Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Rannsóknaraðgerðir
Sakfellt fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot sem laut að vörslum og framleiðslu fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Einnig sakfellt og sýknað að hluta af ákæru um peningaþvætti. Frávísunarkröfum hafnað. Fíkniefni og búnaður til framleiðslu fíkniefna gerður upptækur. Fjármunir voru að hluta gerðir upptækir en að hluta var upptökukröfum hafnað. Sakarkostnaður var að hluta felldur á ákærðu og hluta á ríkissjóð.
Fallist var á að stefnandi ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana á hlutlægum bótagrundvelli, en ekki var fallist á sök sem bótagrundvöll í málinu. Þá var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á orsakatengsl milli aðgerða lögreglu og fjártjóns vegna atvinnumissis og var skaðabótakröfu hans því hafnað. Fallist var á að stefnandi ætti rétt til miskabóta úr hendi íslenska ríkisins vegna umfangsmikilla rannsóknaraðgerða og þvingunarráðstafana á hlutlægum bótagrundvelli, en ekki var fallist á sök sem bótagrundvöll í málinu. Þá var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á orsakatengsl milli aðgerða lögreglu og fjártjóns vegna atvinnumissis og var skaðabótakröfu hans því hafnað.
Stefndi er sýknaður af öllum kröfum stefnanda þar sem stefnandi á ekki lögvarinn rétt til skaðabóta vegna atvika þeirra er áttu sér stað á tímabilinu 23. desember 1975 og þar til reynslulausn hans lauk.