Í hf. höfðaði mál á hendur R og B ehf. og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu á tjóni vegna ákvörðunar hans um halda áfram vinnu við byggingu kísilmálmverksmiðju fyrir S hf. á árinu 2016. Í hf. gerði verksamning við S hf. um byggingu verksmiðjunnar árið 2014 . Í hf. kvað ákvörðun sína um að halda verkinu áfram hefði byggst á upplýsingum í ársreikningi S hf. vegna ársins 2014 sem stefndi R hefði endurskoðað og áritað án fyrirvara. Opinberar upplýsingar um fjárhagsstöðu S hf. sem birtust í ársreikningi félagsins það ár hefðu gefið allt aðra og betri mynd af stöðu þess en raunin hafi verið. Í hf. byggði á því að eigið fé S hf. hefði verið ofmetið í ársreikningnum þar sem ekkert raunverulegt endurgjald hefði komið fyrir tvær hlutafjárhækkanir í S9 ehf. sem síðar rann saman við S hf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar málavextir væru virtir í heild yrði ekki fallist á að sýnt hefði verið nægilega fram á að R hefði þegar hann sendi tilkynningar um hlutafjárhækkun til fyrirtækjaskrár 23. september 2014 haft þá yfirsýn yfir fjármagnshreyfingar milli félaga sem MG stýrði og inntaki þeirra til að geta áttað sig á eðli þeirra eða haft réttmætt tilefni til að afla frekari gagna eða upplýsinga um þær. Taldi dómurinn ekki næg efni til að hnekkja mati hins áfrýjaða dóms, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmanni, um að Í hf. hefði ekki tekist að sýna fram á að stefndi R hefði hafi sýnt af sér saknæma háttsemi þegar hann staðfesti greiðslu umræddra hlutafjárhækkana. Þá taldi dómurinn ekki næg efni til þess að virða það R til sakar að hann hefði ekki endurskoðað samrunareikning S hf. eða vakið athygli stjórnar félagsins á að endurskoða þyrfti samrunareikning félaganna. Að lokum taldi dómurinn ekkert fram komið sem leitt hefði í ljós að R hefði á þeim tíma er hann vann ársreikning S hf. vegna ársins 2014 átt að vera það ljóst að reikningar félaganna P B.V. eða hlutafjárframlag U B.V. hefði verið greitt með þeim hætti að það skildi ekki eftir nein raunveruleg verðmæti í félaginu. Voru R og B ehf. því sýknaðir af kröfu Í hf.
Þrotabú S hf. höfðaði mál gegn E ehf. og R og krafðist skaðabóta á grundvelli saknæmrar háttsemi þeirra í tengslum við tvær hlutafjárhækkanir í félaginu S9 ehf. Laut krafa þrotabúsins að því að með tilkynningum til ríkisskattstjóra árið 2014 hefði R staðfest að hlutafjárhækkanirnar hefðu verið greiddar af hálfu eiganda félagsins, U B.V., annars vegar með skuldajöfnuði og hins vegar með peningum, en í raun hefði aldrei neitt verið greitt fyrir hlutina og hefði R vitað eða mátt vita að sú hefði verið raunin þegar hann staðfesti greiðslurnar. Byggði þrotabúið á því að staðfestingar R hefðu gert U B.V. kleift að eignast 672.975.000 nafnverðshluti í S9 ehf. án þess að greiða lögbundið lágmarksverð fyrir þá og hafi efnahagsleg áhrif þess færst yfir á S hf. við samruna þess félags við S9 ehf. og þá fjármuni hafi því vantað í sjóði S hf. þegar félagið fór í þrot. R hefði borið í ljósi lögbundins hlutverks síns að gæta að því að greiðslur fyrir hlutina færu ekki viðstöðulaust út af reikningi S 9 ehf. nema að samsvarandi verðmæti kæmu í staðinn, en í vinnu sinni hefði hann meðal annars stuðst við bankareikningsyfirlit sem hafi borið það með sér að fjármununum hefði þegar í stað verið ráðstafað til félagsins P B.V. Þær fjármunafærslur hefðu verið tilefnislausar og ekki skilað S9 ehf. neinum verðmætum. Landsréttur taldi framlögð gögn í málinu styðja þá ályktun að útgáfa þeirra reikninga P B.V sem lágu til grundvallar fjármunafærslunum hafi ekki tengst kaupum á þjónustu í þágu S9 ehf. og því mætti með réttu efast um að heimild hafi staðið til þess að færa greiðslu þeirra sem stofnkostnað sem unnt hafi verið að eignfæra sem óefnislega eign í reikningum félagsins. Aftur á móti var talið ósannað að R hefði vitað eða mátt vita að annað lægi að baki útgáfu reikninganna en að þeir væru vegna vinnu við hönnun á ofni fyrir kísilverksmiðju í Helguvík eins og þeir báru með sér og samkvæmt því talið ósannað að R hefði sýnt af sér saknæma háttsemi þegar hann staðfesti að umræddar hlutafjárhækkanir í S9 ehf. hefðu verið greiddar. Þrotabú S hf. reisti kröfu sína jafnframt á því að R hefði sýnt af sér saknæma háttsemi með því að staðfesta með áritun sinni í samrunaefnahagsreikningi S hf. rangar upplýsingar um óefnislegar eignir, þar sem fyrrnefndar greiðslur til P B.V. hefðu ekki heimilað slíka færslu í reikningsskilum félagsins. Í dómi Landsréttar kom fram að áritun R sem fylgdi samrunaefnahagsreikningum bæri ekki með sér að hann hefði endurskoðað árshlutareikninga félaganna í tilefni af samrunanum heldur eingöngu að hinn sameiginlegi efnahagsreikningur byggðist á þeim reikningum. Var ekki talið að R hefði sýnt af sér saknæma háttsemi með því athafnaleysi að gera ekki stjórnum samrunafélaganna viðvart um lagaskyldu þeirra samkvæmt 2. mgr. 121. gr. laga nr. 2/1995 og 2. mgr. 96. gr. laga nr. 138/1994 til að annast um að hinn sameiginlegi efnahagsreikningur yrði endurskoðaður. Þar sem ósannað væri að R hefði vitað eða mátt vita að annað lægi að baki útgáfu reikninga P B.V. en þeir báru með sér, var talið að R hefði ekki haft ástæðu til að efast um réttmæti þess að eignfæra þau útgjöld sem stofnkostnað sem gat stuðlað að líklegum framtíðarávinningi S 9 ehf. og síðar S hf. Var því hafnað þeirri málsástæðu þrotabús S hf. er laut að áritun R á samrunaefnahagsreikninginn. Loks var ekki talið að þrotabú S hf. hefði fært fyrir því viðhlítandi rök að yfirlýsing R, um að umræddur samruni skerti ekki möguleika lánardrottna S hf. á fullnustu, hefði verið röng. Með vísan til alls framangreinds var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu E ehf. og R af kröfum þrotabús S hf.
Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (
Geir Gestsson lögmaður)
gegn
Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (
Tómas Jónsson lögmaður)
Þrotabú S hf. höfðaði mál gegn E ehf. og R og krafðist skaðabóta á grundvelli saknæmrar háttsemi þeirra við gerð sérfræðiskýrslu á grundvelli 6. gr., sbr. 37. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Laut skýrslan að verðmæti greiðslu U B.V. fyrir 405.280.000 hluti í S hf., en greitt var fyrir hlutina með öllum hlutum í G ehf. Byggði þrotabúið á því að E ehf. og R hefðu valdið því tjóni þar sem greiðsla U B.V. fyrir hlutaféð hefði verið ófullnægjandi og þá fjármuni hafi því vantað í sjóði S hf. þegar félagið fór í þrot. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða matsgerðar dómkvadds matsmanns, sem aflað var undir rekstri málsins í héraði og hefði ekki verið hnekkt, styddi þá málsástæðu S hf. að ekki hefði verið hugað af nægjanlegri kostgæfni að þeim forsendum sem lágu til grundvallar sérfræðiskýrslunni 29. desember 2016 um rekstrarkostnaðarhlutfall G ehf. og ávöxtunarkröfu og að það hefði mögulega leitt til ofmats á greiðslunni sem kom fyrir hlutabréfin í S hf. Aftur á móti var, með vísan til 19. og 53. gr. laga nr. 2/1995, lagt til grundvallar að hóflegra verðmat af hálfu E ehf. og R á greiðslunni hefði einungis leitt til lækkunar á skráðu hlutafé í S hf. Því yrði að líta svo á að mögulega of hátt verðmat þeirra á hlutum í G ehf. hefði einungis stuðlað að því að hlutafé U B.V. í hinu gjaldþrota félagi hefði verið of hátt skráð. Það hefði getað valdið öðrum en S hf. fjárhagstjóni, til dæmis við greiðslu arðs. Þrotabú S hf. hefði aftur á móti ekki sýnt fram á að það hefði valdið S hf. tjóni þannig að þrotabúið ætti kröfu um skaðabætur utan samninga á hendur E ehf. og R. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu E ehf. og R.
Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (
Geir Gestsson lögmaður)
gegn
Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (
Tómas Jónsson lögmaður)
Þrotabú S hf. höfðaði mál gegn E ehf. og R og krafðist skaðabóta á grundvelli saknæmrar háttsemi þeirra við gerð sérfræðiskýrslu á grundvelli 6. gr., sbr. 37. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Laut skýrslan að verðmæti greiðslu U B.V. fyrir 405.280.000 hluti í S hf. en greitt var fyrir hlutina með öllum hlutum í G ehf. Byggði þrotabúið á því að E ehf. og R hefðu valdið því tjóni þar sem greiðsla U B.V. fyrir hlutaféð hefði verið ófullnægjandi og þá fjármuni hafi því vantað í sjóði S hf. þegar félagið fór í þrot. Í dómi Landsréttar kom fram að sérfræðiskýrslan hefði hvorki verið haldin þeim annmarka að stuðst væri við tekjur af leigusamningi G ehf. við S hf. sem aldrei hefði verið ætlunin að efna né að horft hefði verið fram hjá hluta af skuldum G ehf. við matið. Aftur á móti var talið að ekki yrði önnur ályktun dregin af matsgerð dómkvadds matsmanns, sem aflað var undir rekstri málsins í héraði og hefði ekki verið hnekkt, en að forsendur sérfræðiskýrslunnar hefðu verið ófullnægjandi um ávöxtunarkröfu og rekstrarkostnaðarhlutfall G ehf. Þegar jafnframt væri litið til takmarkaðs rökstuðnings fyrir niðurstöðu sérfræðiskýrslunnar yrði að líta svo á að hún hefði ekki verið unnin af þeirri kostgæfni sem ætlast yrði til í ljósi tilgangs 6. gr. laga nr. 2/1995, sbr. 1. mgr. 16. gr. sömu laga. Var því á það fallist að E ehf. og R hefðu að þessu leyti sýnt af sér saknæma vanrækslu við gerð hennar og bakað sér skaðabótaábyrgð vegna þess tjóns sem af því hlaust. Með skýrslunni hefðu E ehf. og R stuðlað að því að greiðsla U B.V. fyrir hluti í S hf. hefði verið lægri en sem nam nafnverði þeirra í andstöðu við 1. mgr. 16. gr. laga nr. 2/1995 og var litið svo á að S hf. hefði orðið fyrir tjóni sem næmi mismun á nafnverði hlutanna og hæsta mögulega verði hlutanna samkvæmt matsgerð dómkvadds matsmanns. Ekki voru talin rök til þess að þrotabúið bæri tjónið á grundvelli reglna um eigin sök og ekki var heldur fallist á að það hefði sýnt af sér tómlæti þannig að skaðabótakrafa þess hefði fallið niður. Var E ehf. og R því sameiginlega gert að greiða þrotabúinu 114.280.000 krónur í skaðabætur auk vaxta.
Stefnandi sem er þrotabú krafðist bóta frá stefndu, endurskoðunarfyrirtæki og löggiltum endurskoðanda, vegna mistaka sem talin voru hafa verið gerð í sérfræðistörfum þeirra. Ekki var talið að mistök þeirra hefðu valdið því tjóni sem bóta var krafist fyrir og voru stefndu sýknaðir vegna þess að nauðsynleg orsakatengsl til að bótaskylda stofnist voru ekki fyrir hendi.
Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (
Geir Gestsson lögmaður)
gegn
Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (
Tómas Jónsson lögmaður)
Þrotabú SS hf. höfðaði mál á hendur E&Y ehf. og R og krafðist greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir þegar R, í starfi sínu sem endurskoðandi hjá E&Y ehf., hafði staðfest við hlutafélagaskrá að 25.000.000 króna hlutafjárhækkun í Geysi Capital ehf., sem USI Holding B.V. hafði skráð sig fyrir árið 2014, hefði verið „greidd með peningum“. Geysir Capital ehf. og SS hf. höfðu síðar sameinast árið 2017 en orðið gjaldþrota ári síðar. Byggði þrotabú SS hf. á því að 18.000.000 króna af hlutafjárhækkuninni hefðu aldrei verið greiddar, útséð væri um innheimtu þess fjár vegna gjaldþrots USI Holding B.V. og að R hefði valdið félaginu tjóni að framangreindri fjárhæð með umræddri tilkynningu. E&Y ehf. og R byggðu á hinn bóginn meðal annars á því að þó að mistök hefðu verið gerð er tilkynningin var send hlutafélagaskrá væri ósannað að nokkurt tjón hefði hlotist af því, en hlutafjárhækkunin hefði að hluta verið greidd með peningum og að hluta með skuldajöfnuði í kjölfar skuldskeytingar á skuld Geysis Capital ehf. við SS hf. að fjárhæð ríflega 18.000.000 króna. Í dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að framangreind tilkynning um hækkun á hlutafé hefði ekki samræmst ákvæðum 26. og 28. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og að R hefði þannig sýnt af sér saknæma háttsemi sem E&Y ehf. væri meðábyrgt fyrir á grundvelli reglna um vinnuveitandaábyrgð. Á hinn bóginn var talið að þó að áhöld væru um hvort nefnd skuldskeyting og greiðsla USI Holding B.V. á hlutafjáraukningu hefði farið að öllu leyti fram með réttum og löglegum hætti, þannig að þær ráðstafanir væru gildar í kröfuréttarlegu tilliti, þá bæru málsgögn með sér að Geysir Capital ehf. hefði losnað undan framangreindri skuld sinni auk þess sem ekkert benti til annars en að litið hefði verið svo á að hlutafjáraukningin væri að fullu greidd. Þannig væri ósannað að SS hf. hefði orðið fyrir tjóni vegna háttsemi R og E&Y ehf. Var héraðsdómur samkvæmt framangreindu staðfestur um sýknu R og E&Y ehf.
Þrotabú Sameinaðs Sílikons ehf (
Geir Gestsson lögmaður)
gegn
Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (
Tómas Jónsson lögmaður)
Aðila greindi á um hvort stefndu, R og EY ehf., bæru bótaábyrgð á tjóni sem stefnandi, þrotabú S hf., taldi stafa af saknæmri háttsemi við gerð sérfræðiskýrslu sem unnin var 29. desember 2016 í tengslum við hlutafjárhækkun í S hf. Ekki var talið sýnt fram á slíkt og voru stefndu þegar af þeirri ástæðu sýknaðir af kröfum stefnanda.
Stefndu sýknaðir af bótakröfu þrotabús vegna tilkynningar endurskoðanda til fyrirtækjaskrár vegna hlutafjárhækkunar.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á beiðni slitastjórnar L hf. um að endurskoðandinn V yrði kvaddur fyrir héraðsdóm til skýrslugjafar vegna slitameðferðar L hf. og honum gert skylt að afhenda tiltekin vinnugögn. Hæstiréttur taldi að V væri skylt að gefa skýrslu fyrir héraðsdómi vegna slitameðferðar L hf. samkvæmt 81. og 82. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 4. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Um kröfu L hf. um afhendingu gagna segir meðal annars í dómi Hæstaréttar að kröfunni væri beint að V einum, en ekki endurskoðunarfélaginu sem V starfaði hjá. Krafa L hf. væri víðtækari en svo að V gæti einn uppfyllt hana þótt á honum hvíldi skylda samkvæmt 1. mgr. 81. gr. laga nr. 21/1991. Með þessum fyrirvara var V gert að láta L hf. í té vinnugögn vegna starfa hans í þágu félagsins.