Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vestfjarða

Mál nr. S-1/2008:

S-1/2008:

Ákæruvaldið

(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)

gegn

Guðgeiri Braga Ingimarssyni

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Siglingar.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot gegn siglingalögum.

Mál þetta, sem dómtekið var 6. febrúar sl., höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum með ákæru 4. janúar 2008 á hendur ákærða, Guðgeiri Braga Ingimarssyni, kt. ..., Túngötu 4, Sandgerði; „fyrir brot gegn siglingalögum, með því að hafa þriðjudaginn 17. júlí 2007, sem skipstjóri einn í áhöfn m/b Elínar Kristínar GK-83, sknr. 7423, 5,9 brúttórúmlesta fiskiskips með 140 kW vél, með yfirsjónum og vanrækslu orðið valdur að árekstri skipsins við m/b Margréti ÍS-5, sknr. 6129, 2,2 brúttórúmlesta fiskiskip með 26 kW vél, í góðu skyggni á stað 65°57.539 N og 023°58.205 V 4-5 sjómílur úti fyrir Dýrafirði með því að hafa vanrækt að fylgjast með siglingu m/b Elínar Kristínar í norðurátt, því ekki gætt að skyldum sínum sem skipstjóri með því að sjá til þess að skipinu væri stjórnað og með það farið í samræmi við góðar venjur og kunnáttu í siglingum og sjómennsku, með þeim afleiðingum að skipið sigldi á fiskiskipið Margréti ÍS-5, sknr. 6129, þar sem það var að veiðum og lét reka, en m/b Margrét sökk til hálfs og mannbjörg varð.

Telst þetta varða við 1. mgr. 238. gr., sbr. 1. mgr. 7. gr. siglingalaga nr. 34/1985, sbr. 2. gr. l.nr. 101/2006, sbr. 5. og 18. gr. alþjóðareglna til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, frá 1972.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

I.

Samkvæmt framlögðum rannsóknargögnum barst lögreglunni á Vestfjörðum tilkynning frá Landhelgisgæslunni, þriðjudaginn 17. júlí 2007, laust eftir kl. 19:30, þess efnis að tveir bátar, Elín Kristín GK-83 og Margrét ÍS-5, hefðu rekist á út af Vestfjörðum. Kom fram í tilkynningunni að verið væri að draga þann síðarnefnda, mikið skemmdan, til hafnar á Þingeyri. Elín Kristín GK-83 var hins vegar sögð á leið til Suðureyrar.

Síðar um kvöldið hitti lögregla skipstjóra Elínar Kristínar GK-83, ákærða í máli þessu, fyrir á Suðureyri. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu mun ákærði hafa tjáð lögreglu að hann hefði verið á leið frá Sandgerði til Suðureyrar. Hefði hann siglt án hvíldar sem leið lá frá Sandgerði og ekki orðið var við Margréti ÍS-5 fyrr en bátur hans lenti á henni.

Skýrsla var tekin af ákærða hjá lögreglu vegna málsins daginn eftir að atvik gerðust. Skýrði ákærði svo frá að hann hefði lagt af stað á Elínu Kristínu GK-83 frá Sandgerði um kl. 00:30, aðfaranótt 17. júlí 2007, og átt eftir um það bil tvo tíma til hafnar á Suðureyri er áreksturinn varð. Hann hefði þá setið í skipstjórnarstól inni í stýrishúsi bátsins. Sjálfstýringu bátsins sagði ákærði hafa verið virka og hún tengd kompás. Þá hefðu siglingaljós bátsins verið tendruð, þ.e. toppljós, skutljós og landþernur. Veðurskilyrði á slysstað voru að sögn ákærða góð, vindur suðvestan 2-3 m/sek, hálfskýjað og sól á lofti. Ölduhæð kvað hann hafa verið á bilinu 0,3 til 0,5 og sjór því nánast verið sléttur.

Um slysið sjálft er bókað eftir ákærða í skýrslu lögreglu: „Bragi segist ekki geta gefið skýringu á þessu slysi. Hann segist hafa verið uppi, vakandi og verið að horfa í kringum sig. Bragi segir það óskiljanlegt hvernig stóð á þessu slysi. Hann segist ekki með nokkru móti geta gefið skýringu á því hvort hinn báturinn, mb. Margrét hafi verið á siglingu eða á reki. Bragi segist aldrei hafa orðið var við bátinn, þrátt fyrir það að hann hafi verið uppi við og verið að horfa í kringum sig.“

Þennan sama dag var tekin skýrsla af skipstjóra Margrétar ÍS-5, Sigurði Jónssyni, hjá lögreglu. Hann kvaðst hafa haldið til veiða frá Þingeyri upp úr kl. 07:00 hinn 17. júlí 2007. Veður sagði Sigurður hafa verið þokkalegt þennan dag, vestan gola u.þ.b. 2 m/sek og vel bjart er leið á daginn. Um sjólag bar hann að mild kvika hefði verið.

Slysið áleit Sigurður hafa átt sér stað um kl. 18:00. Hann hefði verið nýbúinn að „kippa“, veiðarfærin verið úti og dautt á aðalvél bátsins. Hann hefði þá séð bát koma siglandi og gert sér grein fyrir því að ekki væri allt með feldu. Bullandi lens hefði verið hjá hinum bátnum, hann skorið sig mjög mikið á lensinu. Sigurður kvaðst strax hafa farið inn í stýrishús bátsins til að ræsa aðalvélina og verið að leggja höndina á kveikjuláslykilinn þegar báturinn hefði skollið á Margéti. Sigurður sagði þetta hafa gerst mjög snögglega og hann því ekki með nokkru móti getað komið í veg fyrir áreksturinn.

Fram kemur í frumskýrslu lögreglu að ekkert tjón hafi verið að sjá á Elínu Kristínu GK-83 eftir áreksturinn utan rispu á stefni bátsins. Framlagðar ljósmyndir lögreglu af bátnum samræmast þessari lýsingu. Á ljósmyndum af Margréti ÍS-5 má hins vegar sjá tölvuverða ákomu á stjórnborðshlið bátsins.

II.

Fyrirkall í máli þessu var gefið út 8. janúar 2008 og birt fyrir ákærða 11. sama mánaðar. Við þingfestingu málsins 6. febrúar sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.

Með vísan til áðurgreindrar lagagreinar þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans, enda fer sú niðurstaða ekki í bága við gögn málsins, sbr. það sem rakið er í kafla I hér að framan. Brot ákærða telst því sannað og varðar það við 1. mgr. 238. gr., sbr. 1. mgr. 7. gr., siglingalaga nr. 34/1985, sbr. 2. gr. laga nr. 101/2006.

III.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi sem áhrif hefur á ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða þykir að broti hans virtu og svo sem kröfugerð ákæruvalds er háttað hæfilega ákveðin 200.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjórtán daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri máls þessa.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Guðgeir Bragi Ingimarsson, greiði 200.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi fjórtán daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Kristinn Halldórsson