Ákærðu sýknaðir af broti gegn lögum um umgengni við nytjastofna sjávar
Ákæruvaldið Sigurður Hólmar Kristjánsson (
Sigurður Hólmar Kristjánsson ákæruvaldið)
gegn
A og B ehf (
Stefán Ólafsson lögmaður)
Ákærðu sýknaðir af broti gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar
Hafnað var kröfu stefnenda um endurgreiðslu sérstaks veiðigjalds sem lagt var á úthafsrækjuafla skipa þeirra fiskveiðiárið 2012/2013, samkvæmt a. lið bráðabirgðaákvæði I í lögum nr. 74/2012, um veiðigjöld. Ekki var fallist á þá málsástæðu að skattheimtan væri ólögmæt, í andstöðu við nánar greind ákvæði stjórnarskrár eða að um ólögmætt framsal skattlagningarvalds væri að ræða.
Ákæruvaldið (
Kristján Óskar Ásvaldsson fulltrúi)
gegn
Alberti Má Eggertssyni og Erlendi Guðmari Gíslasyni og Haraldi Árna Haraldssyni (
Hilmar Baldursson hdl) og
Hlyni Aðalsteinssyni (
Skúli Bjarnason hrl)
Löggiltur vigtarmaður sakfelldur fyrir að hafa ekki vegið réttilega allan afla tveggja báta sem færður var á hafnarvogina og skráð rangar áskildar upplýsingar um veginn afla í Gagna- og aflaskráningarkerfi Fiskistofu og löndunarhafna. Einnig var framkvæmdastjóri og vinnslustjóri hjá einkahlutafélagi sakfelldur fyrir að hafa, í framhaldi af brotum hins löggilta vigtarmanns, fengið til ráðstöfunar í fiskvinnslu félagsins afla sem var ekki veginn réttilega og ranglega skráður í GAFL og ekki gengið úr skugga um að hinn viðtekni afli hefði verið veginn hverju sinni samkvæmt gildandi reglum um vigtun sjávarafla. Þá voru tveir skipstjórar sakfelldir fyrir að hafa vanrækt að færa áskildar upplýsingar um afla í afladagbók báta sinna.
Ákærðu sakfelldir fyrir brot gegn reglum um stjórn fiskveiða.
Ákæruvaldið (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson ftr)
gegn
Hólmgrími S Sigvaldasyni, Sæmundi S Skarphéðinssyni, Kristini Sörensen, HSS Fiskverkun ehf og Grímsnesi ehf (
Hilmar Baldursson hdl)
Ákærðu dæmdir til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla lögum stjórn fiskveiða og reglugerð um afladagbækur.
Fiskvinnslufyrirtæki sektað fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar.
Ákæruvaldið (
Björn Hrafnkelsson fulltrúi)
gegn
Erni Steinar Viggóssyni og X (
Guðmundur Ágústsson hrl)
Karlmaður sýknaður af broti gegn lögum um nytjastofna sjávar
Ákærðu dæmdir í sekt fyrir að halda fiskiskipi til veiða án þess að hafa til þess nægan kvóta.
Stefnandi krafðist skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hafði verið notað rétt viðmiðunartímabil við úthlutun aflaheimilda í skötusel fiskveiðiárin 2001/2002 og 2002/2003. Fallist var á kröfuna og dæmt að íslenska ríkið skyldi greiða stefnanda skaðabætur.
H, löggiltur vigtarmaður, og F, útgerðarfélag, sakfelld fyrir brot gegn l. nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og rgl. nr. 224/2006 um vigtun og skráningu sjávarafla, með því að draga 5% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í stað 3%, sem heimilt er. H var einnig dæmdur fyrir skjalfals með því að hafa ranglega skráð hlýra á vigtarnótu sem 603 kg af aflanum í stað 63 kg og ranglega skráð lægri þyngd á landaðan steinbít sem því nam. Refsing H var ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi og refsing F sekt að fjárhæð 100.000 krónur.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Níels Adolf Ársælssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Skipstjórinn N var sakfelldur fyrir brot gegn 2. gr. laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar, eins og sú grein var orðuð er brotið var framið, svo og 5. gr. og 6. gr. sömu laga, með því að hafa ekki hirt, landað, né látið vega allan afla skipsins. Þótti refsing N hæfilega ákveðin 1.000.000 króna sekt til ríkissjóðs.