Ágreiningur málsaðila átti rætur að rekja til málshöfðunar F ehf. gegn U, H hf. og L hf. meðal annars til ógildingar á nánar tilgreindum úrskurði úrskurðarnefndar raforkumála og viðurkenningar á skaðabótaskyldu H hf. og L hf. vegna tjóns F hf. sem leiddi af uppsögn á nánar tilgreindum samningi aðila um tengingu við dreifikerfi H hf. og L hf. Með úrskurði héraðsdóms var kröfu um ógildingu fyrrnefnds úrskurðar vísað frá þar sem Raforkueftirliti U var ekki stefnt til varnar, enda væri um að ræða sjálfstæðan lögaðila sem gæti átt réttindi og borið skyldur samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í úrskurði Landsréttar var rakið að þegar málið hefði verið höfðað hefði ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 110/2024 um Umhverfis- og orkustofnun, þar sem mælt er fyrir um skipun skrifstofustjóra Raforkueftirlitsins, ekki tekið gildi. Yrði því að líta svo á að þá hefði forstjóri U borið stjórnunarlega ábyrgð á rekstri Raforkueftirlitsins, sbr. 2. gr. laga nr. 110/2024. Hafði Raforkueftirlitið ekki aðildarhæfi á þeim tíma og var því réttum aðila stefnt til varnar. Var ákvæði úrskurðar héraðsdóms því fellt úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar um þá kröfu. Þá var staðfest ákvæði hins kærða úrskurðar um frávísun á viðurkenningarkröfu F ehf.
LV höfðaði mál á hendur L hf. og O og krafðist viðurkenningar á því að óheimilt hafi verið að leggja á L aflgjald vegna innmötunar raforku á flutningskerfi L samkvæmt gjaldskrá L nr. 43/2022. Byggði LV á því að engin lagastoð væri fyrir gjaldtöku vegna inmötunar raforkuvinnsluaðila á flutningskerfi L. Af hálfu L og O var hins vegar byggt á því á því að ekki hefði staðið til að afnema lagaheimild til töku innmötunargjalds með lögum nr. 19/2011 um breytingu á raforkulögum, enda hefði í athugasemdum við 7. gr. í frumvarpi er varð að lögunum komið fram að frumvarpið gerði ráð fyrir litlum efnisbreytingum á gildandi ákvæðum um gjaldskrá. Þá ætti gjaldtakan sér stoð í ýmsum öðrum ákvæðum raforkulaga og reglugerð nr. 1040/2005 um framkvæmd raforkulaga. Í Landsrétti var fyrst tekið til skoðunar hvort vísa bæri málinu frá héraðsdómi að sjálfsdáðum á grundvelli þess að farið hefði verið á svig við málshöfðunarskilyrði 12. mgr. 30. gr. raforkulaga. Að virtu því hvernig atvikum máls var háttað yrði LV ekki gert að sæta því að aðal-, vara- og þrautavarakröfu hans yrði vísað frá héraðsdómi. Þá var talið að LV hefði enn lögvarða hagsmuni af því að leyst yrði úr kröfum hans um lögmæti aflgjalds vegna innmötunar, þótt gjaldskrá nr. 43/2022 væri fallin úr gildi og ný gjaldskrá komin í hennar stað enda var í nýrri gjaldskrá mælt fyrir um innmötunargjald með sama hætti og áður. Við úrlausn um lögmæti gjaldtöku vegna innmötunar var rakið að samkvæmt 1. mgr. 12. gr. a raforkulaga skyldi L setja sér gjaldskrá vegna þjónustu sinnar og gjaldskráin gilda fyrir úttekt dreifiveitna frá flutningskerfi og úttekt stórnotenda. Voru því ekki forsendur til annars en að líta svo á að gjaldtaka samkvæmt gjaldskrá skyldi einungis vera bundin við úttektir í framangreindum skilningi. Þá varð ekki séð að leiða mætti heimild til töku aflgjalds af ákvæðum 12. gr. raforkulaga um tekjumörk flutningsfyrirtækis eða öðrum ákvæðum þeirra. Loks var ekki fallist á með L og O að grundvalla mætti slíka gjaldtökuheimild á athugasemdum við 7. gr. í frumvarpi að lögum nr. 19/2011 og þá meðal annars horft til þess að innmötunargjald hafði ekki verið innheimt um nokkurt skeið þegar frumvarp til laganna var upphaflega lagt fram. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.
Með ákvörðun P árið 2014 var fallist á beiðni SN og N um samnýtingu tiltekinna tíðniheimila sem þeim hefði verið úthlutað af P. SM höfðaði mál og krafðist aðallega viðurkenningar á því að ákvörðunin væri ógild, en til vara að hún yrði ógilt með dómi. Ekki var fallist á að P hefði bundið eigin ákvörðun skilyrðum og að fyrir vikið væri hún markleysa eða lögleysa. Var aðalkröfu SM um viðurkenningu á ógildi ákvörðunarinnar því hafnað. Varakröfu sína um ógildingu ákvörðunarinnar reisti SM aðallega á því að sú samnýting SN og N á tíðniheimildum fyrir tilstilli SF, félags í eigu SN og N, sem heimiluð var með hinni umþrættu ákvörðun bryti gegn banni 2. mgr. 7. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 við framsali tíðniheimilda. Þá byggði SM einnig á því að ákvörðunin væri til þess fallin að raska samkeppni og að ekki hefði verið tekin sjálfstæð afstaða til samkeppnislegra áhrifa af samnýtingu tíðniheimilda. Í dómi Landsréttar kom fram að þrátt fyrir samstarf SN og N í gegnum SF væru SN og N áfram rétthafar viðkomandi tíðniheimilda og bæru þau réttindi og skyldur sem af því leiddi. SF sæi aðeins um starfrækslu þess tækjabúnaðar sem sendi út tíðniheimildir SN og N, en hefði ekki forræði á nýtingarrétti tíðniheimildanna. SN og N hefðu þannig ekki framselt tíðniheimildir sínar til SF. Þá var talið að þótt framsalsbann 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81/2003 yrði skilið sem svo að rétthafi tíðniheimilda gæti ekki, upp á sitt eindæmi, heimilað öðrum að nýta tíðniheimildir sem honum hefði verið úthlutað háttaði svo til í málinu að hvorki SN né N hefðu heimilað hvor öðrum að nýta tíðniheimildir hins, heldur hefði P heimilað samnýtingu þeirra með ákvörðun sinni. Taldi Landsréttur það hafa verið í samræmi við skyldur P og innan valdheimilda stofnunarinnar að heimila samnýtinguna. Þar sem ekki lá annað fyrir en að samnýtingunni hefði verið hagað í samræmi við þá skilmála og skilyrði sem henni voru sett væri ekki unnt að líta svo á að SN eða N hefðu með samnýtingunni framselt hvor öðrum tíðniheimildir í bága við 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81/2003. Þá var því hafnað að ekki hefði verið gætt að samkeppnisréttarlegum sjónarmiðum eða að ákvörðun P hefði brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga. Voru stefndu því sýknaðir af kröfum SM.
Í málinu kröfðust F og K þess að ógilt yrði ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra frá árinu 2016 annars vegar um heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar tveggja 220 kV háspennulína, svonefndra Kröflulína 4 og 5, frá Kröflu að Þeistareykjum um land jarðarinnar Reykjahlíðar og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jarðirnar Bjarg og Víðihlíð í Skútustaðahreppi. Í héraðsdómi, sem staðfestur var af Hæstarétti með vísan til forsendna hans, var ekki fallist á með F og K að ein lína væri raunhæfur valkostur miðað við þær forsendur um rekstrar- og afhendingaröryggi sem gert væri ráð fyrir í kerfisáætlun L hf. fyrir árin 2015 til 2024. Þá var talið að L hf. og Í hefðu með fullnægjandi hætti rannsakað þann kost að leggja jarðstrengi í stað loftlína, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, auk þess sem andmælaréttur F og K hefði verið virtur við meðferð málsins, sbr. 13. gr. sömu laga. Loks var litið svo á að L hf. hefði sinnt skyldu sinni til samráðs við F og K og aðra landeigendur við undirbúning framkvæmdarinnar og að L hf. hefði reynt til þrautar að ná samningum við þau um afnot af landi þeirra vegna umræddra lína. Að þessu gættu og með hliðsjón af ákvæðum raforkulaga nr. 65/2003 var litið svo á að L hf. hefði fullnægt skilyrðum 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum. Voru L hf. og Í því sýknuð af kröfum F og K.
Stefndu sýknuð af kröfu stefnenda um ógildingu ákvörðunar um eignarnám og lagningar kvaða á land þeirra vegna lagningar háspennulínu. Ekki var fallist á að meðalhófs hefði ekki verið gætt við ákvarðanatökuna. Jafnframt var því hafnað að málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar eða aðrar reglur sem gilda um hina umdeildu ákvörðun hafi verið brotnar. Að mati dómsins var eignarnámsákvörðunin því hvorki talin andstæð ákvæðum stjórnarskrár eða almennra laga.
Bjarney Guðrún Ólafsdóttir, Geirlaug Þorvaldsdóttir, Katrín Þorvaldsdóttir, Margrét Guðnadóttir, Ólafur Þór Jónsson, Reykjaprent ehf, Sauðafell sf, Sigríður S. Jónsdóttir, Skúli Þorvaldsson og STV ehf (
Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)
gegn
Orkustofnun, Landsneti hf og Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands (
Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl, Þórður Bogason hrl, Ásgeir Þór Árnason hrl, Magnús Óskarsson hdl)
Í málinu kröfðust B o.fl. þess að felld yrði úr gildi ákvörðun O frá árinu 2013 um að veita L hf. leyfi til að reisa og reka flutningsvirkið Suðurnesjalínu 2. Reistu þau kröfu sína á því að O hefði við meðferð málsins brotið gegn ýmsum reglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, meðal annars með því að hafa ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að þegar O tók hina umþrættu ákvörðun hefði legið fyrir, eins og fram hefði komið í rökstuðningi stofnunarinnar fyrir henni, að forsenda þess að L hf. gæti nýtt sér leyfið til lagningar raforkulínunnar væri að samkomulag næðist við hlutaðeigandi landeigendur, þar á meðal B o.fl., um not af landi þeirra í því skyni, en að öðrum kosti yrði að taka það eignarnámi. Með hliðsjón af dómum Hæstaréttar 12. maí 2016 í málum nr. 511-513/2015 og 541/2015 var talið að hvílt hefði rík skylda á O til að upplýsa málið til hlítar áður en ákvörðunin var tekin, enda hefði mátt vera ljóst vegna þeirrar faglegu þekkingar, sem stofnunin réði yfir, að litið yrði til ákvörðunar hennar ef til þess kæmi að leitað yrði heimildar ráðherra til eignarnáms vegna lagningar línunnar, svo sem síðar varð raunin. Þrátt fyrir ítrekuð andmæli B o.fl. við þeim ráðagerðum L hf. að leggja umrædda raforkulínu í lofti, þar sem lögn hennar í jörðu yrði minna íþyngjandi fyrir þau, létu O og L hf. ekki fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur létu þeir nægja að vísa til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíks strengs. Samkvæmt framansögðu og með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga var fallist á kröfu B o.fl.
Í málinu kröfðust G, K, S og S ehf. þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reistu G, K, S og S ehf. kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við G, K, S og S ehf. vegna framkvæmdanna og andmælaréttur þeirra ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með G, K, S og S ehf. að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að G, K, S og S ehf. og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur G, K, S og S ehf.
Í málinu kröfðust R ehf., Ó og S þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reistu R ehf., Ó og S kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við R ehf., Ó og S vegna framkvæmdanna og andmælaréttur þeirra ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með R ehf., Ó og S að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að R ehf., Ó og S og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur R ehf., Ó og S.
Í málinu kröfðust B, Ó og S þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reistu B, Ó og S kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við B, Ó og S vegna framkvæmdanna og andmælaréttur þeirra ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með B, Ó og S að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að B, Ó og S og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur B, Ó og S.
Í málinu krafðist M þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð hennar í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reisti M kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við M vegna framkvæmdanna og andmælaréttur hennar ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með M að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að M og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur M.