Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 400/2008"
5 dómar fundust
Stefnandi, sem hafði verið sagt upp störfum hjá stefnda, krafðist bóta úr hendi stefnda á grundvelli skírteinistryggingar flugmanna. Reisti stefnandi kröfur sínar á því að vegna ADHD greiningar og lyfjameðferðar ef þeim sökum væri hann ófær um að starfa sem flugmaður og hefði vegna þessa verið synjað um útgáfu heilbrigðisvottorðs. Stefndi krafðist sýknu og reisti þá kröfu sína m.a. á því að stefnandi hefði starfað hjá stefnda í 18 ár án þess að ADHD einkenna hefði orðið vart. Fyrst eftir uppsögn hefði hann verið greindur með ADHD og væri greiningin verulegum annmörkum háð. Með vísan til m.a. niðurstöðu dómkvadds matsmanns var það mat dómsins að slíkir annmarkar hefðu verið á greiningarferli stefnanda að ekki yrði lagt til grundvallar að hann væri ófær um að starfa sem flugmaður í skilningi laga og reglugerða á sviði samgöngumála. Stefnandi hefði því ekki sýnt fram á að skilyrði til greiðslu bóta úr tryggingunni væru fyrir hendi. Var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.
...í fyrrnefndri reglugerð nr. 400/2008. Í reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi, sem sett var á grundvelli þágildandi laga nr. 60/1998 um loftferðir, er nánar vikið...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að lífeyrisréttindi B kæmu til skipta sem hjúskapareign við fjárslit þeirra. Í úrskurði Landsréttar var fallist á að hluti af séreignarsparnaði B sem heimild væri til úttektar á, í samræmi við VIII. ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 129/1997, sbr. lög nr. 25/2020, hefði endurkaupsvirði samkvæmt kröfu maka í samræmi við 2. tölulið. 1. mgr. 102. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og skyldi koma til skipta við fjárslitin. Að öðru leyti var niðurstaða héraðsdóms staðfest.
...419/1999 um leyfisskírteini til starfsins en sú reglugerð hafi verið felld úr gildi með reglugerð nr. 400/2008. Reglugerðin fjalli um skírteini til að sinna m.a. starfi flugumferðarstjóra...
K höfðaði mál á hendur F ehf. og krafðist greiðslu kjarasamningsbundinna veikindalauna í 13 mánuði úr hendi F ehf. og viðurkenningar á því að hann skyldi njóta almennra frímiðaréttinda hjá F ehf. í tíu ár. Landsréttur vísaði til þess að K hefði verið í tímabundnu leyfi frá störfum F ehf. en að störfum hjá N þegar hann veiktist alvarlega svo að leiddi til missis starfsréttinda hans. Þá hafi K fengið óskert veikindalaun í 13 mánuði frá N. Því taldi Landsréttur að veikindaréttindi K gagnvart F ehf. hefðu ekki orðið virk á ný enda hafi legið fyrir að K myndi ekki geta komið aftur til starfa þar sem hann hefði misst starfsréttindi sín. Það sama ætti við um starfskjör K að öðru leyti, svo sem frímiðaréttindi.
...403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða og reglugerð nr. 400/2008 um skírteini útgefin af Flugmálastjórn Íslands. Varðandi kröfu um vexti vísar stefnandi til III. kafla laga nr. 38/2001. Þá...
Ágreiningur um veikindalaunarétt o.fl.
...403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða og reglugerð nr. 400/2008 um skírteini útgefin af Flugmálastjórn Íslands. Varðandi kröfu um vexti vísar stefnandi til III. kafla laga nr. 38/2001...
A krafði Í um greiðslu á kjarasamningsbundinni skírteinistryggingu í kjölfar afturköllunar Flugmálastjórnar á skírteini hennar til starfa sem flugumferðarstjóri. Byggði A á því að hún uppfyllti skilyrði innlausnar tryggingarinnar en samkvæmt nánari ákvæðum gildandi kjarasamnings tók tryggingin m.a. að fullu til veikinda sem voru að uppruna sálræns eðlis. Í málinu lágu fyrir fjögur læknisvottorð um að A hafði glímt við slík veikindi. Talið var að A hefði ekki verið svipt réttindum sínum vegna veikinda, líkt og áskilið var í kjarasamningi aðila, heldur á grundvelli þess að hún hefði veitt rangar upplýsingar um heilsufar sitt og lyfjanotkun í umsóknum sínum um heilbrigðisvottorð á fjögurra ára tímabili. Þeirri ákvörðun Flugmálastjórnar hafði A ekki skotið til úrlausnar æðra stjórnvalds né hafði hún höfðað mál til að hnekkja henni. Þar sem skilyrði kjarasamnings til innlausnar tryggingarinnar voru ekki uppfyllt í málinu var Í sýknað af kröfu A.
...grein 7.6.3 í reglugerð nr. 400/2008 um skírteini útgefin af Flugmálastjórn Íslands, sbr. sömu grein í áður gildandi reglugerð nr. 419/1999. Þá hafi áfrýjandi með undirritun...