða í andlit í mismiklu magni. Með dómi héraðsdóms var ekki fallist á það með áfrýjendum að lögregla hefði gengið fram með ólögmætum hætti og stefndi sýknaður af kröfum þeirra. Landsréttur staðfesti dóminn.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 21. mars 2012. Hann krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 1.000.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 7. nóvember 2010 til greiðsludags. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti, en til vara að málskostnaður fyrir Hæstarétti verði felldur niður. Stefndi krefst aðallega staðfestingar hins áfrýjaða dóms og málskostnaðar fyrir Hæstarétti, en til vara að krafa áfrýjanda verði lækkuð og málskostnaður felldur niður. Með bréfi innanríkisráðuneytisins 3. júní 2013 var áfrýjanda veitt gjafsókn fyrir Hæstarétti. Er gjafsóknin takmörkuð við öflun ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í málinu og nær ekki til annarra þátta þess.