Fallist var á kröfu verktaka um að stefndi hefði tekist á hendur greiðsluskyldu vegna fleygunar og borunar.
F ehf. höfðaði mál á hendur I ehf. og krafðist meðal annars ógildingar byggingarleyfis. Við meðferð málsins fyrir héraðsdómi lagði I ehf. fram upplýsingar um að byggingarleyfið hefði verið gefið út til I ehf. og H ehf. sameiginlega. F ehf. höfðaði í kjölfarið sakaukasök á hendur H ehf. sem krafðist frávísunar. Með úrskurði héraðsdóms var krafa H ehf. tekin til greina með vísan til þess að F ehf. yrði metið það til vanrækslu að hafa ekki stefnt H ehf. fyrir þingfestingu málsins. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í byggingarleyfi sem F ehf. aflaði frá byggingarfulltrúa skömmu fyrir höfðun frumsakar hefði I ehf. verið eitt tilgreint sem leyfishafi. Þar sem um opinbert skjal hefði verið að ræða hefði F ehf. verið rétt að leggja til grundvallar að efni þess væri rétt þar til annað sannaðist. Þá hefðu aðrar upplýsingar sem F ehf. voru aðgengilegar fyrir höfðun frumsakar ekki gefið F ehf. slíkt tilefni til að afla sér frekari upplýsinga að félaginu yrði metið það til vanrækslu að hafa ekki gert það. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
F ehf. höfðaði mál á hendur I ehf. og krafðist meðal annars ógildingar byggingarleyfis. Við meðferð málsins fyrir héraðsdómi lagði I ehf. fram upplýsingar um að byggingarleyfið hefði verið gefið út til I ehf. og H ehf. sameiginlega og krafðist frávísunar þar sem H ehf. hefði ekki verið stefnt í málinu. F ehf. höfðaði í kjölfarið sakaukasök á hendur H ehf. Með úrskurði héraðsdóms var frávísunarkrafa I ehf. tekin til greina með vísan til þess að skilyrði hefði brostið til að F ehf. gæti stefnt H ehf. inn í málið með sakaukastefnu. Í úrskurði Landsréttar kom fram að með úrskurði réttarins í máli nr. 283/2019 hefði verið komist að þeirri niðurstöðu að öll skilyrði þess að stefna H ehf. inn í málið með sakauka væru uppfyllt og teldist F ehf. þar með hafa lagfært aðild málsins til varnar, en ekki var talin þörf á aðild Reykjavíkurborgar að málinu. Þá var hvorki talið að F ehf. skorti lögvarða hagsmuni né að slíkir annmarkar væru á kröfugerð F ehf. eða reifun málsins að frávísun varðaði. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
Kærður var úrskurður þar sem máli, sem K hf. beindi aðallega að B, til vara að KSE, en að þeim frágengnum að KSC o.fl., var vísað frá dómi að því er KSC o.fl. varðaði. K hf. höfðaði málið upphaflega á hendur B, sem K hf. taldi eiganda að tilgreindum hlutum í skuldabréfum útgefnum af K hf., til riftunar á greiðslum vegna kaupa K hf. á hlutdeildinni í skuldabréfunum og endurheimtu á fjárhæð greiðslnanna ásamt dráttarvöxtum. Eftir að stefna hafði verið birt B hélt félagið því fram að þær fjárfestingar sem málið varðaði hefðu verið gerðar í þágu KSE og að B hefði einungis komið þar fram til milligöngu. Gerði K hf. í kjölfarið nýja stefnu þar sem kröfum var aðallega beint að B en til vara KSE. Í kjölfarið hélt KSE því fram að það félag hefði ekki verið viðsemjandi B í viðskiptunum, sem málið varðaði, heldur KSC o.fl. Höfðaði K hf. við svo búið sakaukasök á hendur KSC o.fl., þar sem sömu kröfum og beint hafði verið að B og KSE var nú beint að KSC o.fl. til vara að baki kröfum á hendur B og KSE í frumsök. Í héraði hafði frávísunarkröfu B og KSE verið hafnað, en með hinum kærða úrskurði var samhljóða krafa KSC o.fl. tekin til greina. Hæstiréttur hafnaði því að skilyrði væru fyrir hendi til að verða við kröfu KSC o.fl. um frávísun málsins frá héraðsdómi að því er þau félög varðaði, meðal annars með skírskotun til þess að málshöfðunarfrestur hefði ekki verið liðinn þegar sakaukasök var höfðuð og að skilyrði til sakaraukningar í málinu væru uppfyllt. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar að því er varðaði KSC o.fl.
Kaupþing hf (
Grímur Sigurðsson hrl)
gegn
CS, Fixed, Income, SICAV, -SIF fyrir hönd, CS, Fixed, Income, SICAV, -SIF, Global, Credit og Opportunities (
Einar Baldvin Axelsson hrl)
Kærður var úrskurður þar sem máli, sem K hf. beindi aðallega að CS en til vara að CO, var vísað frá dómi að því er CO varðaði. K hf. höfðaði málið upphaflega á hendur CS, sem K hf. taldi eiganda að tilgreindum hlutum í skuldabréfum útgefnum af K hf., til riftunar á greiðslum vegna kaupa K hf. á hlutdeildinni í skuldabréfunum og endurheimtu á fjárhæð greiðslnanna ásamt dráttarvöxtum. CS hélt því fram að þær fjárfestingar sem málið varðaði hefðu verið gerðar í þágu CO og að CS hefði einungis komið þar fram til milligöngu. K hf. kvaðst fyrst hafa fengið vitneskju um þetta í greinargerð CS í héraði og höfðaði við svo búið sakaukasök á hendur CO, þar sem sömu kröfum og beint hafði verið að CS var nú beint að CO til vara að baki kröfum í frumsök. Í héraði hafði frávísunarkröfu CS verið hafnað, en með hinum kærða úrskurði var samhljóða krafa CO tekin til greina. Hæstiréttur hafnaði því að skilyrði væru fyrir hendi til að verða við kröfu CO um frávísun málsins frá héraðsdómi að því er hann varðaði, meðal annars með skírskotun til þess að málshöfðunarfrestur hefði ekki verið liðinn þegar sakaukasök var höfðuð og að skilyrði til sakaraukningar í málinu væru uppfyllt. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar að því er varðaði CO.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli K á hendur T og Í var vísað frá dómi að því er varðar Í vegna galla á málatilbúnaði K.
Einar Finnbogason (
Hilmar Magnússon hrl)
gegn
SOS, eignum ehf, Pálma, B. Almarssyni, Fasteignamiðluninni, Hámúla ehf og Vátryggingafélagi Íslands hf. til réttargæzlu (
Halldór B. Halldórsson hdl)
Stefnandi seldi stefnda SOS eignum íbúð. SOS eignir stóðu ekki við greiðslu kaupsamningsins. Stefnandi krafði kaupanda um greiðslu, en gerði auk þess kröfu á meðstefndu um skaðabætur vegna tjóns hans af vanefndum kaupanda. Kröfur stefnanda á hendur stefnda SOS eignum ehf. teknar til greina en aðrir stefndu sýknaðir.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli E á hendur F og B var vísað frá dómi. Málið átti rætur að rekja til sölu E á fasteign til S. E kvað kaupandann hafa vanefnt samninginn og höfðaði mál á hendur S og fasteignasalanum P. E höfðaði síðar annað mál þar sem hann sakaukastefndi fasteignasölunni F og fasteignasalanum B en kaupsamningurinn um eignina var gerður á F og B var þar löggiltur fasteignasali. Héraðsdómur taldi að uppfyllt væru skilyrði 3. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til höfðunar sakauka á hendur F en ekki B og vísaði því kröfu á hendur B frá dómi. Þá taldi héraðsdómur að kröfurnar væru ekki samrættar í skilningi 1. mgr. 19. gr. laganna þar eð krafa E á hendur S var reist á efndaskyldu samkvæmt kaupsamningi en á hendur F á sök starfsmanna hans og vísaði því kröfu á hendur F frá dómi. Niðurstaða héraðsdóms hvað varðar B var staðfest með vísan til forsendna. Hvað varðar F féllst Hæstiréttur á með héraðsdómi að ákvæði 3. mgr. 19. gr. laganna girtu ekki fyrir málsókn gegn F en taldi hins vegar að skilyrði 1. mgr. greinarinnar væru fyrir hendi til að sækja B og F í sama máli. Breytti engu þar um þó kröfur á hendur einum þeirra væru reistar á efndaskyldu en sök gagnvart öðrum. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi hvað varðar F og lagt fyrir dómara að taka þann þátt málsins til efnismeðferðar.