Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Baldvin Reyr Gunnarssyni (
Bjarni Hólmar Einarsson hdl)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og brot gegn lögum um lögskráningu sjómanna.
Halldór Jón Andersen (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
gegn
Vinnslustöðinni hf, Sjómenn. Ráðningarsamningur. Ávana-, fíkniefni. Brottrekstur úr starfi, Í febrúar, 2013 var H, sem gegndi stöðu 1. stýrimanns á tilgreindu skipi V hf., látinn, undirgangast vímuefnapróf eftir komu skipsins til landsins. Í þvagsýninu, greindist tetrahýdrókannabínólsýra og var sú niðurstaða staðfest af, Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. H var umsvifalaust sagt upp starfi, sínu og höfðaði hann í kjölfarið mál gegn V hf. til heimtu skaðabóta. Talið var, að H hefði mátt vera fyllilega ljóst hverju það varðaði ef reglur V hf. um, vímuefnalausan vinnustað yrðu brotnar, en hann hafði gengist undir þessar, reglur ári áður með undirritun sinni. Þá hefði hann veitt samþykki sitt til, töku sýnisins, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd, meðferð persónuupplýsinga. Var því ekki fallist á með H að framangreint lyfjapróf, hefði falið í sér brot á friðhelgi einkalífs hans. Þar sem að ólögmætt ávana- og fíkniefni hafði mælst í þvagi H og með hliðsjón af ákvæðum 2. og 3. mgr, 238. gr. siglingalaga nr. 34/1985 hefði hann verið óhæfur til að stjórna og skipinu umrætt sinn. Var V hf. því sýknað af kröfum H (
Einar Þór Sverrisson hrl)
Í febrúar 2013 var H, sem gegndi stöðu 1. stýrimanns á tilgreindu skipi V hf., látinn undirgangast vímuefnapróf eftir komu skipsins til landsins. Í þvagsýninu greindist tetrahýdrókannabínólsýra og var sú niðurstaða staðfest af Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. H var umsvifalaust sagt upp starfi sínu og höfðaði hann í kjölfarið mál gegn V hf. til heimtu skaðabóta. Talið var að H hefði mátt vera fyllilega ljóst hverju það varðaði ef reglur V hf. um vímuefnalausan vinnustað yrðu brotnar, en hann hafði gengist undir þessar reglur ári áður með undirritun sinni. Þá hefði hann veitt samþykki sitt til töku sýnisins, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Var því ekki fallist á með H að framangreint lyfjapróf hefði falið í sér brot á friðhelgi einkalífs hans. Þar sem að ólögmætt ávana- og fíkniefni hafði mælst í þvagi H og með hliðsjón af ákvæðum 2. og 3. mgr. 238. gr. siglingalaga nr. 34/1985 hefði hann verið óhæfur til að stjórna skipinu umrætt sinn. Var V hf. því sýknað af kröfum H.
Ákærði sýknaður af broti gegn siglingalögum o.fl.
Skipstjórinn X var ákærður fyrir brot gegn áfengislögum nr. 75/1998, siglingalögum nr. 34/1985 og lögum nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með því að hafa verið undir áhrifum áfengis við stjórn skips er því var siglt til hafnar. Í dómi héraðsdóms, sem Hæstiréttur staðfesti með vísan til forsendna, segir meðal annars að ákærða og vitnum bæri saman um að ákærði hefði vikið af vakt klukkan hálf eitt eftir miðnætti umrætt sinn og 1. stýrimaður tekið við stjórn skipsins. Upplýst væri að ákærði hefði komið upp í brú skömmu áður en skipið kom til hafnar. Þá bar 1. stýrimaður að ákærði hefði sagt sér hvenær skipið kom að bryggjunni. Héraðsdómur taldi sannað að 1. stýrimaður hefði verið við stjórn skipsins þegar því var siglt til hafnar og að bryggju umrætt sinn. Vera ákærða í brúnni ein og sér ylli því ekki að hann tæki við stjórn skipsins, þrátt fyrir stöðu hans sem skipstjóra, og þyrfti því ekki að skera úr um það hvort hann hefði verið undir áhrifum áfengis eða ekki. Var ákærði sýknaður.
Ákæruvaldið (
Halla Bergþóra Björnsdóttir sýslumaður)
gegn
Jóhanni Kiesel (
Jónas Þór Jónasson hrl)
Stýrimaður sakfelldur fyrir brot á siglingalögum og alþjóðasiglingareglum með því að hafa siglt of nærri dráttarbát með pramma í eftirdragi þannig að árekstur varð. Auk refsingar var stýrimaðurinn sviptur skipstjórnarréttindum í þrjá mánuði.
Skipstjóri sýknaður af ákæru fyrir að stjórna skipi undir áhrifum áfengis.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Guðgeiri Braga Ingimarssyni
Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn siglingalögum.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Jónasi Garðarssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
J var sakfelldur fyrir að hafa aðfararnótt 10. september 2005, sem skipstjóri skemmtibátsins Hörpu á siglingu með fjóra farþega, verið undir áhrifum áfengis við stjórn bátsins og ekki haft gát á siglingaleiðinni er siglt var í næturmyrkri og slæmu skyggni og hafa þannig með stórfelldri vanrækslu í skipstjórastarfi orðið valdur að því að báturinn steytti á Skarfaskeri með þeim afleiðingum að farþeginn X lést og farþeginn Y hlaut verulega áverka. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa ekki gert ráðstafanir til bjargar farþegum eftir að stórlega laskaður báturinn losnaði af skerinu um 20 mínútum eftir ásiglinguna, hvorki leitað aðstoðar björgunarliða né siglt skemmstu leið til lands, heldur tekið stefnu austur Viðeyjarsund þar sem bátnum hvolfdi skömmu síðar með þeim afleiðingum að farþeginn Z drukknaði en Y hlaut ofkælingu. Voru brot ákærða heimfærð undir 215. gr. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk 2. mgr. 6. gr., 11. gr., 1. mgr. 7. gr., sbr. 239. gr., 1. mgr. og 2. mgr. 238. gr. siglingarlaga nr. 34/1985. Fyrir Hæstarétt var lögð fram matsgerð tveggja lækna sem töldu að J hefði verið ófær um að hugsa rökrétt eða taka fulla ábyrgð á gerðum sínum í kjölfar ásiglingarinnar. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að matsmenn hafi ekki getað stutt niðurstöðu sína við beina skoðun eða rannsóknir á ákærða, enda hafi þeim verið falið að leggja mat á mjög skammvinnt tímabundið andlegt ástand hans eftir slysið, sem varð hálfu öðru ári áður en matið fór fram. Rýri þetta sjálfstætt gildi matsgerðarinnar mjög. Ekki þótti af gögnum málsins unnt að draga þá ályktun að J hefði verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum eftir ásiglinguna, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga, eða að hann hefði orðið fyrir slíkri truflun að 16. gr. laganna ætti við. Var niðurstaða héraðsdóms um 3 ára fangelsisrefsingu J staðfest. Þá var J dæmdur til greiðslu miskabóta tilhanda eftirlifandi foreldrum og börnum X og Z.