Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
10 dómar fundust
Lykilorð: Reikningsviðskipti
Stefnandi höfðaði málið til innheimtu skuldar samkvæmt reikningi. Stefndi var sýknaður þar sem talið var að skuldin hefði fallið niður með samningi milli aðila
Fallist var á kröfu stefnanda um greiðslu samkvæmt reikningi vegna uppsetningar ljósaskiltis o.fl.
Fallist að hluta á greiðsluskyldu stefnda vegna veittrar þjónustu stefnanda vegna rafrænnar skráningar og vörslu skuldabréfs.
Stefndi sýknaður sökum aðildarskorts stefnanda.
Stefnandi krafði stefnda um fjölda reikninga vegna vinnu og efnistúttekta allt frá árinu 2017. Var stefndi sýknaður, m.a. vegna fyrningar, tómlætis eða sönnunarskorts. Þá voru gerðar athugasemdir við málatilbúnað stefnanda sem krafði stefnda um fjölda reikninga sem þegar höfðu verið greiddir að fullu. Var stefnandi látinn bera málskostnað að fullu m.a. vegna þessa.
Stefnda var gert að greiða gjaldfallinn reikning vegna vörukaupa stefnda af stefnanda, en viðskiptasamband aðila reyndist ekki byggt á umboðssölusamningi. Gagnkröfur sem stefndi tefldi fram til lækkunar reiknings eða til sýknu þóttu ekki tækar til skuldajafnaðar við kröfu samkvæmt hinum gjaldfallna reikningi.
V ehf. samdi við H ehf. um leigu á starfsmönnum til byggingarvinnu. Ágreiningur reis með aðilum um fjárkröfu þrotabús H ehf. samkvæmt níu reikningum sem gefnir voru út á tímabilinu 6. maí til 12. júní 2020. Krafðist V ehf. að fjárkrafa þrotabús H ehf. yrði lækkuð verulega. Fyrir Landsrétti lækkaði þrotabú H ehf. kröfu sína um tilgreinda fjárhæð vegna ofrukkunar um 103 vinnustundir í janúarmánuði 2020. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að V ehf. hefði sannað að hann hefði keypt vinnuföt á 11 starfsmenn og að þrotabúi H ehf. bæri að greiða helming þess kostnaðar svo sem samningur V ehf. og H ehf. mælti fyrir um. Féllst rétturinn því á að lækka kröfu þrotabús H ehf. um tilgreinda fjárhæð. Að öðru leyti var ekki fallist á að lækka kröfu þrotabús H ehf. Var V ehf. dæmdur til að greiða þrotabúi H ehf. hina umkröfðu fjárhæð að teknu tilliti til fyrrnefndrar lækkunar auk dráttarvaxta og málskostnaðar en að frádreginni innborgun.
Fallist á kröfu stefnanda um að stefnda yrfði gert að greiða reikning vegna framkvæmda á fasteign.
K ehf. og H ehf. áttu í viðskiptasambandi um vikulega útgáfu bæjarblaðs frá febrúar 2007. Lá enginn skriflegur samningur að baki og greindi þá á um þóknun til H ehf. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að K ehf. hefði ekki greitt reikninga frá H ehf. frá desember 2008, heldur hefðu greiðslurnar yfirleitt staðið á heilu eða hálfu hundraði þúsunda króna. Ekki yrði ráðið að H ehf. hefði gert athugasemd við það fyrr en á árinu 2013 en greiðslur frá K ehf. hefðu eftir það samt sem áður haldið áfram með óbreyttu sniði. Mátti H ehf. af því ráða að K ehf. liti svo á að í greiðslum sínum fælist fullnægjandi greiðsla fyrir þjónustu H ehf. Þá hefði H ehf. ekki sett fram skýra kröfu um greiðslu viðskiptaskuldarinnar fyrr en með bréfi árið 2016 og ekki höfðað mál vegna greiðslunnar fyrr en einu og hálfu ári síðar. Með vísan til framangreinds hefði H ehf. sýnt af sér slíkt tómlæti að krafa hans teldist niður fallin.
Þ, sem um árabil hafði verið í viðskiptasambandi við K og forvera þess, krafðist greiðslu tveggja reikninga, en K krafðist lækkunar með vísan til þess að Þ stæði í skuld við félagið. Með hliðsjón af framlögðum viðskiptayfirlitum var á þetta fallist með K og félaginu gert að greiða Þ mismuninn.